Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
59
Norðurlandamót grunnskólasveita:
Skáksveit Seljaskóla
hreppti annað sætið
Skák
Karl Þorsteins
Norðurlandamót grunnskóla-
sveita í skák lauk í Sandnes {
Noregi 2.—4. september sl. Tjele
Efterskole frá Danmörku bar
sigur úr býtum og fulltrúi ís-
lands, sveit Seljaskóla, hafnaði i
öðru sæti.
Sigur dönsku sveitarinnar var
raunar nokkuð öryggur. Sveitin
hlaut 15 vinninga af 20 mögulegum
en íslenska sveitin 12V2 vinning.
Danska sveitin sem kemur frá Jót-
landi hefur nokkra sérstöðu gagn-
vart sveitum annarra skóla því skák
er valgrein í skólanum og meðal
kennara eru alþjóðlegir titilhafar.
Þetta hefur gefíð góða raun því í
skólann hafa safnast efnilegustu
ungmenni Danaveldis í skákíþrótt-
inni og ekkert lát virðist þar á.
Skáksveit Seljaskóla tókst ekki
að verja glæstan árangur síðustu
tveggja ára með sigri á mótinu.
Sveitina skipuðu (íslensku skákstig-
in innan sviga): Þröstur Ámason
(2195), Sigurður Daði Sigfússon
(2195), Snorri Karlsson (1815),
Ingi Fjalar Magnússon (1720) og
Ingólfur Gíslason (1520). Árangur-
inn er samt fyllilega sómasamlegur.
Á efstu borðunum eru sveitarmeð-
limir Seljaskólasveitarinnar raunar
hærri að skákstigum en keppinaut:
ar þeirra í hinni dönsku sveit. í
sveitarkeppnum reynir á hinn bóg-
inn meira á mátt hinna mörgu og
meðalstig dönsku andstæðinganna
voru mun hærri.
Úrslitaviðureign í mótinu var
raunar tefld í fyrstu umferð því þá
hlutu sveitarmeðlir einungis einn
vinning gegn þremur vinningum
dönsku andstæðinganna. Tapið vó
þungt á vogarskálunum í keppninni
um sigursætið. Heldur saxaðist þó
á forskot dönsku sveitarinnar uns
kom að lokaumferðinni. Á meðan
norska aðalsveit'in hélt þá jöfnu
gegn Seljaskólasveitinni tók danska
sveitin sænsku andstæðinga sína í
kennslustund og sigruðu 8V2—V2.
Vinningataflan lítur annars þannig
út:
1. Tjele Efterskole Dan. 16 vinningar
2. Seljaskóli Isl. I2V2 vinningar
3. Skeieneungd.sk. Nor. llvinningar
4. Strupeskole Nor. lOvinningar
6. Fagelskolan Svi. 9vinningar
6. Kiteen Ylaaste Fin. 2V2vinningar
Taflan er um marg fróðlegt varð-
andi þróun skákíþróttarinnar í ná-
grannalöndum okkar. Mikil rækt
er lögð við þjálfun ungra skák-
manna í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð með ágætum árangri.
Ólympíusveitir viðkomandi landa á
komandi móti í Þessólóniku í nóv-
ember endurspegla þá þróun því
þær eru að meginhluta til skipaðar
ungum skákmönnum sem teflt hafa
ötullega í unglingamótum í Skand-
inavíu. í Finnlandi er á hinn bóginn
mikil lægð í skákíþróttinni um þess-
ar mundir, enda lífsafkoma þeirra
er stunda greinina heldur ótrygg.
Aðstæður í Sandnes voru hinar
þokkalegustu að sögn fararstjórans
Ólafs H. Ólafssonar. Undirbúnings-
vinnan var mikil fyrir mótið og
kemur þar margt til. Kristján Guð-
mundsson var helsta hjálparhella
drengjanna varðandi byijunarund-
irbúning og helstu sálarbrögð í
hinni hörðu keppni. Með sveitinni
út var að auki Guðmundur Guðjóns-
son, kennari við Seljaskóla.
Skákþing íslands í drengja-
og telpnaf lokki
Keppni í drengja- og telpnaflokki
(14 ára og yngri) verður dagana
16.—18. september nk. Tefldar
verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfí
og umhugsunartími er 40 mfn. á
skák. Teflt verður í félagsheimili
TR á Grensásvegi 46. Innritun fer
fram á skákstað föstudaginn 16.
september kl. 18.30—18.55.
Skákstjóri verður Ólafur H.
Ólafsson.
. Að lokum skulum við líta á skák
úr mótinu. Hún var tefld á þriðja
borði í viðureigninni gegn dönsku
sveitinni. Þrátt fyrir lítið byijunar-
frumkvæði saumar Snorri Karlsson
hægt og sígandi að andstæðingi
sínum og þrátt fyrir að nákvæm-
ustu leiðimar til sigurs séu ekki
ætíð valdar er andstæðingurinn
knúinn til uppgjafar eftir 57 leiki.
Hvítt: Snorri Karlsson.
Svart: Pelle Bank.
Slavnesk vörn.
