Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988 MANNASKIPTIN í KREML Gromyko og Dobr- ynin ýtt til hliðar Moskvu. Reuter. ANDREI Gromyko, forseti Sovétríkjanna, og Anatolíj Dobrynín, fyrrum sendiherra í Washington, sem nú hafa vikið úr stjórnmála- ráði sovéska kommúnistaflokksins, eru þeir tveir menn, sem í ára- tugi hafa verið persónugervingar sovéskrar utanríkisstefnu. Þeir eru ólíkir menn um margt en báðir hafa þeir hingað til kunnað að sigia á milii skers og báru í átökunum innan flokksins og sérstak- lega Gromyko. Hann hefur þjónað undir alla sovéska leiðtoga nema Lenin, allt frá Stalín til Gorbatsjovs. Gromyko var utanríkisráðherra í 28 ár, lengur en nokkur annar maður á vorum dögum, og hann fékk orð fyrir að vera siyngur samn- ingamaður, sem vék þó aldrei frá flokkslínunni eins og hún var á hveijum tíma. Vestrænum stjómar- erindrekum fannst hann erfiður andstæðingur og kölluðu þeir hann stundum „Hr. Nei“ í sinn hóp eftir að hann hafði haft neikvæða af- stöðu í 25 atkvæðagreiðslum i ör- yggisráiði Sameinuðu þjóðanna. í þann langa tíma, sem Gromyko lét til sín taka á vettvangi heimsmál- anna, var hann ráðgjafi allra sov- éskra leiðtoga nema Leníns og átti viðræður við alla Bandaríkjaforseta frá því Stalín gerði hann að sendi- herra í Washington í forsetatíð Franklins D. Roosevelts. Gromyko þótti oft heldur dranga- legur í framkomu en hann gat þó verið skemmtilegur og meinhæðinn ef hann vildi það við hafa. Utanrík- isráðherra, sem var gestur hans, spurði hann einu sinni um nýaf- staðnar breytingar á stjómmálaráð- inu og þá yppti hann öxlum og svaraði: „Þú veist nú hvemig það gengur til hér — svona eins og í Bermúdaþríhymingnum. Stundum bara hverfur einhver okkar." Gromyko fæddist árið 1909 í þorpinu Gromyki skammt frá Minsk og hann var 22 ára gamall þegar hann gekk í kommúnistaflokkinn. Hann er menntaður í hagfræði og stjómmálafræði og var aðeins þrítugur þegar utanríkisráðherra Stalíns, Vyastjeslav Molotov, setti hann yfir Bandaríkjadeild utanríkis- ráðuneytisins. Árið 1957 rak Khrústsjov Molotov fiá og skipaði Gromyko í hans stað. Þótt Khrústsjov væri steypt af stóli hafði það engin áhrif á stöðu Gromykos, sem var árið 1973 gerður að full- gildum félaga í stjómmálaráðinu. Hann átti síðan þátt í að koma Júríj Andropov til valda og síðan Konstantín Tsjemenko og það var hann, sem lagði til, að Míkhafl Gorbatsjov yrði leiðtogi Sovétríkj- anna. Orðheppinn en ekki allur á yfirborðinu Níkíta Khrústsjov skipaði Ana- tolíj Dobrynín sendiherra í Was- hington skömmu fyrir Kúbudeiluna árið 1962 og því embætti gegndi hann í rum 20 ár. Enginn sovéskur sendiherra í Bandaríkjunum hefur öðlast jafn mikla þekkingu á banda- rískum málefiium og Gorbatsjov valdi hann sem sinn nánasta ráð- gjafa á Genfarfundinum með Ron- Reuter Andrej Gromyko. Opinberlega heitir það, að hann hafi beðið um lausn frá störfum í miðstjóm- inni og stjómmálaráðinu vegna aldurs. ald Reagan Bandaríkjaforseta 1985 og hann sat Reykjavíkurfundinn 1986 og var þá í hópi helstu ráð- gjafa