Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Oðagot í hvalamálinu Hvalamálið veldur enn einu sinni uppnámi í stjóm- málaumræðum hér á landi. Ástæðan er alkunn. Tengel- mann-fyrirtækið í Vestur- Þýskalandi, nýlegur viðskipta- vinur Sölustofnunar lagmetis, hefur hætt viðskiptunum í mótmælaskyni við hvalveið- amar. Jafnframt er ljóst, að í Bandaríkjunum eru stórir físk- kaupendur tregari til viðskipta við okkur en áður. Þegar fréttimar um afstöðu Tengelmanns bárust í lok síðustu viku voru þeir báðir erlendis Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, og Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra. Hefur hvala- málið einkum hvílt á herðum sjávarútvegsráðherra og eng- inn vafí hefur leikið á því að Halldór Ásgrímsson réði mestu um stefnumótun í því. Hlut- verk utanríkisráðherra hefur á hinn bóginn verið að ræða og kynna málið einkum gagnvart bandarískum stjómvöldum. Ámi Gunnarsson, þingmað- ur Alþýðuflokksins, brást þannig við fréttunum af ákvörðun Tengelmanns, að hann sagðist ætla að flytja til- lögu til þingsályktunar um endurskoðun á hvalastefnunni. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, tók og í þann streng í yfírlýsingum um síðustu helgi að framkvæmd hvalastefnunnar ætti að end- urskoða og sagði meðal annars í samtali við Morgunblaðið: „Hins vegar tel ég vel koma til greina að fella niður veiðar næsta ár, sérstaklega ef hægt er að halda öðrum þáttum hvalarannsókna úti . . .“ í samtali við ríkissjónvarpið á mánudagskvöld sagði forsæt- isráðherra þegar hann var spurður um frestun hvalveiða „um sinn á meðan öldumar lægir": „Já, ég tel það vel koma til greina, þetta mun verða rætt í ríkisstjóminni á fímmtudaginn og ég vil ekki neita því að svo kann að fara að við fellum niður hvalveiðar t.d. næsta sumar." Taldi hann ekki ólíklegt að frestunartil- laga kæmi fram í ríkisstjóm- inni. Varð þessi afstaða for- sætisráðherra meðal annars til þess að Ami Gunnarsson féll frá áformum um að Ieggja fram tillögu sína til þingsálykt- unar fram yfír ríkisstjómar- fundinn í dag. í gær sagði forsætisráðherra svo, að ákvarðana í hvalamálinu væri ekki að vænta í þessari viku. Hann myndi ekki leggja neinar tillögur fram í málinu í ríkis- stjóm í dag. Sinnaskipti forsætisráð- herra kunna að eiga rætur að rekja til viðbragða sjávarút- vegsráðherra og utanríkisráð- herra. í Morgunblaðinu í gær túlkar Jón Baldvin Hannibals- son afstöðu Steingríms Her* mannssonar í hvalamálinu þannig, að hann hafí boðað kúvendingu af hálfu íslensku ríkisstjómarinnar. Telur hann að forsætisráðherra hafí látið þetta koma í Ijós á „afar óheppilegum tíma“ og utanrík- isráðherra telur að í þessu máli eigi „yfírveguð niður- staða" að ráða en ekki „skyndiákvörðun undir þrýst- ingi“. Verða orð utanríkisráð- herra ekki skilin á annan veg en hann telji að forsætisráð- herra hafí staðið óvarlega að málatilbúnaði sínum. í samtali sem ríkissjónvarp- ið átti við Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, síðast- liðinn föstudag kom skýrt fram að hann var ekki þeirrar skoð- unar að ákvörðun Tengel- manns ætti að hafa áhrif á hvalastefnu stjómvalda: „Við höfum ekki verið tilbúnir til að fara eftir hótunum þessara aðila sem byggja sinn mál- flutning að mestu leyti á ósannindum." Og í samtali við ríkissjónvarpið á þriðjudags- kvöld sagði sjávarútvegsráð- herra um frestun hvalveiða: „Ja, það kann vel að vera að það séu þeir menn sem að telja eða meta það þannig að nú sé rétt að doka við en ég hef ekki ennþá fengið sannanir fyrir því að hér sé svo mikil hætta á ferðum að það beri að taka slíka ákvörðun, en þetta verður rætt næstu daga og við skulum bara sjá til hvað kemur út úr því.