Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐE) 8ÞROTTIR FTMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
BADMINTON / DÓMGÆSLA
DOMARAHORNIÐ
Haraldur
dæmirí
Moskvu
Fyrstur íslendinga
á Evrópumóti
að færist í vöxt að íslenskir
badmintondómarar séu fengnir
til starfa á erlendum mótum. Bad-
mintonsamband íslands hefur lagt
til dómara á Norðurlandameistara-
mótið i badminton allt frá 1979,
en nú bætast stöðugt fleiri mót við.
Þessa dagana fer fram Evrópu-
keppni félagsliða í Moskvu. Þar
dæmir nú í fyrsta skipti íslenskur
Haraldur Kornelfusson.
dómari, Haraldur Komelíusson. Á
síðasta ári dæmdi Frímann Ferdin-
andsson á Finlandia Cup sem er
Evrópukeppni B-þjóða.
Altt er best í hófi
Nú, þegar keppnistímabilinu í
knattspymu er að Ijúka, er
ekki úr vegi að skoða notkun dóm-
ara á spjöldunum (gulu og rauðu).
Dómarar hafa sýnt gula spjaldið
989 sinnum og það rauða 95 sinn-
um það sem af er tímabilinu. Hér
er að sjáifsögðu átt við alla flokka.
Er þetta 15% aukning miðað við
sama tíma í fyrra. Þó svo að allir
flokkar séu með í þessu dæmi,
gefur það auga leið að megnið
af þessum spjöldum koma í leikj-
um eldri flokkanna. Spjöldin era
sama og ekkert notuð hjá þeim
yngstu, það er ekki fyrr en í 3.
flokki sem harka færist í leikinn.
Við þessar tölur vaknar sú
spuming hvort dómarar séu ekki
alltof spjaldaglaðir. Ekki hefur
verið gerð úttekt nýlega á því
fyrir hvað spjöldin era gefin. Fyr-
ir nokkram áram var slík úttekt
gerð og þá kom fram að langflest
vora gefin fyrir óprúðlega fram-
komu (mótmæli og kjaftbrúk).
Dómarar hafa fengið að heyra það
gegnum tíðina að þeir séu alltof
viðkvæmir fyrir tuði, eða eins og
sumir leikmenn segja; „Smá nöld-
ur í hita leiksins." Því miður er
mikið til í þessu, en dómari verður
þó einhvem veginn að binda endi
á sífellt nöldur í leikmönnum. Það
heyrist líka oft að við dómarar
höfum stór eyra en lítil augu.
Það er eitt sem er orðið mjög
hvimleitt og það er hve áhorfend-
ur, og jafnvel leikmenn, gleðjast
þegar leikmaður fær gula spjald-
ið. Áhorfendur fagna líkt og mark
hafi verið skorað. En eins og ég
sagði, dómarar era því miður of
spjaldaglaðir. Þeir mega ekki mis-
nota spjöldin og dómari getur
aldrei dæmt með þeim. Spjöldin
era aðeins hjálpartæki sem ekki
má misnota. Dómarar mega ekki
fara eftir pöntunum frá áhorfend-
um eða leikmönnum og allir verða
að gera sér grein fyrir því að
spjöldin era ekki allra meina bót.
Þau era nauðsynleg, aðeins á
réttu augnabliki.
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson.
ÍHémR
FOLK
■Mk ■ SÁ SÉRSTÆÐI atburður átti
sér stað hjá norður-írska knatt-
spymuliðinu Glenavon að 16 leik-
menn vora settir á sölulista á sama
tíma. Liðinu sinnaðist við þjálfara
sinn, Terry Nicholson, vegna pen-
inga sem þeir áttu að fá fyrir Evr-
ópuleik við danska liðið Arhus.
Leikmennirinir létu því ekki sjá sig
á æfingu daginn fyrir leikinn sem
þeir töpuðu 4:1. „Svona hegðan
verður ekki umborin," sagði Nic-
holson öskuillur eftir leikinn og rak
jf - allt liðið.
■ MATS Wilander verður ekki
með í tenniskeppninni á ÓL. Þetta
var tilkynnt formlega í gær. Hann
segist ætla að taka sér fjögurra til
fimm vikna fri frá æfingum og
keppni.