Gorbatsjovs og yfirmaður al- þjóðadeildar miðstjómar flokksins. Dobrynín þykir orðheppinn og skemmtilegur og meðan á Was- hingtondvölinni stóð komst hann í náið vinfengi við ýmsa kunna menn í Bandaríkjunum. Sumir höfðu þó orð á, að undir innileikanum á yfír- borðinu byggi annar maður og er oft til þess vitnað, að aðeins viku áður en bandarísk herskip stöðvuðu sovésk skip með eldflaugar á leið til Kúbu, hafði hann fullvissað John F. Kennedy Bandaríkjaforseta um, að Sovétmenn myndu aldrei koma þar fyrir kjamorkuflaugum. í ágúst árið 1968 skýrði hann Bandaríkja- Dobrynín var löngum hrókur alls fagnaðar meðan hann var sendi- herra í Washington og hafði mikla þekkingu á bandariskum málefnum. stjóm svo frá, að Sovétstjómin hefði fallist á leiðtogafund ríkjanna en daginn eftir réðust hersveitir Varsjárbandalagsins inn í Tékkósló- vakíu. Dobrynín er fæddur árið 1919 skammt frá Moskvu, sonur pípu- lagningarmanns, einn af 13 systk- inum. Hann er verkfræðingur að mennt og var valinn til starfa fyrir sovésku utanríkisþjónustuna á dög- um síðari heimsstyijaldar. Auk þessara tveggja manna, Gromykos og Dobryníns, hafa þrír aðrir verið látnir vfkja úr stjóm- málaráðinu. Það era þeir Vladímlr Dolgíkh, Ijotr Demísjov og Míkhafl Solomentsev. Komust þeir allir til áhrifa á valdatíma Leoníds Brez- hnev og vora honum handgengnir. Vadím Medvedev: Nær óþekkt- ur kominn efst í valda- stigann Daily Telegraph. SKYNDILEGUR frami Vadíms Medvedevs inn í stjóramálaráð sovéska knmnuiniirtaflnkltaina var eitt af því óvænta sem gerðist á miðstjórnarfundi flokksins í gær. Medvedev, sem er 59 ára gamall, fékk ekki sæti i miðstjórninni fyrr en árið 1986. Nú er hann orðinn aðalhugmyndafræðingur flokksins, með áróður, menning- armál, kennslumál og íþróttir á sinni könnu og telst til fimm valdamestu manna Sovétríkjanna. Eins og um svo marga aðra sov- éska stjómmálamenn er lítið vitað um einkahagi Medvedevs. Framan af starfsævi sinni kenndi hann við háskólann í Leníngrad. Hann er grannur, fingerður, gráhærður og prófessorslegur með þykk og áber- andi gleraugu. Hann er sérfræðingur bæði f kenningum sósíalismans og nútímavisindum. Á áranum 1970-78 vann Medvedev að útbreiðslumálum fyrir miðstjómina. Síðan tók hann við þjóðfélagsfræðistofnun miðstjómar- innar áður en hann gerðist ráðuneyt- isstjóri í vísinda- og menntamála- ráðuneyti Sovétríkjanna. Undanfarin tvö ár hefur Medvedev séð um tengsl flokksins við systurflokkana í öðram kommún- istaríkjum. Hann hefur því sést við hlið Gorbatsjovs í opinberam heim- sóknum til nágrannaríkjanna. Það var Medvedev sem greindi erlendum fréttamönnum frá niður- stöðum miðstjómarfundarins í gær. Eins og sovéskra embættismanna er háttur gætti hann þess að opin- bera ekki orði meira en naktar stað- reyndimar, en það var svo sem feiki- nóg. Vadím Medvedev hefur fengið skjótan frama innan sovéska flokkskerfisins og telst nú til hinna fimm valdamestu með hug- myndafræðina á sinni könnu. Yfirmaður KGB og Jegor Lígatsjov lækkaðir í tign Moskvu. Reuter. Breytingarnar sem