Morgunblaðið - 15.09.1988, Page 50

Morgunblaðið - 15.09.1988, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988 ap BSMIUM TIEKNIIECA Ríkí ljóðsins Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Seamus Heaney: The Goverment of the Tongue. The 1986 T.S. Eliot Memorial Lectures and Other Critical Writ- ings. Faber and Faber 1988. Seamus Heaney er írskt skáld fæddur 1939. Fyrsta ljóðabók hans kom út 1965, „Eleven Poems". Hann hefur hingað til sent frá sér um átta ljóðabækur og eitt greina- safn auk þessa sem kom út í júní sl. Heaney er ágætt skáld en ekki síður snjall gagnrýnandi og hugleið- ingar hans um skáld og skáldskap í þessu greinasafni eru ferskari og persónulegri en menn eiga að venj- ast varðandi viðfangsefnin. Fyrri hluti safnsins hefur áður birst í tímaritum, formálum og sem fyrirlestrar síðar prentaðir. Annar hlutinn er T.S. Eliot Memorial Lect- ures, sem fluttir voru í október við Kent-háskólann. Höfundurinn ijallar um ensk, bandarísk og evrópsk skáld og þá einkum þau sem búa austan jám- tjaldsins, m.a. Milosz, Herbert og Mandelstam. T.S. Eliot-fyrirlestr- ana hefur hann með samanburði enskrar ljóðagerðar á fyrsta og öðrum áratug aldarinnar og „Waste Land“ 1922. Vinsælustu skáldin á fyrstu áratugum aldarinnar voru vinsæl, vegna þess að þau ortu „fyr- ir fólkið" allt niður á það stig að samsama skáldskap sinn ríkjandi smekk og meðvitund, sem var í rauninni það sama og yrkja sam- kvæmt „skipun" ráðandi valdhafa á hverjum tíma (sbr. Hriflu-Jónas og Stalín, „sem lét gera góðar myndir"). Heaney telur slíka skáldapólitík vera svik við listina. Því kom „The Waste Land“ öllum á óvart, enginn virtist skilja neitt og í fyrstu var bálkurinn afgreidd- ur, sem óskiljanlegur samsetningur. Endumýjun ljóðagerðar er fólgin í því að það ljúkast upp nýjar víddir sem fyrr eða síðar „opna ný tengsl milli eigin eðlis og þess raunveru- leika sem við búum við“. Meðal Hellena töluðu goðin í ljóðum skáld- anna og svo hefur verið allar aldir síðan, goðin og guðimir tala í Orf- eusarsonnettum Rilkes. „Skáld- skapurinn er eigin raunvemleiki og sé neistinn fyrir hendi þá skapast listaverkið, sé skáldið honum trúr, samfélagslegur eða pólitískur þrýstingur verður marklaus óværa á þeirri stundu sem ljóðið gerist." Heaney minnist á skrif Eliots um Dante, en um sama leyti og hann vann að þeim skrifum skrifaði Mandelstam einnig um skáldskap Dantes. Dante var útlagi og Mand- elstam var útlagi úr því ömurlega samfélagi morða, græðgi og sam- félagslegrar nauðsynjar, sem hann var hnepptur í. Aðdáun og mat Heaneys á Mandelstam skapast af því að hann lifði skáldskap sinn, talaði tungum guðanna í guðlausum samfélagshryllingi, hann byggði heima, sem voru algjör andstæða við heima samfélagsins, heima, sem áttu sér forsendur í hinni „tæru list og ríki tungunnar". Jafnvel í sora þrælabúðanna var heimur Mand- elstams sigurvegarinn. Heaney skil- greinir mjög vel þessar ósættanlegu andstæður, ríki tungu og ljóðs og hina formyrkvuðu lágkúru, sem kemst næst því áð túlka list og heima Mandelstams sem einhvers- konar uppsteit gegn fjöldamorð- ingjanum sbr. „orti djarflega um Stalín", eins og einn íslenskur gagn- rýnandi kemst að orði um ástæðuna fyrir dauða skáldsins. Slík umsögn er dæmigerð fyrir þá skoðun að tengsl samfélags og skáldskapar fremstu skálda séu af sömu rót, ef svo væri, væri ekkert ríki ljóðs eða tungu, aðeins myrkviði lágkúrunn- ar. Heanéy fjallar um önnur skáld austan tjalds, skáld sem geta eins búist við að þý kontórista-böðlanna beiji að dyrum þeirra með byssu- skeftunum einhveija nóttina. Hann telur að ljóðið ríki einmitt við þess- ar aðstæður og vald tungunnar nái þar hæst, sem ljóðið er hin algjöra andstæða ríkis böðlanna. Nöfn þessara manna lýsa sem stjömur á dimmum nóttum. Umfjöllun Heaneys um Auden, Lowell og Sylviu Plath og skáldskap þeirra er ítarleg og nærfærin bók- menntaskýring og þar kemur glöggt í ljós hugmynd hans um eðli ljóðsins sem verks, sem er ekki af þessum heimi og sem á sér upp- haf í opinberuninni, galdri tungunn- ar og varð í upphafi til þess að skapa manninum örlög og mennska heima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.