Morgunblaðið - 13.07.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
um í gúmmíbátum.
Krakkarnir leika sér í minigolfi.
Á tjörninni gátu þeir yngfstu siglt
í gönguferð á stultum.
KÓPAVOGUR
Hlíðargarðshátíð
Fimmtudaginn 7. júlí var hin
árlega Hlíðargarðshátíð,
haldin í Hlíðargarði í Kópavogi.
Það er Vinnuskóli Kópavogs sem
stendur fyrir þessari hátíð og er
hún yfirleitt haldin á góðviðris-
degi í byijun júlí.
Yfírleitt eru engir skemmti-
kraftar kallaðir til heldur er þetta
nokkurs konar leikjahátíð þar
sem börn og fullorðnir koma
saman og skemmta sér og öðr-
um. Boðið er upp á ýmis leik-
tæki og á svæðinu er einnig
tívolíbás með öllu tilheyrandi.
Á fímmtudaginn var mjög
gott veður og margir komu til
að taka þátt í hátíðinni. í tjöm-
inni í garðinum gátu þeir yngstu
siglt um í gúmmíbátum og aðrir
fóru í minigolf, krikket eða bad-
minton. Það var grillað úti og
gengið um á stultum og allir virt-
ust skemmta sér hið besta.
Ágóði af hátíðinni hefur hing-
að til verið gefínn til góðgerðar-
starfsemi eða til að bæta aðstöð-
una í Hlíðargarði. Líklega mun
ágóði þessarar hátíðar fara í að
kaupa bekki í Hlíðargarð til þess
að fólk geti komið þangað og
fengið sér sæti á sólbjörtum degi.
HÓTEL KEFLAVÍK
Viðurkemimg frá breska flughemum
Keflavík. ____________________________
Sveitir úr breska flughemum
hafa gist reglubundið hjá okk-
ur undanfarin tvö ár og það var
okkur sannkölluð ánægja að fá við-
urkenningu af þessu tagi,“ sagði
Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel
Keflavík. Fyrir stuttu var hótelinu
veitt viðurkenning frá breska flug-
hernum fyrir framúrskarandi góða
þjónustu og gestrisni.
Nýlega var tekin í notkun lyfta
í hótelinu. Hefur umgjörð hennar
vakið mikla athygli og hafa fram-
leiðendur lyftunnar, sem eru vest-
ur-þýskir, óskað eftir að nota mynd-
ir af lyftunni og umgerð hennar í
auglýsingabæklinga fyrirtækisins.
Það voru þeir Steinþór Jónsson
hótelstjóri og faðir hans Jón W.
Magnússon sem hönnuðu útlit lyft-
unnar í samráði við starfsmenn
Bræðranna Ormsson sem sáu um
uppsetningu.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel Keflavík áisamt tveim starfs-
stúlkum hótelsins, þeim Önnu Gunnarsdóttur til vinstri og Aldísi
Garðarsdóttur með viðurkenningarskjalið frá breska flughernum.
- BB