Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
13
Lóð í Stigahlíð
Til sölu 914 fm eignarlóð á besta stað við Stigahlíð í
Reykjavík.
Upplýsingar í síma 82055 á skrifstofutíma.
Ú
FASTEIGNASALAN
FJÁRFESTING HF.
68-55-80
Norðurfell
Glæsilegt raðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr samtals um 220 fm. Uppi: M.a. sjónvarpshol, 3
rúmgóð svefnherb., flísalagt baðherb. með baði, sturtu-
klefa og gufubaði og frábær 60 fm blómastofa með
parketi. Niðri: Stofa með arni, borðstofa, svefnherb.,
eldhús, búr og þvottaherb. Sérlega vel innréttað hús.
Upplýsingar á skrifstofu. Einkasala.
Ármúla 38. - 108 Rvk. - S: 68-55-80
Lögfræðingar: Pétur Þór Sigurðsson hdl.,
Jónína Bjartmarz hdl.
I árekstri við sovéskan sendiráðsmann:
Telur siff í rétti en
fær ekki tjónið bætt
m
Metsölublað á hverjum degi!
„MER FINNST harkalegt að
þurfa að sætta mig við þetta en
úr þessu er sennilega ekki um
annað að ræða,“ segir Aðal-
steinn Guðmundsson læknir,
sem fyrir nokkru lenti í árekstri
við sovéskan sendiráðsstarfs-
mann. Stendur staðhæfing gegn
staðhæfingu um tildrögin.
Atburður þessi átti sér stað á
mótum Túngötu og Garðastrætis.
Lögreglan var kvödd til og skýrsla
var tekin af bæði Aðalsteini og
sovéska sendiráðstarfsmanninum.
Aðalsteinn hélt því fram að rútan
hefði bakkað á sig en sá sovéski
að Aðalsteinn hefði ekið aftan á
rútuna. Engin vitni voru að þess-
um atburði og stendur því orð
gegn orði.
Báðir bílamir voru tryggðir hjá
Sjóvá og þar var ákveðið að skipta
sjálfskuldaábyrgð aðila jafnt nið-
ur. Sovéska sendiráðið sætti sig
við þá niðurstöðu málsins og Aðal-
steinn segir að h'ann hafí í sjálfu
sér ekkert út á niðurstöðu trygg-
ingarfélagsins að setja eins og
málinu er komið. Hinsvegar fær
hann ekki bættan þann skaða að
missa bíl sinn á verkstæði í tæpa
sex daga.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni eru allir bílar sem
sendiráðin nota tryggðir og skráð-
ir hér á landi. Bótaskyldan ef um
árekstra er að ræða er skýr og
skiptir ekki máli hvort viðkomandi
nýtur friðhelgi eður ei. Lögreglan
má aftur á móti ekki hafa nein
afskipti af sendiráðsstarfsmönn-
um er njóta friðhelgi önnur en að
koma í veg fyrir að þeir fremji
lögbrot. Ef ökumaður nýtur t.d.
friðhelgi sem starfsmaður sendi-
ráðs og ekur undir áhrifum áfeng-
is getur lögreglan aðeins stöðvað
þann akstur en má ekki hafa nein
önnur afskipti af manninum.
Loftbrú til Vestmannnaeyja
LEIGUFLUG Sverris Þórodds- og Reykjavík. Nánari upplýsingar
sonar verður með loftbrú til ’fást á skrifstofu Leiguflugsins í
Vestmannaeyja um verslunar- Reykjavík og á umboðsskrifstof-
mannahelgina. unni á Hellu.
Flogið verður til Eyja frá Hellu (Fréttatakynning)
STORUTSALA
Buxur
Bolir
Blússur
Pils
Peysur
Jogginggallar
Barnafatnaður
og margt, margt fleira
Sjáumst
‘><v