Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ Morgunblaðið/Logi Bergmann Eiðsson Þorgils Óttar Mathiesen á hér í baraftu við Frank Löhr og Ulrich Roth í leik íslendinga gegn V-Þjóðveijum í Dessau. Leiknum lauk með jafntefli 19:19 og Islendingar hlutu því 3. sætið á mótinu. Landsleikir Islands og V-Þýskalands: Sterkustu lið þjóðanna Tveir leikir gegn V-Þjóðverjum í Höllinni V-ÞÝSKA iandsliðið í hand- knattleik kemurtil íslands í dag og leikurtvo leiki við íslenska landsliðið. Leikirnir eru liður í lokaundirbúningi íslenska liðs- ins fyrir Ólympíuleikana í Seoul íhaust. rátt fyrir að V-Þjóðverjum hafi ekki tekist að vinna sér þátttökurétt á Olympíuleikunum, eru þeir með geysisterkt lið og hafa sigrað bæði Heimsbikarmótið og Super-cup á þessu ári. V-Þjóðveijar voru ásamt íslending- um meðal þátttakanda á alþjóðlega a-þýska handknattleiksmótinu sem lauk um síðstu helgi. Liðin léku um þriðja sæti á m ótinu og lauk viður- eign þeirra með jafntefli, 19:19 í hörkuleik, en jafnteflið færði íslend- ingum 3. sætið á mótinu. Liðin áttust einnig við í Hamburg fyrir mótið og þá unnu V-Þjóðveijar 19:18. Frá upphafi hafa Island og V- Þýskaland leikið 34 landsleiki. V- Þjóðveijar hafa unnið 24 leiki, Is- lendingar sex og fjórum leikjum hefur lyktað með jafntefli. Tveír bætast við V-þýska liðið sem keppir hér er skipað sömu leikmönnum og í A- Þýskalandi, að viðbættum mark- verðinum snjalla Andreas Thiel sem spilar með Gummersbach og Martin Schwalb frá Essen, en þeir léku ekki með f A-Þýskalandi. Islending- ar mæta líka til leiks með sitt sterk- asta lið og því er ljóst að um hörku- viðureignir verður að ræða. Fyrri landsleikurinn verður í Laug- ardalshöll, sunnudaginn 24. júlí kl.18 og sá síðari daginn eftir kl. 20, einnig í Laugardalshöll. „Það er langt síðan Bogdan lands- liðsþjálfari hefur náð saman sínum sterkustu mönnum í leik hér heima," sagði Jón Hjaltalín Magn- ússon, formaður HSI. „Það er því full ástæða fyrir áhorfendur að fjöl- menna á leikina og slá þannig tvær flugur í einu höggi - verða sér úti um góða skemmtun, sem öruggt er að lofa og eins að styrkja hand- knattleikssambandið sem lagt hefur út í gífurlegan kostnað vegna Ólympíuleikanna," sagði Jón. KORFUKNATTLEIKUR Sturia þjálfar IR STURLA Örlygsson, leikmað- ur með Njarðvíkingum í úr- valsdeildinni í körfuknattleik, mun.þjálfa lið í ÍR í vetur. Hann tekur við af Einar Bolla- syni sem mun þjálfa Hauka. Sturla lék með Njarðvík í fyrra, en var áður í Val. Hann hefur leikið 13 landsleiki og mun leika með IR í vetur, auk þess að þjálfa liðið. Nú eiga tvö lið eftir að ráða þjálf- ara, Grindavík og Þór. Einar Bollason tekur við íslands- meisturunum, Haukum og Cris Fadness við bikarmeisturum Njarðvíkur. Lee Nober þjálfar ÍBK, Torfi Magnússon Val og Lazlo Nemeth þjálfar KR. Þá mun Valdimar Guðlaugsson þjálfa ÍS. Sturla Örlygsson FATLAÐIR / ÓLYMPÍULEIKAR Fjórtán keppendur á Olympíuleika fatlaðra ÓLYMPÍULEIKAR fatlaðra fara fram í Seoul dagana 15. til 24. október. Fjórtán keppendur taka þátt í leikjunum fyrir ís- lands hönd. Þá verða með íför níu þjálfarar og fararstjórar. Margir góðir íþróttamenn eru í íslenska liðinu. Fremstur er að sjálfsögðu Haukur Gunnars- son, nýbakaður- heimsmethafi í 400 m hlaupi. Þá er að sögn Markúsar