Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15..SEPTEMBER 1988 Danmörk: Fannstmyrtur í sumarbústað Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, DANSKI rithöfundurinn Christ- ian Kampmann fannst á mánu- dagskvöld myrtur i sumarbústað sínum á eyjunni Læsö undan austurströnd Norður-Jótlands. Vinur hans, ástmaður og starfs- bróðir, Jens Michael Schau, hef- ur verið handtekinn, og hefur hann játað á sig verknaðinn. Kampmann var höfundur margra vinsælustu skáldsagna, sem gefnar hafa verið út í Danmörku síðustu árin. Hann fékk verðlaun danska bóksalafélagsins og styrk úr minn- fréttaritara Morgunbiaðsins. ingarsjóði Henry Nathansens fyrir skáldsögumar „Visse hensyn“, „Faste forhold", „Rene linier" og „Andre máder", fjögurra binda rit- röð þar sem hann lýsir á kald- hæðnislegan hátt dulinni óhamingju borgarastéttarinnar. Fjöldi annarra bóka hefur komið frá hendi Kampmanns og í vor sem leið vann hann mikinn sigur með sjónvarpsleikritinu „Alle elsker Debbi", sem fjallar um viðkvæm tilfinningamál í sambandi við kyn- ferðislega misneytingu fósturföður á dóttur sambýliskonu sinnar. Kína: Friedman varar við vaxandi verðbólgn Shanghai. Reuter. BANDARÍSKI hagfræðingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Milt- on Friedman varaði kinversk stjórnvöld við þvi á þriðjudag að óðaverðbólga gæti valdið kinversku efnahagslífi miklu tjóni nema einkavæðingu kinver- skra ríkisfyrirtælqa yrði hraðað. Hann sagði ennfremur að efna- hagsvandi landsins fælist aðal- lega í óheftum lántökum kinver- skra ríkisfyrirtækja. „Ekkert gæti grafið jafn mikið undan þeim mikilvægu efnahags- umbótum sem Kínveijar hafa kom- ið á og vaxandi verðbólga," sagði Friedman á ráðstefnu sem 100 menntamenn frá Kína, Banda- ríkjunum og Evrópu sóttu. „Eina lausnin felst í því að takmarka lán- tökur ríkisfyrirtækja. Best yrði að einkavæða þessi fyrirtæki og neyða þau til samkeppni á ftjálsum mark- aði.“ Verðbólgan í Kína komst í 19 prósent í júní og hefur aldrei verið jafn mikil síðan kommúnistaflokk- urinn tók völdin árið 1949. Kínversk stjómvöld tilkynntu í þessum mánuði að verðlag yrði fryst út þetta ár og hétu því að draga úr verðbólgunni á næsta ári. Kínverski hagfræðingurinn Pu Svíþjóð: Afbrotum Shan sagði að kínversk stjómvöld væru að reyna hemja verðbólguna en ekki hefði verið ákveðið að hraða einkavæðingu eins og Friedman lagði til. Reuter Fór fyrir bijóstið á Norðmönnum ítalska þingkonan Ilona Staller, betur þekkt undir nafninu Cicciolina, olli mikilli reiði nor- skra stjórnmálamanna er hún skoðaði byggingu norska Stórþingsins í gær. Staller, sem leikið hefur í mörgum klámmyndum, beraði nefnilega vinstra bijóst sitt í viðurvist margra vitna, þ.á m. nokkurra þingmanna, er hún stóð við sæti þingforseta. Stórt málverk af fulltrúum á hinum sögufræga Eiðsvallafundi 1814 hangir bak við forsetasætið. Forseti Stórþingsins, Jo Benkow, var meðal þeirra sem neituðu að hitta Cicciolinu og sagði hann þetta framferði hennar „einstak- lega óviðeigandi.1* Sameinuðu þjóðirnar: Fjárhagsvandi stofn- unarínnar enn óleystur - segir Perez de Cuellar fjölgar Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. NÆRRI 16 þúsund Svíar voru í fyrra dæmdir til fangelsisvist- ar og er það nýtt met. Þar af voru sjö menn dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð. Þetta kemur fram í nýrri töl- fræðilegri samantekt sænskra dómsmálayfirvalda. Síðan ný hegningarlöggjöf gekk í gildi árið 1965 hafa ekki jafn margir verið dæmdir í lífstíðarfangelsi á einu ári. Meira en helmingur þeirra sem dæmdir eru til fangavistar sitja inni skemur en þrjá mánuði. 100 manns voru í fyrra fangelsaðir til lengri tíma en eins árs og þar af voru flestir dæmdir fyrir fíkniefna og ofbeldisbrot. í fyrra voru framin 250.000 umferðarlagabrot í Svíþjóð. Er það einnig nýtt met. 11.600 manns voru teknir fyrir ölvun við akstur. Að lokum má geta þess úr skýrsl- unni að útlendingar frömdu 14% af öllum afbrotum í Svíþjóð í fyrra. Sameinuðu þjóðunum. Reuter. JAVIER Perez de Cuellar, aðal- ritari Sameinuðu þjóðanna, fagnaði í gær þeirri ákvörðun Bandarikjastjórnar að greiða 520 milljónir dala (23,9 millj- arða ísl. kr.) í vangoldin fram- lög til Sameinuðu þjóðanna en sagði að þessar greiðslur leystu ekki fjárhagsvanda stofnunar- innar. í yfírlýsingu frá Perez de Cuell- ar segir að fjárskortur komi áfram niður á starfsemi Sameinuðu þjóð- anna þar til vangoldnar skuldir allra aðildarríkjanna hafa verið greiddar. Marlin Fitzwater, tals- maður Bandaríkjaforseta, hafði tilkynnt á þriðjudag að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefði skipað svo fyrir að greiddar skyldu 520 milljónir dala í vangoldin framlög til stofnunarinriar. 