gerðar voru á skyndifundi miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins í gær fela meðal annars í sér að tveir af æðstu valdamönnum flokksins voru iækkaðir í tign. Jegor Lígatsjov, sem var æðsti hugmyndafræðingur flokksins og gekk næstur Gorbatsjov fer nú með landbúnaðar- mál og talið er Víktor Tsjebríkov yfirmaður KGB verði sett- ur úr því embætti á fúndi Æðsta ráðs Sovétríkjanna i dag en hann var í gær skipaður formaður laganefndar stjórn- málaráðs flokksins. Jegor Lígatsjov, sem var vikið til hliðar sem hugmyndafræðingur kommúnistaflokksins, fer með landbúnaðarmál eftir þessar rót- tæku breytingar Gorbatsjovs Sov- étleiðtoga. Hann á þó áfram sæti í stjómmálaráði og miðstjóm kommúnistaflokksins. Hann var Nýskipan forystunnar Moskvu. Reuter. HÉR fer á eftir listi yfir þá, sem nú skipa stjórnmálaráðið og og eru ritarar miðstjóraar sovéska kommúnistaflokksins eftir uppstokkunina í gær. (Nöfii nýrra féiaga eru skále- truð): STJÓRNMÁLARÁÐIÐ - full- gildir félagar Mikhafl Gorbatsjov, 57 ára, aðal- ritari. Vadím Medvedev, 59 ára, hug- myndafræðingur. Víktor Tsjebríkov, 62 ára, form- aður laganefndar. Jegor Lígatsjov, 67 ára, formaður landbúnaðamefndar. Víktor Níkonov, 59 ára, ótilgreint embætti. Níkolaj Ryzhkov, 59 ára, forsætis- ráðherra. Vladímír Tsjerbitskíj, 70 ára, flokksformaður í Úkraínu. Edúard Shevardnadze, 59 ára, utanríkisráðherra. Níkolaj Slyúnkov, 59 ára, formað- ur félags- og efnahagsnefndar. Vítalíj Vorotníkov, 62 ára, forsæt- isráðherra í rússneska ríkjasam- bandinu. Alexander Jakovlev, 64 ára, for- maður alþjóðanefndar. Lev Zajkov, 65 ára, flokksformað- ur í Moskvu. STJÓRNMÁLARÁÐIÐ lagar án atkvæðisréttar fé- Alexandra Bírjúkova, 59 ára, fé- lags-, kvenna- og atvinnumál. Anatolíj Lúkjanov, 57 ára, stjóm- sýslumál. Júríj Masljúkov, 51 árs, formaður áætlanaráðs. Georgíj Razúmovskfj, 52 ára, for- maður starfsmannaráðs flokksins. Júíj Solovev, 63 ára, flokksform- aður í Leníngrad. Nikolaj Talyzín, 59 ára, félagsleg þróunarmál. Alexander Vlasov, 56 ára, inn- anríkisráðherra. Dmítríj Jazov, 64 ára, vamar- málaráðherra. RITARAR MIÐSTJÓRNAR Míkhafl Gorbatsjov Oleg Baklanov, 56 ára, vamar- málaiðnaður Vfktor Tsjebríkov Jegor Lígatsjov Vadím Medvedev Víktor Níkonov Georgfj Razúmovskíj Níkolaj Slyúnkov Alexander Jakovlev Lev Zajkov Reuter Jegor Lígatsjov, áður æðsti hug- myndafræðmgur sovéska komm- únistaflokksins, var lækkaður í tign á skyndifimdi miðstjórnar- flokksins í gær og fer hann nú með landbúnaðarmál. næst æðsti valdamaðurinn í Kreml og tók varfæmari afstöðu til pólit- fskra umbóta í Sovétrílgunum en Gorbatsjov og bauð Sovétleið- toganum byrginn nýlega vegna steftiu hans varðandi tengsl Sovét- manna við Vesturlönd. Á flokksráðsteftiunni í sumar, þar sem Qallað var um pólitískar breytingar lagði Lígatsjov áherslu á að hann hefði gegnt lykilhlut- verki f því að koma Gorbatsjov til valda árið 1985. Hann varaði hins vegar við því eftir ráðstefnuna að umbótastefnan gæti gengið of

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.