Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 29

Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 29
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 . 29 IHtrgis Útgefandi mÞIafrfr Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Vopnahlé í sjónmáli Ovænt yfirlýsing stjórn- valda í íran á mánudag um að þau fallist án nokkurra skilyrða á ályktun Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé í Persaf- lóastríðinu svonefnda, hefur vakið vonir um að innan fárra daga verði unnt að binda_ enda á blóðug átök íraka og Irana, sem staðið hafa í tæp átta ár. Hvorugur stríðsaðili hefur skýrt nákvæmlega frá mannfalli. A hinn bóginn er talið líklegt að meira en milljón manns, her- menn ög óbreyttir borgarar, hafí týnt lífi í þessu ömurlega stríði, sem hefur virst tilgangs- lausara en flest hemaðarátök og er þá mikið sagt. Fyrir utan annan óhugnað er staðfest, að írakar hafí beitt eiturefnum í hemaðinum. Þá hafa ríki utan svæðisins dregist inn í átökin og ber þá helst að geta Banda- ríkjanna, en á síðasta ári var floti þeirra og ýmissa annarra vestrænna ríkja sendur á vett- vang til að halda uppi gæslu á olíuflutningaleiðinni miklu um Persaflóa. Hinn 3. júlí leiddi sú ráðstöfun til þess hörmulega og forkastanlega atburðar, að írönsk farþegaþota með 290 manns innanborðs var skotin niður. írakar réðust inn í íran haustið 1980 í von um, að valdataka erkiklerksins Khom- eini hefði veikt svo mjög íranskt öryggi að nú gætu arabar í írak sýnt gömlum erkifjendum, persum í íran, í tvo heimana og auk þess náð af þeim land- skikum, sem skipt.u miklu fyrir olíuvinnslu og útflutning. Mál þróuðust á annan veg. Stríðið hefur staðið síðan í september 1980. írakar hafa notið stuðn- ings Vesturlanda og Sovétríkj- anna. íranir hafa stuðst við vestrænan herbúnað keisarans sem velt var 1979, en fengið lítið af varahlutum, kínverskar og sovéskar eldflaugar hafa ekki riðið baggamuninn og fyöl- mennið í fran dugði ekki til að bijóta íraka á bak aftur. íranir hafa einangrast á alþjóðavett- vangi og njóta þar lítillar sam- úðar vegna ofstækis og grimmdar klerkavaldsins. Fyrir Irani skipti sköpum að Khom- eini fól nánum samstarfsmanni sínum, Ali Akbar Hashemi Rafsanjani, yfírstjóm heraflans fyrir skömmu og hann tók upp nýja herstjómarlist, hörfaði fyrst og lýsti síðan vilja til vopnahlés, meðal annars með / u 4.utuii % u-<e : *mx þeim orðum að árás Banda- ríkjamanna á farþegaþotuna hefði valdið þáttaskilum og sýndi, að Bandaríkjamenn „kynnu að fremja hroðaleg glæpaverk, ef Iranir héldu stríðinu áfram“. Vonandi tekst nú fyrir til- stilli Sameinuðu þjóðanna að fínna leið til varanlegs friðar milli íraka og írana. Hinir hörðu, miskunnarlausu og mannskæðu bardagar á þessum slóðum, þar sem börn voru byssufóður og þorp lögð í eyði með eiturefnum, vom ekki að- eins óbærilegt böl fyrir þá, sem þama búa, heldur einnig hættu- leg fyrir heimsfriðinn. Persaflói er púðurtunna og má þakka þeim sem öllu ræður, að hún hafi ekki öll orðið að báli með ógnarlegum afleiðingum. Fáni Lithá- en við hún * IMorgunblaðinu í gær birtust litmyndir af fánum Eystra- saltsríkjanna þriggja: Eist- lands, Lettlands og Litháens eða Lithaugalands. Voru þær birtar í tilefni af því að nú eft- ir sovéskt bann í tæp fímmtíu ár mega Litháar