Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 27

Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 27 ísrael: Átök á herteknu svæðunum Beit Sahour, Vestur-bakkanum. Reuter. ÓFRIÐUR blossaði upp á milli ísraelskra hermanna og Palestínu- manna í bænum Beit Sahour á Vesturbakka Jórdanár á mánudag þegar sautján ára unglingur var borinn til grafar. Lát hans bar að með þeim hætti að grjóthnullungur féll af þaki húss þar sem ísrael- skir hermenn héldu vörð, og lenti á höfði drengsins sem lést nánast samstundis. Yfirmenn í ísraelska hemum segja að verið sé að kanna orsakir atviks- ins sem þeir kalla „hörmulegt slys“ en íbúar í þorpinu eru á öðru máli og tala um að hér hafi kaldrifjað morð verið framið. Þorpsbúar mót- mæltu „slysinu“ harðlega við útför piltsins á mánudag og þegar ísrael- skir hermenn huggðust hindra mót- mælin köstuðu grímuklædd ung- Járnbraut- arslys í Frakklandi Toulouse, Reuter. SAUTJÁN manns slösuðust í gær, þegar farþegalest ók aftan á flutningalest í Toulo- use í Suðvestur-Frakklandi. Talið er að hemlar farþega- lestarinnar hafi bilað skyndi- lega. Lestin var að koma inn á stöðina í Toulouse og tekist hafði að draga verulega úr hrað- anum, en lestarstjóra tókst ekki að stöðva hana alveg. menni í þá grjóti og skutu á þá með öflugum teygjubyssum. „Þetta er harmleikur fyrir Beit Sahour," sagði Hanna Atrash, bæj- arstjóri þorpsins, í samtali við tals- mann Æeuíer-fréttastofunnar í gær. „Steinninn sem lenti á höfði piltsins hefur vegið um tvö kíló. Þegar við bárum hann í burtu sá ég hvar undr- andi hermaður stóð á brún þaksins og hélt höndum um höfuð sér.“ Eftir atvikið útbjuggu þorpsbúar minnisvarða á blóðugri götunni. Þar komu þeir fyrir palestinskum fánum og myndum af piltinum sem hét Jeal Aisa Ghannam. Átök urðu einnig milli Palestínu- manna og ísraelsmanna í Jerúsalem í gær þegar þar var borinn til graf- ar ungur Jerúsalembúi af arabaætt- um sem var skotinn af hermönnum fsraelshers í gærdag. Það er helst að frétta af Gaza- svæðunum að þar hafa ísraelar lagt ný bifreiðagjöld á Palestínumenn. ísraelar segja að gjöldin eigi að renna til herferðar stjómarinnar fyr- ir bættri umferðamenningu en gagn- rýnir íbúar á svæðunum segja að hér sé um að ræða enn eitt bragð ísraela til þagga niður í þeim. Bif- reiðagjöldunum fylgja ný ökuskír- teini sem öllum ökumönnum á Gaza-svæðunum hefur verið gert að eignast. Nýju bifreiðagjöldin nema um þriggja mánaða launum flestra Palestínumanna. Þorpsbúar minnast unglings- piltsins sem lést í Beit Sahour á Vesturbakka Jórdanár. Reuter Nýtt tilboð Sovétstjórnarinnar: Ratsjárstöðin í Krasn- oyarsk verður rifin ■virði Bandaríkjamenn ABM-sáttmálann í a.m.k. tíu ár Moskvu. Reuter. SOVÉTMENN kveðast reiðubúnir til að láta rífa umdeilda ratsjárstöð í Síberíu ef Bandaríkjamenn skuldbinda sig til að virða ákvæði ABM- sáttmálans frá árinu 1972 unt takmarkanir gagneldflaugakerfa í að minnsta kosti tíu ár. Túlkun og gildistími ABM-sáttmálans hefur ver- ið eitt helsta deiluefnið í afvopnunarviðræðum risaveldanna en Sovét- menn telja að ekki sé unnt að semja um fækkun langdrægra kjamorku- vopna án þess að slíkur samningur kveði jafnframt á um takmarkan- ir gagneldflaugakerfa. Viktor Karpov, forstöðumaður afvopnunarstofnunar sovéska ut- Austurríki og Evrópubandalagið: Forsendur og afleiðing- ar aðildar enn óljósar anríkisráðuneytisins, sagði í Moskvu í gær að raunar hefði bygging rat- sjárstöðvarinnar í Krasnoyarsk í Síberíu verið stöðvuð í október á síðasta ári til að undirrstriká samn- ingsvilja Sovétstjómarinnar. Banda- rískir embættismenn telja margir hveijir að framkvæmdimar í Krasnoyarsk stangist á við