Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 25

Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 25 Bílsprengja í Beirút; Tilræðismaður- inn sprakk sjálfur Beirút, Reuter. BÍLSPRENGJA sprakk fyrir Reuter Öryggisverðir og borgarar virða fyrir sér vegsummerkin. framan sjúkrahús í hinum kristna hluta Austur-Beirút á mánudag og varð ökumanni bif- reiðarinnar að fjörijóni. Að sögn sjónarvotta þeyttist líkið af manninum þvert yfir götuna við sprengjuna, en auk þess kviknaði i annari bifreið og NALÆGT 400 manns hafa dáið af völdum mikilla hita sem ganga yfir suðurhluta Kína og eru hin- ir mestu um árabil. Hiti hefur farið yfir 40 stig í forsælu í Nanchang, höfuðborg Jiangxi- héraðsins. Flestir hafa látist þar eða 290 manns, flestir aldraðir og lasburða fyrir. Loftvamarbyrgi hafa verið opnuð og leitar fólk þangað í stríðum straumum, að sögn opinberra mál- gagna. í Shanghai, fjölmennustu borg landsins, þar sem 12 milljónir eru búsettar, hafa 255 fengið sól- sting og tíu eru látnir. í kvikmynda- húsum og stórmörkuðum með loft- kælingu hefur verið þétt setinn bekkurinn síðustu daga. í Nanking var hitinn sömuleiðis mikill, en mesta bylgjan virðist gengin yfir, en hafði þá kostað 83 lífið. Talsmaður heilbrigðisráðuneytis Peking sagði að þar hefði verið óvenjulega heitt upp á síðkastið og malaríutilfelli væru helmingi fleiri en á sama tíma í fyrra. Þurrkar um nær gervallt landið hafa orsakað uppskerutjón. Þurrkar eru algengir á þessum árstíma víðs vegar um Kína, en hafa staðið leng- Rúmenía; Dæmdir fyrir losun eiturefna Vín. Reuter. SJO menn, sem voru ákærðir fyrir að losa eiturefni í Svarta- hafið, hafa verið dæmdir i ellefu til átjánára fangelsisvist, að sögn opinberu rúmensku fréttastof- unnar Agerpres. Mennirnir voru dæmdir fyrir að hafa með ólöglegum hætti losað rúmlega 4000 tonn af eitruðum iðn- aðarúrgangi í Sulina-höfnina við Svartahafið. í fréttum Agerpres er úrgangs- efnunum lýst sem „afar skaðlegum fyrir heilsu manna og umhverfi." Eiturefnin voru fyrst losuð i Svartahafið árið 1986 þegar tvö fyrirtæki, rúmenskt og litháenskt, gerðu samning þar að lútandi. Þrír af mönnunum sjö, sem dæmdir hafa verið, eru fyrrverandi fram- kvæmdastjórar rúmenska fyrirtæk- isins en fjórir eru embættismenn við höfnina. Vegna máls þessa var viðskipta- ráðherra Rúmeníu vikið úr embætti í síðasta mánuði og nokkrir ráð- herrar í ríkisstjórninni hafa verið áminntir tvær aðrar löskuðust verulega. Þá brotnuðu rúður í tveimur nærliggjandi byggingum. Sjúkrahúsið varð hins vegar ekki fyrir neinum skemmdum. Að sögn kunnugra mun maður- inn hafa ætlað að leggja bílnum skammt frá öryggisskrifstofu þess flokks vopnaðra manna, sem ræð- ur nú og 7,3 milljónir hektara lands hafa spillst. ur lögum og lofum í Austur-Beir- út. Er talið að maðurinn hafi verið búinn að stilla tímakveikju sprengjunnar, en þegar hann gat ekki lagt bifreiðinni þegar í stað, féll hann á eigin bragði. Sprenging þessi varð á svipuð- um slóðum og bílsprenging hinn 30. maí, en þá létust að minnsta kosti 15 manns. Líbönsk lögregla lokaði svæðinu af og leitaði í bifreiðum að fleiri sprengjum. Að sögn heimildar- manna innan lögreglunnar voru um 10 kg af sprengiefni í bifreið- inni sem sprakk. Að sögn útvarpsstöðvarinnar Hin krístna rödd Líbanons var maðurinn, sem lést, ökumaður bif- reiðarinnar. Öryggisvörður í banka skammt frá sagði að öku- maðurinn hefði upphaflega viljað leggja bílnum við bankann, en hefði verið meinað það. „Hann ók þá áfram og lagði bílnum við sjúkrahúsið. Þremur mínútum síðar sprakk hann í loft upp.“ Sprengingin er hin síðasta í röð fjölda sprengjutilræða í Líbanon á þessu ári, en í þeim hafa að minnsta kosti 94 fallið og 205 særst. Bílsprengjutilræði hafa ver- ið tíð í hinni 13 ára gömlu borgara- styijöld. 1989 árgerðirnar af MAZDA eru nú væntanlegar innan skamms og þess vegna lækkum við verðið á síðustu bílunum af árgerð 1988. Dæmi um verð: , K Júlíverð Tilboðsverð nú MAZDA121 L 3 dyra 1.1 I 537.000 464.000 MAZDA 323 LX 3 dyra 1.3 I 539.000 499.000 MAZDA 323 LX 5 dyra 1.3 I 594.000 543.000 MAZDA 323 GLX 5 dyra 1.5 I 636.000 590.000 MAZDA 626 LX 4 dyra/vökvast. 1.8 I 871.000 731.000 MAZDA 626 GLX 4 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I .. 1.008.000 889.000 MAZDA 626 LX 5 dyra sj.sk./vökvast. 1.8 I ... 937.000 845.000 MAZDA 626 GLX 5 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I .. 1.026.000 905.000 MAZDA 626 GTI 2 dyra vökvast. álfelgur vinsk. og sóllúga .... 1.225.000 1.088.000 Þetta eru án efa bestu bílakaupin í dag. Tryggið ykkur bíl strax, því aðeins er um takmarkað magn bíla að ræða! BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11 ,SÍMI 6812 99 Kínverjar að kafna úr hita Peking, Reuter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.