Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
fclk í
fréttum
SUÐUR-AFRÍKA
Amman gekk með þríburana o g
ól þá eftir gervifrjóvgun:
„Eg er bara amma þeirra“
Pat Anthony, en það heitir kon-
an sem gekk með og ól böm
fyrir dóttur sína, segir um málið:
„Ég lít þannig á að ég hafí verið
gestgjafi bamanna meðan ég gekk
með þau. Ég var vakandi þegar
frjóvguðum eggjum dóttur minnar
var komið fyrir í legi mínu og vissi
þá að ég myndi ganga með hennar
böm næstu níu mánuðina."
Þríburamir, Paula, José og
David, fæddust síðastliðið haust og
em nú níu mánaða. „Þegar ég sagði
fólki frá því að ég væri ófrísk, héldu
flestir að nú væri ég endanlega
gengin af göflunum," segir hin
glaðlynda og stolta amma. „En
Karen, dóttir mín, leið mjög fyrir
að geta ekki átt fleiri böm, hún
hafði fengið lífhimnubólgu eftir að
hún átti son sem nú er fímm ára
gamall og var ekki fær um að eign-
ast fleiri böm.“
Fjölskyldan, sem er kaþólsk, fer
reglulega í kirkju, en gervifijóvgun
og hvað þá að amma gangi með
og ali bamabömin stangast á við
hugmyndir kirkjunnar. „Ég var viss
um að Guðs vilji myndi ráða í þessu
tilfelli," segir Karen sannfærð. „Ég
vissi ekki að það væri yfírlýst stefna
kirkjunnar að vera ekki hlynnt ger-
viftjóvgun, fyrr en fóstrin vom orð-
in nokkurra mánaða. Þá bað ég til
Guðs og bað þess að hans vilji
myndi ráða. Ég trúi að það hafí
verið hans vilji að við eignuðumst
þessa yndislegu þríbura á þennan
hátt.“
Hið opinbera viðurkennir ekki
Karen og Alcino sem foreldra þríbu-
ranna. Því verður ekki neitað að í
þessu tilfelli er málið óvenjulega
flókið. Fyrir hinu opinbera er Pat
móðir þríburanna, sem em þess
vegna hálfsystkini Karenar og
frændsystkini Toms litla. Þau em
einnig hálfsystkini litla bróður Kar-
enar.
Fjölskyldan hefur haft mikið að
gera síðan þríburamir fæddust.
Sjónvarpsstöðvar víða um heim,
dagblöð og tímarit vilja taka málið
til umfjöllunar og er amman að
sjálfsögðu alltaf með í för. Þá skrifa
fjölmargir til þeirra og leita ráða,
eða segja einfaldlega sína skoðun
á málinu. „Ég gerði mér ekki grein
fyrir að þetta myndi valda svona
miklu flaðrafoki," segir Pat. „En
nú vona ég að þessi reynsla okkar
geti orðið til þess að hjálpa öðm
fólki. Ég vona það af öllu hjarta."
Þrátt fyrir að gleðin skíni úr
andlitum þessa fólks em margir,
þar á meðal sálfræðingar, sem em
þessu mótfallnir. Ifyrr eða síðar
muni einhver alvarleg sálfræðileg
vandamál koma upp þó þau séu
ekki fyrir hendi núna. Karen og
Alcino segja: „Við munum segja
Alcino, Karen, Tom litli og Pat ásamt þríburunum sem nú eru
níu mánaða. Karen og Alcino lögðu til frjóvguð egg sem komið
var fyrir í legi Pat, móður Karenar. Pat gekk með þríburana og
61 þá og fyrir yfirvöldum er hún því móðir þeirra. „Ég er bara
amma þeirra,“ segir hún hins vegar.
bömunum sannleikann þegar þar
að kemur, þau koma til með að
vita að við þráðum að eignast þau
og að amma þeirra sannaði vænt-
umþylqu sína og örlæti á algjörlega
einstæðan hátt með þvf sem hún
gerði."
Brynja Tomer
Hótel íslandi var
pakkað inn í gjafa-
pappír í liðinni
viku vegna kynn-
ingar á nýjum
karlailmi Dior fyr-
irtækisins.
Sóley Jóhannsdóttir setti upp
tískusýningu til að kynna 130
erlendum blaðamönnum sem
hingað komu í boði Dior fyrir-
tækisins íslenskar ullarvörur. Á
myndinni má meðal annars sjá
forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, Friðrik Sop-
husson, iðnaðaráðherra, og
Maurice Roger, sem er yfir ilm-
vatnsframleiðslu hjá Christian
Dior.
COSPER
—Nú vil ég heldur að þú borgir með smámynd.
DIORKYNNING
130 erlendir blaðamenn
á Islandi í boði Dior
Itilefni kynningar á nýju karlailm-
vatni Dior fyrirtækisins voru 130
erlendir blaðamenn og 30 aðrir
gestir staddir hérlendis síðustu
viku. Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra bauð þessu fólki til móttöku
á fímmtudagskvöld þar sem íslen-
skar útflutningsvörur' voru kynntar.
Heiðursgestur kvöldsins var forseti
Moreunb\a8i»/RAX
íslands, Vigdís Finnbogadóttir.
Útflutningsráð íslands skipu-
lagði móttökuna en á henni var
sýndur ullarfatnaður frá Álafossi,
Hildu og Árbliki og boðið upp á
hefðbundinn íslenskan mat. Eftir
að Friðrik Sophusson hafði boðið
gesti velkomna flutti Ingjaldur
Hannibalsson framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs stutt ágrip af ut-
anríkisviðskiptum íslendinga. Að
lokinni tískusýningu gekk Vigdís
Finnbogadóttir um salinn og heils-
aði upp á gesti.
Forstjóri Dior fyrirtækisins,
Chevalier að nafni, kom hingað til
lands í tilefni kynningarinnar en
hann er jafnframt aðaleigandi Hen-
nessy koníaksfyrirtækisins og Jo-
hnny Walker. Blaðamennimir sem
hingað komu í boði Dior eru frá
stærstu dagblöðum og tískublöðum
Evrópu. Hópurinn fór meðal annars
í Þórsmörk en hélt úr landi á föstu-
dag.