Morgunblaðið - 15.09.1988, Side 55
!8w jraa'MSFT'sag ?,i HuoAquTMMra /iigAjgHuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1#88
55
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PÁL ÞÓRHALLSSON
Fundur leiðtoga Tyrkja og Gríkkja á Kýpur:
Stefnt er að samein-
ingu fyrir iúní 1989
í DAG hefst á vegum Sameinuðu þjóðanna fundur George Vas-
siliou, forseta lýðveldis Kýpur-Grikkja, og Raufs Denktash, starfs-
bróður hans frá norðurhluta eyjarinnar, sem Tyrkir hernámu
árið 1974. Umræðuefnið er hugsanleg sameining eyjarinnar. Leið-
togamir hittast í Ledra Palace-hótelinu i Nikósiu á svæði Samein-
uðu þjóðanna, Grænu linunni svokölluðu, sem skiptir landinu i
tvennt. Hótelið má muna sinn fifil fegri er það hýsti efnaða ferða-
menn en núna er þar aðsetur kanadískra hermanna í friðargæslu-
sveit SÞ.
Vassiliou og Denktash hittust
í fyrsta skipti 24. ágúst
síðastliðinn í höfuðstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í Genf. Tilgangur
þess fundar var fyrst og fremst
að kynnast og reifa málin. Grund-
völlur friðarumleitana nú eru tvö
skjöl sem undirrituð voru í viðræð-
um leiðtoga Kýpur-Grikkja og
Tyrkja á vegum SÞ árin 1977 og
1979. Fundurinn í Genf þótti
óvenju vinsamlegur þegar tekið
er mið af hinni hatrömmu deilu
Tyrkja og Grikkja á Kýpur. Marg-
ir líta svo á að árangur fundarins
megi rekja til persónu forseta
Kýpur-Grikkja. Hann var tiltölu-
lega lftt þekktur kaupsýslumaður
þegar hann vann sigur í forseta-
kosningunum í febrúar og hefur
einsett sér að sameina tyrkneska
og gríska hluta eyjarinnar. Hann
þykir hófsamari í afstöðu sinni
en forveri hans, Spyros Kypr-
ianou, sem hitti Denktash fyrir
þremur árum en án árangurs.
Sameiningarviðleitnina má einnig
rekja til Perez de Cuellars, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefur á undraverðan
hátt tekist að sigla hverri svæðis-
bundnu deilunni á fætur annarri
í átt til hafnar að undanfömu.
Síðast en ekki síst er mikill al-
þjóðlegur þrýstingur á Tyrki að
draga 29.000 manna herafla sinn
til baka frá Kýpur. Andreas Pap-
andreou, forsætisráðherra Grikk-
lands, og Turgut Ozal, forseti
Tyrklands, hittust í Davos í Sviss
fyrr á árinu til að ræða deiluefni
sín og er mikið vitnað til þess
fundar í fjölmiðlum á Kýpur þegar
rætt er um bætta sambúð eyjar-
skeggja beggja vegna Grænu
línunnar.
Tveir stærstu stjómarand-
stöðuflokkamir á tyrkneska hluta
Kýpur hafa einnig barist fyrir
sáttaumleitunum en þeir njóta
fylgis nær helmings kjósenda.
Vassiliou og Denktash hafa
sett sér það markmið að ná sátt-
um fyrir júníbyijun á næsta ári.
í fyrstu munu þeir hittast f dag
og á morgun en ákveða sfðan
hver næstu skrefin verða. Stjóm-
málaskýrendur segja að verið geti
að leiðtogamir hitti de Cuellar í
New York í október til að meta
stöðuna.
Vildu ekki sjálfstæðið
Sjálfstætt lýðveldi var stofnað
á eynni Kýpur, sem er tæplega
tíu þúsund ferkflómetrar að stærð,
árið 1960. Hið merkilega var að
flestir íbúamir, þ.e.a.s. þeir sem
litu á sig sem Grikki fyrst og
fremst, höfðu engan áhuga á
sjálfstæðinu þá heldur vildu sam-
einast Grikklandi eftir að hafa
verið undir breskri stjóm { ára-
tugi. Tyrkneskir íbúar eyjarinnar
sögðu sig úr lögum við hið ný-
stofnaða lýðveldi þremur ámm
sfðar vegna óánægju með sinn
hlut f stjóm landsins og til harðra
átaka kom milli þjóðanna tveggja.
