Morgunblaðið - 21.07.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
9
SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 21.JÚLÍ
EININGABRÉF 1 3.113,-
EININGABRÉF 2 1.791,-
EININGABRÉF 3 1.982,-
LÍFEYRISBRÉF 1.565,-
SKAMMTlMABRÉF 1.103,-
f KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar. sími 68 69 88
Miðstöð
verðbréfaviðskiptanna
/
Láttu peningana vinna?
Sérfræðingar Kaupþings í verðbréfaviðskiptum
aðstoða þig við kaup á hagstæðustu verðbréfunum
hveiju sinni. Á þann hátt lætur þú peningana
vinna fyrir þig.
Kaupþing býður allar gerðir verðbréfa.
Einingabréf 1,2,3
Lífeyrisbréf
Bankabréf
Veðskuldabréf
Skuldabréf stærstu fyrirtækja
Spariskírteini ríkissjóðs
Hlutabréf í fyrirtækjum
Skammtímabréf
rtnk
i þJÓÐVILJINN Mi,gag, |
Ja \m rðarfö jlýst s ■§J
Jarðarför hvers?!
Þjóðviljinn tilkynnir í forystugrein í gær, að ríkisstjórnin sé dauð
en jarðarförin verði auglýst síðar! Um þessa staðhæfingu Þjóð-
viljans verður fjallað í Staksteinum í dag og einnig verður vitnað
til ummæla í forystugreinum Tímans og Þjóðviljans í gær um
stöðu ríkisstjórnarinnar.
Er Albanía
enná
ferðinni?
Hér fyrr á árum, þcg'-
ar deilur voru harðastar
milli kommúnistaflokk-
anna í Sovétríkjunum og
Kína, brugðu Sovétmenn
gjarnan á það ráð að
skamma Albaníu, sem
var eina sósíalíska ríkið
í Evrópu, sem studdi
Kínverja — ef þeir vildu
koma gagnrýni á fram-
færi án þess, að hún vekti
of mikla athygli.
I forystugrein Þjóðvilj-
ans í gær segir svo: „Það
er einhver ógæfulegur
þreytusvipur á forystu-
mönnum ríkisstjórnar-
innar. Þeir hreyta úr sér
ónotum hver i annan,
eins og strákar í fótbolta-
liði, sem gengur illa, fyr-
irliðinn skammast i
framlínunni, framlínan i
markmanninum, mark-
maðurinn i vöminni,
vömin í tengiliðunum og
allir saman í dómaranum
... Ríkisstjómin er að vísu
dauð en jarðarförin verð-
ur auglýst síðar.“
Þessi forystugrein
Þjóðviljans hefði alveg
eins getað byijað á þenn-
an veg: Það er einhver
ógæfulegur þreytusvipur
á forystumönnum Al-
þýðubandalagsins
o.sv.frv.1 Ef þreytusvipur
er á ríkisstjóminni er
hann ekki siður á for-
ystumönnum Alþýðu-
bandalagsins. Hvar er
Ólafur Ragnar eigin-
lega?! Ekki er hann að
boða frið í útlöndum!
Svavar hefur tekið við
þvi hlutverki. Hvenær
verður jarðarför Alþýðu-
bandalagsins auglýst?
Fór hún kannski fram i
kyrrþey?!!
Tíminnog
ríkisstjómin
Tíminn fjallar i for-
ystugrein i gær um
stjómarsamstarfið og
segir: „Ef þessi ríkis-
stjóra ætlar að lifa, þá
dugir ekki, að þannig sé
unnið innan hennar, að
sifellt þurfi að skerast i
odda og hvergi sé slakað
á. Þriggja flokka ríkis-
stjóm er i sjálfu sér
vandmeðfarið stjómtæki
og háð málamiðlunum.
Eigi að síður er nauðsyn
margflokkastjómar aug-
ljós í fjölflokkaþjóðfé-
lagi. Ábyrgir stjómmála-
flokkar hjjóta að ganga
út frá þvi í raunhæfri
pólitík, að oft og iðulega
verði ekki þjá þvi komizt
að margir flokkar, og
varla færri en þrír, eigi
aðild að ríkisstjóm. Ef
sú viðurkenning liggur
fyrir þá hjjóta forystu-
menn slíkra flokka að
gera sér grein fyrir þvi,
að stjómarstefnan verð-
ur að byggjast á mála-
miðlun og eðlilegri tillits-
semi gagnvart sam-
starfsflokkumun. En
fyrst og fremst verður
ríkisstjóm að koma sér
saman um hveraig hún
ætlar að bregðast við
brýnustu vandamálum
efnahagslifs og fjár-
mála."
Alþýðublaðið
og ríkis-
stjómin
Alþýðublaðið flnnur
líka hjá sér þörf til þess
að fjalla um ríkisstjóm-
ina i forystugrein í gær
og segir: „Þvi miður hafa
stjómarflokkamir ekki
náð nægjanlegri sam-
stöðu um hin stóm undir-
stöðuatriði; eflingu og
umbyltingu ríkistekna,
endurskipulagningu at-
vinnuveganna og eflingu
þjóðartekna samfara nið-
urskurði á rikisútgjöld-
um. Alþýðuflokkurinn
hefur einn i núverandi
ríkisstjómarsamstarfi
haft til að bera hinar
viðfeðmu hugsjónir að
umbreyta þjóðfélaginu i
þá vem að efla og
tryggja jöfnuð og rétt-
læti. Hin sterku hags-
munatengsl Sjálfstæðis-
flokksins og Framsókn-
arflokksins hafa staðið i
vegi fyrir einlægum
ásetningi þessara flokka
að beijast fyrir hag ein-
staklinganna S þjóðfélag-
inu. Einstaka atvinnu-
greinar og fyrirtæki
samtvinnuð við ríkiskerfi
og skömmtunarkerfl ey-
steinskunnar hafa haft
pólitiskan forgang. Það
er ennfremur dapurlegt,
að hugsjónaeldi Alþýðu-
flokksins i núverandi
ríkisstjómarsamstarfl,
sem lyft hefur Grettis-
tökum, skuli hafa verið
snúið upp i andhverfu
sína og traðkað niður i
fjölmiðlum. Enn nötur-
legra er til þess að hugsa,
að andstæðingar ríkis-
stjómarinnar hafa hlotið
dyggan stuðning alþing-
ismanna stjómarflokk-
anna þriggja til að rifa
niður gjörðir Alþýðu-
flokksins og reyndar
rikisstj ómarinnar i heild.
Dæmi: umbylting tekju-
öflunarkerfis ríkissjóðs,
aðskihiaður rikis og
sveitarfélaga, kaupleigu-
kerflð og skattabreyting-
in.“
Borðbúnaður - sem ber af —
SUOMI matar- og kaffistell
frá Rosenthal.
Hnítapör í sama stíl.
Hönnun: Timo Sarpaneva.
studiohúsið
A HORM LAUGAVEGS OG SNORRABRAUTAR
SIMI 18400