Morgunblaðið - 15.09.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
39
Israel:
Hermenn handtaka
150 Palestínumenn
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR herflokkar luku í
gær aðgerðum sem staðið hafa í
átta daga í borginni Kalkilya á
Vesturbakkanum og höfðu að
markmiði að stöðva gijótkast og
aðrar mótmælaðagerðir Pa-
lestínumanna á svæðinu. Tals-
menn hersins sögðu að ástandið
hefði verið orðið óþolandi fyrir
þá mörgu ísraela sem aka um
borgina en hún er skammt frá
Tel Aviv. Alls voru 150 menn
handteknir en útgöngubanni í
borginni, sem hefur um 25 þúsund
íbúa, var aflétt í gær.
Hermenn gengu hús úr húsi í
Kalkilya í leit að meintum andófs-
mönnum meðan á aðgerðunum stóð.
Talsmaður hersins sagði að tíu menn
hefðu særst af völdum skothríðar
hermanna á Gaza-svæðinu undan-
fama daga í tengslum við mótmæli
Palestínumanna. Þrítugur Palestínu-
maður var stunginn til bana í gær
í borginni Nablus. Að sögn heimild-
armanna var hann grunaður um
samstarf við ísraelsk yfirvöld.
Grímuklæddir, arabískir unglingar
sáust í nánd við heimili mannsins
skömmu áður en líkið fannst. í gær-
morgun skutu ísraelskir hermenn í
Nablus á Palestínumenn er höfðu
kastað gijóti í hermennina og særðu
hermennimir 12 ára gamlan dreng
í hálsinn. Á vesturbakka Jórdanár
og Gaza-svæðinu búa um 1,5 millj-
ónir Palestínumanna.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, og Shimon Perez utanríkis-
ráðherra, leiða helstu flokkana í
kosningabaráttu þeirri, er stendur
yfir í landinu. Kosið verður 1. nóvem-
ber. Hvorugur leiðtoganna er reiðu-
búinn að viðurkenna Frelsissamtök
Palestínumanna, PLO, sem fulltrúa
Palestínumanna í mögulegum við-
ræðum um frið 5 Mið-AustUrlöndum;
þeir líta á PLO sem hryðjuverkasam-
tök.
Margir stjómmálaskýrendur álíta
að leiðtogi PLO, Yasser Arafat,
muni boða stefnubreytingu á fundi
Þjóðarráðs Palestínumann, er hald-
inn verður í næsta mánuði, og viður-
kenna ísrael gegn því skilyrði að
Palestínumenn fái að stofna sjálf-
stætt ríki á hemumdu svæðunum
sem ísraelar stjóma. Síðustu mánuði
hafa nánir samstarfsmenn Arafats
gefið til kynna að slík breyting væri
væntanleg en Arafat hefiir sjálfur
forðast að taka ótvírætt af skarið.
Svíþjóð:
Vonast eftir góðum
kafbátaafla á línuna
Stokkhólmi. Reuter.
TALSMAÐUR sænska sjóhers-
ins sagði á þriðjudag, að nú
færu fram tilraunir með nýtt
vopn gegn ókunnum kafbátum
innan lögsögunnar. Er þar um
að ræða fiskilinu með segli á
öðrum enda en belg á hinum.
Rolf Sahlen majór sagði, að
sæju þyrluflugmenn sjónpípu kaf-
báts eða gmnsamlegt bámbrot
köstuðu þeir hringlaga segli í sjó-
inn. „Ef vel tekst til festist segull-
inn við kafbátinn en fiskilínan og
belgurinn fljóta upp,“ sagði Sa-
hlen og bætti því við, að búnaður-
inn væri mjög ódýr, kostaði innan
við 1.500 kr. ísl.
Sænski sjóherinn hefur ámm
saman elst við ókunna kafbáta í
skeijagarðinum en aldrei tekist
að ná neinum þrátt fyrir djúp-
sprengjukast og aðrar tilfæringar.
Svíar hafa tvisvar borið það á
Sovétmenn að eiga kafbátana en
þeir síðamefndu hafa alltaf þver-
tekið fyrir það. Árið 1981 stran-
daði sovéskur kafbátur innan
sænskrar lögsögu skammt frá
flotastöðinni í Karlskrona en Sov-
étmenn sögðu, að bilun í siglinga-
tækjum hefði valdið þvi.
Metsölubku) á hvetjum degi!
LESTU AFRAIvF.
Teg: Roma 3+2+1 kr. 125.450,-
3+1+1 kr. 114.150,-
REYfUWtK
Roma leðursófasettið er
klætt ekta leðri allt í kring.
Það fæst í brúnum
ogsvörtumlit
og tveimur útgáfum-
3+2+1 og 3+1+1.
Roma sófasettið er
vestur-þýsk gæðavara.
Útb: 24.150,-
Afb: 7.500,-ámán.