■ SVO GÆTI farið, að annað
hvort fái allir atvinnumenn í knatt-
spymu að taka þátt í ÓL 1992 eða
engin knattspymukeppni fari þar
fram. Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, ákvað fyrir
skömmu, að frá 1992 mættu aðeins
leikmenn undir 23 ára aldri keppa
á ÓL. Alþjóða ólympíunefndin er
—l mjög andsnúin þessari ákvörðun og
segist vilja koma í veg fyrir að
Ólympíuleikamir verði aðeins
unglingakeppni.
KNATTSPYRNA / HM
Mo Johnston skorar sigurmark Skcta gegn Norðmönnum á Ulleval-leikvanginum í Osló. Reuter
HANDKNATTLEIKUR
Tvær breytingar á stjóm IHF
Daninn Gunnar Knutsen náði ekki kjöri
Aþingi alþjóða handknattleiks-
sambandsins, IHF, hér í Seoul
í gær, vora gerðar tvær breytingar
á aðalstjóm IHF. Það vora þeir
Sigmundur
Steinarsson
skrifar
frá Seoul
Peter Bucu frá
Júgóslavíu og Otto
Svafts frá Sviss sem
komu inní stjómina
í stað Max Rinken-
burger, aðalritara og Raimond Hain
frá Frakklandi.
Athygli vakti að Gunnar Knuts-
en, formaður danska handknatt-
leikssambandsins, náði ekki kjöri
þrátt fyrir allar Evrópuþjóðimar
höfðu lýst yfir stuðningi við fram-
boð hans. Eins náði Rudi Glock frá
Vestur-Þýskalandi ekki kjöri.
Skotar
byrja vel
Skotar unnu Norðmenn 2:1, í
fyrsta leik liðanna í undan-
keppni HM í gær á Ulluval-leik-
vangingum í Osló. Úrslitin era mik-
^■■1 ið áfall fyrir Norð-
Sigurjón menn en Skotar
Einarsson vora mjög ánægðir
skrifarfrá með sigurinn, enda
oreg' með hálfgert vara-
lið. Þess má geta að þetta var fyrsti
sigur skoska landsliðsins í sjö mán-
uði.
Skotar komust yfír á 14. mínútu
með marki Paul McStay, fyrsta
mark hans fyrir Skotland í 11 mán-
uði. Jan Aage Fjærtoft náði að jafna
fyrir Norðmenn á 44. mínútu, en
Mo Johnston skoraði sigurmark
Skota um miðjan síðari hálfleik eft-
ir góðan undirbúning Gary
Gillespie.
Norðmenn léku vamarleik og
áttu skyndisóknir en Skotar sköp-
uðu sér hættulegri marktækifæri
og áttu sigurinn skilið. Þjálfari og
liðsmenn norska liðsins áttu bágt
með að leyna vonbrigðum sínum
eftir leikinn, tap gegn Skotum í
fyrsta leik á heimavelli veikir þegar
veika von Norðmanna um að kom-
ast í úrslit heimsmeistarakeppninn-
ar 1990 á Ítalíu.
KNATTSPYRNA / 4. DEILD
Austri ekki öruggur
með sæti í 3. deild
Dómstóll KSI hefur úrskurðað leik Vals og Leiknis
ógildan og þarf því að fara fram annar leikur
SVO gœti fariö að BÍ (Badmin-
tonfélag ísafjaröar) þyrfti að
skila 4. deildar bikarnum sem
liðið vann síðasta laugardag
í úrslitaleik gegn Austra á
Sauðárkróki. Urslitin íAust-
fjarðariðli, þar sem Austri
sigraði, gsatu komiðtil með
að breytast vegna úrskurðar
dómstóls KSÍ.
ómstóll KSÍ úrskurðaði á
föstudaginn að leikur Leikn-
is og Vals frá Reyðarfirði í Aust-
fjarðariðli, sem fram fór á Fá-
skrúðsfirði 24. júní í sumar og
Leiknir vann 2:1, væri ógildur og
þyrfti því að fara fram annar ieik-
ur milli þessarra liða. Þetta þýðir
að úrslitin í Austfjarðariðli era
hvergi nærri ráðinn.
Valsmenn kærðu leikinn umtal-
aða vegna þess að heimadómari
dæmdi leikinn. Dómarinn sem
fyrirfram var settur á leikinn boð-
aði forföll rétt fyrir leik og var
því dómari frá Fáskrúðsfirði feng-
inn til að hlaupa í skarðið með
samþykki KSÍ.
