Morgunblaðið - 15.09.1988, Síða 1
96 SIÐUR B
210. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgimblaðsins
Fellibylurinn Gilbert
genginn yfir Yucatan
Fjórðungnr Jamaica-búa talinn heimilislaus
Miami, Reuter.
FELLIBYLURINN Gilbert skall í gœr á sumarleyfisdvalarstöðum á
Yucatan-skaga i Mexíkó og var vindhraði um og yfir 300 km/klst. Af
þessum sökum þufti að flytja um 100.000 manns á brott, en Gilbert
er mesti fellibylur þessarar aldar. Ytri mörk fellibylsins voru í gær
komin út á miðjan Mexikóflóa og er talið að hann kunni að æða yfir
Texas þegar á föstudag haldi hann sömu stefnu.
Yfirvöid á eynni Jamaica, sem
varð mjög illa úti í fellibylnum, settu
útgöngubann í Kingston frá sólsetri
til dögunar, til að reyna að hafa
hemil á ránum og gripdeildum.
Íbúar Jamaica hafa orðið einna
verst úti vegna Gilberts, en yfírvöld
á eynni telja að um 500.000 manns
— um fjórðungur eyjarskeggja — séu
heimilislausir hans vegna. Skemmd-
imar eru metnar á um 300 milljónir
Bandaríkjadala. Edward Seaga for-
sætisráðherra sagði fellibylinn vera
Olíuverð á
skyndimark-
aði rýkur upp
Lundúnum, Reuter.
OLÍUVERÐ á skyndimörkuðum
hækkaði verulega í gær eftir að
fréttir bárust af þvi að Verðlags-
nefnd OPEC myndi koma saman
til fundar hinn 25. og 26. þessa
mánaðar.
Meðalhækkunin nam tæpum 6%
eða 75 bandarískum sentum á olíu-
fatið.
Olíumarkaðsmenn vonast til þess
að nefndin komi sér saman um
aðgerðir til þess að hækka olíuverð,
sem hefur lækkað að undanfömu.
Þá hafði fellibylurinn Gilbert
einnig áhrif á verðhækkunina, en
óttast er að olíuskorts kunni að
gæta í Bandaríkjunum, þar sem öll
vinna við olíuborpalla á Mexíkóflóa
hefur fallið niður vegna fellibylsins.
mestu náttúruhamfarir í manna
minnum á eynni og fór þess á leit
að önnur ríki veittu Jamaica neyðar-
aðstoð. Javier Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, tók undir beiðni þessa. Banda-
ríkjastjóm brást skjótt við og sendi
þegar flugvélar með vistir og annan
neyðarbúnað.
í Mexíkó yfirgáfu ferðamenn
strandhótel á ferðamannaeynni
Cozumel, en fólk á Yucatan-skaga
hélt lengra inn í landið áður en Gil-
bert reið yfir. Ekki færri en 12 manns
hafa látist af völdum fellibylsins.
Þegar Gilbert gekk yfir Mexíkó
rifnuðu þök af húsum sem pappír
væri og fuku út í veður og vind. Sex
metra háar öldur gengu á land og
mun vart standa hús óskemmt við
ströndina.
Herinn var þegar sendur á vett-
vang eftir að stormurinn gekk yfir
og stóð vörð á götum á götum úti,
en ekki er vitað um neitt manntjón
enn sem komið er.
Mexíkanska ríkisolíufélagið lét
loka öllum borholum sínum á botni
Mexíkóflóa — 146 talsins — og vom
allir 5.000 starfsmenn félagsins á
borpöllum þess fluttir í land.
Seint í gærkvöld var fellibylurinn
að mestu genginn yfir Yucatan-
skaga og á leið yfir Mexíkóflóa.
Vindhraðinn hafði þá fallið niður í
230 km/klst. en einstakar hviður
mældust vera um 320 km/klst. Veð-
urfræðingar töldu þó líklegt að vind-
hraðinn myndi aukast að nýju vegna
hlýrra hafstrauma.
Við strendur Bandaríkjanna eru
yfirvöld þegar farin að gera ráðstaf-
anir vegna Gilberts. Hafa menn neglt
borð fyrir glugga og reynt að hefta
tré og annað, sem kynni að láta
undan í fárviðrinu, sem nálgast óð-
um. í verslunum hafa menn hamstr-
að vatn á flöskum, matvöru, raf-
hlöður og annað, sem menn telja
geta komið að góðum notum.
Sjá skýringarkort og frásögn
sjónarvotts á siðu 36.
"5. ,
Bk'
Reuter
í borginni Galveston í Texas kepptust menn í gær við að negla fyr-
ir glugga áður en fellibylurinn Gilbert gengur í garð.
Heimsókn páfa til Lesotho:
Fjórir látast í áhlaupi
Suður-Afríkumanna
Maseru, Reuter.
