Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
FASTEIGNÍ
HÖLLIN
MIÐBÆR - HAALEITISBRALTT 58 60
35300-35301”
Fasteignaeigendur
okkur vantar allar stœrftir og gerðlr
fasteigna i söluskrá. Skoðum og verð-
metum fyrlr seljendur samdesgurs.
Ekkert skoðunsrgjald.
Dúfnahólar - 2ja
Glæsil. ca 65 fm íb. á 7. hæð. Mikið
útsýni. Bílsk. Ákv. sala. Laus.
Sólheimar - 3ja
Mjög góð 3ja herb. suðuríb. 96 fm á
6. hæð. Mikil og góð sameign. Ákv.
sala.
Ljósheimar - 4ra
Glæsil. íb. á 7. hæð. Ib. er laus,
Fífusel - 4ra
Mjög góð ib. á 3. hæð. Þvottaherb. inni
í ib. 18 fm aukaherb. i kj. Bilskýli. Sam-
eign nýstands.
Einbýli - Mosfeilsbæ
Glæsjl. einnar h. einbhús 145 fm + 40
fm tvöf. bílsk. á einum besta stað í
Mosfellsbæ. Skiptist m.a. f 3 góð svefn-
herb., fataherb. innaf hjónaherb.,
gestasnyrting og bað.
Einbýli - Kóp.
Vorum aö fá í sölu glæsil. einbhús ca
160 fm sem skiptist þannig. Á hæð:
Stofur, eldhús, 3 svefnherb., húsbónda-
herb., baö og gestasn. Neöri hæö:
Mögul. ó lítilli íb. Innb. bflsk. Verönd.
Gróin lóð. Myndir og teikn. á skrifst.
Myndbandaleiga
Til sölu ein stærsta myndbandal. ó
höfuöborgarsv. Mikiö fylgifé. Uppl. ó
skrifst.
Söluturn - Austurbær
Til sölu gott fjölskfyrirtæki. Afh. strax.
í smíðum
Suðurhlíðar - Kóp.
Glæsil. 2ja ibúða hús sem skiptist þann-
ig: 2ja herb. jarðhæð 64 fm. Efri hæð:
7 herb. ca 200 fm + bilsk. og geymsl-
ur. Stærri íb. er á tveimur hæðum.
Teikn. á skrifst. Afh. I des. 1988.
Hreinn Svavarason sölustj.,
Ólafur Þoríáksson hri.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Yofir menningar-
slys yfir okkur?
eftir Gísla Jónsson
1.
Ég er orðinn dauðþreyttur á
linnulausu þrugli um eftiahagsmál
í blöðum og vörpum. Um dag-
vexti, hagvexti, nafnvexti, raun-
vexti og dráttarvexti; uppfærslu,
tilfærslu, niðurfærshi, millifærslu
og undanfærslu. Ég skil ekki
þessa hagfræði. Nema bara eitt:
Ég er alveg á móti því, að færa
niður það lága kaup sem óbreytt
frystihúsfólk fær, meðan forstjór-
inn veltir sér upp úr milljóna-
íburði á skrifstoftinni og ekur á
bens frá vinnustað að heimili sem
gjama er í hinni vondu höfuð-
borg, ef ekki er alltof langt á
milli. Ég er líka á móti því að
lækka laun afgreiðslufólks í stór-
markaði, meðan verslunarhallir
eru byggðar svo títt, að ekki hefst
undan að nota þær. En það var
ekki um þetta sem ég ætlaði að
skrifa.
2.
Það er reyndar margt gott að
frétta. Elsta hús Akureyrar er
fyrir nokkru uppbyggt og gætt
Iífí, sömuleiðis elsta steinhús á
íslandi úti í Viðey. Margvísleg
umhverfísvemd á upp á pallborðið
hjá mönnum. Reynt er að veija
gróðurlendi, íslenskur texti er
settur á kvikmyndir og jafnvel
talaður, íslensk málstöð er haldin.
