Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 46

Morgunblaðið - 20.07.1988, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 fclk í fréttum David Stewart og Annie Lennox. ANNIE LENNOX Besta j ólagj öfin Annie Lennox, söngkona í hljómsveitinni Eurythmics, á von á barni um jólin og segir að það verði besta jólagjöf sem hún geti nokkum tíma fengið. Annie og tilvonandi eiginmaður hennar; Uri Fructman kvikmynda- leikstjóri, voru svo nákvæm að barnið fæðist að öllum líkindum á aðfangadagskvöld eða á jóladag. David Stewart, hinn helmingur- inn af hljómsveitinni Eurythmics, á einnig von á bami með eiginkonu sinni svo að hljómsveitin mun eign- ast tvo erfingja í nánustu framtíð. David og Annie vom par á sínum tíma en David batt enda á samband- ið. Margir héldu að hljómsveitin myndi splundrast um leið en svo fór ekki. Annie segir: „Okkur kemur vel saman og samstarfið gengur ágætlega eins og alltaf.“ Þrátt fyrir óléttuna líður Annie vel og hún ætlar að vinna fram á síðustu stundu. Hún og Uri hafa ákveðið að gifta sig fyrir jól og hafa sest að í París. AKRANES Samhent sundfólk á Skipaskaga Um síðustu helgi var ný sundiaug tekin í notkun á Akranesi. Þrátt fyrir slæma sundaðstöðu hafa margir bestu sundmenn lands- ins komið úr röðum Akumesinga. Nægir þar að nefna nöfn eins og Ragnheiði Runólfsdóttur, sem í dag er á hátindi ferils síns, fyrir nokkrum árum var skærasta stjarnan Ingi Þór Jónsson og Guðjón Guðmundsson var fremsti sundmaður landsins um 1970. Með tilkomu nýrrar sundlaugar á Akranesi breytist öll aðstaða sund- manna mjög mikið. Félagsstarfið tekur einnig vStakkaskiptum og þá er eins gott að hafa harðsnúið lið við stjórnvölinn. Samhent stjórn og góður þjálfari vega þar þungt, en þeir á Skaganum hafa einnig byggt upp geysiöflugt starf foreldra sund- krakkanna og hafa þeir komið af auknum þunga inn í félagsstarfið. Slíkt samstarf íþróttaforystu og foreldra á Akranesi er af hinu góða og til eftirbreytni fyrir mörg félög. —JG Veg^na mistaka birtist röng frétt með þessum myndum í blaðinu í gær. Hér kemur rétta fréttin og er beðist velvirðingar á mistökun- um. . Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Foreldrafélag Sundfélags Akraness á fundi ásamt stjórn félagsins. Á innfelldu myndinni eru ungir sundmenn frá Akranesi að lokinni æfingarferð í Mosfellsbæ fyrir skömmu. Slíkar ferðir heyra nú fort- íðinni til eftir að ný sundlaug hefur verið tekin í notkun. INDLAND Sjá með hnakkan- um Þessir þjóðlegu fískimenn í Indlandi eru mjög varir um sig þegar þeir róa á miðin til að veiða sér og fjölskyldum sínum til matar. Það eru margar hættur á leið þeirra og þeir verða nánast að geta séð með hnakkanum til að vera við öllu búnir. Á þessum slóðum eru hræðileg mannætutígrisdýr á ferli sem leggja það í vana sinn að ráðast á saklausa fiskimenn. Tígrisdýrin ráðast yfírleitt aftan að bráð sinni og því hafa fískimennirnir sett á sig grímur til að villa um fyrir þeim.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.