Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
ísafjörður
Blaðbera vantar víðsvegar um bæinn til
sumarafleysinga.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
94-3884.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla:
Að framhaldsskólanum á Húsavík vantar
kennara í íslensku og stærðfræði í fullar stöð-
ur og í þýsku og frönsku sem jafngildi heillar
stöðu.
Að Fjölbrautaskólanum í Keflavík vantar
kennara í vélritun. Um er að ræða hálfa
stöðu.
Við Myndlista- og handíðaskóla íslands er
staða fulltrúa á skrifstofu skólastjóra laus til
umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 20. júlí.
Menntamálaráðuneytið.
Organisti
Staða organista við Skálholtskirkju er hér
með auglýst til umsóknar. Starfið verður fullt
starf og skal organistinn hafa búsetu í Skál-
holti.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1988 en
stefnt er að ráðningu í starfið 1. janúar 1989.
Frekari upplýsingar veitir biskupsritari í síma
91-621500 og undirritaðir:
Guðmundur Óli Ólafsson, 98-68860, Páll
Skúlason, 98-68904, Sveinbjörn Finnsson,
91-54908.
Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar
Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður
félagsráðgjafa og forstöðumanns dagheimil-
isins Víðivalla rennur út þann 25. júlí nk.
Umsóknum ber að skila til félagsmálastjóra,
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar, Strand-
götu 4, 220 Hafnarfirði.
Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
Tollstjórinn f
Reykjavík auglýsir
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar nú þegar:
Staða aðstoðarlögfræðings í eftirstöðvadeild.
Staða fulltrúa í eftirstöðvadeild.
Störf við tölvuskráningu í tolladeild.
Frekari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
í síma 600447.
Tollstjórinn í Reykjavík,
Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, Reykjavík.
Féiagsmálastofnún Reykjavikurtoorgar'
iff Vonarstræti 4 — Sími 25500
Laus staða
í ellimáladeild
50% staða (gæti verið full staða til áramóta)
er nú laus til umsóknar.
Staðan er laus nú þegar og er tilskilin mennt-
un félagsráðgjafa eða sambærileg menntun.
Laun skv. kjarasamningum Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til 27. júlí.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna S. Gunn-
arsdóttir í síma 25500.
wm
Garðabær
Hjúkrunarfræðingar
Staða hjúkrunarfræðings við heilsugæsluna í
Garðabæ er hér með auglýst laus til umsókn-
ar. Starfið felst einkum í skólahjúkrun við Flata-
skóla í Garðabæ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn
Magnússon, yfirlæknir heilsugæslunnar í
Garðabæ, ásamt undirrituðum.
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst nk. Umsókn-
ir óskast sendar á bæjarskrifstofur Garðabæj-
ar, Sveinatungu við Vífilsstaðaveg.
Bæjarstjórinn í Garðabæ.
Frá grunnskólunum
á Akureyri
Næsta skólaár er fyrirhugað að bjóða áfram
upp á náms-, starfs- og jafnréttisfræðslu í
9. bekkjum grunnskólanna. Starf umsjónar-
manns með þessa fræðslu er laust til um-
sóknar.
Umsóknir sendist til skólafulltrúa bæjarins
fyrir 1. ágúst nk. Hann gefur einnig nánari
upplýsingar um starfið. Sími 96-21000.
Skólanefnd Akureyrar.
Vélsmiðja
- verkstjóri
Verkstjóri óskast í vélsmiðju á Akranesi.
Nýsmíði og alhliða viðgerðarþjónusta.
Umsóknir sendist til Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðju Akraness hf.
Umsóknum fylgi upplýsingar um aldur og
fyrri störf.
Skrifstofustarf
Starf skrifstofumanns við landlæknisemb-
ættið er laust til umsóknar frá og með 1.
september 1988.
Reynsla í almennum skrifstofustörfum er
nauðsynleg.
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrif-
stofu landlæknis, Laugavegi 116, 150
Reykjavík, fyrir 15. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu embættisins.
Landlæknir
Ritari
Við leitum að ritara í hlutastarf hjá útflutn-
ingsfyrirtæki. Starfið felst m.a. í ritvinnslu,
móttöku pantana, vörusendinga og gerð út-
flutningspappíra.
Starfið krefst góðrar kunnáttu í ofangreind-
um störfum og að auki að viðkomandi:
- Geti starfað sjálfstætt.
- Komi vel fyrir og sé lipur í umgengni.
- Hafi góða tungumálakunnáttu.
Vinnustaðurinn er ekki stór og starfið því fjöl-
breytt. Vinnustaðurinn er vel staðsettur. Ein-
göngu þeir, sem eru að leita að starfi til
lengri tíma, koma til greina. Æskilegt er að
viðkomandi hafi bíl til umráða.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
okkar og er þar svarað frekari fyrirspurnum.
Hannarr
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA
Síðumúla 1 108 Reykjavfk Sfmi687317
Rokstrarráðgjöf. Fjárfostlngamat. Skipulag vfnnuatafla.
Markaðsráðgjöf. Aætlanagerð. Framleiðahiatýrikerfi.
Tölvuþjónusta. Launakerfi. Stj6makipulago.fi.
Búnaðarbankinn,
Kringlunni
Óskum eftir duglegu og áreiðanlegu fólki til
framtíðarstarfa í nýtískulegu bankaútibúi
okkar í hjarta nýja miðbæjarins.
Um er að ræða bæði heilsdags- og hlutastörf.
Umsóknareyðublöð eru hjá starfsmanna-
stjóra, Austurstræti 5, 3ju hæð og hjá útibús-
stjóra í Kringluútibúi.
(Íbúnaðarbankinn
V /I / TRAUSTUR BANKI
Matreiðslumaður
Vinsælt veitingahús í Reykjavík óskar að ráða
matreiðslumannn sem fyrst. í boði er vellaun-
að starf hjá traustu fyrirtæki.
Upplýsingar um starfið verða gefnar í síma
91-31843 milli kl. 14 og 16 í dag og næstu
daga. Með allar umsóknir verður farið méð
sem trúnaðarmál.
Aðstoð óskast á
tannlæknastofu
í Austubænum frá og með 10. ágúst.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „T - 2252“.
Byggingameistari
getur bætt við sig verkefnum bæði úti og
inni. Skrifa upp á teikningar.
Upplýsingar í síma 73095 eftir kl. 18.00 á
kvöldin.
Matsmenn
Tveir matsmenn með löggildingu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu óskast á frystitogara.
Reynsla í sjómensku áskilin.
Upplýsingar í síma 95-4690.
Hárskeranemi
óskast á hársnyrtistofu í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 10619, eftir kl. 18.00.