Einarssonar, formanns íþróttasam- bands fatlaðra, vonast eftir góðum árangri sundmannanna og jafnvel verðlaunasætum í einhveijum greinum. ðlympíufararnir hafa æft mjög vel í sumar. Liðið var í æfingabúðum í júní og fer í aðrar slíkar um miðj- an ágúst. Þá tekur sundfólkið þátt í opna hollenska meistaramótinu í Hollandi 26. til 28. ágúst og fijáls- íþróttamennirnir keppa á móti í V-Þýskalandi í september. Eftirtaldir íþróttamenn fara á Ólympíuleikana: Frjálsar íþróttir: Haukur Gunnarsson, (ÍFR), Reynir Kristófersson, (ÍFR), Arnar Klem- ensson, (Viljanum), Elvar Thorar- ensen, (ÍFA). Sund: Jónas Óskarsson, (Völsungi), Gunn- ar Valur Gunnarsson, (Selfossi), Geir Sverrisson, (Njarðvík), Ólafur Eiríksson, (ÍFR), Halldór Guðbergs- son, (ÍFR), Sóley Axelsdóttir, (ÍFR), Sigrún Pétursdóttir, (ÍFR), Kristín Rós Hákonardóttir, (ÍFR), Lilja María Snorradóttir, (Tindastól), Rut Sverrisdóttir, (ÍFA). I FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / BANDARÍKIN Risastökk Cari Lewis Náði lengsta stökki ársins á bandaríska úrtökumótinu. Steve Lewis með besta tíma ársins í 400 metra hlaupi CARL og Steve Lewis voru í sviðsljósinu á úrtökumóti Bandaríkjamanna fyrir Óiympíuleikana í Seoul. Carl Lewis sigraði i langstökki, náði 5. besta stökki frá upphafi og Steve Lewis sigraði í 400 metra hlaupi, tími hans einnig sá 5. besti frá upphafi. Það skal tek- ið fram að þeir Carl og Steve eru ekki skyldir. Carl Lewis sigraði í einvígi við Larry Myricks í langstökki í Indianapolis. Keppnin var spenn- andi og árangur mjög góður, þrátt fyrir að aðstæður væru ekki með besta móti. Carl Lewis stökk 8,76 metra, sem er 5. lengsta stökk frá upphafi og besti árangur í langstökki á þessu ári. Larry Myricks var reyndar ekki langt undan því hann stökk 8,74 metra í fjórðu tilraun, en Lewis tryggði sér sigur í síðasta stökkinu. í undanúrslitum í 400 metra hlaupi bar Steve Lewis sigur úr bítum á 44,11 sekúndum. Það er 5. besti tími sem náðst hefur frá upphafi, næst besti tími sem náðst hefur í svo lítilli hæð, besti tími ársins í greininni og heimsmet unglinga, en Steve Lewis er aðeins 19 ára. í hinum riðli 400 metra hlaupsins sigraði Harry Reynolds á 44,65 sekúndum. Ein grein eftir hjá Carl Lewis Carl Lewis stefnir að því að veija gullverðlaunin í þeim fjórum grein- um sem hann vann á Ólympíuleik- unum í Los Angeles 1984. Hann hefur þegar tryggt sér sæti í liði Bandaríkjannaí 100 metra hlaupi, langstökki og 4x100 metra boð- hlaupi. Hann á aðeins eftir að keppa í 200 metra hlaupi, en þar er hann kominn í undanúrslít. Þrír efstu í hverri grein vinna sér sæti í liði Bandaríkjanna, en þegar hafa tveir bandarískir methafar misst af sæti. Joe Dial komst ekki áfram í stangarstökki og Mark Nenow, sem á bandaríska metið í 10.000 metra hlaupi, hafnaði í 4. sæti. Þá mun Lorenzo Daniel, sem á besta tíma ársins í 200 metra hlaupi, ekki fara til Seoul. Hann hætti við keppni í 200 metra hlaupi vegna meiðsla og Sandra Farmer- Patrick var dæmd úr leik í 400 metra hlaupi fyrir að hlaupa út fyr- ir brautina. Valeri Brisco, sem vann til þrennra gullverðlauna í Los Angeles 1984, slapp naumlega í bandaríska liðið er hún hafnaði í 3. sæti í 400 metra hlaupi kvenna. I.it' uriitfeift'hí i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.