Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 21 Þorlákur helgi og prímstaf irnir eftirKolbein Þorleifsson í tilefni af Þorláksmessu á sumri (20. júní) langar mig til að kjmna íslendingum eina tegund af leifum um dýrkun hans, sem ég hefí verið að athuga nú í sum- ar. Það eru leifar um Þorláks- messu á vetri (23. desember) á norskum prímstöfum. í ferð, sem ég fór í maí-lok til Oslóar á norr- æna ættfræðiráðstefnu, notaði ég m.a. tímann til að heimsækja byggðasafnið á Byggðarey við Osló til að hnykkja á fyrirspum sem ég hafði áður sent til safnsins varðandi þetta mál. Mér var vel tekið og tókst þeim að fínna prent- aðar myndir af tveimur prímstöf- um, þar sem heilags Þorláks er minnst. Auk þess lofaði safnvörð- urinn því að koma mér í samband við mann, sem hefði teiknað mynd- ir af fjölda prímstafa. Nu fyrir helgina barst mér bréf frá þessum manni, sem heitir Kaare Hovind og er búsettur i Steinkerum í Þrændalögum, og er bréf hans dagsett 10. júlí síðastliðinn. Ætla ég hér að miðla íslenskum lesend- um nokkm af þeim fróðleik sem er að finna í þessu bréfi. Ég veit, að það er tímabært vegna útnefn- ingar Jóhannesar Páls páfa II á heilögum Þorláki sem vemdardýrl- ingi Islands. Hvað er prímstafur? Prímstafur er dagatal, sem skorið var í tré. Á honum vom tvær hliðar, og hét önnum þeirra „vetrarhliðin" en hin „sumarhliðin". Þarna var hver ein- asti dagur ársins merktur með smástriki, en helgidagamir fengu á sig framlengingu með sérstokum rúnum, sem lýstu innihaldi dags- ins, svo ekki þyrfti að villast á þessum dögum í talningunni. Allt þetta var mikilvægt vegna helgi- haldsins, en ekki síður vegna þess, að við þessa daga vom miðaðar dagsetningar á bréfum, veðurspár, sláttur á sumri, fengitími á vetri, vetrarvertíð og fleiri nauðsynjar búskapar og fiskveiða. — Hér er því um það að ræða að í hið þrönga bil á milli Tómasar messu postula (21. des.) og jóladags (25. des.) er stundum skotið inn tákni 23. des. í þeim sveitum Noregs, þar sem til foma var haldið upp á Þorláksmessu, en það sýnist eink- um að hafa verið kringum biskups- stólana í Björgvin og Stafangri. Þó fínnast slíkir stafir líka í Þrændalögum og Norður-Noregi. Sjálfur erkistóllinn í Niðarósi sam- þykkti ekki helgi Þorláks fyrr en 1519, en í Björgvin var sérstakt altari vígt honum til heiðurs í Kross-kirkju. Kaare Hovind segist hafa teikn- að 470 prímstafi vítt og breitt um Noreg og af þeim séu 84 með merki 23. desember, þ.e. á Þor- láksmessu. 55 þeirra em með 31 tegund af krossum, hinir em með öðmm merkjum. Hovind sendi mér nákvæman lista yfir öll kross- merkin og dreifingu þeirra. Gerði hann það vegna sérstakrar fyrir- spumar minnar um krossmerki. Væntanlega sendir hann mér ann- an lista síðar með öðmm táknum. Hovind segir, að allir prímstafir frá Voss, 15 að tölu, séu með merki 23. desember, 13 af 15 stöf- um úr Sogni, 5 af 6 stöfum á Norður-Hörðalandi, 5 af 11 á Rog- alandi, 8 af 76 frá Ögðum og Setursdal fáir séu úr Austur- ÁTAKILANDGRÆÐSLU LAUGAVEG1120.105 REVKJAVlK SÍMI: (91) 29711 Hlauparelknlngur 251200 Búnaðarbankinn Hellu ro '«o _co E ™ 51 « -2 k- co Tómasarmessa, 21. des.