Morgunblaðið - 13.07.1988, Síða 52
52
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
FOLK
■ GORDON Strachan hefur
framlengt samning sinn við Manc-
hester United um tvö ár. Orðróm-
ur var á kreiki um að hann væri á
mg förum frá félaginu.
Frá Strachan, sem er
BobHennessy 31 árs og skozkur
i Englandi landsliðsmaður,
segir fjölskyldu sína
una sér vel í Manchester.
■ TONY Coton, markvörður
Watford, vill fara frá félaginu.
Skozka félagið Aberdeen bauð 700
þús pund í hann en Watford hafn-
aði því tilboði. Talið er líklegt að
hann verði seldur á næstunni og
þá fyrir um það bil 800 þús pund.
■ GRAHAM Souness, stjóri
skozka liðsins Glasgow Rangers,
er á góðri leið með að afsanna að
Skotar séu einstaklega nízkir.
Hann virðist haldinn miklu kaup-
æði þegar leikmenn eru annars
vegar og hefur keypt marga
dýra leikmenn til liðsins frá Eng-
landi á undanförnum árum. Nú er
hann sagður vilja fá enska lands-
liðsbakvörðinn Gary Stevens frá-
Everton og er reiðubúinn að greiða
1 milljón punda fyrir hann. Það sem
styður, að Gary Stevens, sem er
26 ára, sé á förum, er að Everton
hefur áhuga á bakverðinum Neil
McDonald frá Newcastle.
■ WEST Hamvill kaupa Alan
Knight, varamarkvörð Glasgow
Celtic og hefur verið talað um
kaupverðið 300 þús. pund í því sam-
bandi. Knight, sem er 23 ára, er
nú aðalmarkvörður norður-írska
landsliðsins í knattspyrnu.
I MIKILL launamunur er við
lýði í ensku knattspymunni. 75%
leikmanna í deildunum §órum fá
aðeins 250-300 pund á viku (jafn-
gildi 20-24 þús ísl. kr.), 15% þeirra
hafa um 800 pund en 10% þeirra
meira en það. Aðeins 20 leikmenn
hafa yfír 2000 pund á viku.
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
Senna saxar á forskot Prost
McLaren-liðið sleppir ekki
taki sínu á sigursætinu í
Formula 1 mótunum. Á
sunnudaginn vann Brasilíu-
maðurinn Ayrton Senna
McLaren í breska kappakstr-
inum á og tryggði liðinu átt-
unda sigurinn í röð. Hann
hefur unnið ífjórum mótum,
en helsti keppinautur hans
um heimsmeistaratitilinn,
Frakkinn Alin Prost, hefur
gert það líka og aka þeir í
sama liði. Prost komst ekki í
mark f breska kappakstrinum
vegna bilunnar og þokaðist
Senna því nær honum í stiga-
keppninni um titilinn.
Urhellisrigning á Silverstone-
brautinni gerði það að verk-
um að ökumenn áttu í mestum
vandræðum með að hafa stjórn á
bílunum, þó að
Gunnlaugur þeir notuðu gróf-
Rögnvaldsson munstruð dekk
skrifar undir bílana. Hál
brautin þýddi líka
Reuter
Ayrton Senna og Nigel Mansell beijast með kampavínsflöskumunum, en Senna hafði betur á brautinni og vann
sinn fjórða sigur á árinu. Mansell lauk hinsvegar keppni í fyrsta skipti á þessu ári og náði öðru sæti.
Tvívegls þeytist ítalinn AUesandro Nanini útaf, en náði samt í þriðja
sætið á Benetton.
að öflugustu bílarnir höfðu ekki
sömu yfirburði og venjulega, spó-
luðu aukaaflinu til einskis. Ferr-
ari-ökumennirnir Gergard Berger
og Michele Alboreto voru fyrstir
af stað í rásmarkinu, en Senna
var ekki lengi að losa sig við þá,
enda biluðu Ferrari-bílarnir fljót-
lega og fóru hægt yfir. Bretinn
Nigel Mansell, sem fer til Ferrari
á næsta ári, gekk loks vel í keppni,
hann náði öðru sqeti á Williams-
bíl.
