Morgunblaðið - 15.09.1988, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
77
KNATTSPYRNA / HM
mDfftit
FOLX
■ CAL VIN Smith, bandaríski
spretthlauparinn, segist vera
óhræddur við að mæta Carl Lewis
og Ben Johnson f 100 m hlaupi á
OL. Hann segir að sigurinn á Jo-
hnson í Köln nýlega hafi gefíð
honum aukið sjálfstraust og hann
geti unnið hlaupið alveg eins og
þeir.
■ BANDARÍSKA körfuknatt-
leiksliðið Boston Celtics mun
keppa gegn liðum frá Júgóslvavíu,
Ítalíu og Spáni á móti í Madrid
síðari hluta októbermánaðar.
■ EINTRACHT Fr&akfurt
hefur ráðið ungverska þjálfarann
Pal Csemai til starfa. Karlheinz
Peldkamp hefur látið af störfum
en hann hefur átt við veikindi að
stríða undanfarið. Frankfurt hefur
byijað keppnistímabilið mjög illa.
Pal Csemai, sem tekur nú við lið-
inu, þjálfaði Bayera Mllnchen þeg-
ar Asgeir Sigurvinsson var hjá
liðinu en sem kunnugt er, var As-
geir ekki í náðinni hjá honum.
■ SÉRHANNAÐUR sundfatn-
aður úr gervigúmmíi hefur verið
bannaður á OL. Ástralfumenn
höfðu hugsað sér að nota þess hátt-
ar sundföt en var neitað á þeim
forsendum að á sfðustu stundu
væri ekki hægt að koma fram með
nýja gerð af sundfatnaði, sem auk-
ið gæti hraða sumra keppenda á
kostnað annarra.
■ PARIS Suin t~ Gernmin
skauzt á topp frönsku 1. deildar-
i.innar í knattspymu þegar liðið gerði
GullK bjargaði
Hollendingum
Skoraði sigurmarkið gegn
Wales rétt fyrir leikslok
RUUD Gullit, knattspyrnumað-
ur Evrópu, tryggði Hollending-
um sigur á Wales í gœr, 1:0.
Hann skoraði sigurmarkið sjö
mínútum fyrir leikslok, en þetta
var fyrsti leikur þjóðanna í 4.
riðli undankeppni HM.
Það var fyrst og fremst stórieik-
ur Neville Southall f velska
markinum sem kom í veg fyrir
stærri sigur Hollendinga. Hann átti
frábæran leik og varði hvað eftir
annað glæsilega. En sjö mínútum
fyrir leikslok varð hann að láta í
minni pokann fyrir Ruud Gullit.
Ronald Koeman tók aukaspymu og
Gullit skallaði í þverslána. Þaðan
fékk hann boltann aftur og skallaði
framhjá Southall.
Þetta mark var að sjálfsögðu
mikil vonbrigði fyrir lið Wales sem
hafði staðið sig mjög vel f leiknum.
Fiestir áttu von á auðveldum sigri
Evrópumeistaranna, en annað kom
á daginn. Rúmlega 40 þúsund
áhorfendur í Amsterdam vom ekki
hrifnir af frammistöðu sinna
manna, enda búist við meiru af
sjálfum Evrópumeisturunum.
Búast má við að Hollendingar
og V-Þjóðveijar berjist um sigurinn
f 4. riðli HM, en Þjóðveijar byijuðu
mjög vel með sigri á Finnum, 4:0.
Reuter
Hollendlngurlnn Marco van Basten, sem varð markahæsti leikmaður Evrópumótsins í sumar, á hér i höggi við
einn leikmanna Wales í leiknum í Amsterdam í gær.
Reuter
Sérhannaöur sundfatnaöur úr gervigúmmfi hefur verið bannaður á
Ólympfuleikunum. Ástralfumenn höfðu hugsað sér að nota þennan sundfatnað
á leikunum.
jafntefli við Bordeaux 1:1 f gær-
kvöldi. Christian Perez skoraði
fyrir PSG í fyrri hálfleik en Eric
Dewilder jafnaði í seinni hálfleik.
PSG hefur 23 stig eins og Aux-
erre, en betri markatölu.
■ ALEXANDER Zavarov lék
sinn fyrsta leik með Juventus gegn
Ascoli í ftölsku bikarkeppninni í
gær. Hann varð að fara af velli
eftir aðeins 19 mínútur vegna
meiðsla í læri. Juventus tapaði
leiknum 0:2.
