Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
13
Hveragerði heilsulind
frá náttúrunnar hendi
- segir Wolfgang Zscheler, þýskur læknir,
sem kynnt hefiir sér aðstöðuna á Hótel Ork
ÞESS ER ef til vill ekki langt að bíða að Hótel Örk í Hvera-
gerði verði vinsæll áfangastaður þýskra ferðamanna sem
leita sér afslöppunar og endurnæringar við bestu aðstæður.
„Það sem skilur Hveragerði frá heilsulindum í Mið-Evrópu
er að hér er öll aðstaða frá náttúrunnar hendi. í Þyskalandi
verða menn t.d. með ærnum tilkostnaði að framkalla heitt
vatn og hreint drykkjarvatn og flytja inn leirinn," sagði
Wolfgang Zscheler, þýskur læknir, í samtali við Morgun-
blaðið.
Zscheler er staddur hérlendis
ásamt starfsbræðrum sínum frá
Hamborg í Vestur-Þýskalandi til
að kynna sér Hótei Örk og Hvera-
gerði sem heilsudvalarstað.
Zscheler kvaðst ánægður með
aðbúnað á hótelinu, staðsetningin
væri góð, herbergi rúmgóð,
íslenska loftið hreint, fæðið heil-
næmt og gróðurhús með fersku
grænmeti innan seilingar. Hótelið
væri vel varið fyrir veðri og vind-
um og stutt til Reykjavíkur í stór-
borgarglauminn. í nágrenninu
væru skemmtilegar gönguleiðir
og hægt að bregða sér á hestbak
í sveitinni.
Hvað aðstöðu tii lækninga
varðaði væri hún til fyrirmyndar.
Heit böð og leirböð ættu vel við
í meðhöndlun gigtarsjúklinga,
efnasamsetning hveravatnsins
væri slík að hún hjálpaði fólki
með ýmsa húðsjúkdóma. Bláa
Lónið með sínum undraverða
lækningamætti væri ekki nema í
klukkustundar fjarlægð frá Hótel
Örk. Almennt séð væri Hvera-
gerði og Hótel Örk einstakur stað-
ur fyrir ferðamenn til að slappa
af, ná sér eftir veikindi, sækja
nýjan þrótt eða vinna sér bót á
meinum.
„Mér vitanlega á Hveragerði
ekki sinn líka á Norðurlöndum,"
sagði Zscheler. „Þýskir ferða-
menn hafa einkum sótt til Ung-
veijalands, Ítalíu og Dauðahafsins
í heilsuleyfi. Loftslagið er hins
vegar hentugra héma á íslandi
og kom mér á óvart hversu milt
það er. ísland er líka spennandi
land fyrir Þjóðveija og verður það
svo lengi sem þið spillið ekki hinni
ómenguðu náttúru ykkar," bætti
hann við.
Að sögn Sverris Schopka, efna-
verkfræðings og markaðsráðgjafa
í Vestur-Þýskalandi með aðsetur
í Hamborg, standa vonir til þess
að sú kynning sem unnið hefur
verið að í sumar í Þýskaiandi á
Hótel Örk sem heiisudvalarstað
skili árangri strax í vetur. Hótel
Örk, Flugleiðir og Amarflug hafa
boðið hingað til lands þremur
hópum lækna frá Hamborg og
Frankfurt. í fyrstu ferðinni vom
einnig blaðamenn sem skrifa um
ferðamál og heilsuvemd.
Ástæðan fyrir því að riðið er á
vaðið í Þýskalandi með kynningu
á Hótel Örk er sú að þar er rík
Wolfgang Zscheler og Sverrir Schopka. Morgunblaðið/Bjami
hefð fyrir heilsuleyfísferðum, að
sögn Sverris. Áætlað hefur verið
að árið 1990 muni 9 milljón V-
Þjóðveijar fara í slík afslöppun-
arfrí og er þvi um stóran markað
að ræða. Stærsta ferðaskrifstofa
V-Þýskalands á sviði heilsuferða
er Fit-Reisen. Boðið verður upp á
íslandsferðir í kynningarbæklingi
hennar sem kemur út í nóvember.
Má því búast við fyrstu þýsku
gestunum á Hótel Örk uppúr ára-
mótum.
Einnig er í undirbúningi kynn-
ingarátak í ferðaklúbbi þýskra
lækna í vetur. Haldnir verða fyrir-
lestrar víðs vegar um V-Þýska-
land í þvi skyni að kynna Island
og þá sérstaklega Hveragerði sem
heilsudvalarstað.