Þetta var fyrsta keppnin sem
hann lauk á þessu keppnistíma-
bili, en hann varð í öðru sæti í
heimsmeistarakeppninni í fyrra.
Italinn Allessabdro Nanini var
lánsamur að ná þriðja sæti eftir
að hafa henst útaf í tvígang, eftir
að hafa misst stjórn á bílnum í
rigningunni. Hann þykir mikið
ökumannsefni og ekur hjá Benet-
ton-liðinu.
Lokastaðan í breska kappakstrinum
aktími klst.
Ayrton Senna McLaren 1.33.16.387
Nigel Mansell Williams 1.37.42.456
Allesandro Nanini Benetton 1.38.04.978
Maurico Gugelmin March 1.34.40.379
Nelson Piquet, Lotus 1 hring á eftir
Dereck Warwick Arrows 1 hring á eftir
Staðan í keppni ökumanna
Alain Prost, Frakklandi 54
Ayrton Senna, Brasilíu 48
Gerhard Berger, Austurriki 21
Nelson Piquet, Brasilíu 15
Michele Alboreto, ftaliu 13
DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON
Samskipti dómara og línuvarða
Það er mjög algengt að áhorf-
endur og leikmenn geri hróp
að línuvörðum í leik er dómari
dæmir ekki á brot sem á sér stað,
að mati áhorfenda og jafnvel leik-
manna. Hvort sem um brot eða
ekki er um að ræða, þá liggur oft
ástæða fyrir því að línuvörður
gefur ekki merki um brot. Þá á
ég við það, að fyrirmæli dómara
tii línuvarða eru oft mjög misjöfn.
Sumir dómarar vilja að línuverðir
sínir gefi merki um öll brot sem
þeir sjá, en aðrir dómarar gefa
sínum línuvörðum ákveðin fyrir-
mæli um hvernig þeir eigi að
starfa.
Oft eru þau fyrirmæli þannig, að
Iínuverðir gefí merki um brot sem
framin eru nálægtþeim og öll vel
falin brot sem eru framin með
lúmskum hætti. Nær undantekn-
ingarlaust fá línuverðir þau fyrir-
mæli, að gefa merki um brot sem
eiga sér stað inn í vítatcignum,
nema atvik sem eiga sér stað er
leikmenn lenda í samstuði og
sóknarleikmaður feilur eftir slíkt
samstuð, eins er sóknarmaður
fellur eftir baráttu við vamar-
mann. Þetta eru atvik sem dómar-
inn vill meta sjálfur og það vita
iínuverðir og gefa þess vegna
ekki merki. En þá taka áhorfend-
ur og leikmenn við sér og láta
linuvörðinn hafa það óþvegið. Oft
kemur það líka fyrir er dómari
missir af broti, að þá eru gerð
hróp að línuverðinum, þó hann sé
í miklu meiri fjarlægð frá brot
staðnum en dómarinn.
Á Bretlandseyjum starfa línuverð-
ir aðeins sem slíkir þar til þeir fá
tækifæri sem dómarar. Það sést
því miður of mikið, að línuverðir
í ensku knattspyrnunni reyni
hreinlga að taka stjórnina af dóm-
aranum með óþarfa merkjagjöf-
uni. Þegar slíkt kemur upp er
dómarinn ekki alltaf sammála
línuverði sínum og verður þá að
standa í því að veifa merki línu-
varðar niður. Þegar sú staða kem-
ur upp liggur það í augum uppi
að virðingin fyrir dómaratríóinu
tapast oftast nær.
Ég get sagt það með sanni, að
samstarf dómara og línuvarða í
íslenskri knattspymu er mjög
gott. Það er að segja, þar sem
ákveðin fyrirmæli eru gefin fyrir
leik og eftir þeim farið hvort sem
leikmönnum eða áhorfendum líkar
betur eða verr.
í lokin ætla ég að láta tíu léttvæg
„boðorð“ fylgja fyrir knattspyrnu-
dómara:
1. Láttu ekki sjá þig með (flcraugu
eða heyrnartæki.
