Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 41 Morgunblaöiö/Sverrir Vilhelmsson Francis Rossi telur áheyrendur. Einfalt og ófrumlegt Vart hefur það farið framhjá neinum að breska rokksveitin Status Quo kom hingað til lands og hélt hér tvenna tónleika f Reiðhöllinni fyrir á annað þús- und manns. Líklega hafa þó flestir spurnir af tónleikunum vegna taps Reiðhallarinnar sem ertalið eitthvað á fimmtu milljón króna. Ein sennilegasta ástæða áheyrendafæðar er sú að Status Quo á sér ekki eins marga aðdá- endur á íslandi og tónleikahaidar- ar höfðu ætlað og liðin er sú tíð er tónleikaþyrstir létu teyma sig til að sjá nær hvaða hljómsveit sem var. Gildir þar einu þó hljóm- sveitin sé vinsæl í sínu heima- landi. Áheyrendur í Reiðhöllinni föstudags og laugardagskvöld voru flestir komnir á þrítugsaldur og vel við skál. Eitthvað virtist mannfæðin, um 700 manns, fara í taugarnar á Rossi og félögum á föstudagskvöld og ekki lék sveitin nema í tæpa klukkustund. Hún kom þó aftur á svið eftir uppklapp og -stapp. Á laugardagskvöld voru eitt- hvað fleiri í höllinni, sennilega eitt- hvað um þúsund. Status Quo leik- ur prjál- og tildurslausa rokktón- list, eins einfalda og hægt er að hafa hana. Einfaldleikinn er nokk- uð á kost frumleika, því þó hægt sé að leika einfalda tónlist sem er frumleg um leið, þá eru mörg ár síðar Status Quo hætti að gera slíkt. Jafn einföld tónlist kallar á eitthvað annað en góðan samleik Parfitt og Rossi Morgunblaöiö/KGA og fettur og brettur á sviðinu og til lengdar er hljómsveitin frekar þreytandi. Er á leið fannst manni sem alltaf væri verið að leika sama lagið. Ekki bætti úr þó gítar- leikarar sveitarinnar, Rick Parfitt og Francis Rossi, skiptu með sér söngnum, því báðir hafa þeir tak- markaða sönghæfileika. Reiðhallarinnar vegna er von- andi að betur takist til næst og að á ferðinni verði hljómsveit sem hefur meira til brunns að bera en það að hafa leikið sama lagiö í átján ár, enda er Reiðhöllin marg- falt betri tónleikastaður en Laug- ardalshöllin, þó ekki þurfi mikið til. Texti: Árni Matthíasson Gildran í Duus-húsi HLJÓMSVEITIN Gildran heldur tvenna tónleika í Duus-liúsi, fyrri tónleikarnir verða miðvikudag- inn 20. júlí og síðari fimmtudag- inn 21. júlí. Tónleikamir hefjast kl. 22.00 og ætlar hljómsveitin að kynna lög af væntanlegri hljómplötu Gildrunnar. Pennavinir Tvítug frönsk stúlka í tónlist- arnámi og með margvísleg áhuga- mál. Hyggst heimsækja ísland í júlí eða ágúst í sumar og langar að eignast pennavini hér áður: Anne Terriere, 9 rue Bigot „Foyer“, 33000 Bordeaux, France. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI Skutlan er eins bg sniöin fyrir nútímafólk. Hún er sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um- ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Þaö tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum sem til þekkja. * LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr. Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30 mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð aö viðbættum verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu er ekki innifaiinn. __________ _______(Gengisskr. 23.6.88) Mátt þú sjá af 369 krónum á dag?* Ef svo er þá getur þú eignast splunkunýja LANCIA SKUTLU!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.