■ ÍBÚAR Östersund f Svfþjóð
syntu 71 þúsund km í sundlaug á
staðnum til að vekja athygli á bæn-
um sem keppnisstað fyrir ÓL 1994.
Það jafngildir rúmlega 1400 þúsund
ferðum í 50 metra laug. Upphaflega
var ætlunin að synda 22,500 km
sem er jafnmikil vegalengid og frá
bænum til Seoul en vegna frábærr-
ar þátttöku var synt mun lengra.
KNATTSPYRNA
Loks signiðu
Englendingar
BOBBY Robson, þjálfari
enska landsliðsins, getur nú
andað léttar eftir sigur á Dön-
um f vináttulandsleik, 1:0.
Hann hefur verið gagnrýndur
fyrir slœmt gengi í Evrópu-
keppninni og þurfti virkilega
á þessum sígri að halda til
að tryggja sig í sessi.
Það var Neil Webb sem tiyggði
Englendingum sigur á 28.
mínútu eftir að Troels Rassmusen,
markvörður Dana, hafði slegið frá
fyrirgjöf Bryan RÍobson.
Danir fengu gott færi á fyrstu
mínútunni en Michael Laudrup
skaut framhjá í dauðafæri. Eftir
það réði enska liðið ferðinni og
hefði getað bætt fleiri mörkum
við.
Spénverjartöpuðu
Spánveijar léku einnig vináttu-
landsleik f gær, gegn Júgóslövum.
Þrátt fyrir góða byijun máttu
Spánveijar sætta sig við tap 1:2.
Aitor Beguiristain náði forys-
tunni fyrir Spánveija á 26.
mínútu, en Bazdarevic jafnaði á
46. mínútu eftir góða sendingu
firá leikmanni Real Madrid, Milan
Jankovic.
Luis Suarez, þjálfari Spánveija,
notaði leikinn til að gefa nýliðum
tækifæri og á 84. mínútu tók
hann Andoni Zubizarreta úr
markinu og setti Patxi Ferreira
inn á í hans stað. Hann hafði
ekki heppnina með sér og hafði
aðeins staðið f markinu f tæpa
mínútu þegar Borislav Cvetkovic
skoraði sigurmark Júgóslava eftir
vamarmistök.
ÞJALFARI
Ungmennafélag Keflavíkur auglýsir eftir f rjálsíþrótta-
þjálfara er getur hafið störf nú þegar. Allar nánari upp-
lýsingar eru gefnar upp í síma 92-13044 og 92-14472.
Jafnframt auglýsirfélagið eftir borðtennisþjálfara er
getur hafið störf strax. Upplýsingar á sama stað.
Ungmennafélag Keflavíkur.
Markalaust á
Windsor Park
NORÐUR-ÍRAR og írar gerðu
markalaust jafntefli í 6. riðli
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í gœrkvöldi.
etta var fyrsti leikur Norð-
ur-íra í riðlinum, en írar
hafa þegar borið sigurorð af
Möltu, 3:0. Leikurinn í gærkvöldi
fór fram í Belfast á Norður-ír-
landi.
írar, sem vöktu mikla athygb
í úrslitakeppni Evrópumóts lands-
liða í sumar, höfðu gert sér vonir
um sigur á nágrönnum sínum í
gær, en þrátt fyrir að ráða lögum
og lofum mest allan tímann í
gærkvöldi náðu þeir ekki að skora
á Windsor Park. Eftir aðeins þijár
mín. skallaði Tony Cascarino í
stöng n-írska marksins, John
Aldridge fékk einnig gott færi
sem hann nýtti ekki áður en N-
írar fengu færi á að skora. Þeir
fengu tvö þokkaleg færi fyrir leik-
hlé.
Síðari hálfleikur var síðan al-
gjörlega eign íra en þrátt fyrir
góð færi vildi knötturinn ekki í
netið. Þetta var aðeins þriðja við-
ureign nágrannaþjóðanna, og sú
fyrsta í níu ár. Gífurlegar öryggis-
ráðstafanir voru gerðar vegna
leiksins. 800 lögreglumenn og 100
vallarstarfsmenn voru að störfum
inni á og við leikvanginn.