Morgunblaðið - 20.10.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Sveinn Bergsveinsson
prófessor erlátinn
„Húðir
Svigna-
skarðsu
Ný bók effcir Indriða
6. Þorsteinsson
BÓKAÚTGÁFAN Reykholt hf.
hefur gefið út bókina „Húðir
Svignaskarðs" eftir Indriða G.
Þorsteinsson. Hér er um að ræða
íslenskt leikrit. Það fjallar um
Snorra Sturluson, ritstörf hans
og veraldarvafstur, andstæðum-
ar milli þess að skrifa og verða
að taka þátt I stjómmálum dags-
ins. Það Qallar um baráttu um
vðld og fyrir sjálfstæði landsins
gagnvart erlendum yfirráðum.
Inn í þennan söguþráð er fléttað
frægum atriðum úr Heimskringlu,
sögu'm Noregskonunga.
Leikritið kemur út í tilefni þess
að 750 ár eru liðin frá Örlygsstaða-
bardaga, en þá réðust örlög þessarar
þjóðar, miklu frekar en í nokkrum
öðrum atburði.
Með þessu verki tekst Indriði G.
Þorsteinsson á við nýtt form og tekst
ekki síður upp en þegar hann beitir
Indriði G. Þorsteinsson.
öðrum aðferðum.
Bókin er myndskreytt af Einari
Hákonarsyni, myndlistarmanni.
Bókaútgáfan Reykholt hf. færði
Ólafi V. Noregskonungi sérinn-
bundið eintak bókarinnar að gjöf
þegar hann var hér fyrir skömmu í
opinberri heimsókn.
Indriði G. Þorsteinsson er fæddur
18. apríl 1926 á Gilhaga í Lýtings-
staðahreppi í Skagafirði. Hann hefur
skrifað skáldsögur, smásögur, ljóða-
bók, skráð ævisögur nokkurra
þekktra íslendinga — og nú samið
leikrit. Tvær af sögum hans hafa
verið kvikmyndaðar og margar sög-
ur þýddar á erlend tungumál.
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
Verðbætur á frystan físk:
Fyrirtækin vísuðu áþetta fé
- segir Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans
„Þ ARNA fa fyrirtækin verðuppbætur fyrir afiirðir sínar og standa
þá skil á vanskilum sinum við bankann. Þetta er ekkert óeðlilegt
og að sjálfsögðu rennur þetta til að borga vanskil sem þau þját
undir og eru þeim óskaplega dýr,“ segir Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, aðspurður um hvort eðlilegt væri að
stærstur hluti 300 milljón króna verðbóta á frystan fisk yrði tek-
inn upp í ofgreidd afurðaián í viðskiptabönkunum.
„Þegar sagt er að peningamir
verði eftir í bönkunum hljómar það
eins og bankamir hafi tekið þá
ófijálsri hendi. Fyrirtæki sem feng-
ið hafa fyrirgreiðslu umfram hefð-
bundin afurðalán hafa hins vegar
sjálf ávísað á þá fjármuni sem þau
eiga von á. Þetta er ekkert sem
bankamir beita valdi til að ná, held-
ur er þetta bara eðlileg skil sem
fyrirtækin reyna að standa til að
fá greiðsiu í sinn hlut.
Landsbankinn er búinn fyrir
nokkm að stöðva alla sjálfvirkni
umfram afurðalán og hefur hert
allt aðhald að fyrirtækjum. Þau
hafa samt á undanfömum misser-
um fengið meira en þeim bar og á
þau hefur hallað að því leyti að það
hefur orðið verðlækkun á afurðun-
um og afurðalánin farið fram úr
þeim 75% sem gert er ráð fyrir.
Ég hef sagt það áður að það er
alveg hömiulaust að bankar standi
undir langvarandi hallarekstri á
aðalatvinnuvegi okkar. Landsbank-
inn hefur nú tekið fyrir að lána
umfram afurðalánin. Það er stórfé
sem Landsbankinn á útistandandi
umfram afurðalán og verðbætur á
frystan fisk em eins og dropi í það
haf,“ sagði Sverrir Hermannsson.
í skolti
Levíatans
Ljóðaþýðingar Jó-
hanns Hjálmarssonar
HJÁ Örlaginu i Reykjavík er ný-
lega komin út bókin „í skolti Le-
víatans". Er hér um að ræða þýð-
ingar á Ijóðum margra virtustu
skálda Evrópu, Suður-Ameríku
og Tyrklands. Þýðandi Ijóðanna
er Jóhann Hjálmarsson og er í
skolti Leviatans fiórða þýðinga-
bók hans. Fengur er í þessari
nýju bók Jóhanns þvi tólf ár eru
nú frá þvi síðustu þýðingar hans
komu út í bókinni Þrep á sjón-
deildarhring.
Jóhann hefur á þeim 28 ámm sem
liðin em frá útkomu fyrstu þýðinga'
hans, verið ötull við að kynna Islend-
ingum ljóðagerð flölda skálda sem
markað hafa spor sín I sögu heims-
bókmenntanna. Má þar nefna César
Vallejo, Federico Garcla Lorca, Sal-
vatore Quasimodo, Gunnar Ekelöf
og Gottftíed Benn.
Levíatinn sem fyrir kemur í nafni
bókarinnar er skaðræðisskepna
nokkur úr Biblíunni og sver sig mjög
f ætt Miðgarðsorms sem betur er
þekktur hér á norðurslóðum. Titillinn
er sóttur í eitt af ljóðum pólska
Jóhann Hjálmarsson
skáldsins Czeslaws Milosz. Athygli-
verður er hlutur tyrkneskra skálda
í bókinni en Jóhann Hjálmarsson er
að líkindum sá íslendingur sem
mest hefur látið sig varða ljóðlist
Tyrkja.