fá að láta þjóð- fána sinn blakta að nýju, að vísu aðeins með rauðum fána Sovétríkjanna. Eistlendingar höfðu áður fengið svipað leyfi. í Eystrasaltsríkjunum hefur það til þessa varðað þriggja ára fangelsi að nota hina gömlu þjóðfána; hafa þau lög verið lið- ur í innrætingarstefnu yfirvalda í Moskvu, sem hafa viljað slíta menningu og þjóðemiskennd í ríkjunum upp með rótum. Sem betur fer hefur það ekki tekist og vekja hinir blaktandi fánar vonir um að þjóðimar fái að njóta sín enn frekar og fái að dafna á ný í eigin sögu, menn- ingu og tungu. Heimsmynd Morgunblaðsins byggist á því, að sérhver þjóð, stór eða smá, hafí frelsi til að draga sinn eigin fána að húni. Þetta sjónarmið hefur ekki átt upp á pallborðið hjá þeim hér á landi eða annars staðar, sem í áratugi hafa neitað að viður- kenna kúgunina og ofríkið í Eystrasaltsríkjunum og hafnað þátttöku í baráttu fyrir frelsi þeirra, sem þar búa. I Reykjavík myndast auð- legð og þar ríkir festa frjáls- lyndisins undir stjóm Davíðs eftir Eyjólf Konráð Jónsson Hnútukastið í garð Reykvíkinga og forustu þeirra í borgarstjóm er í senn hvimleitt og bamalegt. Segja má að kasti tólfunum, þegar menn skammast yfir því, að borgarstjórn hraði hvers kyns framkvæmdum fyrir eigið fé meðan ríkissjóður er með allt niðrum sig vegna ofskött- unar og ofstjómar kerfiskarla og verðbólgan æðir áfram. Borgin ger- ir sér lítið fyrir og tryggir þegjandi og hljóðalaust orkuöflun alls höfuð- borgarsvæðisins fram um aldamót til viðbótar efldum athöfnum á öll- um öðmm sviðum til að bæta mannlíf og búa í haginn fyrir fram- tíðina — en ekki síst þó fyrir nútíð, eldri borgarana, sem streyma til Reykjavíkur og okkur sem einhvem tímann eldumst. Allt þetta á borgin og borgaramir án þess að skulda grænan eyri. Og nú er uppbygging miðbæjarins hafín og þar mun at- hafnasemi brátt eflast og blómgast. En þetta skapar „þenslu". Þjóðin eyðir um efni fram, einkum Reyk- víkingar. Þessi framkvæmdagleði leiðir til glötunar. Það er hrikaleg eyðsla umfram efni að byggja öll þessi hús, leggja allar þessar götur, veija stórfé til umhverfisverndar og leyfa hvers kyns atvinnulífi að leika lausum hala og greiða jafnvel fyrir því að það eflist með því t.d. að hafa stanslaust tilbúnar lóðir fyrir fólk í stað þess að skammta gæðin og stöðva „þensluna", eins og ríkisvaldið er stöðugt að gera af göfuglyndi sínu, m.a. með síauknum sköttum og peninga- skömmtun, sem knýr áfram verð- bólgu. Og ósvífni borgarstjórans er svo yfírgengileg að reisa höfuðborginni hóflegt og fagurt ráðhús á réttum stað, ekki óáþekkt Listasafninu, á öndverðum bakka Tjarnarinnar, og hrinda í framkvæmd margra ára- tuga gamalli snilldarhugmynd um útsýnis- og þjónustustað á hita- veitugeymunum, að ógleymdri byggingu Borgarleikhúss og hvers kyns annarri menningardellu. Og allt þetta fyrir eigið fé, án þess að hækka skatta. Það hlýtur að vera eitthvað bogið við þetta og grun- samlegt er hvað Davíð pukrar með þetta allt saman, rétt eins og sjálf- sagt sé að nota peninga borgaranna til framkvæmda í stað þess t.d. að lána vesalings ríkissjóðnum þá í enn ríkari mæli en nú er gert vegna vanskila hans við borgina. Ekkert er við það að athuga, að menn hafí ólíkar skoðanir t.d. á húsum, enda væri tilveran dapurleg án þess. Þannig hefur mér