44 milljónir dala verða greiddar strax og heitið var 144 milljónum að auki 1. október. Perez de Cuellar, sem hafði varað við því að Sameinuðu þjóð- imar gætu þurft að hætta hluta starfsemi sinnar á næstu vikum vegna fjárskorts, sagði að ákvörð- un Reagans „lofaði mjög góðu." Hann bætti hins vegar við að þótt hluti vangoldinna framlaga yrði greiddur leysti það ekki vanda stofnunarinnar. Hann sagði að ef stofnunin ætti að geta haldið áfram fríðarumleitunum og haldið uppi eðlilegu friðargæslustarfi þyrfti að koma til móts við fjár- þörf stofnunarinnar með öðrum leiðum. Hann nefndi ftjáls framlög og vaxtalaus lán sem hugsanlegar fjáröflunarleiðir. Stjómarerindrekar sögðu að nokkur af auðugari ríkjum heims væru tilbúin að veita lán en mörg Evrópuríki væru mótfallin þeirri leið, þar sem hún myndi aðeins draga úr þrýstingi á Bandaríkja- menn til að greiða vangoldin fram- lög sín til fulls. Bandaríkjaþing ákvað að halda að sér höndum með greiðslur til stofnunarinnar og krafðist umbóta innan Samein- uðu þjóðanna, meðal annars að þau ríki sem mest leggja fram til stofnunarinnar fengju ráðið meim um útgjöld hennar. Perez de Cuell- ar og Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna hafa leitast við að koma til móts við þessar kröfur og Marl- in Fitzwater kvaðst ánægður með árangurinn. Hann sagði að ákvörðun Bandaríkjastjómar ætti að stuðla að frekari umbótum inn- an stofnunarinnar. Talið er að fjárþörf Sameinuðu þjóðanna muni aukast á næst- unni. Verði til að mynda samið um sjálfstæði Namibíu er talið að það muni kosta Sameinuðu þjóð- imar um milljarð dala (46 millj- arða ísl. kr.). Bandaríkjamenn em ekki þeir einu sem skulda Sameinuðu þjóð- unum. Samkvæmt lista sem gefinn var út í lok júlí skulduðu Sovét- menn næstum tíu milljónir dala (460 milljónir ísl. kr.) í föst fram- lögtil stofnunarinnar og 252 millj- ónir dala (11,6 milljarða ísl. kr.) vegna friðargæslu hennar. Suður- Afríkumenn skulda 33.9 milljónir dala (1,8 milljarða ísl. kr.), Bras- ilíumenn 17,9 milljónir (828 millj- ónir ísl. kr.), íranar 12,1 milljón (554 milljónir ísl. kr.) og Arg- entínumenn 6,3 milljónir (290 milljónir ísl. kr.). Suður- og Norður-Kórea: Leiðtogafundur að af- loknum Olympíuleikum? Seoul. Reuter. SUÐUR-Kóreumenn hafa ákveð- ið að taka boði Norður-Kóreu- manna um fund æðstu manna ríkjanna í Pyongyang um hugs- anlega sameiningu þeirra ef Norðanmenn trufla ekki Ólympíuleikana, sem settir verða í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, næstkomandi laugardag. Að sögn ríkisútvarps Suður- Kóreu, mun Roh Tae-woo, forseti, tilkynna við athöfn að afloknum Ólympíuleikunum að tilboði Norð- anmanna verði tekið. Leikunum verður slitið 2. október. Kim Il-sung, leiðtogi Norður- Kóreu, lagði til í síðustu viku að æðstu menn kóresku ríkjanna kæmu saman til fundar í Pyongy- ang, höfuðborg Norður-Kóreu, til þess að ræða um griðarsáttmála og hugsanlega sameiningu ríkjanna. Leiðtogar þeirra hafa aldrei hitzt frá því Kóreu var skipt {tvö ríki við lok seinni heimsstyrj- aldarinnar. Norðanmenn ákváðu fyrir skömmu að taka ekki þátt í Ólympíuleikunum eftir fjóra árang- urslausa fundi háttsettra embættis- manna beggja ríkjanna í lok ágúst þar sem reynt var að finna flöt á þátttöku þeirra. Hétu þeir hins veg- ar að trufla ekki Ólympíuleikana. Louis Menetrey, hershöfðingi og yfirmaður Bandaríkjahers í Suður- Kóreu, sagðist þess fullviss í gær að Ólympíuleikamir færu fram með glæsibrag og að engin hætta væri á hryðjuverkum eða tilraunum til að trufla leikana. Sagði hann að stóraukið eftirlit með umsvifum Norður-Kóreumanna í grennd við vopnahléslínunnar hefði ekki gefíð mönnum til efni til að óttast aðgerð- ir úr þeirri átt. Ennfremur hefðu víðtækar ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir hryðjuverk af öllu tagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.