Sameinuðu þjóðunum tókst að
stilla til tímabundins friðar og
árið 1968 hófust viðræður um
stjómarskrárbreytingar sem
tryggðu Tyrkjum aukin réttindi.
Þær stóðu í sex ár en bám lítinn
árangur.
Eyjan hefur verið klofín frá
árinu 1974 er Tyrkir réðust inn í
landið. Tilefnið var það að Maka-
rfosi erkibiskupi og forseta lands-
ins hafði verið steypt af stóli að
undirlagi herforingjastjómarinnar
á Grikklandi. Makaríos sneri aftur
nokkmm mánuðum síðar en tyrk-
bandsríki með landamæmm". Það
fæli í sér að Kýpur-Grikkir myndu
hvorki mega ferðast að vild um
eyna né setjast að f norðri. Kýp-
ur-Grikkir á hinn bóginn leggja
megináherslu á hin svokölluðu
þrenn frelsisréttindi; réttindi allra
Kýpurbúa til að flytjast búferlum,
setjast að hvar sem er og eiga
eig^nir hvar sem er. Enda er eina
megindriffjöður samningaviðleitni
í gríska hlutanum að finna meðal
200.000 grískra flóttamanna úr
norðri sem vilja endurheimta jarð-
ir sfnar og eignir.
í huga Kýpur-Grikkja felst í
hugmyndinni um sambandsríki
einn forseti, ein utanríkisstefna
og einn efnahagur. Mörgum
finnst erfitt að ímynda sér að
Denktash geti fallist á að láta
forsetaembættið af hendi en
stungið hefur verið upp á því að
Denktash og Vassiliou á fundinum í Genf.
neski herinn sat sem fastast.
Tyrkland er eina erlenda ríkið sem
viðurkennir lýðveldið sem Kýpur-
Tyrkir stofnsettu á hemámssvæð-
inu. Það þekur um þriðjung eyjar-
innar og þar búa 163 þúsund
manns, þar af einungis 661 af
grísku þjóðemi f bænum Karpas-
ia. í gríska hlutanum búa um það
bil 540 þúsund manns, nær allt
Grikkir. Eins og stendur em lítil
sem engin samskipti milli eyjar-
hlutanna tveggja og nær engin
umferð um landamærin. Á dögun-
um hugðust nokkrir blaðamenn
frá gríska hlutanum fara norður
og taka viðtal við Denktash en
það strandaði á því að Tyrkir fóm
fram á vegabréf á landamæmn-
um. Blaðamennimir gátu ekki
fallist á þessi skilyrði því þar með
væra þeir að viðurkenna að tvö
ríki væm fyrir hendi á Kýpur.
Tortryggni á báða bóga
Þó bæði Grikkir og Tyrkir á
Kýpur virðist sjá sér hag í samein-
ingu er tortryggnin í garð hins
aðilans stærstur Þrándur í götu
samkomulags. Tyrkir óttast að
lokatakmark Kýpur-Grikkja sé að
sameinast Grikldandi og Grikkir
em á móti tvískiptingu eyjarinnar
af þeirri ástæðu að þeir óttast að
hún sé fyrsta skrefíð í átt að full-
um yfirráðum Tyrkja.
Báðir aðiljar hafá í orði fallist
á að hið nýja ríki verði sambands-
ríki en deilt er um flest önnur
atriði. í Genf lagði Denktash,
minnugur þess að tyrkneski
minnihlutinn var kúgaður fyrir
1974, til að stofnsett yrði „sam-
Tyrkir og Grikkir skiptist á að
skipa mann í forsetastól.
Deilt um tyrkneska
innflytjendur
Einnig er deilt um hver skuli
verða afdrif um það bil 60.000
Tyrkja sem flust hafa til Kýpur
frá meginlandinu. Stjóm Denkt-
ash hefur vísað á bug þeirri kröfu
sem kom fram á fundi utanríkis-
ráðherra Samtaka óháðra ríkja í
Nikósíu á dögunum þar sem farið
var fram á að landnemamir snem
heim. Sú krafa byggist á því að
innflutningur Tyrkjanna er brot á
ákvæði samnings frá árinu 1960
milli Gríkklands, Tyrklands, Bret-
lands og hins nýstofnaða lýðveldis
á Kýpur um innflytjendur. Það
er samkvæmt þessum samningi
sem Bretar em enn með herstöðv-
ar á eyjunni.
