Morgunblaðið - 01.10.1988, Qupperneq 1
68 SÍÐUR B/C OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
224. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gorbatsjov hreinsar til:
Mannabreytíngar í Kreml
styrkja stöðu umbótasínna
Áhugasamir Moskvubúar sjást
hér skoða daghlöð, sem komið
hefur verið fyrir í gluggum.
Blöðin skýra frá þeim óvæntu
breytingum sem gerðar hafa
verið á æðsta forystuliði komm-
únistastjórnarinnar í Kreml en
meðal þeirra, sem lækka í tign,
eru Andrej Gromyko, forseti
Sovétríkjanna, sem hættir setu
í stjórnmálaráðinu, voldugustu
stofnun kommúnistaflokksins.
Gromyko forseti víkur úr stjórnmála
ráðinu og Lígatsj ov lækkar í tign
Moskvu. Washington. Reuter.
MÍKAÍL Gorbatsjov Sovétleiðtogi
styrkti verulega stöðu sina í gær
er Andrej Gromyko, forseti Sov-
étríkjanna og þrír aðrir menn
misstu sæti sín í æðstu valdastofn-
un landsins, stjómmálaráðinu.
Auk þess fengu tveir helstu and-
Auglýsinga-
sjónvarp
í Danmörku
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
I DAG hefjast útsendingar
nýrrar rásar danska ríkissjón-
varpsins. Rásin verður rekin
í samkeppni við þá sem fyrir
er og hefúr sjálfstæðan Qár-
hag og stjóra. Þess er vænst
að meiríhluti tekna muni
koma frá auglýsingum en af-
gangurinn frá afnotagjöldum.
Útsending hefst klukkan
fimm og verður fyrsta dagskrár-
atriðið dönsk landslags- og
þjóðlífsmynd, „Danish Symp-
hony,“ Qármögnuð af banka.
Lögin um auglýsingasjónvarp
voru samþykkt í þjóðþinginu
fyrir rúmum tveim árum með
aðeins tveggja atkvæða meiri-
hluta. 80% þjóðarinnar geta séð
nýju rásina og starfsmenn henn-
ar eru um 300, þar af 50 í Óð-
insvéum.
stæðingar Ieiðtogans, Jegor
Lígatsjov og Viktor Tsjebríkov,
yfirmaður leyniþjónustunnar,
KGB, valdaminni stöður en áður.
í dag er fundur í Æðsta ráði Sov-
étríkjanna og er talið líklegt að
Gromyko láti þar af embætti for-
seta en Gorbatsjov verði valinn í
hans stað auk þess sem forseta-
embættinu verði breytt og því
veitt aukin völd að bandarískri
fyrirmynd. Þá er þess vænst að
nýr maður verði valinn sem yfir-
maður KGB og hefur Anatolíj
Lulganov sem er handgenginn
Gorbatsjov veríð nefiidur sem
hugsanlegur eftirmaður
Tsjebríkovs.
Það var nýr maður í starfi aðal-
hugmyndafræðings, Vadim Medv-
edev, sem tilkynnti um breytingamar
á fréttamannafundi í gær eftir aðeins
klukkutíma skyndifund í miðstjóm
flokksins. Sagði hann mannabreyt-
ingamar hafa verið samþykktar sam-
hljóða. Þegar hann var spurður,
hvort túlka ætti niðurstöður fundar-
ins á þann veg, að Gorbatsjov hefði
styrkt stöðu sína, svaraði hann blaða-
manninum aðeins: „Hvað finnst þér?“
Menntamaður sem styður Gorbatsjov
sagði við fréttaritara Reuters, að
hann hefði ekki trúað því fyrirfram
að Gorbatsjov hefði þann styrk sem
niðurstaða fundarins sýndi. George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði að atburðimir í
Olíumarkaðurinn:
Verð ekkí ver-
ið lægra í tvö ár
London. Reuter.
VERÐ á hráolíu á heimsmarkaði hélt áfram að lækka í gær og hef-
ur ekki verið lægra undanfarin tvö ár. Subroto, framkvæmdastjóri
OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, lét nýlega í ljós ótta um að
Saudi-Arabar hafi í hyggju að stórauka framboð á olíu og þvinga
þannig önnur aðildarríki OPEC til að selja ekki meira en sem nem-
ur úthlutuðum kvótum ríkjanna. Þessi ummæli eru talin valda verð-
lækkuninni að einhveiju leyti en ljóst hefiir verið um hrið að ofifram-
boð er nú á olíu í heiminum.
Er markaðir lokuðu í gær var
verð á algengustu tegund hráolíu á
heimsmarkaði, Brent, komið niður
í 11,95 Bandaríkjadali tunnan. Hef-
ur verðið fallið um 1,35 dali frá
sfðustu helgi er OPEC-ríkin áttu
með sér fund þar sem reynt var
árangurslaust að ná samkomulagi
um aðgerðir til að stemma stigu
við offrarnboði. Bandarískir mark-
verið mikil en auk þess mun hafa
verið frestað fundi sérfræðinga á
vegum OPEC, er ætlað var að
ákvarða hvort léttar olíutegundir
skuli taldar með þegar fram-
leiðslukvótum ríkjanna er úthlutað.