Við ætlum okkur að varðveita
móðurmálið, við erum enn son og
dóttir flest hver, komum réttri
stafsetningu á þjóðskrána og
símaskrána, og bráðum endur-
heimtist þomið á vegabréfín, held
ég-
Við reynum að varðveita fegurð
staða og landsvæða, við ætlum
að hafa hreint loft og fagurt land.
En við erum ekki ein í heiminum,
sem betur fer, og heldur ekki ein
um að eiga fagurt land, og víðar
er gróðurvemd og viðhald fomra
mannvirlq'a, jafnvel málvemd. Úti
um alían heim er þjóðemi, að vísu
misvel varið.
En eitt hefur forsjóninni þókn-
ast að fá okkur íslendingum ein-
um til varðveislu, einum allra
manna í víðri veröld. Og hvem-
ig skyldum við gæta þess? Ætlum
við að gerast þeir ættlerar og
afglapar á torgum að týna því sem
okkur einum er trúað fyrir? Ætl-
um við að gera okkur að athlægi
um alia heimsbyggðina með því
að sökkva þeirri perlu í sjó sem
þangað og þaðan yrði aldrei fram-
ar sótt?
3.
Krakki bögglaðist ég við, eins
og gengur, að yrlq'a bögur, og var
að vonum ekki björgulegt. Þá
heyrði ég stundum fólkið segja í
blöndu af uppörvun og vorkunn-
semi: þetta stendur þó nokkum
veginn í hljóðstöfunum hjá þér.
Einhvem veginn vissi ég hvað
þetta þýddi, svona nokkum veg-
inn. Fólkið heima vissi flest hvað
hljóðstafír voru, sk}mjaði þá
ósjálfrátt, skólagengið lítt eða
ekki. Langamma mín fædd undir
óskoruðu einveldi Danakonungs,
vissi það upp á hár og kunni vel
að yrkja. Éða Gunna gamla. Hún
sem kunni hundmð sálma, svo að
ekki sé nú annað talið, og gat
ort, ef hún vildi. Eða Gamla
(-Fríða). Hún sem kunni sögumar
og ævintýrin og orti kankvíslega
texta undir dægurlögum.
Auðvitað vom til menn sem
ekki heyrðu hljóðstafagrein. En
þeir vom færri og ekki trútt um
að þeir væm ekki í hávegum hafð-
ir.
Þetta var löngu eftir að afgang-
urinn af veröldinni hafði týnt allri
tilfínningu fyrir stuðlum og höfuð-
stöfum sem lærðir útlendingar
kölluðu allitterasjón og böggluð-
ust stundum við að reikna út.
Þegar þeir ætluðu að hafa stuðla
í kvæðum sínum, þá fór í verra.
4.
Það er vel hægt að kenna
mönnum að yrkja með hljóðstöf-
um. Allir hljómvísir menn eða
músíkalskir em sjónæmir á þetta,
og aðrir geta reiknað þetta út
eftir reglum og áunnið sér með
þjálfun, ef ekki vill betur til. Ég
tala af reynslu, því að ég kenndi
þetta ámm saman undir lands-
próf. Þeir sem næmasta höfðu
tilfinninguna, lærðu þetta á ör-
skömmum tíma.
Vel veit ég að stuðlar og höfuð-
stafír hafa ekki verið í tísku um
sinn. Við því er ekkert að segja.
Menn mega yrkja óstuðlað mín
vegna, ef þeim þykir það bráð-
nauðsynlegt. Og ég skil vel að
eitthvað hlyti að haggast fleira
en hús og mannslíf í heimsstytj-
öldinni síðari. Atómsprengjan var
víðtæk. En tískubylgjur ríða alltaf
yfír, og ekki era öll miðaldakvæði
okkar Islendinga ort upp á hljóð-
stafagrein, svo ég noti nú orðalag
blessaðs Guðbrands biskups. En
þegar úr hófi keyrði, tóku menn
í taumana, svo sem biskup sá sem
ég nefndi rétt í þessu. Hann krafð-
ist þess að sálmar, sem í kirkj-
unni syngja skyldi, væm „upp á
hljóðstafagrein útlagðir".