t.d. lið- ist að hafa efasemdir um ágæti Seðlabankahúss og Útvarpshúss og er staðráðinn í því að gera allt sem í mínu valdi stendur til að stöðva það hneyksli, sem bygging Alþing- ishússins væri. Nu hafa borist fréttir af því, að Oddfellowar hafi sótt um lóð til nýbyggingar. Hana fá þeir auðvit- að, eins og allir aðrir. Þá losnar væntanlega hús þeirra við Vonar- stræti. Núna er því gullið tækifæri til að leysa öll deilumál um við- kvæmasta hluta- borgarinnar. Ríkið á að kaupa eða leigja húsið. Þar er meira en nóg rými fyrir alla þá starfsemi Alþingis, sem nú kann að vera þröngt um. Síðar má svo byggja einhveijar snyrtilegar og manneskjulegar vistarverur fyrir þingið. Hitt væri kannski ennþá skemmtilegra, að „Davíð“ keypti húsið, lánaði ríkinu það í nokkur ár og léti svo rífa það. Hann munar ekkert um það. En allt gæti fallið í Ijúfa löð, þegar þinghús, Dóm- kirkja og ráðhús, með torgi sínu, tengdist Tjörninni og Austurvelli með eðlilegri hófsemd í túnfæti Ing- ólfs. Þessi orð leyfi ég mér nú að leggja í belg og vona að mér fyrir- gefist að hafa skoðun, eins og aðr- Upphaf nýrrar atvinnusóknar eftirHalldór Blöndal Það er auðvitað stórpólitískt ákvörðun hvort ráðist skuli á nýja stóriðju og á hvaða forsendum. Eg vissi ekki betur en fyrir mörgnm árum hefði orðið um það þegjandi samkomulag milli þeirra þing- manna, sem á annað borð vilja nýta orku fallvatnanna til gjaldeyrisöfl- unar, að nauðsynlegt væri að ganga úr skugga um hvort samningar tækjust við Alusuisse eitt eða í sam- vinnu við önnur stórfyrirtæki um stækkun álversins við Straumsvík eða byggingu nýs þar syðra. Fyrir þessu lágu augljós hagkvæmnisrök, sem ekki er hægt að vefengja með hliðsjón af þeim efnahagslega ávinningi sem frekari uppbygging stóriðju við Straumsvík hefur í för með sé&fyrir þjóðarbúið í heild eins eins og nú standa sakir. Með þetta í huga kom mér á óvart, þegar ég las það í Morgunblaðinu sl. laugar- dag, að Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra lætur eins og þau sjónarmið hafí ekki verið uppi sem ég hef nú verið að lýsa. En það á sér skýringar eins og ég mun víkja að síðar. Mér kom afstaða Kvennalistans til nýs álvers við Straumsvík ekki á óvart. Þingmenn Kvennalistans hafa farið léttilega yfir atvinnumál- in, þegar þau hefur borið á góma í þingsölum. Það leynir sér ekki, að þingmennirnir eru mjög vinstri sinnaðir, sem auðvitað er í samræmi við skoðanir og málflutning t.d. Þórhildar Þorleifsdóttur meðan hún var í Alþýðubandalaginu. Málflutn- ingur Kristínar Einarsdóttur í stór- iðjumálum er af sama toga. Rauðir og svartir litir eru þar mest áber- andi. Og enn sem fyrr fíallar Kristín Einarsdóttir um raforkumálin af slíku ábyrgðarleysi, að minnir á Hjörleif Guttormsson þegar hann er verstur. Stagl um sömu hlutina Maður hlýtur að spyija sjálfan sig, hvaða tilgangi það þjóni að stagla sömu hlutina aftur og aftur, rifía upp sögu Búrfellsvirkjunar og álversins enn á ý og minna aftur á, að á næstu tveim eða þrem árum hefur raforkuverðið til álversins skilað öllum stofnkostnaði Búrfells- virkjunar og línumannvirkja auk rekstarkostnaðar. Þá er svo komið, að við getum varið afrakstri Búr- fellsvirkjunar til að greiða niður skuldir af öðrum raforkumannvirkj- um, sem þýðir lækkun orkuverðs. Þótt skrýtilegt sé, dregur