“ Þegar á allt þetta er litið vakna tvær spumingar: Hver er eiginlega afstaða ríkis- stjómarinnar í hvalamálinu? Hver ætlar að sætta sjónarmið formanns (forsætisráðherra) og varaformanns (sjávarút- vegsráðherra) Framsóknar- flokksins í hvalamálinu? Morgunblaðið/Bjarni Bandaríska rannsóknaskipið Knorr í Reykjavíkurhö&i. Hvalveiðisteftian: Engin ástæða til a< með æsing út af m - segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra „ÞAÐ er ákveðin stefiia sem hef- ur verið framfylgt í hvalveiði- málum og ég sé enga ástæðu tíl þess að breyta henni á þessari stundu. Það þarf að sjálfsögðu að ræða þetta mái og taka það til nánari athugunar. Það liggur fyrir að við munum vera í sam- bandi við Tengelmann á næst- unni og mér finnst nú ekki ástæða til að vera með neinn æsing út af málinu á þessari stundu," sagði Halldór Ásgrims- son, sjávarútvegsráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Hann var þá staddur í Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi á leið heim, en fyrr um daginn átti hann fiind með fulltrúa fyrir- tækisins þýzka fyrirtækisins Tengelmann í París. Stjómendur Tengelmann ákváðu í lok síðustu viku að kaupa ekki íslenzkt lagmeti vegna hvalveiða íslendinga. Halldór var spurður álits á þeim atburði: „Það liggur alveg fyrir að þetta gerist án 'þess að leitað sé upplýsinga um málið. Við skrifuðum þeim bréf fyrir síðustu helgi, þar sem við útskýrð- um málið og buðumst til þess að veita frekari upplýsingar. Þessi fundur í París var mjög vinsamleg- ur og málið verður tekið upp innan fyrirtækisins. Ég veit auðvitað ekki til hvaða niðurstöðu það mun leiða. Ég tel stöðuna í sjálfri sér ekk- ert verri en hún hefur verið. Það er alveg ljóst að friðunarsinnar hafa sótt að okkur í alllangan tíma og þeir hafa ekki hikað við að gefa rangar upplýsingar og byggt mál- flutning sinn að verulegu leyti á ósannindum. Það hefur almennt verið þannig að viðkomandi fyrir- tæki hafa leitað eftir upplýsingum, kynnt sé málið og komizt að þeirri niðurstöðu að ákvörðun um að hætta kaupum gætu þau ekki tek- ið. Það væri ekki hægt að blanda saman svona óskyldum málum í innkaupum stórra fyrirtækja. Ég get nefnt sem dæmi, að fyrir- tæki eins og Tengelmann og ýmis fleiri verzla mikið með túnfisk og það vita allir að í túnfiskveiðunum í heiminum er drepin óhemja af höfrungum 100.000 til 300.000 árlega að talið er. Þá hlýtur að vakna sú spuming hvemig fyrir- tæki, sem vill ekki verzla með vör- ur, sem tengjast á einhvem hátt ósæskilegum hlutum að mati ein- hverra, meti það hvar eigi að stoppa. Það eru fleiri en íslending- ar, sem stunda hvalveiðar í heimin- um. Það gera líka Bandaríkjamenn, Japanir, Norðmenn, Grænlendingar og Rússar. Getur fyrirtæki sem þetta og ýmis fleiri ákveðið að kaupa engar vömr af löndum, sem veiða hval? Þar fyrir utan eru eng- ar hvalveiðar stundaðar á íslandi nú. Við emm að vinna eftir rann- sóknaráætlun, sem hefur verið end- urskoðuð árlega. í fyrsta lagi höfum við byggt stefnu okkar á samþykkt Alþingis. Síðan hafa verið gerðar nokkrar breytingar vegna sam- þykkta Alþjóða hvalveiðiráðsins og vegna samninga við Bandaríkja- menn. Þessar breytingar fela meðal annars það í sér, að við höfum skuldbundið okkur til að framfylgja ráðleggingum vísindanefndar hval- veiðiráðsins. Það gerir það að verk- um að af sjálfu sér er ekki hægt að taka endanlega ákvörðun um veiðar fyrr en að lokunum fúndi vísindanefndarinnar og í reynd að loknum fundi ráðsins sjálfs, en þess- ir fundir verða haldnir í maí og júní.