Má ég rétt nefna Einar í Eydöl-
um Sigurðsson sem orti þessa ein-
földu speki:
Kvæðin hafa þann kost með sér,
þau kennast betur og lærast ger,
en málið laust úr minni fer...
Ómar Ragnarsson má eiga
þakkir fyrir hagyrðaþáttinn í
spumingakeppninni. Þó að sá
þáttur yrði oft og tíðum þreyt-
andi, þá sýndi hann ræktarsemi
við foman arf. Og viti menn:
Böm á íslandi tóku að kveðast á
eins og í gamla daga. Ég heyrði
þetta. Þau skynja að vísu rímið
betur en stuðlana, en mjór er
mikils vísir. Flestir krakkar læra
líka ennþá eitthvað af stuðluðu
máli, sem betur fer, en það er
bara of lítið og tilviljanakennt.
5.
Nú, nú, og hvað þá? Hvað vill
maðurinn? Hann vill í fyrsta lagi
biðja ykkur að lesa þó ekki væri
nema það sem Heiðrekur, Hannes
Pétursson og Kristján frá Djúpa-
læk hafa ort og sagt um „ljóð-
stafí", „hvítan galdur úr goða-
mörk“, samhengi máls og menn-
ingar, „djúprættan gróður", laun-
ung kynstofnsins". Hann vill í
öðm lagi biðja alla þá, sem
Gisli Jónsson
„Hann vill í öðru lagi
biðja alla þá, sem
íslenskukennslu
stunda og skólum
ráða, háa sem lága, að
glæða tilf inningu ungs
fólks fyrir stuðlum og
höfuðstöfum, kenna
meðferð þeirra og láta
nemendur lesa og læra
stuðluð kvæði. Þeir
munu fljótt komast að
því, að kvæði með
hljóðstafagrein „kenn-
ast betur og lærast
íslenskukennslu stunda og skólum
ráða, háa sem lága, að glæða til-
fínningu ungs fólks fyrir stuðlum
og höfuðstöfum, kenna meðferð
þeirra og láta nemendur lesa og
læra stuðluð kvæði. Þeir munu
fljótt komast að því, að kvæði
með hljóðstafagrein „kennast bet-
ur og lærast ger“.
Maðurinn vill svo biðja alia þá
sem þetta lesa, að eiga þátt í
þeirri viðleitni að við rekjum ekki
af okkur einn dýrasta þjóðemis-
þáttinn. Hann vill biðja ykkur öll
um að eiga ykkar þátt í því, að
ekki hendi það menningarslys —
heimsmenningarslys — að eina
þjóðin, sem hefur tilfínningu fyrir
hljóðstafagrein, týni henni niður.
Höfundur er cand.mag. ííslenak-
um bókmenntum, málfræði og
sögu.
Hverfisgata - 2ja herb.
Til sölu góð 2ja herb. 56 fm (nettó) íbúð á 4. hæð í
steinhúsi. Nýlegar innréttingar. Frábært útsýni. Laus
strax. Gott verð. Útborgun um 50%.
Eignamarkaðurinn,
Hafnarstræti 20, sími 26933.
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HrtL.
BALDVIN HAFSTEIN3SON HDL.
FASTEIGN ER FRAMTlÐ
BÓLST AÐARH LÍÐ - SÉRHÆÐ
Góð 130 fm íb. á 1. hæð. Allt sér. íb. er forstofa, forstofuherb.,
gangur, stór stofa, 2 svefnherb., baö og eldh. Bflsk.
SKAFTAHLÍÐ - SÉRHÆÐ
Ca 125 fm á 1. hæð. Tvær st., 3 svefnherb., nýtt eldh., nýtt bað.