1. d4 - d5, 2. c4 - c6, 3. Rc3
- Rf6, 4. Rf3 - dxc4, 5. a4 -
Bf5, 6. e3 - e6, 7. Bxc4 - Bb4,
8. 0-0 - Rbd7, 9. Bd2 (Heldur
bitlaust áframhald. Heimsmeistar-
inn Garrí Kasparov valdi skarpara
framhald í viðureign gegn Timman
á móti í Amsterdam nýlega. Fram-
haldið þá varð 9. Db3 — a5, 10.
Ra2 - Be7, 11. Rh4 - Bg6, 12.
g3 og hvíta staðan er betri.) 9. —
Bg6, 10. Re2 - Bd6, 11. b4 -
0-0, 12. Db3 - Rb6 (12. - e5 var
eðlilegra framhald.) 13. Bd3 — Re4
(Svartur á nú í engum erfiðleikum.
Framhaldið teflir hvíti leikstjóm-
andinn skemmtilega. Hann veikir
drottningarvænginn hjá svörtum og
eftir nokkur uppskipti nær hann
frumkvæðinu á ný.) 14. b5 — c5,
15. Dc2 - Rxd2,16. Dxd2 - cxd4,
17. Bxg6 — hxg6, 18. Rexd4 —
De7, 19. a5 - Rc4, 20. Da2 -
Re5, 21. a6! - Rxf3, 22. Rxf3 -
bxa6, 23. Dxa6 - e5, 24. Hfdl -
Hfd8, 25. Hácl - Ba3?, 26. Hxd8
- Hxd8, 27. Hc8 - f6, 28. g3 -
Hxc8, 29. Dxc8+ — Df8, 30. Dc4
- Df7, 31. Dc8+ - Df8, 32. Dg4
- De8, 33. Dc4+ - Df7,.34. Dc6
- Bf8, 35. Rd2 - De7, 36. Re4
- Df7, 37. Rc3 - Db3, 38. Rd5?
(Sleppir svörtum úr þrengingunum.
Sjálfsagt var að forðast þráskák
með 38. h4) — Dbl+, 39. Kg2 —
De4+, 40. Kh3 - Df5+, 41. Kg2
- e4? (Jafntefli væri útkoman eftir
41 — De4+) 42. Rc3! (Hvíti riddar-
inn hefur auga með peðinu á e4
og hindrar drottningarskákir sem
gætu endað með þráskák. Hvíta
staðan er nú unnin.) 42. — Df3,
43. Kgl - f5, 44. Da8 - g5, 45.
Dxa7 - Bb4, 46. Da2 - Kh7, 47.
Re2 - Bc5, 48. Dd2 - Dg4, 49.
Dc2 - Bb6, 50. Rd4 - g6, 51.
Re6 - Kh6, 52. Dd2 - f4, 53.
Db2 - Df5, 54. Dg7+ (Leiðir tíl
fallegra taflloka. A hinn bóginn
væri ekki hægt að gagnrýna 54.
Dh8 mát!) 54. - Kh5, 55. h3! -
Dxh3,56. Dh7+ - Kg4,57. Dd7!
Svartur gafst upp. Lokastaðan
er skemmtileg. Svartur getur sig
hvergi hrært og mát eða drottning-
artap er yfírvofandi við riddara-
stökk í næsta leik.
Metsölublað á hvetjum degi!
múiil §• r
Hk .' ’■ ’j É 1
Þessi hópur tók sig saman um að halda hlutaveltu til ágóða fyrir
Eþiopiusöfnun Rauða krossins og þar söfnuðu krakkarnir rúmlega
1.370 krónum. Þau heita: Pálmar, Elísabet, Eva, Reynir, Ingibjörg
og Heiðdís.
Suður í Kópavogi héldu þessir krakkar hlutaveltu á Álfhólsvegi 20,
til ágóða fyrir Krabbameinsfélag íslands, sem þau svo afhentu, rúm-
lega 2.000 krónur. Þau heita: Fríða Sigurðardóttir, Hanna L. Karls-
dóttir, Kristj
ián Dereksson og Eva Hlín Dereksdóttir.
Þessir hressu krakkar héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Breiðholts-
kirkju, en þau eiga heima við Kóngsbakka í Breiðholtshverfi. Þau
söfnuðu 1.250 kr. Krakkamir heita: Ásdís, Hildur, Inga, Jóna, Karl,
Hildur og Kolbrún.
Drifbúnaður
fyrir spil o.f I.
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNÚSTA - LAGER
.<
C/)
Ovenjuleg 09 skemmtileg símasýning
í Kringlunni I4.-I7.september
Þá verður Póstur og sími með símadaga
á torginu á 2. hœð í Kringlunni.
Þar fcerðu að kynnast því nýjasta í þjón-
ustu Pósts og síma fyrir símnotendur.
Við verðum með nýja og fullkomna síma
og símsvara til sýnis og sölu (þú mátt
þrófa þá) og þií fœrð að vita allt um nýja
Sérþjónustu í stafrœna símakerfinu og
Almenna gagnaflutningsnetið.
Komdu á símadaga í Kringlunni 14. -17.
seþtember. Þú hefur örugglega gaman af
þvi.
POSTUR OG SIMI
KRINGLUNNI