í skolti Levfatans er 111 sfður að
stærð, prentuð og bundin í Prent-
stofu G. Benediktssonar. Kápumynd
er eftir flæmska málarann Hierony-
mus Bosch, ljósnmid á bakhlið tók
Páll Stefánsson. Utgáfa bókarinnar
er styrkt af Norræna þýðingarsjóðn-
um og Þýðingarsjóði Islands. Örlag-
ið hefur áður gefið út bækumar
Dagbók Lasarusar og Frostmark,
báðar eftir Kjartan Árnason.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 20. OKTÓBER
YFIRUT f GÆR: Um 450 km vestur af frlandi er 985 mb víðáttumik-
il lægð, sem þokast vestnorövestur og grynníst, en 1.025 mb
hæðarhryggur yfir Austur-Grænlandi. Hlýtt verður ófram um alit
land.
8PÁ: Austanátt, talsverður strekkingur við suðurströndina, en
hægari annars staöar. Dálítil rigning á stöku staö, einkum viö suð-
austur- og austurströndina. Hlýtt áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Austanótt, Ifklega all-
hvöss við suðurströndina, en mun hægari annars staðar. Víða rign-
ing á Suður- og Austurlandi, en úrkomulaust að mestu f öðrum
landshlutum. Hiti 8—9 stig.
TÁKN: s, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
* stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
'( \ Heiðskirt vindstyrk, heil fjöður
í' /a * er 2 vindstig. v Él
'Csjhi Lét,sk^a® / / / / / / / Rigning Þoka
/ / / * / * i Þokumóða Súfd
Skýjað / * / * Slydda / * / oo 4 Mistur Skafrenningur
j ^ Alskýjað * * * * Snjókoma # #' « K Þrumuveður
V i %
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hhl ve&ur
Akureyri 7 skýjað
Reykjavfk 11 úrkoma
Bergen 1B helðskfrt
Helslnkl 2 jiokumóða
Kaupmannah. 10 Mttskýjað
Naraaaraaueq 0.8 léttakýjað
Nuuk 6 rigning
Oaló 8 alskýjað
Stokkhóimur ð þokumóða
Þórshðfn 10 alskýjað
Algarve 20 skýjeð
Amaterdam 12 rigning
Barcelona 21 mlatur
Chlcago 6 skýjað
Feneyjar 18 rignlng
Frankfurt 16 mistur
Glasgow 14 mistur
Hamborg 0 mlatur
Las Palmas 25 láttskýjað
London 18 skýjað
Loa Artgeies 18 alakýjað
Lúxemborg 14 rigning
Madrid 14 skýjað
Maiaga 22 Mttskýjað
Mallorca 23 hálfskýjað
Montreal 0.8 skýjsð
NewYork 11 skýjað
Paris 20 akýjað
Róm 20 rigning
San Diego 18 skruggur
Winnlpeg +2 léttakýjað
SVEINN Bergsveinsson, prófess-
or, andaðist í Austur-Berlín þann
17. október sfðastliðinn, tæplega
81 árs að aldri. Hann var fæddur
23. október 1907 að Aratungu í f
Hrófbergshreppi í Strandasýslu.
Foreldrar Sveins voru B^rg-
sveinn Sveinsson, bóndi í Aratungu
í Steingrímsfírði og síðar farkenn-
ari og eiginkona hans Sigrfður Guð-
rún Friðriksdóttir. Sveinn lauk
Cand. mag. prófí I íslenzkum fræð-
um frá Háskóla íslands haustið
1936 og fór sem skiptinemi til náms
í hljóðfræði við Berlínarháskóla.
Síðan lagði hann stund á málfræði
við háskólann f Kaupmannahöfn og
lauk doktorsprófí þaðan með ritgerð
sinni um íslenzka setningahljóð-
fræði árið 1941. Framhaldsnám
stundaði hann og rannsóknir í hljóð-
fræði við Deutsches Spracharchiv í
Braunschweig í Þýzkalandi 1940
til 1941 og Berlínarháskóla 1941
til 1944. Til íslands kom hann árið
1945 sjúkur af berklum.
Sveinn kenndi þýzku við Mennta-
skólann í Reykjavík 1946 til 1948,
fslenzku við Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar 1948 til 1951 og starfaði
jafnframt við Orðabók Háskóla ís-
lands. Hann var gistiprófessor í
norrænum málum og bókmenntum
við Humboldt-háskólann í Austur-
Berlín 1963 til 1963 og var skipað-
ur fástur prófessor við sama há-
skóla fyrsta maí 1963 og gegndi
þvf 8tarfi til ársins 1977, er hann
hætti störfum vegna aldurs. Sveinn
bjó f Austur-Berlín til dauðadags.
Meðal ritverka Sveins Berg-
Sveinn Bergsveinsson
sveinssonar má nefna doktorsrit-
gerð hans Grundfragen der
islandischen Satzphonetik 1941,
Nýyrði 1.1958, Islandisch-Deutsch-
es Wörterbuch 1967, Stuttljóð 1983
og Eylönd, smásagnasafn 1987.
Hann annaðist útgáfu Egils sögu
Skallagrímssonar 1960 og Ljóð-
mæla Stefáns frá Hvítadal.
Fyrri eiginkona Sveins var Anne
Marie östergaard, Cand. mag f
stærðfræði og sú síðari Thea Pet-
ersen. Þær voru báðar frá Kaup-
mannahöfn.