Falleg fb. Fallegur garður. Góð eign.
SÖRLASKJÓL VIÐ SJÓINN
Einbýli/tvíbýli
Til sölu við Sörlaskjól á hornlóð, hús sem er ca 2x110 fm. Kj.
með sérinng., stór 3ja herb. íb. Hæðin stór 4ra herb. íb. Bílsk.
Húsið getur verið laust fljótl. Einkasaia.
Sjá auglýsingu bls. 17 sl. sunnudag.
F,ina landið með neyslu-
skatt á námsbókum
— segir Signrður Svavarsson kennslu-
bókaritstjóri Máls og menningar
„ÉG held að ísland sé eina landið í heiminum sem innheimtir neyslu-
skatt af námsbókum, sem er hneyksli. Ég tel þvi einsýnt að hann
verði felldur niður í framtíðinni og við vonum að með virðisaukaskatt-
inum hverfi þessi skattheimta. Það hefði verulega þýðingu fyrir nem-
endur,“ sagði Sigurður Svavarsson, kennslubókaritstjóri Máls og menn-
ingar, I samtali við Morgunblaðið um verð skólabóka frá útgáfunni.
Sigurður, sagði kennslubók sem
kostar 3.500 kr. lækkaði í 2.700
kr., ef söluskattur yrði felldur niður.
„Af þeim kennslubókum sem við
gefum út í haust reiknum við með
að ríkið fái í sinn hlut um 16 milljón-
ir króna," sagði Sigurður. „Og það
er ekki mjög fjarri lagi að ætla að
tekjur ríkisins af söluskatti á
kennslubókum sé dijúgur hluti af
framlögum þess til Námsgagna-
stoftiunar."
Skipting bókaverðs er þannig,
að sögn Sigurðar, að höfundar fá
9%, forlagið 24%, bóksalar 24%,
prentsmiðjan 23% og ríkið 20% í
formi söluskatts.
Sigurður var spurður að því hvort
ekki væri einnig hægt að lækka
vinnslukostnað kennslubóka. Hann
sagði að með þeim 24% bókaverðs,
sem kæmi í hlut forlaganna þyrftu
þau að greiða fyrir alla ritstjómar-
vinnu, sem væri talsvert meiri við
kennslubækur en aðrar bækur, inn-
slátt texta, myndkostnað, kennslu-
leiðbeiningar, sem kennarar fá
ókeypis, dreifingarkostnað, pró-
farkalestur og fleira.
„Það er til miklu meira af kennslu-
bókum núna í námsgreinum þar sem
áður var kannski notast við fyölrit.
Bókakostnaður framhaldsskólanema
hefur því hækkað eitthvað. Við emm
til dæmis með nokkrar frumsamdar
íslenskar bækur, sem mikið er lagt
í. Þær bækur em dýrari en notagild-
ið eykst að sama skapi. Við emm
smám saman að koma okkur upp
hópi fólks, sem hefur sérþekkingu á
námsefnisgerð. Það má alls ekki
snúa við á þeirri braut. Við eigum
að bjóða nemendum upp á gott og
aðlaðandi námsefni. Ég tel þetta
vera jákvæða og eðlilega þróun fram
á við. Það breytir því þó ekki að það
þarf að róa að því öllum ámm að
Morgunblaðið/K.G.A.
Sigurður Svavarsson, kennslu-
bókaritstjóri Máls og menningar.
lækka bókakostnaðinn,“ sagði Sig-
urður.
„Það má benda á það að í Dan-
mörku og Svíþjóð sjá stjómvöld nem-
endum fyrir öllum helstu kennslu-
gögnum, þeim að kostnaðarlausu, í
gegnum allan framhaldsskólann. Ég
held að á þann hátt einan sé hægt
að tryggja raunvemlegt jafnrétti til
náms,“ sagði Sigurður Svavarsson
að lokum.