Um þetta hafa ríkin deilt lengi.
Nefnd innan samtakanna, er
vinnur að mótun langtímastefnu, á
að koma saman i seinni hluta októ-
aðssérfræðingar álíta að dagsfram-
leiðsla OPEC-ríkjanna hafi verið að
meðaltali 20,6 milljónir tunna í
september en markaðsþörfin er nú
aðeins um 18,5 milljónir tonna á
mánuði. Birgðasöfnun hefur því
ber til að reyna að finna leið er
dugi til að hækka oliuverðið. Að
sögn sérfræðinga tekst það varla
fyrr en búið er að leysa deiluna um
léttu olíutegundirnar.
li _ * § NH l
) n L mma.
Moskvu sýndu að Gorbatsjov væri
staðráðinn í að fylgja umbótastefnu
sinni fast fram.
Gromyko forseti bað um lausn
vegna aldurs og Gorbatsjov þakkaði
honum vel unnin störf. I skilnaðar-
ræðu sinni sagði Gromyko m.a.: „Að
sjálfsögðu hryggir það mig að staða
mín innan miðstjómar flokksins skuli
nú breytast. En enginn sigrar elli
kerlingu. Öll höfum við þurft að láta
undan í lífinu. Sjálfur hef ég starfað
eins vel og mér var unnt.“
Undanfama mánuði hafa þeir
Lígatsjov, sem fram til þessa hefur
verið talinn næstvaldamesti maður
landsins, og Tsjebríkov gagnrýnt
stefnu Gorbatsjovs í ýmsum málum.
Hefur Lígatsjov sagt að utanríkis-
stefnan yrði „að taka mið af stétta-
baráttunni" og ekki mætti fara of
geyst í breytingar, slíkt gæti orðið
til að vekja upp óvinafagnað komm-
únismans. Hann hefur einkum beint
sér gegn glasnost-stefnunni, auknu
upplýsingastreymi og opinskárri
umráeðu. Tsjebríkov hefur varað við
því að aukin samskipti við Vesturlönd
myndu gera óvinaþjóðum auðveldara
að stunda njósnir og einnig gæti
„hugsjónaeldur" alþýðunnar dofnað.
Nýir félagar í stjómmálaráðinu,
Nefiid SÞ á Kúbu:
Genf. Reuter.
NEFND á vegum Sameinuðu þjóð- I
anna, er fékk leyfi kúbverskra
yfirvalda til að kynna sér ástand |
Reuter
án atkvæðisréttar, eru Aleksander
Vlasov innanríkisráðherra, Anatólíj
Lukjanov og Aleksandra Biijúkova.
Þau tvö síðastnefndu voru áður í
hópi ritara miðstjómar flokksins og
er Birjúkova fyrsta konan sem tekur
sæti í stjómmálaráðinu í tvo áratugi.
Sjá ennfremur bls. 24 og 25.
mannréttindamála á eynui, tók við
um 1.500 kvörtunum kúbverskra
borgara vegna mannréttinda-
brota. Flest vildi fólkið fá leyfi til
að flytjast úr landi.
Formaður nefndarinnar, Alioune
Sene frá Senegal, sagði á frétta-
mannafundi að nefndin hefði afhent
kúbverskum stjómvöldum kvartan-
imar og hefðu þau heitið að kanna
málin. Fyrir utan óskir um að fá
brottfararleyfi var kvartað undan
ýmsum mannréttindabrotum af hálfu
yfirvalda og segist fólk hafa sætt
barsmíðum, geðþóttafangelsunum,
óréttlátum dómsúrskurðum ásamt
banni við trúariðkunum og funda-
höldum.
Sendinefnd Bandaríkjamanna hjá
mannréttindanefnd SÞ telur að enn
séu 10.000 pólitískir fangar á Kúbu
en formaður bandarísku nefndarinn-
ar er Armando Valladares, fyrrum
pólitískur fangi á Kubu.
Óeirðir í Pakistan:
Tugir manna skotnir
Karachi. Reuter.
ALLS týndu a.m.k. 60 manns lífi
og meira en 150 særðust er
byssumenn skutu á fólk I pakist-
önsku borginni Hyderabad í
gær. Yfirvöld sendu mikið herlið
á vettvang til að koma á út-
göngubanni í borginni en þar
hefur oft komið til átaka milli
ólíkra þjóðarbrota síðastliðin tvö
ár.
Engin samtök hafa lýst ábyrgð
á morðunum á hendur sér en árás-
imar voru gerðar samtímis á
nokkrum stöðum í borginni er
múslimar höfðu tekið sér hvíld að
lokinni fóstu. Flest fómarlambanna
voru af ættflokki mohíra, er flúðu
frá Indlandi til Pakistan er nýlend-
um Breta á Indlandsskaga var skipt
árið 1947. Undanfarin tvö ár hafa
um 550 manns fallið í óeirðum í
Hyderabad og öðrum borgum í
héraðinu Sind.
Kúbverjar kvarta yfir
mannréttindabrotum