Valsmenn kærðu leikinn til
dómstóls ÚÍA sem lá á málinu í
tvo mánuði og úrskurðaði síðan
að úrslit leiksins skyldu standa
óhögguð. Valsmenn áfrýuðu síðan
til KSÍ sem úrskurðaði síðan leik-
inn ólöglegan þvert ofaní í úr-
skurð dómstóls ÚÍAI
Úrskurður dómstóls KSÍ lá fyr-
ir á föstudag, eða daginn fyrir
úrslitaleik BÍ og Austra sem fram
fór á Sauðárkróki á laugardaginn.
Hefði ekki verið ráðlegra að fresta
úrslitaleiknum þar til úrslit í Aust-
fjarðariðlinum væra ljós?
Það er því allt óljóst enn með
úrslit 4. deildar eins og málin
standa ( dag. Nú verður að bíða
leiks Leiknis og Vals, sem fram
fer á Fáskrúðsfirði á laugardag-
inn. Vinni Valur eru þeir efstir í
riðlinum og fara upp ( 3. deild í
stað Austra og þurfa þá að leika
til úrslita um sigurinn í 4. deild.
Takist Leiknismönnum að vinna
með sex marka mun taka þeir
sæti Austra, en verði jafntefli eða
að Leiknir sigri með fimm marka
mun eða minna verður Austri sig-
urvegari og úrslit 4. deildar
standa þá óhögguð.
ÍÞR&mR
FOLK
U500 matsveinar era á fullri ferð
í Ólympíuþorpunum hér í Seoul.
Þeir koma til með að matreiða
750.000 matarskammta meðan á
^■^■■1 leikunum stendur.
Frá Þeir matreiða úr
Sigmundi 140.000 kg af kjöti
Stemarssym allskonar, 200.000
kg af fiski, 300.000
kg af grænmeti, 177.000 kg af
ferskum ákvöxtum. Þá verður notað
6.000 kg af kryddi og 9.500 kg af
sósu.
■ MADAGASKAR mun ekki
taka þátt í ÓL í Seoul og er sjö-
unda ríkið sem tekur þá ákvörðun.
Hin rfkin sex era, Eþíópía, Nig-
aragua, Seychelleseyjar, Albanía
og Kúba. Alls munu 160 riki taka
þátt í leikunum. Ástæður þess,
að ríkin sjö taka ekki þátt, eru
stjómmálalegs eðlis.
■ HJÁTRtJ ýmiss konar fylgir
oft íþróttamönnum og einnig nú á
ÓL. Verða hér rakin nokkur dæmi.
Yfirmenn brasiliska liðsins hafa til
að mynda skipað sínu fólki, að fara
fram úr rúminu með hægri fótinn
á undan og sagt að það boði ógæfu
að fara framúr með þann vinstri á
undan. íþróttamenn frá Afrikurík-
inu Gagon mega ekki setja hend-
umar undir rúm. Ein stúlknanna í
kvennaliði Bandaríkjamanna í
hokký krefst þess að verða fyrst í
liðinu til að stíga fæti i vítateig
þegar farið er inná völlinn. Brezk
hestakona hefur notað sömu stígvél
við keppni síðustu sjö ár. Önnur
hefur keppt í sömu sokkum síðustu
10 ár. (Vonandi hafa þeir verið
þvegnir reglulega.) Sumir mega
ekki fá töluna 13 hvort sem það
er sem keppnisnúmer eða númer á
skiptiklefa og þannig mætti lengi
telja. Það er ekki öll vitleysan eins.
■ BALDUR Bjarnason skoraði
annað tveggja marka Fylkis gegn
ÍR á laugardag en ekki Om Valdi-
marsson eins og sagt var í blaðinu
fyrir skömmu.
■ SNOOKERMÓT V.E.S..verð-
ur haldið laugardaginn 17. septem-
ber í Billiardstofu Kópavogs að
Hamraborg 1. Þátttökurétt hafa
aðeins Kiwanisfélagar af svæði
Ægis og Þórs. Þátttöku verður að
tilkynna eigi síðar en kl. 20 föstu-
daginn 16. september til Sigurðar
(43244/32585), Stefáns
(44099/43952) eða Guðlaugs
(46777/43840).