Morgunblaðið - 01.10.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
fclk í
fréttum
MICHAEL JACKSON
Þarf að fara í andlitslyftingu
Michael Jackson þarf nú á
næstu vikum að gangast
undir uppskurð á andliti. Sannfrétt
er að hann hafí áður farið nokkrum
sinnum, til þess að breyta nefí,
kinnbeinum og höku, en nú halda
þær breytingar sér ekki lengur og
er andlit hans allt úr skorðum geng-
ið. Nef hans er ekki lengur fullkom-
ið, segja myndir, heldur bara
skringilegt.
„Þetta er mjög algengt" segir
fegrunarskurðlæknirinn Dr. Dieter
Schiwietz, sem er mikils virtur lýta-
læknir. „Engin gervifegrun heldur
sér endalaust. Það hefur svo mikið
verið lagt á andlit Michaels og kem-
ur hann til með að þurfa fegrunar-
meðhöndlun á hveiju ári allt sitt
líf. Geri hann það ekki mun hann
líta út eins og gamall karl eftir tvö
ár.“
Stórstjaman Michael hefur þegar
eytt um 7 milljónum ísl. króna í
þessar fegrunaraðgerðir og þarf
greinilega að eyða enn dágóðri upp-
Upp á síðkastið hefur Michael
Jackson mætt á hljómleika með
trefil um andlitið.
hæð ár hvert í endurbætur, enda
hefur hann engan áhuga á að eld-
Á sviðinu er hann sminkaður, en
engu að síður má hann muna fifil
sinn fegurri.
ast um aldur fram. Þetta kallar
maður nú að lenda f vítahring.
Nemendur Grunnskólans í Broddanesi. í neðstu röð frá vinstri eru
Sólveig, Stefanía, Alfa Rut, Birkir Þór og Erling. í næstu röð eru
Sunna, Ardís, Sigríður, Ingunn, Arnar, Ingimar, Steinar, Fannar,
Júlíus og Haildór. Efst eru þeir Einar Hlér, Magnús og Jón.
í byrjun
skólaárs
Grannskóli Broddaness, Fells-
hreppi í Strandasýslu, var
settur þann 8. september sl. Þá
komu í skólann 18 böm, sem eru
í tveimur bekkjadeildum. Við skól-
ann kenna tveir. kennarar, Óla Frið-
mey Kjartansdóttir á Þórastöðum
og Guðfinna Magnúsdóttir í Árdal,
sem er stundakennari í smíðum.
Að auki kennir skólastjórinn, Anna
S. Bjömsdóttir, sem smellti þessari
mynd af nemendunum, þar sem
þeir sitja í klettum við skólann.
BRETLAND
Díana eyðir 280.000
íslenskum krónum
vikulega í föt
Aþeim sjö áram sem Díana hef-
ur verið gift Karli prins hefur
hún komið sér upp klæðahirslum
að verðmæti 100 milljónir fsl. króna.
Díana Spencer sem eitt sinn vann
á bamaheimili og gekk f einföidum
fötum, er nú án vafa sú best klædda
í bresku konungsfjölskyldunni.
Sagt er að hún umtumist þegar
hún kemur inn í fataverslanir, verði
bókstaflega allt fallegt að eignast.
Hún á rúmlega 3000 klæðnaði, 600
pör af skóm, 400 hatta, og veski,
belti og slæður í hundraðatali. Um
þessar mundir eyðir hún sem nemur
280.000 ísl. krónum í ný föt viku-
lega, mestmegnis föt í bláum lit,
sem er hennar uppáhaldslitur. Þó
að hún fái í flestum tilfellum 50%
afslátt af fötum borgar hún um
30.000 ísi. krónur fyrir dragt eða
hversdagsföt, og 175.000 kr. fyrir
samkvæmiskjól. Kunnugir segja að
bara samkvæmiskjólamir séu um
25 milljóna virði.
Vinkona hennar ónefnd segir að
ef Díana fínni skó sem henni líkar
kaupi hún þá í öllum litum sem til
era í versluninni. Klæðnaður hennar
er allur úr silki, bómull eða hreinni
ull, hún þoli ekki gerviefni. Silki-
nærföt hennar kosta frá kr. 7000-
10.000 per/pjötlu. Hver einasta flík
er geymd í tveimur fataherbergjum
í Kensington höll, og er skrá yfír
flíkumar tölvustýrð. Hver flík hefur
númer og era litir og ástand hverr-
ar flíkur skráð, hvenær flíkin var
síðust notuð og við hvaða tækifæri.
Tvær þemur sjá um fatnað
Díönu, og athuga þær ástand klæð-
anna eftir hveija notkun, tölur,
saumar, vasar, blettir, allt er grand-
skoðað áður en það er hengt inn í
skápa á ný. Hver flík er pressuð
eftir eina notkun og send í hreinsun
eftir að prinsessan hefur borið hana
í tvö skipti. Er haft eftir vinkonu
Díönu að fatakaup séu orðin ólækn-
andi ástríða hjá prinsessunni, sem
sjálf klípi sig stundum í handlegg-
inn tii þess að fullvissa sig um að
klæðahirslumar séu ekki bara
draumur!
^ Já, nú getur þú gert
►4 hagstæð haustinnkaup!
í ár bjóðum við upp á tvær gerðir af
KJARABÓTAR-pökkum:
A-gerðina sem inniheldur, file
roastbeef, gullas, snitsel í raspi,
hakk og hamborgara. Þyngd og
hlutföll samsvara því að keyptur sé
ca 1/7 hluti af skrokk. Þessi pakki
kostar aðeins 9.500,00
B-gerðin inniheldur blöndu af
DÚDDA-vörunum okkar, sem
flestir þekkja úr frystiborðum
versiana, þennan pakka bjóðum
við á aðeins 5.500,00 kr.
/^Kemur í verslanir*
t um allt land }
Ss, í vikunni ^
Það er gott að geta sparað
602 Akureyri P.O.Box 224
Sími 96-22080