“ Knýr staðan í dag okkur til þess að fara út í áróðursstríð, til dæmis með auglýsingum í erlendum blöð- um og tímaritum? „Ég tel að_ hættan stafí ekki af almenningi. Ég tel hana fyrst og fremst stafa af fyrirtækjum, sem kaupa vörur af okkur. í tilviki Teng- elmanns hefur líklega brugðizt, hveijum sem það er um að kenna, að koma réttum upplýsingum á framfæri. Það þarf áreiðanlega að auka upplýsingamiðlun til þess að menn taki ákvarðanir á réttum for- sendum, en ekki á grundvelli ein- hverra sögusagna. Ég vænti þess að í þessu fyrirtæki séu það skyn- samir menn að þeir sjái að svona stórt fyrirtæki getur ekki stundað innkaup á grundvelli sem þessum, heldur hlýtur það fyrst og fremst að vera á viðskiptalegum grund- Vestur-þýzka fyrir Kaupir sjá^ gegn staðfe Paris. Frá blaðamanni Morgunblaðsins Marg NIÐURSTAÐA fimdar sjávarút- vergsráðherra með innkaupa- stjóra Tengehnann-fyrirtækisins í París í gærmorgun varð sú, að ríkisstjórnin verður að gefe. út yfirlýsingu um að íslendingar leggi niður hvalveiðar, að minnsta kosti fram að næsta árs- fimdi Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem haldinn verður árið 1990, ef þýzka fyrirtækið á að taka aftur upp viðskipti við Sölustofii- un lagmetis, að sögn Theórs Halldórssonar, framkvæmda- stjóra Sölustofiiunar. Sjávarút- vegsráðherra lofaði einnig að senda fulltrúa frá rikisstjórninni til fundar við yfirmenn Tengel- mann i Vestur-Þýzkalandi eins fljótt og hægt er, samkvæmt sömu upplýsingum. „A fundinum skýrði Halldór af- stöðu Sslenzkra stjómvalda til hval- Fundur Jóns Baldvins Hannibalssonar Ræddu hvalamá HÉR Á EFTIR fer fréttatilkynn- ing sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér um firnd þeirra Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, og George Shultz, utanrikisráðherra Bandaríkjanna. „Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, átti í morgun, mið- vikudaginn 19. október, fiind með George P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington. Á fundinum voru rædd tvíhliða samskipti þjóðanna og ýmis al- þjóðamál. Lagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra áherslu á góð og náin tengsl ís- lands og Bandaríkjanna. Rætt var ítarlega um hvalveiði- mál og vísindarannsóknir. ítrekaði utanríkisráðherra röksemdir íslend- inga fyrir vísindalegum rannsókn- um á hvalastofnum. Fréttaflutning- ur undanfarinna daga þýddi ekki að ríkisstjóm íslands hefði breytt afstöðu sinni til þessa máls. Ríkis- stjómin myndi ræða málið og taka afstöðu til með hvaða hætti fram- hald þess yrði. Hann lagði áherslu á að lslendingar hefðu full og óskor- uð yfirráð yfír auðlindum sínum og allar ákvarðanir um nýtingu auð- linda innan efnahagslögsögu ís- lands yrðu teknar af íslendingum sjálfum án tillits til utanaðkomandi þrýstings. George P. Shultz lýsti fullum skilningi á afstöðu okkar og tjáði utanríkisráðherra að Bandaríkja- stjóm myndi gera allt sem í hennar valdi stæði til þess að vinna þau málaferli, sem hún stæði nú í við bandarísk umhverfisvemdarsamtök og standa í einu og öllu við það samkomulag sem þjóðimar hefðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.