Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
79
HANDKNATTLEIKUR / HM 1993 OG 1995
„Betra að koma heim með
HM1995 en enga keppni“
- sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, seint í gærkvöldi. Kastað upp um hvort (sland
eða Svíþjóð fá keppnina 1993 ef tillaga Austur-Þjóðverja nær fram að ganga
„VIÐ höfum fundafi mikið að
undanförnu og mlkil spanna
er f loftinu. Ég tel betra að
koma heima með HM1995
en enga keppni. Svíar óskuðu
eftir fundi með okkur um HM
1993 og HM 1995 f gær-
kvöldi. Vlð ræddum þann
möguleika að keppnin yrði
haldin 1993 og 1995 á Norð-
uriöndum og þá á íslandi og
í Svfþjóðsagði Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ
um „strfðið" um HM1993 við
Svfa, f samtali við Morgun-
blaðið seínt í gærkvöldi, en í
nótt að fslenskum tíma átti
að ákveða hver keppnin færi
fram 1993.
Atkvœðagreiðslan um HM
1993 átti að fara fram á
þingi alþjóða handknattleikssam-
bandsins í Seoul snemma í morg-
un. En ekki var víst að grípa
þyrfti til hennar ef Svíar og Is-
lendingar næðu samkomulagi um
keppnina fyrir þingið. Það var
mikil spenna í herbúðum Svía og
íslendinga fyrir IHF-þingið og
„allt opið í báða enda" eins og
Kjartan Steinbach, stjómarmaður
HSÍ, orðaði það í samtali við
Morgunblaðið.
„Við sækjum það fast að fá
keppnina 1993, en það gera Svíar
einnig. Austur Þjóðveijar ætla að
flyija tillögu um að kosið verði
um bæði HM 1993 og 1995 á
fundinum í dag [í morgun],“ sagði
Jón Hjaltalín.
Til þess að tillagan nái fram
að ganga verður hún að hljóta
2/3 hluta atkvæða. Með þeim fyr-
irvara að tillagan yrði samþykkt
voru íslendingar og Svíar búnir
að semja um að varpa hlutkesti
til að ákveða hvor þjóðin fengi
keppnina 1993!
„Ef tillagan verður ekki sam-
þykkt erum við óhræddir við at-
kvæðagreiðsluna. Ég tel okkur
hafa meirihluta á þinginu. En við
Jón HJaltalín Magnúsaon ræðir hér við formann tæknineftidar IHF, viljum þó gjaman sýna norrænt
Curt Wadmark frá Svlþjóð. fslendingar og Svíar munu lflclega semja um samstarf í verki ef hægt er,“ sagði
hvar heimsmeistarakeppni 1993 verður haldin. Jón Hjaltalín Magnússon.
ÓLYMPÍULEIKAR
FOLK
■ SOHN Kee-chung, sem er 76
ára S-Kóreumaður, mun hlaupa
með ólympíukyndilinn síðastu metr-
ana á ÓL. Hann varð þjóðhetja
þegar hann vann maraþonhlaupið á
ÓL í Berlín 1936.
■ ÁKVEÐIÐ verður í dag hvar
Vetrarólympíuleikamir 1994
verða haldnir. Sofía er enn talin
líklegust til að hreppa hnossið en
möguleikar borgarinnar kunna að
hafa minnkað vegna þess að Búlg-
arir hafa fengið marga upp á móti
sér með með því að vera ákaflega
atgangsharðir við atkvæðaveiðar.
TOM Petranoff, bandaríski
spjótkastarinn, hefur reynt að fá
marga af helztu fijálsíþróttamönn-
um heims til að taka þátt í móti í
S-Afríku eftir ÓL. Hann sagðist
þó efast um að nokkuð yrði af
mótinu. Sem kunnugt er hefur S-
Afríka verið einangruð í íþrótta-
heiminum um skeið vegna aðskiln-
aðarstefnu stjómvalda. Petranoff
sagði hann væri þreyttur á því
hvemig íþróttum og stjómmálum
væri blandað saman.
Véstolnn Hafstelnsson verður ekki viðstaddur opnunarathöfn Ólympíuleik-
anna í Seoul. Hann æfir nú af kappi í Svfþjóð.
Vésteinn ekki
kominn til Seoul
Er við æfingar í Svíþjóð
VÉSTEINN Hafsteinsson,
kringlukastari, er eini íslenski
keppandinn á Ólympíuleikun-
um sem enn er ekki kominn til
Seoul. Hann er væntanlegur
23. septemberfrá Svþjóð en
þar hefur hann æft að undanf-
örnu.