Eins og fram hefur komið er
lausn Kýpurdeilunnar ekki ein-
ungis undir þeim komin sem eyj-
una byggja. Fundurinn Í-Davos
fyrr á árinu milli Papandreous og
Ozals gaf tóninn. Denktash stend-
ur og fellur með stuðningi Tyrkja
og heyrst hefur að forsenda þess
að Tyrkir fái inngöngu í Evrópu-
bandalagið sé að þeir kalli herinn
heim frá Kýpur. Sem dæmi um
það hversu Kýpur-Grikkir reiða
sig á stjómina í Aþenu má nefna
að það olli geysilegu fjaðrafoki
er það upplýstist að Michael Do-
untas, sendiherra Grikklands hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði í
skýrslu til stjómvalda heima fyrir
að skipting eyjarinnar væri ákjós-
anlegri en það samkomulag sem
nú væri f undirbúningi.
GEGN STREITU
Vitundartækni Maharíshi, INNHVERF
ÍHUGUN, er einföld, huglæg aðferð sem
vinnur gegn streitu og spennu. Almenn
kynning verður haldin í kvöld fimmtudag
kl. 20.30. I Garðastræti 17.
Aðgangur ókeypis.
fslenska íhugunarfélagið, s. 16662.
DLT42J
B0RÐAÐ EINS 0G
í SUÐUR-KÍNA,
- cin vika -
Blandðður kínverskur forréttur
með svínakjötí og rækjum.
4 litlir réttir:
Fylltur smokkfiskur
Marinerað steikt svínakjöt
Pönnusteiktur Sjanghæhumar
. Szechuan kjúklingur m/kínverskum hnetum
Hrísgrjónavín (15 cl)
(Heitt eða kalt)
Verð kr. 1.290.-
Að öðru leyti er matseðillinn okkar í fullu gildi.
Við seljum út og sendum heim.
Kínvcrska veitingahúsið, Laugavegi 28.
Sími 16513.
Tæknival hf. kynnir:
Stórkostleg nýjung
■ikflililili'MliKmTII
Handstýrðurmyndskanni fyrir
PC eigendur.
Lesbreidd: 64 mm +/ —
4%
Upplausn: 200 punktar á
tommu lárétt
og lóörétt.
Leshraði: 3.3 sentimetrar
/sek
Stærð: 122x90x31
mm
Snúra: 1.8 metrar.
Tengispjald: Fyrir allar IBM
PC/XT/AT og
PS/2 model 30
og samhæfðar
vélar.
Lágmarkskröfurum vélbúnað:
256KB vinnsluminni, DOS 2.0
eða ofar, tvlhliða disklinga-
drif, 1 DMA rás.
Sé HALO DPE útgáfuforritið
notað með skannanum er
mælt með 640 KB vinnslu-
minni og öðru drifi eða hörð-
um diski að auki.
Útgáfuforritið HALO DPE fylg-
ir með I kaupunum ásamt
handbók og leiðbeiningum
um notkun.
Með þessum bunaöi bætist
enn við valkosti og möguleika
PC eigenda. Fram til þessa
hefur það ekki verið á færi
einstaklingaaðeignast mynd-
skanna vegna mikils kostnað-
ar. Með HS 1000 myndskann-
anum geta nu allir leyft sér að
skanna myndir — breyta þeim
— prenta þær út — nýta þær
með útgáfuforriti til að gera
eintaldar auglýsingar— kynn-
ingarbæklinga allskonar eða
hanna sln eigin eyðublöð svo
eitthvað sé nefnt.
Jafnvel Macintosh eigendur
eiga ekki enn kost á þessari
nýjung og eru þó ýmsu góðu
vanir.
HS 1000 myndskanninn kost-
ar aðeins 22.354 krónur á
þessum verðbólgutlmum.
Hlægilegt verð. Komdu og
skoöaöu — Prófaðu eða
kauþtu þér HS 1000 skanna.
Gsngi 25.5.88.
SIÆKNIVAL
Grensásvegi 7, 108 Reykjavlk, Box8294, S: 681665 og 686064