Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 80
upplýsingar
£ um vönir og
pjónustu.
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Gönguseiðaframleiðslan:
Gefur af sér 15
þús. tonn af laxi
Veiðimálastofnun hefur gert
könnun á ráðstöfun þeirra 11
milljóna gönguseiða sem fram-
leidd voru hérlendis í vor. Var
könnun þessi gerð fyrir Lands-
samband fiskeldis- og hafbeit-
arstöðva. Nú í haust verður
fjöldi seiða i eldi orðinn um 7,5
milljónir talsins. Auk þessa hef-
ur 2,5 miiyónum seiða verið
sleppt í hafbeit. Reiknað er með
að þessi fjöldi muni samtals
gefa af sér um 15.000 tonn af
laxi.
Þannig hefur verið ráðstafað
10 milljón seiðum en reiknað er
með að 1 milljón seiða hafi tapast
í flutningum, vegna sjúkdóma eða
vegna veðurs. Slátrun þeirra seiða
sem fóru í eldi í sumar og sleppt
var í hafbeit mun hefjast sumarið
1989 og standa a.m.k. fram á
sumarið 1990. Útflutningsverð-
mæti þessa lax er um 5 milljarðar
króna. Það er tæplega 10% af
heildarútflutningsverðmæti sl. árs.
Friðrik Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Landssambandsins
segir að þessi framleiðsla svari til
um 100-120.000 tonna þorskafla
úr sjó. „Því skiptir það verulegu
Slátursala
hefst í
næstu viku
20% hækkun frá í fyrra
ÞRÁTT fyrir gildandi verðstöðv-
un verður slátursala með eðlileg-
um hætti hjá Sláturfélagi Suður-
lands í haust, og hefst salan 21.
september næstkomandi, en hún
verður að þessu sinni i Glæsibæ.
Að sögn Jóns Gunnars Jónsson-
ar, framleiðslustjóra hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands, verður verðlagn-
ingu á slátri þannig háttað, að á
meðan verðstöðvun ríkir verður
miðað við verð M því í júm' sem
grundvöll. Miðað við það nemur
hækkun á sláturverði M því í fyrra
um 20%, auk söluskatts sem nú
leggst á verðið.
máli að stjómvöld beiti sér fyrir
því að tryggja eðlilega rekstrarl-
ánafyrirgreiðsiu til handa fískeld-
isstöðvum," segir Friðrik. „Við
óskum eftir því að raunhæfar að-
gerðir líti dagsins ljós hið fyrsta
þar sem fjárhagsstaða margra
stöðva er nú slæm.“
Vogar:
Tveir sviptir
ökuréttíndum
Vogar.
TVEIR piltar voru sviptir öku-
réttindum í Vogum eftir að vera
staðnir að ógætilegum akstri um
götur byggðarlagsins síðastliðið
mánudagskvöld. Að sögn lög-
reglunnar hefur mikið verið um
kvartanir um ógætilegan akstur
um götur Voga, og þess vegna
hefur lögreglan verið meira á
staðnum en áður.
A mánudagskvöld voru tveir öku-
menn teknir eftir að lögreglunni
bárust kvartanir um ógætilegan
akstur, þar sem gefín voru upp
nöfn ökumanna og bílnúmer. Það
var síðan fulltrúi sýslumanns Gull-
bringusýslu sem svipti ökumennina
leyfí í einn mánuð, en þeir eru með
bráðabirgðaökuskírteini og höfðu
áður hlotið áminningar lögreglu-
manna. Að sögn lögreglunnar er
því beitt óspart að svipta ökumenn
með bráðabirgðaskírteini ökuleyfí
séu þeir staðnir að óábyrgum akstri.
E.G.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Axel Amason 9 ára nemi í Barnaskóla Akureyrar og verðlaunahafi í myndlistarkeppni í tengslum
við Ólympiuleikana í Seoul.
Vissi ekki að ég væri með
— segir Axel Amason, 9 ára Akureyringur sem vann „gnllið“
í myndlistarsamkeppni tengdri Ólympíuleikunum í Seoul
Akureyri. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÉG VISSI ekki einu sinni að ing sé eitt af aðaláhugamálum
myndin min hefði farið út í
samkeppnina. Mér brá ofboðs-
lega þegar ég frétti af þessu,"
sagði Axel Árnason 9 ára Akur-
eyringur sem vann til fyrstu
verðlauna ásamt Kim Hyo-shik
12 ára frá Kóreu i myndlistar-
samkeppni barna í tengslum við
Ólympíuleikana í Seoul.
Axel stundar nám við Bama-
skóla Akureyrar og segir að teikn-
sínum. Axel kallar mynd sína
„Spjótkast" og hann lýsir henni á
eftirfarandi hátt: „Myndin mín er
af spjótkastara, sem er í þann
veginn að kasta spjóti. Hann er í
bláum og hvítum búningi með
hvítt svitaband og umhverfið er
himinn og gras. Spjótið er litað
hvítt og svart og ég notaði þekju-
liti á pappírinn."
Axel vissi ekki í hveiju verð-
launin fælust enda hafði ekki ver-
ið haft samband við hann frá að-
standendum keppninnar. Alls
tóku yfír 17 þúsund börn M 73
löndum þátt í samkeppninni og
eru 300 bestu myndimar, að mati
sjö manna dómnefndar, sýndar á
sýningu í Seoul á meðan á
Ölympíuleikunum stendur.
Verðlaun verða veitt í Bama-
miðstöð Seoul þann 24. september
nk.