2. Gerðu línuverðinum það ljóst að
það ert þú sem hefur völdin - bentu
aldrei i sömu átt og hann.
3. Gættu þess að vingast við fyrirlið-
ana fyrir leikinn - þú gætir þarfnast
aðstoðar þeirra seinna.
4. Ef þú er ekki viss um hver á innk-
astið/frisparkið, dæmdu þá heimalið-
inu í hag.
5. Hugsaðu áður en þú flautar.
6. Viðurkenndu aldrei mistök.
7. Gættu þess að hafa sterka teygju
í stuttbuxnastrengnum.
8. Kannaðu fyrir leikinn hvort ekki
séu bakdyr á vallarhúsinu.
9. Ef sjónvarpið er á staðnum, brostu
og reyndu ávallt að vera nálægt bolt-
anum.
10. Gættu þess að ekki séu nein vitni
til staðar þegar þú segir leikmönnum
og/eða þjálfurum álit þitt á þeim.
Þessa léttu punkta er að fínna í
bókinni: Jimmy Greaves with
Norman Giller - The book of foot-
ball lists.
Með dómarakveðju
Guðmundur Haraldsson
KNATTSPYRNA / NOREGUR
„Gerir frfið
okkar að martröð“
- sagði Teitur Þórðarson eftir að Brann
tapaði fyrir neðsta liði deildarinnar
TÍUNDA umferð norsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu fór
fram á sunnudaginn. Þetta var
jafnframt síðasta umferð fyrir
sumarfrí leikmanna. Brann lék
á útivelli og mátti þola tap, 2:0,
fyrir neðsta liði deildarinnar,
Strömmen. Mossgerði jafn-
tefli við Lilleström.
Ífyrri hálfleik í leik Strömmen
og Brann var leikurinn jafn en
sóknarmenn Brann skutu hvað eftir
annað lélegum langskotum að
marki Strömmen
sem ýmist enduðu
hjá áhorfendum eða
í höndum markvarð-
arins. Brann breytti
um leikaðferð í seinni hálfleik,
hættu langskotunum og reyndu
þess í stað að spila sig inn að mark-
inu. Sóknarmenn Brann misnotuðu
hvert dauðafærið á fætur öðru.
Frá
Sigurjóni
Einarssyní
ÍNoregi
Strömmen, sem annars spilaði í
fullu samræmi við stöðu sína í deild-
inni, fór þó betur með færi sín.
Knut Meiningen skoraði tvívegis
fyrir Strömmen og gerði úti um
vonir Brann. Brann fer því í fríið
með bontninn á hælunum.
Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, lét
mörg þung orð falla að leik loknum.
„Þessi leikur var sakmmarlegur að
okkar hálfu og þetta gerir fríið
okkar að martröð."
Forráðamenn Brann hyggjast reyna
að bjarga liðinu á örlagastundu og
kaupa tvo sókndjarfa leikmenn
„Við getum ekki setið með hendur
í vösum og horft á Brann liðið
hrynja eins og spilaborg," sagði
Johan Reigstad, stjórnarmaður
Brann.
I Moss er öllu léttara hljóð í mönn-
um, enda liðið í toppbaráttunni.
Moss fékk Lilleström, efsta lið
deildarinnar, í heimsókn og lauk
leiknum með jafntefli, 1:1.
Jan Kristjan Fjærestad skoraði
fyrst fyrir Moss á 23. mín. en að-
eins átta mínútum síðar jafnaði Jan
Fjortoft fyrir Lilleström.
í seinni hálfleik fóru bæði liðin var-
lega í sakirnar. Gunnar átti góðan
leik og heldur Moss þriðja sætinu
í deildinni eftir jafnteflið.
Á sunnudag var dregið í 4. umferð
bikarkeppninnar og drógst Moss
gegn nágrönnum sínum, Dröbak-
Frogn úr 2. deild, og Brann leikur
við Strindheim einnig úr 2. deild.
Leikið verður 3. ágúst.
Önnur úrslit á sunnudaginn:
Tromsö-Rosenborg....................1:2
Volleringen-Sogndal.................1:1
Bryne-Djerv 1919..................-.5:2
Konsvinger-Molde....................0:0