Morgunblaðið - 13.07.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
25
Tilvaldarí gróðurhús, glerskála, skrifstofur og híbýli.
Vent-Axía er leiðandi í loftræsitækni.
Veitum tæknilega ráðgjöf við val á loftræsiviftum
Þekking Reynsla Þjónusta
_Einkaumboð á íslandi
Suðurlandsbraut 8. 128 Reykjavik
Sími: 91-84670.
Reuter
Andreas Papandreou Grikklandsforseti sést hér ræða við Svíann
Ulf Lars Axel Johansson, en hann var einn þeirra, sem særðust í
árásinni.
Atburðarásin:
Þilfarið var alelda
... þetta var helvítí
Aþenu, Reuter.
LÝSINGAR farþega um borð í ferjunni á hryðjuverkinu voru ófagrar:
„Byssumennirnir eltu okkur þilfar af þilfari og hrópuðu vígorð á
máli, sem ég held að hafi verið arabíska. Þeir hentu handsprengjum
og skutu af vélbyssum inn í manngrúann. Svo kviknaði í skipinu ...
ég veit ekki hvernig martröðinni lauk,“ sagði einn farþeganna. David
Scot, Bandaríkjamaður á nærstöddu skipi, sem kom til hjálpar lýsti
þessu svo í samtali við Reuters-tréttastofuna: „Ég sá fólk henda sér í
hafið í ofboði. Lítil börn líka. Þilfar skipsins var alelda ... þetta var
eitt helvíti.“
Hryðjuverkamennirnir komu um
borð í skipið í Aegina og átti það
talsverða siglingu eftir til Piraeus,
hinnar fomu hafnarborgar Aþenu,
þegar þeir létu til skarar skriða.
Drógu þeir upp vélbyssur úr pússi
sínu og skutu á allt sem hreyfðist.
„Ég sá einn þeirra draga upp vél-
byssu og hefja skothríð á mann-
þröngina. Annar hóf að kasta hand-
sprengjum og þá greip alger skelfing
um sig,“ sagði einn þeirra, sem um
borð voru. „Fólk stökk frá borði í
hrönnum og þilfarið logaði brátt allt.
Ég heyrði tvær sprengingar og um
leið var blóð hvert sem litið var.“
Að minnsta kosti 47 manns eru
enn í sjúkrahúsi, en 26 þeirra eru
Frakkar og átti að flytja þá heim til
Frakklands í gærkvöldi. Auk þeirra
iiggja 6 Norðurlandabúa sárir. Þjóð-
emi hinna látnu hefur ekki verið
gefíð upp, en bandaríska utanríkis-
ráðuneytið skýrði frá því að embætt-
ismönnum þar skyldist að enginn
Bandaríkjamaður hefði særst eða
látist í árásinni.
Vént-Axiaj C.
Sjálfvirkar loftræsiviftur
Dræm viðbrögð við
tíllögum Gorbatsjovs
London. Reuter.
RÁÐAMENN í flestum ríkjum
Atlantshafsbandalagsins vísuðu í
gær á bug tillögum sem Mikhaíl
S. Gorbatsjov kynnti í Póllandi á
mánudag varðandi fækkun hefð-
bundinna vopna og fund leiðtoga
Evrópurikja. Kváðust menn al-
mennt líta svo á að tillögur Sovét-
leiðtogans væru óraunhæfar og
til þess fallnar að hafa áhrif á
Manntjón
í flóðum
í Texas
San Antonio, Texas. Reuter.
FIMM manns létu lífið í flóðum
í Texas sem komu í kjölfar
úrhellisrigningar. Undanfarið
hafa þó miklir þurrkar hijáð
íbúana.
Lík 14 ára drengs hefur fund-
ist en flóðalda í Guadalupe-ánni
hreif með sér flutningabíl sem
hann var farþegi í. Bílstjórinn er
ófundinn en annar farþegi í
bílnum bjargaðist.
Fjórir dmkknuðu þegar fjöl-
skylda frá Kalifomíu reyndi að
fara á skutbíl sínum yfir ána
Pecos. 47 ára gamall maður, sem
var farþegi í bílnum, bjargaði lífi
sínu með því halda dauðahaldi í
tré.
almenningálitið á Vesturlöndum.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti kvaðst þó telja hugmynd-
ir Gorbatsjovs „athyglisverðar“
en bætti við að jafn og gagn-
kvæmur niðurskurður hins hefð-
bundna herafla þjónaði einungis
hagsmunum ríkja Varsjárbanda-
lagsins.
Mitterrand kvaðst telja tillögu
Gorbatsjovs um samevrópskan leið-
togafund „áhugaverða“ en vildi
ekki láta uppi hvort hann væri
reiðubúinn að sitja slíka samkundu.
Sagði hann að svo virtist sem Gorb-
atsjov vildi með tillögu sinni um
niðurskurð hins hefðbundna herafla
reka fleyg á milli Bandaríkjamanna
og bandamanna þeirra í Evrópu og
lagði áherslu á að samkomulag um
þennan hluta heraflans þyrfti að
kveða á um meiri fækkun af hálfu
ríkja Varsjárbandalagsins, sem
nytu yfirburða á þessu sviði.
