Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 Varði doktorsritgerð við heimspekideild HI DOKTORSVÓRN fór fram við heimspekideild Háskóla íslands laug-ardaginn 2. júlí síðastliðinn. Þá varði Sverrir Tómasson cand. mag. ritgerð sina „Formálar íslenskra sagnaritara á miðöld- um“, sem Stofnun Árna Magnús- sonar hefur gefið út. Andmæl- endur af hálfu deildarinnar voru þeir dr. Bjarni Guðnason próf- essor og dr. Jakob Benediktsson fyrrverandi forstöðumaður Orðabókar Háskólans. Doktors- vörnin fór fram í stofu 101 í Odda við húsfylli og stóð í tæp- lega fjórar klukkustundir. Deiid- arforseti heimspekideildar, dr. Sveinbjörn Rafnsson, stjórnaði athöfninni. í riti sínu kannar Sverrir þau áhrif sem nokkur hluti íslenskra fombókmennta hefur orðið fyrir af erlendum menntum, einkum guð- fræði og mælskulist. Hann bendir á, hvemig mælskulistin mótaði skoðanir rithöfunda á formgerð verka og stíl á miðöldum og jafnvel alit fram á 19. öld, og vitneskju um viðhorf höfundanna sækir hann í formála þeirra sjálfra, Rannsókn Sverris má segja að taki til tímabilsins 1130 til 1550 eða þar um bil og hefst með for- mála ísiendingabókar. Síðan koma konungasögur, riddarasögur, fom- aldarsögur og heilagramannasögur, en þetta er sá hluti sagnaheimsins sem telst skrifaður af rithöfundum sem höfðu skriftir að starfí. Rit Sverris Tómassonar skiptist i tvo meginkafla, þar sem raktir em venjubundnir efnisþættir formál- anna. Fjallað er um hveijir það vom sem hvöttu rithöfundana til dáða og hvert tilefni ritunarinnar var. Hugað er að yfirlýstum til- gangi verkanna og reynt að rekja hvemig hann kemur heim og saman við verkið sjálft. Stærsti hluti verks- ins skýrir frá því, hvemig höfundar komust að orði um efnivið sinn, stíl og hlutverk og hvert viðhorf þeirra var til skáldskapar og sköp- unarstarfs. Frá doktorsvörn við heimspeki- deild Háskóla íslands. Talið frá vinstri: dr. Jakob Benediktsson og dr. Bjarni Guðnason, en þeir voru andmælendur, doktorsefnið Sverrir Tómasson í ræðustóli og loks dr. Sveinbjörn Rafnsson deiidarforseti heimspekideildar, en hann stjómaði athöfninni. Ljósmynd: Ámastofnun/Jóhanna Ólafsdóttir Bráðabirgða sjálfvirkt loftvarna- kerfi tekið í notkun hjá varnarliðinu Smíðað af Hughes fyrir 800 milljónir TEKIÐ hefur verið i notkun hjá vamarliðinu á Keflavikurvelli bráða- birgðakerfi sem er undanfari IADS eða ísienska loftvarnakerfisins. Þetta kerfi ber heitið LAADS eða Interim Automated Air Defence System (bráðabirgða sjálfvirka loftvaraakerfið). Það er Hughes sam- steypan sem hefur smíðað kerfið og kostaði það sem svarar 800 milljónum króna eða 17,4 milljónir dollara. Kerfið auðveldar mjög skráningu þeirra upplýsinga, sem ratsjárkerfið í landinu aflar. í nýjasta tölublaði bandaríska NORAD, í gegnum þrjá gerfíhnetti vikuritsins Aviation Week & Space á vegum Atlantshafsbandalagsins. Rannveig söngkona. Bragadóttir, ópem- Technology er grein um IAADS og IADS. Þar segir að miðað við mikil- vægj íslands í vömum Atlantshafs- bandalagsins sé furðulegt að ekki skuli fyrr hafa verið ráðist í það verk að færa eftirlitskerfí vamar- liðsins í nútímalegt horf. Það hafí ekki verið fyrr en 1985 sem íslensk og bandarísk stjómvöld undirritðu samning þess efíiis. Blaðið segir að 57unda flugsveit bandaríska flughersins sem hér sé á heimsmælikvarða hin virkasta inn- an hersins í eftirliti með flugumferð Sovétmanna. Frá árinu 1963 hafi hún flogið í veg.fyrir 2000 sovéskar herflugvélar við landið, þar af 155 vélar 1985, 177 vélar 1986, 150 vélar í fyrra og það sem af er þessu ári sé talan komin í 50 vélar. Hið nýja kerfí sem nú er komið í notkún gerir vamarliðinu kleyft að bregðast §ómm sinnum skjótar við óþekktum flugvélum við landið en gamla kerfíð gerði. Auk þess senda tölvur kerfsins sjálfvirkt upp- lýsingar um flugumferðina til vam- arstöðva í Bandaríkjunum eins og Þessar upplýsingar fóm áður í gegn- um síma eða ömgga telexlínu. IADS