Morgunblaðið - 21.07.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
43
ÁTAK í LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVlK
SfMI: (91)29711
Hlaupareikningur 261200 j
BúnaAarbankinn Hellu
Kvartett Tómasar R. Ein-
Ávöxfun ríkisvíxla er nú
allt að 43,13% á ári.
Kjörvari og
Þekjukjörvari
verja viðinn
vel og lengi
Nú eru forvextir á ríkisvíxlum 34,3% sem jafngildir
43,13% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga
lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að
ávaxta skammtímafjármuni.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka íslands og
hjá löggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru við-
skiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land
allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í
Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar,
svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða
með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síð-
an send í ábyrgðarpósti.
MM,
málning'lf
RIKISSJOÐUR ISLANDS
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
FLOKKUR LÁNSTÍMI ÁVÖXTUN GJALDDAGI
1. fl. D 3 ár 8,5% 1. feb.’91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb.’94—’98
arssonar spilaði í Jónshúsi
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
KVARTETT Tómasar R. Einars-
sonar er nú á tónleikaferð í
Svíþjóð, en skrapp til Kaup-
mannahafnar yfir milli jazzhá-
tíða og lék í félag'sheimilinu i
Jónshúsi sl. mánudag. Kvartett-
inn skipa auk Tómasar bassaleik-
ara, Sigurður Flosason, sem spil-
ar á saxófón, Kjartan Valdimars-
son á píanó og Birgir Baldursson
á trommur.
Léku þeir félagar m.a. lög eft-
ir Tómas og Sigurð, en einnig
erlend lög, við góðar undirtektir
áheyrenda, sem fylltu salinn.
Tómas lék sum laganna með
kvartett inn á plötu á síðasta
ári, m.a. titillag hennar, Hinsegin
blús.
Tómas R. Einarsson þekkja
margir hér, en hann var í námi hjá
hinum kuna bassaleikara Johan
Poulsen í Kaupmannahöfn 1983—
1984 og æfði sig þá hér í Jóns-
húsi. Hann er vaxandi lagasmiður
og höfða lög hans til áheyrendans,
svo sem „Vor hinzti dagur er hnig-
inn“, „Rumba, samba og frjálst",
„Stríðsdans" og „Stutt í spuna“, en
í síðast talda laginu leikur hann
einleik á bassann.
Sigurður Flosason hefur stundað
tónlistarnám í Indiana í Banda-
ríkjunum undanfarin 5 ár, en fer í
framhaldsnám til New York í haust.
Hann hefur samið lög síðan hann
var 17 ára og hét hið fyrsta „Að
áeggjan Tómasar“r Lag Sigurðar
„In memoriam“ vann jazzhluta
Hoagy Carmichel-keppninnar í
fyrra og lék hann lagið bæði í út-
varp og sjónvarp í Indiana. Lagið
er skrifað í minningu Sveins Ólafs-
sonar, eins fyrsta jazzista á Islandi.
Kjartan Valdimarsson píanóleik-
ari er aðeins 21 árs og hefur leikið
í hljómsveitinni Sprakk í sumar, en
hún spilar víða um land. Kjartan
nemur tónlist í Boston og hefur þar
sitt 3. námsár í haust. Birgir Bald-
ursson er 24 ára og spilar víða í
hljómsveitum, bæði fyrir dansi og
t.d. í leikhúsum. Birgir var í FÍH-
skólanum í 2 ár og er mjög efnileg-
ur trommari.
Kvartettinn lék fyrir nokkrum
dögum á „Nordiska Radio Jazz
Dagar“ í Karlstad á Skáni og voru
hljómleikarnir teknir upp fyrir út-
varpsstöðvar á öllum Norðurlönd-
unum. Hljómlistarmennirnir eru nú
í Kristiansstad, þar sem þeir komu
fram á þriggja daga jazzhátíð í
Tívolígarði borgarinnar að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Meðfylgjandi mynd er af kvartett
Tómasar R. Einarssonar, talið frá
vinstri: Birgir Baldursson, Tómas
R. Einarsson, Kjartan Valdimars-
son og Sigurður Flosason.
— G.L.Ásg.
Sparifé þitt rýrnar
ekki ef þú f járfestir
í spariskírte*
ríkissjóðs
Það eru margar ástæður fyrir því að spariskírteini
ríkissjóðs eru einn vænlegasti kostur sparifjáreig-
enda í dag. Spariskírteini ríkissjóðs eru einföld og
jafnframt ein öruggasta ávöxtunarleið, sem völ er á.
Spariskírteinin eru verðtryggð, sem kemur í veg
fyrir að sparifé þitt rýrni og bera auk þess allt að
8,5% vexti. Og ekki má gleyma að spariskírteinin
eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í
bönkum. Spariskírteini ríkissjóðs eru því án efa
rétti kosturinn fyrir þig.