ákvæði ABM-samningsins en innan stjómar Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta hefur enn ekki verið ákveðið hvort lýsa beri byggingu ratsjárstöðvar- innar samningsbrot. Fari svo' geta Bandaríkjamenn lýst yfír því að samningurinn sé úr gildi fallinn. Karpov sagði að samningamenn Sovétstjómarinnar í Genf vildu að hugsanlegur samningur um fækkun langdrægra kjamorkuvopna kvæði ennfremur á um að bæði risaveldin virtu ákvæði ABM-sáttmálans „eins og hann var undirritaður" árið 1972. Féllust Bandaríkjamenn á þetta væru Sovétmenn reiðubúnir til að láta rífa ratsjárstöðina. Sovétmenn líta svo á að ABM-sáttmálinn taki fyrir uppsetningu vamarkerfa í geimnum og telja því að tilraunir utan rannsóknarstofnana vegna geimvamaráætlunar Bandaríkja- stjómar sé brot gegn þeim ákvæð- um. Þá greinir risaveldin einnig á um hvort binda beri samkomulag um fækkun langdrægra kjamorku- vopna því skilyrði að jafnframt sé samið um takmarkanir geimvama. - segir Franz Vranitsky kanslari FRANZ Vranitsky, kanslari Aust- urríkis, sagði í umræðum á þingi i síðustu viku að enn ætti eftir að fá svör við mörgum mikilvæg- um spurningum áður en Aust- urríksmenn gætu sótt um aðild að Evrópubandalaginu. Ýmislegt hefur þótt benda til þess að stjórn- völd í Austurriki hyggist sækja um aðild að bandalaginu á næsta ári og að sögn dagblaðsins Finan- cial Times gaf Vranitsky í skyn að ákvörðun af eða á yrði tekin á árinu 1989. í ræðu sinni sagði Vranitsky nauðsynlegt að Austurríkismenn, sem líkt og íslendingar eiga aðild að Fríverslunarbandalagi Evrópu (EFTA), gerðu sér ljóst hvað fúll aðild að Evrópubandalaginu hefði í för með sér á sviði efnahags- og félagsmála svo og stjórnmála. Franz Vranitsky. Kvaðst hann telja það skilyrði fyrir inngöngu að gerðar yrðu grundvall- arbreytingar á skipan efnahags- og iðnaðarmála og hugsanlega einnig á bankakerfí landsmanna. Kynna þyrfti tillögur í þessa veru þannig að þingmenn gætu rætt þær og tek- ið afstöðu er þing kæmi aftur saman í haust. Afstaða austurrískra verkalýðs- félaga til hugsanlegrar inngöngu í Evrópubandalagið liggur enn ekki fyrir. Ákveðið hafði verið að taka afstöðu til málsins fyrr í þessum mánuði en félögin ákváðu að slá því á frest. Franz Verzetnitsch, formað- ur austurríska Alþýðusambandsins, hefur lýst sig fylgjandi því að tekin verði upp nánari samvinna við aðild- arríki Evrópubandalagsins en líkt og Vranitsky kanslari hefur hann lagt áherslu á að leysa þurfi fjöl- mörg vandasöm mál áður en Aust- urríkismenn geti sótt um fulla aðild að bandalaginu. Kinnock átalinn fyrir að hafa ekki næga sjálfstjóm Lundúnum. Reuter. NEIL Kinnock, leiðtogi breska verkamannaflokksins, kom til Lundúna í gær úr Afríkuför sinni. Á flugvelli í Zimbabwe á sunnudaginn ráku hermenn Kinnock og 16 manna fylgdarlið hans inn í biðskýli þar sem þau máttu dúsa í einn og hálfan tíma. Vopnaður vörður sem gætti þeirra blótaði Kinnock, sem reiddist við og svaraði í sömu mynt. Atvik þetta vakti athygli á Bretlandseyjum og fékk mikla umfjöllun ( fjölmiðl- um. Dagblaðið Times sagði í leiðara að maður sem vonaðist til að verða forsætisráðherra vekti ekki traust með því að fá reiðikast og svara blótsyrðum í sömu mynt. Slíkt gæfi í skyn að hann hefði ekki nægilega sjálfstjóm. Þingmenn íhaldsflokksins gripu einnig tæki- færið og gerðu grín að Kinnock í þingsölum. Gagnrýnin á Kinnock var yfírleitt á þann veg að fyrst hann missti stjóm á skapi sínu við lítils háttar óþægindi, þá veltu menn vöngum yfir því hvernig hann myndi bregðast við ef eitt- hvað alvarlegt bjátaði á. rr 1 ii I Qz beneíton 1 SISLEY 012 benelton IKRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.