tekur við af LAADS á næsta áratug er smíði ratsjárstöðvanna fjögurra hérlendis verður lokið. Mun meira öryggi í grein Avition Week & Space Technology er greint frá muninum sem er á nýja og gamla kerfínu. í hinu gamla vom allar upplýsingar sem bámst frá ratsjárstöðvu n u m fyrst skráðar á töflu og síðan kom- ið til stjómstöðvarinnar í Keflavík, OPCON, gegnum síma eða telex. Nauðsynlegt var að senda staðará- kvarðanir flugvéla í lengdar-og breiddargráðum handvirkt, ef þann- ig má segja það, í gegnum fyrr- greind tæki. Sem dæmi má nefna að sæist óþekkt flugvél á ratsjár- skerminum í Stokksnesi var staður hennar sendur í gegnum síma til stöðvarinnar í Rockville og þaðan til OPCON. Þannig höfðu upplýsing- arnar þrisvar verið skráðar á töflu áður en þær náðu til OPCON sem hefur vald til að senda F-15 þotur 57undu flugveitarinnar á loft. Nýja kerfíð gerir það aftur á móti að verkum að frá ratsjánni em boðin um óþekkta flugvél send beint í tölvukerfí LAADS og berast þær því OPCON fjórum sinnum skjótar en með gamla laginu. Útboðsgögn IADS send út 25. júlí Bob Johnson undirofursti hjá ESD eða Electronic System Division í Massachusetts í Bandaríkjunum er framkvæmdastjóri fyrir IADS verkefnið. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að útboðsgögnin fyrir IADS verði send út 25. júlí n.k. Sem kunnugt er af fréttum Morgun- blaðsins í síðasta mántiði er það Mannvirkjasjóður Atlantshafs- bandalagsins sem stendur að verk- inu en áætlaður kostnaður við það nemur um 13 milljörðum íslenskra króna. Að sögn Bobs Johnsons munu útboðsgögnin ná yfír bæði tækin sem smíða þarf og forritin í tölvukerfíð en ekki viðhaldið. íslensk hugbúnaðarfyrirtæki eiga þess kost að vera með sem undirverktakar í viðhaldi kerfisins er það kemst í gagnið á næsta áratug. Frakkar og Þjóðveijar hafa ekki enn staðfest formlega samninginn sem gerður var innan Mannvirkja- sjóðsins um þetta verk en fastlega er reiknað með að sú staðfesting fáist fyrir 25. júlí. Bob Johnson seg- ir að eins og staðan sé nú verði unnt að framkvæma þetta verk í samræmi við upphaflega áætlun. Frumvarp um aðskilnað dóms- og löggjafarvalds hjá milliþinganefnd Á SÍÐASTA þingi lagði dóms- og viðskiptamálaráðherra, Jón Sigurðs- son, frumvarp fyrir Alþingi um aðskilnað dómsvalds og iöggjafar- valds. í fmmvarpinu er gert ráð fyrir sjö umdæmum héraðsdóm- stóla og að stofnuð verði ný embætti sýslumanns sem taki í auknum mæli að sér stjómsýslustörf en láti af dómarastörfum. Frumvarpið var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi og var síðan vísað til nefndar. Samkomulag varð milli stjómar- G. Einarsson og Friðjón Þórðarson, flokkanna um að skipuð yrði milli- Sjálfstæðisflokki, Páll Pétursson, þinganefnd þar sem sæti ættu full- Framsóknarflokki, Guðrún Helga- Rannveig Bragadóttir á Hellbrunn -listahátíðinni — söng fyrir Karajan í vetur ZUrích. Frá Önnu Bjarnadóttur fréttarítara Morgunblaðsina. RANNVEIG Bragadóttir, óperusöngkona, mun taka þátt í Hellbrunn- listahátíðinni i Austurríki í annað sinn í næsta mánuði. Hún syngur tvö lítil hiutverk, annað í Brúðkaupi Camachos eftir Mendelssohn og hitt i Óperuæfingunni eftir Lortzing. Erast Márzendorfer er stjórnandi. Hátiðin er haldin í Hellbmnn-kastala fyrir utan Salzburg og stendur 6., 7., 12., 13. og 14. ágúst. Rannveig tók þátt i upp- færslunni á Telemaco ópemnni í fyrra og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína þá. Rannveig hóf tveggja ára starf hjá stúdíói Vínaróperunnar síðast- liðið haust. Henni gáfust nokkur tækifæri til að syngja á aðalsviði óperunnar í vetur, hún söng til dæmis í Valkyijum Wagners og var varamanneskja í Töfraflautunni eft- ir Mozart sem Nokolaus Hamon- court stjómaði. Hún var einnig til vara á balletsýningu, sem var frum- sýnd í vor, við ljóðatónlist eftir Beria. Kylian, balletmeistari í Amsterdam, stjómaði dansinum en hinn ungi og upprennandi hljóm- sveitarstjóri Ulf Schirmer