Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 52
—> 52 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGIIR 20. JÚLÍ 1988 SIGLINGAR / ISLANDSMOTIÐ Ragnar M. Steinsen sigraði í opnum flokki. Ragnar sigraði í flokki optimistbáta UM HELGINA var haldið ís- landsmót í siglingum á Foss- vogi. Keppt var í optimist- og topperflokki sem eru vinsælir unglingabátar. Optimistinn er lítill bátur sem böm byrja að sigla þegar baðkarið heima dugir ekki lengur til. Topperinn tekur svo við þegar optimistinn verður of lítill. Siglingaklúbbamir hafa haldið námskeið í sumar með aðstoð þjálf- ara siglingasambandsins Óttarrs Hrafnkelssonar og hafa þau tekist vel eins og dæma má af fjölda þátt- takenda í mótinu. Keppnin var haldin af Siglingasam- bandi Islands, á athafnasvæði Sigl- ingafélagsins Ymis í Kópavogi. Mótstjóri var Daníel Friðriksson og hafði hann með sér fjölda manns á sjó og landi til aðstoðar. Er mat manna að aldrei hafi tekist eins vel með siglingamót hér á landi. Logn einkenndi mikinn hluta móts- ins og varð að fresta fyrstu umferð optimist-bátanna í miðri keppni. Tókst þó að ljúka sex umferðum í báðum flokkum án frekari erfið- leika. P ' Úrslit urðu sem hér segir: í optimist-flokki B: 1. Ragnar M. Steinsen Ými 2. Guðni D. Kristjánsson Ými 3. Hólmfríður Kristjánsdóttir Ými í C-flokki, sem er flokkur þeirra sem eru skemur á veg komnir. 1. Ólafur Benediktsson 2. Helgi Pétursson 3. Agúst Kristinsson í topperflokki urðu úrslit þessi: 1. Guðmundur I. Skúiason 2. Bjarki Amórsson 3. Guðjón Jóhannesson Vogi Siglunesi . Nökkva Ými Ými Sigiunesi Keppendur á optlmist bátum á sigllngasvæðl Ymls í Kópavogi. Guðnl Dagur Krlstjánsson hafnaði í 2. sæti í optimist flokki. m GOLF / KVENNAMÓT Fjölmennasta kvenna- golfmótið til þessa OPNA Rosenthal mótið í golfi fór fram um síðustu helgi og voru keppendur 62 talsins. Þetta er fjölmennasta golfmót kvenna, sem haldið hefur verið hérlendis til þessa og greini- legt er að golfið á vaxandi fylgi að fagna meðal íslenskra kvenna. / eppt var í þremur flokkum og ■V voru 18 holur leiknar. Sigur- vegarar voru: Forgjöf 16-22 högg: 1. Ágústa Guðmundsdóttir GR......86 2. Hildur Þorsteinsdóttir GK......88 3. Lóa Sigurbjörnsdóttir GK.......88 Forgjöf 23-30 högg: 1. Kristín Eide NK...............90 2. Margrét Guðjónsdóttir GK.......93 3. Jóhanna Waagfjörð GR...........96 Forgjöf 31-42 högg: 1. Guðný Ragnarsdóttir GS.......103 2. Elín Gunnarsdóttir GS.........106 3. Kristín Stefánsdóttir GOS.....107 í Rosenthal mótinu var keppt um það hver gæti slegið næst þriðju holu í upphafshöggi sínu. Sú sem komst næst holunni var Elín Gunn- ’arsdóttir, GS. Þá fór opna Stendahl mótið fram á dögunum á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ en þar voru keppendur öllu færri, eða 24 talsins. Þar voru einnig leiknar 18 holur og keppt í flokkum með og án forgjafar. Úrslit voru sem hér segir: Keppni án forgjafar: 1. Kristín PáldsóttirGK..........86 2. Jónína Páldsóttir NK..........91 3. Ágústa Guðmundsdóttir GR......99 Keppni með forgjöf: 1. Kristín PáldsóttirGK..........74 2. Jónína Pálsdóttir NK..........75 3. Áslaug Bemhöft NK.............76 í kvöld: Mjólkurbikarinn kl. 20.00: Valur-Fram..Hlíðarendavöllur í A-í BK...Akranesvöllur íslandsm. 4. deild kl. 20: Bolungarvík-Höfrungur .......Bolungarvíkurvöllur DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON „Settu flaggið niður!" að gerist margt undarlegt á knattspymuvellinum í sam- skiptum dómara og leikmanna og stundum em dómarinn og línu- verðirnir ekki alveg sammála. Mig langar til að segja frá furðulegu atviki sem átti sér stað í leik Manchester United og Chelsea fyrir nokkmm ámm. Það var langt liðið á leikinn og staðan 2:1 fyrir Chelsea. Þá tókst Manchester United að jafna, en markið var greinilega skorað af rangstæðum manni. Þetta var mjög áberandi og línuvörðurinn veifaði strax. Dómarinn var hins- vegar á öðm máli og dæmdi mark. Leikmenn Chelsea mótmæltu ákaft og bentu á línuvörðinn, sem stóð teinréttur með flaggið. Loks hljóp dómarinn til línuvarðarins og hvað haldið þið að hann hafi sagt? „Settu helv... flaggið niður og hlauptu eins og þú getur fram að miðju.“ Línuvörðinn gerði það og leikuinn hófst að nýju, staðan þá 2:2. Eftir leikinn kærði línuvörðurinn dómarann til enska knattspyrnu- sambandsins og dómarinn var víttur fyrir vikið. Mér er þó ekki alveg kunnugt um dóminn sem hann hlaut, en óneitanlega furðu- leg framkoma. Algeng sjón. Markvörður með hnéið á undan sér. Meó hnéið út í loftiðl Eg ætla að nefna eitt atriði í sam- bandi við markverði. Það er þegar hár bolti kemur inn í vítateiginn og markvörður kemur út til að ná boltanum. Þá setja markverðir nær alltaf annað hnéið sér til vamar og er þetta mjög glanna- legt að sjá. En þótt undarlegt megi virðast verða sjaldan slys af þessum sök- um. Sóknarleikmenn reyna yfir- Ieitt að forða sér þegar markvörð- ur kemur út í þessari stellingu og láir þeim það enginn. En á dómarinn að dæma á þetta? Dómarinn getur ekki dæmt á þetta fyrr en þetta er orðinn háskaleikur og eins og ég sagði þá reyna sóknarleikmenn yfirleitt að forða sér. En lendi markvörður á sóknarleikmanni á að sjálfsögðu að dæma óbeina aukaspyrnu á markvörðinn. Það er dæmt á leik- menn sem sýna tilburði sem þessa og markverðir hafa engin sér hlunnindi hvað þetta varðar. Ég hef rætt jþetta við nokkra markverði og þeir sögðu allir að þeir vissu að þetta væri ólöglegt. En eins og einn markvörðurinn sagði: „Ég vil heldur stökkva upp með hnéið svona en að láta and- stæðinginn hlaupa mig niður!“ Svo mörg voru þau orð... Með dómarakveðju Guðmundur Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.