- Þorláksmessa, 23. des.- Jóladagur, 25. des.- Hluti af vetrarhlið prímstafs frá Voss. Jólin eru afmörkuð með ljósa- stiku, þar fyrir framan er heill latneskur kross á Þorláksmessu. Eins og sést þarf að beygja tákn jólanna og Tómasar messu postula til að koma heilögum Þorláki að. Noregi, en 14 af 60 úr Þrændalög- um og Norður-Noregi. Við það síðasta ber að athuga, að í Þrændalögum og í Norður- Noregi var til annað nafn á þessum degi: Sjurs-messe eða Sigurðar- messa. Hvorki Hovind né Brynjolf Alver vita til þess, að menn viti, hvaða Sigurði þessi dagur er helg- aður. Ég vil kasta fram þeirri hugmynd að dagurinn hafi hugs- anlega verið kenndur við Sigurð hirðbiskup Ólafs Tryggvasonar, sem er nánast helgur maður í Ól- afs sögu Tryggvasonar hinni mestu. Kaare Hovind dregur þá álykt- un af áðumefndum tölum, að Þor- lákur helgi hafi skipt meira máli fyrir alþýðuna en hina opinberu Kolbeinn Þorleifsson „Hvað er prímstafur? Prímstafur er dagatal, sem skorið var í tré. A honum voru tvær hlið- ar, og hét önnur þeirra „vetrarhliðin“ en hin „sumarhliðin“.“ kirkju. Sú niðurstaða hans stað- festir líka þjóðsiði sem tengjast þessum degi. Á „Tollesmesse" var það siður að þvo sér og heimili sitt fyrir jólin og var dagurinn því líka nefndur „Vaskardagen“. Svo virðist, að eftir siðaskifti hafí þessi „Tollak" eða „Todlak" orðið að jólasveini í íslenskum tröllastíl í munni fullorðinna, sem þurftu að aga smákrakka í hátíðarundirbún- ingnum; þannig varð til hugmynd- in um „Tollak með lekabyttuna“, sem tók í sína vörslu þá óþekktar: orma, sem stálust út á kvöldin. í gamalli almanaks-vísu segir „Toll- ak Spóla, nótt og dagur til jóla“. Svo norðarlega sem á mörkum Troms-fylkis og Norðlands er sagt, að sé slæmt veður á Þorláks- messu, haldist það þannig til kynd- ilmessu (2. febrúar). Heimild mín um áðumefnda þjóðsiði er bók Brynjólfs Alver: Dag og merke, Osló 1970. Með öllum þessum upplýsing- um, og þó einkum hinum marg- breytilegu kross-rúnum, sem nú er komið á daginn að Norðmenn hafa tengt nafni heilags Þorláks, hefur mikið efni verið lagt í hend- ur þeirra listamanna, sem í framt- íðinni munu myndskreyta sögu hans. Höfundur er prestur og kirkju- sagnfrædingur. SUiViAR TÆKIFÆRI Hér og nú! U GORI 22 GORI Fúavörn í öllum regnbogans litum Glær Hálf þekjandi Þekjandi HOZELOCK Slöngustatíf Úðabrúsar Tengi Vatnsúðarar og margt fleira YARD-MAN GARÐSLÁTTUVÉLAR 3,5 hestöfl, standard 3,5 hestöfl, með drlfl 4,0 hestöfl, með tvígengismótor Sérlega hentug í halla Briggs &Stratton mótor Hæðarstilling 21" sláttuhringur sem nær vel út í kanta Öryggishandfang Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta Eins árs ábyrgð Verð f rá 20.960 stgr. Tilboðið gildir til mánaðamóta. Takmarkaðar birgðir. BYGGINGAVÖRUVERSLUN SAMBANDSINS KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.