Kristín Einarsdóttir þá ályktun af þessum staðreyndum, að skuldlaus Búrfells- virkjun sé til tjóns fyrir okkur ís- lendinga en til hagsbóta fyrir út- lendinga, sem er skelfilegt orð í hennar munni eins og hún vilji enga samvinnu við þá hafa, þótt orðið geti báðum til góðs, okkur og þeim. I þessu sambandi má heldur ekki gleyma, að við höfum haft mjög verulegar gjaldeyristekjur aðrar af álverinu, bæði beint og óbeint. Ég hygg, að ávinningurinn verði seint metinn til fulls, sem við höfum haft af álverinu við Straumsvík. Skoðanakannanir hafa gefið okk- ur vísbendingu um, að fylgi Kvennalistans sé verulegt. Við hljótum að taka það alvarlega, þótt einhver hafi gefið þá skýringu, að það sé eðlilegt, þar sem Kvennalist- inn hefi komist hjá því að bera ábyrgð, en með því er gefíð í skyn, að hann sé ekki allur þar sem hann sýnist. Eftir sem áður leggur fylgi Kvennalistans í skoðanakönnunum þá skyldu á herðar þingmönnum hans að gera rækilega grein fyrir skoðunum sínum, ekki síst í at- vinnumálum. Það verkar hjárænu- lega, þegar í öðru orðinu er talað um að nýta auðlindir okkar en hafn- að stóriðju í hinu vegna fordóma, sem maður hélt satt að segja og heyrði sögunni til. Umræður um menningarmál og listir eru alltaf skemmtilegar en duga skammt sem leiðbeiningar um það, hvernig þjóð geti framfleytt sér og leyft sér auk heldur þann munað að lifa menning- arlífí. Eins og ég gat um í upphafi kemur mér afstaða Halldórs Ás- grímssonar til hugsanlegrar stór- iðju við Staumsvík á óvart. En eflaust er skýringin sú, að samning- ar um byggingu kísilmálmverk- smiðju við Reyðarfjörð hafa strand- að í bili, hvað sem síðar verður. E.t.v. veldur það Halldóri pólitísk- um erfíðleikum, sem honum þykir henta að velta af sér yfir á samráð- herra sinn, Friðrik Sóphusson. Það hefur í sjálfu sér ekki mikla merk- ingu en er með öðru lýsandi fyrir samstöðu og samábyrgð ráðherr- anna. Álver við Eyjafjörð Fyrir 23 árum efndum við ungir Sjálfstæðismenn til ráðstefnu á Akureyri, þar sem við settum fram þá kröfu, að álver risi við Eyja- fíörð. Rökstuðningurinn var auðvit- að sá sami og nú. Slíkt fyrirtæki breikkaði atvinnugrunninn og því Eyjólfur Konráð Jónsson „Reykvíkingum þykir vænt um borgina sína, og þeir eru ekki einir um það, Islendingum öllum þykir vænt um höfuðborgina. En halda menn að svo væri, ef þar hefði ekki lengst af ríkt frjálslyndi og framfarahugur?“ ir, með hliðsjón af því að allt frá unglingsárum hef ég ýmist búið við Tjömina eða unnið á bökkum henn- ar og í næsta nágrenni; við erum þess vegna vinir. Halldór Blöndal „En ég hlýt þó að minna á, að við Norðlendingar stóðum heils hugar á bak við Austfirðinga í sambandi við hugsan- lega kísilmálm verk- smiðju við Reyðarfjörð. Um leið settum við fram þá kröfu að unnið yrði að því að álver risi við Eyjafjörð eða Skjálfanda, en gerðum okkur auðvitað grein fyrir því, að Alusuisse myndi halda sig við Straumsvík ef það fyr- irtæki yrði yfirleitt til viðræðu um frekari stóriðju hér á landi.