Reynt að samhæfa tillögur stj órnarflokkanna:
Úrslitatílraun gerð til að ná
samkomulagi um aðgerðir
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, ræddi í gær við þá
Steingrím Hermannsson, for-
mann Framsóknarflokksins, og
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
Alþýðuflokksins,
um
Ferskur flattur fiskur seldur
til Spánar og saltaður þar
30 tonn send utan vikulega - áætlanir að auka í 80 tonn
SPÁNSKT fyrirtæki hefur keypt
hér á landi ferskan þorsk til þess
að salta á Spáni. Hafa Spánverj-
arnir fengið islenska saltfisk-
framleiðendur til þess að fletja
og flaka fiskinn fyrir sig. Þeir
hafa á þennan hátt fiutt út um
30 tonn & viku siðan i vetur. Þá
hefur fslenskur saltfiskframleið-
andi samið við Spánverja um að
selja þeim saltfisk, 38 tonn viku-
lega, og telur hann sig fá með því
móti 800 þúsund krónum hærra
verð fyrir hvem farm, heldur en
ef hann seldi með milligöngu SÍF.
Þessi samningur er háður því að
útflutningsleyfi fáist. Magnús
Gunnarsson framkvæmdastjóri
SÍF segir þessar sölur skaða salt-
fiskmarkaðinn á Spáni og þar séu
fyrirtæki, sem reyna að kljúfa SÍF
vegna styrkleika þeirra samtaka
á markaðnum.
Fiskurinn sem Spánveijamir
kaupa héðan til að salta á Spáni, er
fiuttur með flugvél til Amsterdam.
Þaðan er honum ekið í kæligámum
til Spánar og hann saltaður þar og
síðan seldur sem íslenskur tandur-
saltfiskur. Magnús Gunnarsson
Mmkvæmdastjóri SÍF segir að
þama sé um að ræða fyrrum við-
skiptavin SÍF, sem var stærsti kaup-
andinn á Spáni. SÍF hafí þótt hann
vera með of stórt hlutfall þess salt-
fisks sem Spánveijar kaupa og því
viljað dreifa sölunni á fleiri kaupend-
ur. Við það snerist þessi aðili gegn
SÍF, segir Magnús. Hann segir enn-
fremur, að það sé á misskilningi
byggt. fslenski framleiðandinn
sem vill selja 38 tonn á viku beint
til Spánar, fái hærra verð fyrir físk-
inn en SÍF fær þar. SÍF hefur greitt
framleiðendum meðalverð fyrir físk
sem fer á markað á Spáni og í Port-
úgal og segir Magnús að verðmunur-
inn sem um ræðir sé minni en mun-
ar á meðalverðinu og Spánarverði
hjá SÍF.
Eftir að Spánn og Portúgal gengu
í Evrópubandalagið hafa aðstæður á
mörkuðunum verið að breytast, þar
á meðai verð, og hefur SÍF því ákveð-
ið að falla M meðalverðlagningunni
M og með næstu mánaðamótum.
Sjá Innlendan vettvang á bls. 28.
möguieikann á að stjómarflokk-
arnir nái saman um efnahagsað-
gerðir. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun litið sem
ekkert hafa þokast í samkomu-
lagsátt á þeim fundum. Er talið
að bilið sé nú einkum á milli Sjálf-
stæðisflokks annarsvegar og Al-
þýðu- og Framsóknarflokks hins
vegar. Sjálfstæðismenn munu
eiga mjög erfitt með að sam-
þykkja auknar skattaálögur, sem
stór millifærsla án gengisfelling-
ar myndi krefjast, að áliti hinna
fiokkanna tveggja. Forsætisráð-
herra segist stefna að því að nið-
urstaða fáist fyrir helgi.
Breytingartillögur Framsóknar-
flokks voru lagðar fram á ríkis-
stjómarfundi í gærmorgun, en þær
gera ráð fyrir mun viðameiri milli-
færslu en tillögur forsætisráðherra
og Alþýðuflokks. Þessi millifærsla
yrði fjármögnuð með skattahækk-
unum að upphæð 1,5 milljarði
króna.
f tillögum Mmsóknarmanna er
gert ráð fyrir stofnun deildar við
Framkvæmdasjóð, sem fengi til
ráðstöfunar 3 milijarða króna, og
lánaði fé til útflutningsatvinnuveg-
anna. Fé til deildarinnar yrði meðal
annars aflað af aðstöðugjaldi, um
500 milljón krónur á ári, þar sem
Reykjavík myndi borga meginhlu-
tann.
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur gera ekki ráð fyrir gengis-
fellingu, en í tillögum forsætisráð-
herra er lagt til að heimild Seðla-
banka til 3% gengisbreytingar verði
nýtt.
„Við erum að meta þessar tillög-
ur og ég vil ekkert um þær segja
að svo stöddu," sagði Þorsteinn
Pálsson, forsætisráðherra, þegar
hann var spurður um gang viðræðn-
anna í gærkvöldi. Steingrímur Her-
mannsson sagði að á fundi hans
og forsætisráðherra hefði verið
skipst á upplýsingum og svörum
um ýmis atriði, en hann vildi ekki
segja um hvort hann væri bjartsýnn
á að samkomulag tækist. Hann
sagði aðspurður að samkomulag
yrði að takast fyrir vikulok, eins
og forsætisráðherrra hefði talað
um. Miðstjómarfundi Framsóknar-
flokksins yrði ekki frestað, nema
hugsanlega um einn dag, Mm á
sunnudag.