ÓREIÐAN
VEX-OGÞÓ
Raunvísinida
Egill Egilsson
Belgíski efnafræðingurinn og
Nóbelsverðlaunahafínn Ilya Pri-
gogine hefur rannsakað mjög
hvemig reiða kemst á í efni sem
orka streymir um. Ef litið er á
það samsafn efnis sem lá í mold
og gufuhvolfí árið 1968, en hefur
nú raðað sér saman og myndað
nær tvítuga mannveru, má segja
að út frá lögmálum eðlisfræðinn-
ar séu líkindi þessa atburðar alls-
engin. Oft hefur því verið spurt:
Eiga önnur og sérstök lögmál
við um lifandi efni en um dautt?
Er til lífsandi? Rannsóknir Pri-
gogine o.fl. reyna að gera þenn-
an mismun „dauðs“ efnis og „lif-
andi“ að engu. Eins og er lítur
út fyrir að efni sem víxlverkar
við umhverfí sitt og fær frá því
orku, geti þróast í átt til æ meiri
margbreytileika (reiðu), öfugt
við einangrað efni, þar sem allt
slíkt brotnar niður með tímanum.
Nýlega er komin út bók eftir
hann og þekkingarfræðinginn
Isabelle Stengers. Titilinn mætti
þýða: „Hið nýja bandalag
mannsins og vísindamanna", og
hann vísar til þess að gjáin milli
hins dauða (vísinda eftiisins) og
hins lifandi (mannsins) sé að
minnka. Sem stendur lítur út
fyrir að rannsóknir, sem halda
áfram á þeim grunni sem Prigog-
ine hefur lagt, geti leitt til al-
hæfðrar kenningar sem með-
höndlar bæði það sem við köllum
lifandi efni og dautt. Og að lífið,
sem hefur oft verið álitið verða
til fyrir einhveija ótrúlega tilvilj-
un, verði samkvæmt þessum
kenningum til fyrir nauðsjm.
Fyrirsögnin er ekki upphrópun
í anda heimsósómakveðskapar,
né heldur er verið að býsnast
yfir stjómmálaástandi síðustu
viku. Heldur lýsir hún einhverri
frægustu grunnreglu eðlis- og
efnafræðinnar, og snertir hvorki
meira né minna en tilurð og við-
gang lífsins.
Óreiðan vex
Einkenni allra efnislegra
dauðra hluta af venjulegri stærð
er það, að með tímanum minnkar
í þeim öll kerfísbundin niðurröð-
un, hvers eðlis sem hún kann
að vera. Mjólkin blandast við
kaffíð f bollanum, þótt skil séu
á milli í upphafí. Líkið rotnar í
kistunni. Hundrað kúlur í kassa,
sem raðað er í upphafí í ákveðna
röð, ruglast og ná ekki þeirri röð
að nýju. Þessi regla á við um
öll samsöfn efna sem eru ein-
angruð frá umhverfí sinu. Reiða
eða óreiða er stærð sem er auð-
velt að skilgreina stærðfræðilega
út frá líkindareikningi. Nánar til
tekið vex hún sífellt, og stendur
ekki í stað nema hluturinn hafí
náð varmajafnvægi.
Mótsögn — eða hvað?
Líf í hverri mynd sem það birt-
ist virðist í fljótu bragði vera í
mótsögn við þessa meginreglu.
í stað þess að regluleg niðurskip-
an efnis eyðist, byggist hún upp
og viðhelst, uns lífínu lýkur.
Mótsögnin hverfur þó fljótt við
að skoða kaflann á undan. IJf
er ekki einangrað frá umhverfí
sínu, heldur tekur það orku frá
umhverfinu við fæðuöflun og
öndun.
Góðan daginn!
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar
skorar á safnaðarfólk að greiða atkvæði
í allsherjaratkvæðagreiðslunni
1. og 2. október nk. í Álftamýrarskóla
og krossa við JÁ. Bílasími 27270.
samaRa
Lada Samara, þessi sparneytni og rúmgóði framdrifsbíll, er
nú kominn í nýrri útfærslu, þ.e. 5 dyra.
Komið, skoðið og reynsluakið Lada Samara 5 dyra,
fjölskyldubíl á undraverði.
Uppítökur á vel með fömum Lada bílum.
Opnunartímar á laugardag:
Söludeild nýrra bíla frá kl. 13-16.
Söludeild notaðra bíla frá kl. 13-16.
Varahlutaverslun frá kl. 10-12.
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF II
Ármúla 13 - 108 Reykjavfk - ær 681200