“ fylgdi óhjákvæmilega ný starfs- þekking og margvísleg umsvif, sem lyftu byggðarlögunum í kring. Síðan þetta gerðist hafa æ fleiri tekið undir þessa skoðun, að það yrði mikil lyftistöng fyrir lands- byggðina, ef stóriðjufyrirtæki risu AF ERLENDUM VETTVANGI Eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Sýrland er að koma til slgal- anna eftír útskúfun um árabil UNDANFARNA mánuði hefur Sýrland verið að koma skýrar fram á sjónarsviðið, eftir að hafa verið að nokkru útskúfað úr Arabaheim- inum vegna stuðnings við írani. Bandaríkjamenn hafa forðast eins og heitan eldinn að hafa samskipti við Sýrlendinga, en eru nú tekn- ir að viðra sig upp við þá og telja þá aflið sem kunni að ráða úrslitum í þessum ókyrra heimshluta. í fyrsta lagi hafa Bandaríkjamenn sennilega sannfærst um að friði verði ekki komið á í Miðausturlönd- um né Líbanon reist úr rústunum, nema Sýrlendingar komi þar við sögu. í öðru lagi lýstu Sýrlendingar þvíyfir á Amman-fundinum, að þeir ætluðu að kúvenda hvað varðaði íran og snúa sér að hinum arabisku bræðrum sínum á ný. íranir hafa nú tilkynnt að séu fúsir að ræða vopnahlé. Stríðið er þar með senn á enda. Reykvíkingum þykir vænt um borgina sína, og þeir eru ekki einir um það, íslendingum öllum þykir vænt um höfuðborgina. En halda menn að svo væri, ef þar hefði ekki lengst af ríkt fijálslyndi og framfarahugur? Halda menn t.d. að svo væri, ef Geir Hallgrímsson hefði ekki í upphafi borgarstjórnar- ferils síns heitið höfuðborginni heildarskipulagi, fullkominni hita- veitu og síðast en ekki síst fullgerð- um götum, gangstéttum og fegrun umhverfis — og staðið við það allt og margt fleira. Og halda menn kannski, að iðandi menningarlíf væri í Reykjavík, ef þar þrifist þrönglyndisstjórn, ef Davíð Odds- son væri ekki enn „skemmtilegur strákur", eins og Guðrún Helga- dóttir, alþingismaður, sagði hann hafa verið, — mér sýndist og heyrð- ist, að hún teldi nú þrátt fyrir allt, að hann væri það enn. Það telja líka aðrir, einkum unga fólkið, eins og kosningaúrslit og skoðanakann- anir sýna. Og enginn dirfist að halda öðru fram í alvöru en að stjóm Reykjavíkur sé góð. Þar er hvorki afturhald né „aðhald", hvað svo sem það nú þýðir á hag- fræðsku. Eftir reynslunni að dæma er það eitthvað ekki gott, eins og Færeyingurinn segir — onki gott gamli. Helst held ég, að við, venju- lega fólkið, skynjum fyrirbærið sem ofstjórn og þar með óstjórn. Þær em nefnilega eineggja tvíburar, ofstjóm og óstjóm, en hvomg þeirra kemst upp með moðreyk í málefn- um Reykjavíkur. — Svo er forsjón- inni fyrir að þakka. Höfundur er einn af alþingis- mönnum Sjálfstæðisflokks fyrir Reykja víkurkjördæmi. þar. Það sést best á Framsóknar- flokknum, sem ekki mátti heyra slíkt nefnt á 7. áratugnum. Ég sé ekki ástæðu til að hefía ritdeilu við nafna minn Ásgrímsson um það, hvort stóriðjufyrirtæki skuli rísa á Norðurlandi eða Aust- fjörðum. Við reynum auðvitað báðir að vinna að hagsmunum okkar kjör- dæma um leið og við vonandi gleymum ekki þjóðarheildinni. En ég hlýt þó að minna á, að við Norð- lendingar stóðum heils hugar á bak við Austfirðinga í sambandi við hugsanlega kísilmálmverksmiðju við Reyðarfjörð. Um leið settum við fram þá kröfu að unnið yrði. að því að álver risi við Eyjafíörð eða Skjálfanda, en gerðum okkur auð- vitað grein fyrir því, að Alusuisse myndi halda sig við Straumsvík ef það fyrirtæki yrði yfirleitt til við- ræðu um frekari stóriðju hér á landi. í þessum efnum sem öðrum dugir ekki annað en vera raunsær. Það hefur of oft komið fyrir að landsbyggðarmenn hafi spillt hver fyrir öðrum með því að