Embættismenn í höfuðstöðvum
Atlantshafsbandalagsins í Brussel
sögðu tillögur Sovétleiðtogans ekki
samræmast öryggishagsmunum
aðildarríkjanna og minntu á að í
Vínarborg færu nú fram umræður
milli ríkja austurs og vesturs um
dagskrá og verksvið ráðstefnu „um
stöðugleika á sviði hefðbundins
vígbúnaðar" frá Atlantshafi til Úr-
alfjalla. Þessar viðræður væru rétt-
ur vettvangur viðræðna um fækkun
hefðbundinna vopna.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, kvaðst geta tekið
undir tillöguna um samevrópskan
leiðtogafund en sagði að fyrst
þyrftu Vínarviðræðurnar að skila
árangri áður en slík fundahöld yrðu
raunhæf. Johan Jörgen Holst, varn-
armálaráðherra Noregs, kvaðst á
hinn bóginn telja að leiðtogafundur
Evrópuríkja gæti reynst gagnlegur.
Reuter
Míkhaíl S. Gorbatsjov ræðir við óbreytta pólska borgara í Kraká í gær.
Póllandsheimsókn Gorbatsjovs:
Steig fyrstur Sovétleið-
toga fæti inn í guðshús
Kraká. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, fór í gær, á öðr-
um degi Póllandsferðarinnar, til
suðurhluta landsins og kom þar
meðal annars á slóðir Vladimírs
Leníns. Gorbatsjov-hjónin fóru í
kirkju, sem kennd er við Maríu
mey, í borginn Kraká og er talið
að aldrei í sögu Sovétríkjanna
hafi leiðtogi ríkisins áður stigið
fæti sínum inn í guðshús.
Frá Varsjá fór Gorbatsjov til
Krakár og ók síðan þaðan upp í
Tatra-fjöll til bæjanna Bialy
Dunajec og Poronin þar sem Lenín
dvaldi í nokkra mánuði á árunum
1913-14. Tóku bæjarbúar vel á
móti þeim hjónum og færðu þeim
að gömlum sið brauð og salt.
Mesta athygli vakti þó kirkju-
ganga Gorbatsjov-hjónanna en þau
dvöldu um 15 mínútur í kirkjunni
og ræddu við presta og kirkjugesti.
Jan Szkoden biskup kvaðst telja
heimsókn þeirra hjóna táknræna
fyrir breytta afstöðu stjómvalda
gagnvart kristni og kirkju í ríkjun-
um austan járntjaldsins.
Að venju voru þau hjónin mjög
alúðleg og tóku fólk tali og fór
ekki á milli mála, að Jaruzelski,
ráðamaður í Póllandi, vildi ekki
vera neinn eftirbátur þeirra að
þessu leyti. I Poronin var mættur
hópur 200 útvalinna kommúnista
frá hugmyndafræðilegri uppeldis-
miðstöð í Kraká og sagði Gorb-
atsjov við þá, að í þau þijú ár, sem
hann hefði verið við stjómvölinn,
hefði mikið verið rætt um þá leið,
sem fara ætti í Sovétríkjunum.
„Mikilvægast af öllu er þó, að við
spyrjum sjálfa okkur hvort ákvarð-
anir okkar verði til að veikja sósíal-
ismann,“ sagði Gorbatsjov og bætti
því við, að mönnum hefðu orðið á
mikil mistök áður fyrr. „Nú get ég
þó sagt með sann, félagar, að við
erum á réttri leið.“
Pólska sjónvarpið hefur fylgst
vel með heimsókninni og sagði
fréttamaður þess í gær, að hún
væri í engu lík fyrri heimsóknum
kommúnistaleiðtoga og allir hirð-
siðir verið látnir lönd og leið.
Líbanon:
Þyrla Gemayels rakst
á háspennustreng
Beirut. Reuter.
FORSETI Líbanons, Amin
Gemayel, slapp ómeiddur, þegar
þyrla, sem hann stjórnaði, snerti
háspennustreng, að því er sagði
í tilkynningu, sem forsetaembæt-
tið sendi frá sér í gær.
Efni tilkynningarinnar kom ekki
heim við frásagnir sjónarvotta, sem
sögðu, að flugmaðurinn hefði misst
stjórn á vélinni og aðstoðarflugmað-
ur úr hemum orðið að nauðlenda
henni á akurlendi.
Sjónarvottar sögðu, að þyrlan,
sem er frönsk af gerðinni Puma,
hefði rásað til og frá yfir þorpinu
Maifouq, um 40 km norður af Beir-
ut, á laugardag og lent á háspennu-
streng. „Forsetinn var sannarlega
heppinn, því að það var nýbúið að
aftengja strenginn vegna raf-
magnsskömmtunar,“ sagði einn
þotpsbúa.
Oryggisyfirvöld sögðu enga
ástæðu hafa til að ætla, að skemmd-
arverk hefðu verið unnin á þyrlunni.