Vésteinn á að keppa í kringlu-
kasti 29. september. Hann
verður því ekki meðal íslensku
keppendanna sem taka þátt í opn-
unarhátíðinni á
laugardaginn.
Talið er að 65
metra kast dugi til
verðlauna í kringlu-
kastskeppninni í Seoul. Vésteinn á
best 65,60 metra og ef hann nær
Sigmundur
Steinarsson
skriiar
frá Seoul
sínu besta gæti hann nælt sér í
verðlaun. Hann náði 13. sæti á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
1984 en var síðan dæmdur úr leik
og í keppnisbann vegna þess að
hann féll á lyfjaprófi.
Vésteinn gleymir sjalfsagt seint
ÓL 1984 vegna þessa og vill ömgg-
lega bæta það upp og standa sig
með sóma í Seoul. Hann hefur und-
irbúið sig að kappi í Svíþjóð án
þess að keppa og ætlar að mæta
rétt fyrir kringlukastskeppnina.
Bjartsýnustu menn í herbúðum
íslensku ólympíufaranna vonast eft-
ir að íslendingár vinni jafnvel fem
verðlaun á leikunum. Þau kæmu
þá í hlut Einars Vilhjálmssonar,
handboltalandsliðsins, Bjama Frið-
rikssonar og Vésteins Hafsteinsson-
ar.
ÓLYMPÍULEIKAR / SIGLINGAR
BANDARIKIN / URTOKUMOT
Israelsmenn
sleppa einum degi
af tmarástæðum
Vilja ekki keppa á helgideginum „Yom Kippur"
ÍSRAELSKU síglingamennirnir
á Ólympíuleikunum í Suður-
Kóreu hafa fariö f ram á það
við aðra keppendur í siglingum
að keppa ekki þann 21. sept-
ember. Þá er helgidagur Gyð-
inga „Yom Kippur.“
Israelsmennimir höfðu áður farið
fram á að ekki yrði keppt á þess-
um degi, en skipuleggjendur sigl-
ingakeppninnar í Pusan sögðu að
dagsetningum yrði ekki breytt. Því
hafa ísraelsmenn óskað eftir því
að aðrir keppendur sýni þeim stuðn-
ing og mæti ekki til leiks þennan
dag. Þeir munu þó ekki hafa fengið
mikil viðbrögð við þeirri ósk sinni.
Hvort sem aðrir keppendur styðja
þá eður ei hafa israelsku keppend-
umir ákveðið að keppa ekki á þess-
um degi, en það kemur til með að
draga verulega úr möguleikum
þeirra á sigri. I siglingum er keppt
7 daga, en aðeins sex bestu dagam-
ir gilda. ísraelsmennimir verða þvi
að sigla mjög vel alla sex dagana
sem þeir keppa.
Átta Bandaríkjamenn
féllu á lyfjaprófi
Sleppa þó við bann
Á ÚRTÖKUMÓTI Bandaríkja-
manna fyrir Ólympíuleikana (
Seuol fóru rúmlega 200 kepp-
endur í lyfjapróf. Niðurstaða
(prófi átta þeirra var jákvæð
— þ.e. (Ijós kom að þeir höfðu
neytt lyfja. Bandaríska frjáls-
íþróttasambandið ákvað þó
að grípa ekki til neinna að-
gerða og þessir keppendur,
sem ekki eru nafngreindir,
verða ekki dæmdir (bann
vegna þess hve Htifi magn
lyfja fannst (þessum prófun-
um.
Yfirmaður lyfjanefndar
Bandarílqamanna, Dr. Ro-
bert Voy sagði að þessi lyf hafi
mælst í of litlu magni til að grip-
ið yrði til aðgerða. „Þama var um
mjög lítið magn að ræða og hefðu
keppendur tekið þessi lyf tii að
reyna að bæta árangur sinn hefði
skammturinn verið mun stærri,"
sagði Voy í bréfí til fijálsíþrótta-
sambands Bandaríkjanna, en
bréfíð var birt í gær.
Voy sagði að þessi efni hefðu
aðeins mælst í 1-10 míkrógrömm-
um, en ef það hefði verið meira
en 50 míkrógrömm hefðu kepp-
endumir verið dæmdir 1 bann.
Eins og áður sagði voru yfír
200 keppendur sendir í lyijapróf,
þ.á.m. fjórir fyrstu í hverri grein.
Fijáls Iþróttasamband Banda-
ríkjanna hefur ekki viljað segja
hvort þessir keppendur séu í
Ólympíuliði Bandaríkjanna sem
nú er komið til Seoul.