koma sér ekki saman þannig að hvaðeina hefur safnast saman í Reykjavík. Ég vona sannarlega að lát verði á því. Um leið hlýt ég að leggja áherslu á, að væntanlegt álver við Straumsvík er byijunin á nýrri at- vinnusókn. Við stefnum að því að halda áfam að virkja fallvötnin og erum reiðubúnir að gera það í sam- vinnu og samstarfi við erlenda aðila (útlendinga), ef það er hagkvæmt í bráð og lengd. Við megum aldrei vera svo kjarklausir og dáðlausir, íslendingar, að við þorum ekki að setjast við samningaborðið af því að við gefum okkur það fyrirfram, að við hljótum að fara halloka. Stór- iðja er ekki markmið í sjálfu sér, en eigi að síður er hún nauðsynleg, ef við á annað borð viljum breyta afli straumvatnanna í gjaldeyri, sem við höfum svo ríkulega þörf fyrir. Stóriðjan kemur ekki í veg fyrir aðra atvinnustarfsemi. Þvert á móti styrkir hún hana og styður með því að raforkan verður ódýrari en ella myndi. Höfundur er þingmaður Sjilf- stæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra. Sýrlendingar telja að landfræði- lega og sögulega séð hafi þeir alla burði til að vera forysturíki í Arabaheiminum. Egyptar segja sig sjálfkjöma því að þeir eru fjölmenn- astir. Saudar og írakar eru ekki frá því að þeim bæri þetta hlut- verk. Sýrlendingar átta sig á að bágt efnahagsástand og endur- teknir hemaðarósigrar fyrir ísrael- um hafa orðið til að draga úr for- ystumöguleikunum. Þrátt fyrir þetta er veldi Assads ekki ógnað, meðan herinn stendur með honum. Oft hefur verið spáð að uppreist yrði gerð gegn honum, en hann hefur jafnan snúið vöm í sókn. Hann er slóttugur maður og ófyrirleitinn, svífs einskis og hann hefur haft bolmagn til að koma keppinautum sínum út í kuldann, þegar honum hefur fundist þeir ógna veldi sínu. Það var líka fyrir atbeina Sýrlendinga, að vopnahlé Líbana og ísraela varð að engu. Menn sögðu að þetta sannaði kenn- inguna: Ekkert stríð ef Egyptar halda að sér höndum, enginn friður án Sýrlendinga. Bandaríkjastjóm hefur skilist þetta. Sérfræðingar segja að það eina merkilega við friðarferðir George Shultz til Miðausturlanda sé að hann hafi alltaf kannað hug sýrlenska forsetans fyrst. Vitað er að þetta vakti gremju Shamirs, forsætisráðherra Israels. Sennilega hefur friðarviðleitni Shultz verði dæmd til að misheppn- ast, einnig vegna kosninganna í Israel og Bandaríkjunum á árinu. Því er ekkert útlit fyrir að nein þróun verði í málefnum Palestínu- manna og ísraela fyrr en nýjar ríkisstjórnir em sestar þar við stjóm. Sumir telja meiri líkur á að ástandið í Líbanon skáni eitthvað. Eftir að Shultz áttaði sig á að Shamir forsætisráðherra Israels ætlaði ekki að samþykkja ráðstefnu um Miðausturlönd, taldi bandaríski utanríkisráðherrann vitið meira að þeir Assad notuðu tímann til að ræða framtíðarskipan mála í Líban- on. Bandaríkjamenn og Sýrlending- ar em sammála um að nauðsynlegt sé að næsti Líbanonsforseti verði úr hópi kristinna maronita. Þar með hafa Bandaríkjamann fengið forseta sér vinveittan og Assad veit, að Sýrlendingar geta ráðið því sem þeim þóknast. Það er Sýrlend- ingum mikilvægt að friður komist á í Beirút og þeir hafa sýnt það í ýmsu, meðal annars með því að reyna að ná tökum á Hizbollah- samtökunum og skipa Amal-sveit- um shíta að leggja niður vopn og halda frið. Hvað sem öllum