Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
47
Enskir áhorfendur horfðu á
Önnu í forundran en hún gat
ekki annað en skellihlegið.
SUÐUR-AFRÍKA
I klausturskóla í Jóhannesarborg
Henrietta Karólína ásamt skólasystrum sínum í Belgravia-klausturskólanum. Þær dansa
og syngja við guðsþjónustu til heiðurs heilagri Katrínu frá Siena sem er verndardýrling-
ur skólans.
Hjónin Peter Ernst og Hildur Lárusdóttir
von Schilling hafa verið búsétt í Jóhann-
esarborg í Suður-Afríku í 14 ár. Upphaflega
fluttu þau þangað vegna þess að Peter bauðst
starf við stórfyrirtækið Siemens. Þau ætluðu
aðeins að vera þarna í nokkur ár en þeim líkar
dvölin svo vel að þau hafa ekki hug á að flytja.
Hildur Lárusdóttir von Schilling er íslensk
að uppruna en eiginmaður hennar, Peter
Emst, er danskur. Þau eiga dótturina Henri-
ettu Karólínu sem hefur stundað nám við
Belgravia-klausturskólann í Jóhannesarborg.
Belgravia-klausturskólinn er einkaskóli og
er þ.a.l. óháður settum reglum um kynþætti
nemenda, sem ríkisreknir skólar verða að
hlíta. Skólinn er ekki styrktur fjárhagslega
af ríkinu heldur standa nemendur straum af
öllum kostnaði með skólagjöldum.
í Belgravia-klausturskólanum eru 525 nem-
endur af mörgum kynþáttum. Árið 1985 fjölg-
aði nemendum um helming þegar svört börn
fengu inngöngu í skólann og nú eru þau 85%
af nemendum skólans.
Árið 1983 var Henrietta Karólína komin á
skólaaldur og varð Belgravia-skólinn fyrir
valinu vegna íjölbreyttrar kennslu sém ekki
var hægt að fá í nærliggjandi ríkisreknum
'skólum. Eftir að svörtum börnum fjölgaði við
skólann, tóku nokkrar hvítar fjölskyldur börn-
in sín úr skólanum af ótta við að gæði kennsl-
unnar yrðu ekki hin sömu. Foreldrar Henri-
ettu töldu hínsvegar að það væri gott fyrir
börn af ólíkum kynþáttum að kynnast, því að
það væri grundvöllur fyrir samvinnu í framtí-
ðinni. Reyndin er sú að börnunum kemur vel
saman og námið gengur vel hjá Henriettu
Karólínu.
ENGLAND
Ensk
Marylin
Monroe
IEnglandi verður mönnum nú
tíðrætt um hina konunglegu
Marylin Monroe sem sýndi á sér
fótleggina við Windsor-kastala um
daginn.
Það er engin önnur en Anna
prinsessa sem hefur hlotið þetta
viðurnefni. Hún var að horfa á póló-
leik og skyndilega kom vindhviða
og feykti pilsinu hennar upp fyrir
velsæmismörk. Anna prinsessa var
svo hlessa að hún gat ekki annað
en hlegið og flissað áður en hún
náði að toga pilsið niður á sinn stað.
Eins og vanalega lá lævís ljós-
myndari í leyni og náði myndum
af þessu neyðarlega atviki.
Eftir mikinn barning tókst
Önnu að hemja pilsið.
1989 árgerðirnar af MAZDA eru nú væntanlegar innan
skamms og þess vegna lækkum við verðið á síðustu
bílunum af árgerð 1988.
Dæmi um verð:
MAZDA121 L 3 dyra 1.1 I.......’.........................
MAZDA 323 LX 3 dyra 1.3 I...............................
MAZDA 323 LX 5 dyra 1.3 I...............................
MAZDA 323 GLX 5 dyra 1.5 I .............................
MAZDA 626 LX 4 dyra/vökvast. 1.8 I .....................
MAZDA 626 GLX 4 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I..............
MAZDA 626 LX 5 dyra sj.sk./vökvast. 1.8 I ..............
MAZDA 626 GLX 5 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I..............
MAZDA 626 GTI 2 dyra vökvast. álfelgur vinsk. og sóllúga .
Júlíverð Tilboðsverð nú
537.000 464.000
539.000 499.000
594.000 543.000
636.000 590.000
871.000 731.000
1.008.000 889.000
937.000 845.000
1.026.000 905.000
1.225.000 1.088.000
Þetta eru án efa bestu bílakaupin í dag. Tryggið ykkur
bíl strax, því aðeins er um takmarkað magn bíla að
ræða!
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SÍMI 68 12 99