NOKKRUM mínútum eftir að
páfi kom til konungdæmisins
Lesotho björguðu suður-afrískar
Bandaríkin:
Yöruskiptahalli lækk-
ar um 3,59 milljarða
Washington, Reuter.
Vöruskiptahalli Banda-
ríkjanna í júlímánuði reyndist
aðeins nema 9,53 milljörðum dala
og hefur ekki verið lægri i þijú
og hálft ár. Þetta ber vott um
að dregið hafi úr innflutningi og
telja hagfræðingar að þetta
kunni að vera vísbending um að
hagvöxtur verði ekki jafnör og
tíl þessa verði um leið þægilegri
hagstjórnar.
Bandaríkjadalur hækkaði mjög í
verði á gjaldeyrismörkuðum vegna
þessa og í kauphöllinni í Wall Street
styrktust flest hlutabréf. Ef ekki
hefði komið til olíuverðshækkunar
má ætla að bæði Bandaríkjadalur
og verðbréf hefðu hækkað talsvert
meira.
Vöruskiptahalli Bandaríkjanna
hefur lækkað jafnt og þétt að und-
anfömu og jafnvel hraðar en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona.
Stjómmálaskýrendur telja að
þessar fregnir muni styrkja George
Bush, forsetaefni Repúblikana-
flokksins, enn meira, en hann hefur
talsvert forskot á Michael Dukakis,
forsetaefni demókrata, samkvæmt
síðustu skoðanakönnunum. For-
setakosningar fara fram í Banda-
ríkjunum hinn 8. nóvember.
Hagfræðingar telja að hagkerfi
Bandaríkjanna sé loks að hægja á
sér en það vex nú og dafnar 70.
mánuðinn í röð, sem er met á frið-
artímum. Sumir hagfræðingar hafa
þó efasemdir um að hagvöxtur
minnki áfram og telja hagstæðari
vöruskiptajöfnuð geta haft hvetj-
andi áhrif á hann.
lögreglusveitir öllum nema ein-
um 69 pílagrima, sem haldið var
í gíslingu í langf erðabifreið þar
í landi. Fjórir létust i árásinni.
Þrir af fjórum skæruliðum, sem
tekið höfðu pilagrímana í
gíslingu, létust, en auk þeirra
lést ung stúlka. 11 manns særð-
ust i áhlaupinu, þar af fjórir al-
varlega. Að sögn embættismanns
í Pretoríu, höfuðborg Suður-
Afríku, hófu skæruliðarnir
skothríð á allt sem hreyfðist um
leið og áhlaupið hófst.
Skæruliðamir fjórir héldu gíslum
sínum — nunnum, skólabömum og
öðrum pflagrímum — í langferðabif-
reiðinni í meira en sólarhring án
votts eða þurrs. Pílagrímamir ætl-
uðu til Maseru, höfuðborgar
Lesotho, til þess að fagna páfa, en
ræningjamir neyddu bflstjórann til
þess að aka að breska sendiráðinu,
þar sem þeir kröfðust þess að fá
að tala við páfa og Mosheshoe kon-
ung, en hótuðu gíslunum lífláti ella.
Bflalest páfa ók fram hjá sendi-
ráðinu í minna en hálfs kflómetra
fjarlægð þegar páfí kom til Lesotho
frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku,
en þar neyddist vél páfa til að lenda
vegna veðurs. Upphaflega ætlaði
páfi ekki að fara til Suður-Afríku
— að sögn vegna þess að hann
hefði ekki tíma til þess — en talið
Reuter
Einn hinna særðu fluttur á sjúkrahús i Lesotho eftir áhlaupið. Á
innfelldu myndinni sést páfi í fylgd með Pik Botha, utanrikisráð-
herra Suður-Afríku.
er að aðskilnaðarstefna Suður-
Afríkustjómar hafi valdið þar
mestu um. Hann lét sér þó vel líka
að lenda þar og þáði málsverð í
boði Pik Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku.
Embættismenn Páfagarðs vildu
ekkert segja um áhlaupið í Lesotho,
en embættismenn í Suður-Afríku
sögðu að reynt hefði verið að forð-
ast blóðbað í lengstu lög.
Suður-Afríka sendi lögreglu-
sveitimar til Lesotho að beiðni þar-
lendra stjómvalda.
Mörgum klukkustundum eftir að
skothríðinni lauk ríkti ringulreið í
Maseru, en þarlendir embættis-
menn vildu ekkert segja um áhlaup-
ið. Blaðamenn og aðrir sjónarvottar
sögðu að Suður-Afríkanar hefðu
alfarið séð um áhlaupið, en hermenn
Lesotho sáu einungis um að loka
svæðinu af og halda óviðkomandi
í burtu. Eftir að áhlaupið var yfír-
staðið brutu hermenn Lesotho
myndavélar blaðaljósmyndara og
beindu vélbyssum að blaðamönnum,
sem reyndu að komast að vettvangi.