fjandskap milli Sýrlendinga og ísraela líður, vilja báðir koma í veg fyrir að Hizbolla- h-samtökin verði aðgangsmeiri í suðurhluta Líbanons og geri þaðan árásir inn yfír landamæri ísraels. Samtímis því að Sýrlendingar slógu hring um suðurhverfin í Beirút, gerðu ísraelar loftárásir á stöðvar í suðurhluta landsins. Hvað snertir Líbanon hefur Assad óneitanleg góð spil á hendi, en hann á þó enn eftir að færa sönnur á að hann geti leitt mál til lykta með samningum og staðið við þá. Hins vegar hefur hann sýnt að hann getur gert samninga að engu milli þeirra aðila sem honum eru ekki að skapi. Það verður líka ráðið af ýmsu, að áhrif írana hafa minnkað í Líbanon. En það má þó ekki gleyma, að íranir hafa fengið því framgengt að Hizbollah fái að starfa þar — þótt með skilmálum sé. Assad hefur dregið furðu lengi að skipa herjum sínum inn í út- hverfí Beirut og það er vísbending um að hvað sem öðru líður er hann ekki tilbúinn að skera á tengslin við írani. Þá skyldu menn ekki gera of lítið úr fíandskap Assads og Sadd- ams Husseins, Iraksforseta. Þessi fjandskapur þeirra forsetanna hef- ur reynst afdrifaríkur og hann hafði komið upp á yfirborðið löngu áður en stríðið milli íraks og írana hófst. Margsinnis hefur komið fram að Sýrlendingar óttast um afdrif út- lendu gislanna í Líbanon og vilja að þeim verði sleppt. Þeim er ljóst að þeir verða að forðast að reita írani til reiði, svo að gíslamir verði ekki teknir af lífi. En þó svo að forsvarsmenn Vest- urlanda sjái sér hag í að vingast við Sýrlendinga til þess að auka ítök sín á svæðinu, verður allt slíkt að ganga rólega fyrir sig. Sovét- menn hafa verið traustir banda- menn Sýrlendinga og þeim er ekki alls kostar rótt nú, þegar þeir sjá stefnubreytinguna sem er að verða hjá Bandaríkjamönnum. Ekki er vafí á því að Sýrlendingar vilja heldur ekki styggja Sovétmenn. Einnig er nokkur ágreiningur innan forystunnar í Sýrlandi hversu langt eigi að ganga og sá ágrein- ingur tengist efalaust þeirri valda- baráttu sem er háð um hver muni eiga að verða eftirmaður Assads. Lengi vel var talað um Rifaat, bróð- ur hans. Hann þótti hlynntari Bandaríkjunum en góðu hófi gegndi og hann hefur látið af öllum stjómunarstörfum. Annar er vara- forsetinn Abdel Halim Khaddam, en hann hefur að sögn verið minna i sviðsljósinu en áður. Bent er á að Assad snúi sér í auknum mæli til utanríkisráðherra síns, Farouk al Shara, sem hefur tekið með nokkurri tortryggni vinartilburðum Bandaríkjamanna. Hann er ekki mótfallinn meiri tengslum, en vill fara rólega í sakimar og telur að meðan Bandaríkjamenn haldi lífinu í Ísraelsríki sé óhugsandi að Sýr- lendingar treysti þeim til fullnustu. Farouk al Shara er því að flestra dómi sá sem væri líklegastur nú til að taka við, félli Assad frá. Farouk al Shara þykir fluggáfaður maður, einarður og snjall pólitíkus. Um hann hefur verið sagt að hann sé einn fárra atvinnupólitíkusa í þessum heimshluta. Shara veit sjálfsagt flestum betur að hann verður að fara varlega — ekki má hann draga að sér of mikla at- hygli. Þá bíður hans það sama og annarra sem hafa að dómi Assads farið að skyggja á hann. (Heimild: grein Judith Vidal Hall í 7.tbl South) Assad og Gorbatsjov á fundi. George Shultz og Farouk al Shara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.