stjómaði tónlistinni. Mezzósópransöngkonan veiktist skömmu eftir frumsýningu og Rannveig þurfti að hlaupa í skarðið á 3. og 4. sýningu. Hun söng 11 þjóðlög og fékk góð um- mæli samstarfsmanna sinna. Hápunktur vetrarins var þó þeg- ar henni gafst kostur á að syngja prufusöng fyrir Herbert von Karaj- an í Salzburg í febrúar. Aðeins 5 söngvurum er boðið að syngja fyrir meistarann í sambandi við tónlistar- hátíð hans í Sazburg um páskana. Rannveig fékk varamannasæti, önnur stúlka hlaut hlutverk og þrír voru sendir heim. „Það var mikill heiður að fá að syngja fyrir þennan heimsþekkta og virta tónlistarmann í fímm mínútur," sagði Rannveig, sem er 26 ára. „Og það var út af fyrir sig gaman að standa augliti til auglitis við hann og vita að hann væri að hlusta á mig. Hann er mik- ill persónuleiki og harður dómari en ég var þó ekki hrædd að syngja fyrir hann. Það er erfítt að fá miða á tónlistarhátíð hans en ég fékk tækifæri til að vera viðstödd æfíng- ar og sýningar um páskana og hafði mjög gaman af því.“ Rannveig hefur þegið boð um að syngja hlutverk Niklasar í upp- færslu íslensku óperunnar á Ævin- týri Hoffmanns í haust og kemur heim um miðjan ágúst. Hún hefur ekki sungið á íslandi síðan hún hóf söngnám í Vínarborg fyrir sex árum en sagði að það legðist vel í sig að syngja heima. Hún hyggst einnig halda ljóðakonsert á meðan hún er á landinu. Hún fer aftur utan fyrir jól þar sem verkefni bíða hennar í Vínaróperunni. trúar allra stjómmálaflokka lands- ins, til að fjalla um málið milli þinga. í samtali við Morgunblaðið s’agði Jón Sigurðsson dómsmálaráð- herra, að hann hefði látið vinna ýmis fylgifrumvörp og vildi hann einkum minnast á frumvarp til nýrra aðfararlaga sem gerir fram- kvæmdina einfaldari og ódýrari. Ekki vildi Jón tjá sig um hvað í þessu fylgifrumvarpi fælist, en sagði að það yrði lagt fyrir ríkis- stjómina innan skamms. „Ég vona að það náist samkomulag um þetta því það er mjög mikilvægt að meg- inreglan um aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds á öllum dóm- stigum um allt land verði fram- kvæmd sem fyrst." Að sögn Jóns ræðst það mikið af umdæmaskipan og staðsetningu stofnana hve kostnaðarsamar breytingamar verða og að þama togist á kostnað- arsjónarmið og byggðasjónarmið. „Ég tel það meginatriði þessa frum- varps að þjónusta og ákvarðanir verði færðar nær þeim sem við þær eiga að búa og fela hinum nýju sýslumannsembættum ýmislegt sem nú er ákveðið í ráðuneytunum. Ég bind vonir við að þetta verði til að bæta réttarfarið og stjómarfarið í landinu," sagði Jón Sigurðsson. í milliþinganefndinni eiga sæti Eiður Guðnason, Alþýðuflokki, sem er formaður nefndarinnar, Ólafur dóttir, Alþýðubandalagi, Guðmund- ur Ágústsson, Borgaraflokki, og Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista. Nefndin hélt fund 14. júlí síðastlið- inn og næsti fundur verður 8. ágúst næstkomandi. Að sögn Eiðs Guðna- sonar, formanns nefndarinnar, virð- ist ekki þörf mikilla breytinga á frumvarpinu. „Það er breið sam- staða innan þingflokkanna um þörf- ina á aðskilnaði dómsvalds og fram- kvæmdavalds. Þó em sumir andvíg- ir þessum breytingum og bera þeir einkum fyrir sig kostnaðarhliðina og önnur atriði," sagði Eiður. í frumvarpi dómsmálaráðherra er gert ráð fyrir að þessi breyting kosti á bilinu 30-35 milljónir króna. Milliþinganefndin bíður nú eftir nýrri kostnaðaráætlun frá dóms- málaráðuneytinu sem er væntanleg fyrir næsta fund nefndarinnar 8. ágúst. „Þessu var breytt fyrir mörg- um árum á hinum Norðurlöndunum en af einhveijum ástæðum höfum við dregist aftur úr. Það eru marg- ir á því að brýnt sé að aðskilja dómsvald og framkvæmdavald því nú liggur mál fyrir Evrópudóm- stólnum sem dæmt hefur verið hæft til meðferðar. Það yrði okkur mikill álitshnekkir að fá á okkur dóm,“ sagði Eiður. Milliþinganefndin skilar áliti sínu fyrir þingbyijun í september.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.