Morgunblaðið - 20.10.1988, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 20.10.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 53 Svava Halldórs- dóttir - Minning Fædd 8.júlf 1916 Dáin 26. september 1988 „Hún Svava er dáin.“ „Já, en var , hún ekki svo ung?“ spurði dóttir mín með rödd æskunnar, sem finnst sjálfsagt að dauðinn vitji aðeins þeirra sem gamlir eru. Þegar ég fór að hugleiða þessi orðaskipti nánar fann ég, að ég var alveg sama sinnis. Ekki einungis að mér finnist Svava hafí horfið frá okkur alltof snemma heldur einnig og miklu fremur að í huga mínum var hún síung, í leit að nýjum við- fangsefnum og tilbúin til að gleðj- ast yfír því sem lífið gaf. Þó kynntist ég Svövu ekki fyrr en hún var komin um sextugt. Sjálf var ég heilli kynslóð yngri en þrátt fyrir það og ef til vill þess vegna tókst með okkur vinátta og gagn- kvæmur skilningur, sem við báðar nutum góðs af. Milli okkar bundust bönd sem einatt gerist milli kvenna vegna sameiginlegrar reynslu þeirra, hvað sem ólíkum aldri eða ytri skilyrðum líður. Við vorum vinnufélagar. í þeim samskiptum var ég oftast þiggj- andi. Eftir erfiðan dag eða þegar eitthvað bjátaði á var gott að setj- ast hjá Svövu og verða aðnjótandi móðurlegrar hlýju hennar og um- hyggju bæði í orði og atlæti. Eftir á að hyggja gerði ég henni e.t.v. það eitt gott að þiggja með þökkum og kunna að meta það sem hún veitti mér. Þegar unnið er við störf sem eru erfíð viðfangs, jafnvel svo að þau virðast á stundum óleysanleg, er mikilvægt að eiga góða vinnufé- laga. Bæði til þess að ráðfæra sig við og einnig sem hægt er að treysta fullkomlega, ekki síst þegar eigin vanmáttur verður hvað sársauka- fyllstur. Þannig félagi var Svava. Hún var alltaf tilbúin að gefa sér stund til þess að „pæla“, eins og hún orðaði það stundum sjálf, og fáa hef ég þekkt sem ég treysti betur fyrir sjálfri mér. Kannski var það líka öruggt vegna þess að henni var eiginlegt að horfa á það jákvæða í fari fólks og hvatti og uppörvaði þegar þess helst þurfti með. Ég var ekki sú eina sem varð aðnjótandi hlýju og umhyggju Svövu. Aðrir vinnufélagar á bama- geðdeildinn og ekki síst foreldrar bamanna á deildinni „leituðu skjóls" hjá Svövu og fundu vafalítið að þar voru þeir meðal vina en ekki bara á valdi einhverrar óper- sónulegrar stofnunar. Svava var ein þeirra fjölmörgu kvenna af hennar kynslóð sem fóm á nýjan leik út á vinnumarkaðinn um miðjan aldur, eftir að hafa unn- ið við húsmóðurstörf og uppeldi bama sinna fram að því. Ummönn- unar- og þjónustustörf við aðra urðu áfram starfsvettvangur henn- ar eins og margra kvenna. Þau störf em yfirleitt ekki mikils metin, a.m.k. ekki í launum eða til verald- legra metorða, þrátt fyrir að þau séu í raun oft forsenda þess að önnur störf, sem af mörgum em talin merkilegri, geti farið fram. Ekki er síður mikilvægt hvemig þessi störf em af hendi leyst. Starf „matmóðurinnar á stað þar sem verið er að takast á við vanda veikra og/eða fatlaðra bama er ómetan- legt. Ekki einungis í þeim tilgangi að næra líkamann heldur getur það einnig orðið mikilvægur hlekkur í. því starfi sem unnið er til að nálg- ast og nærast tilfinningalega. Þetta skildi Svava og kenndi okkur hin- um. Hún var að eðlisfari skapandi listakona og listsköpun hennar kom fram í starfi hennar, hvetju nafni sem það nefndist. Þannig tókst henni að vinna bug á því sem mörg- um reyndist fjötur um fót þegar þeim auðnast ekki að starfa við það sem hugurinn gimist eða fá annað hlutskipti í lífinu en þeir hafa heit- ast óskað. Þetta og ótalmargt annað í fari Svövu var eftirbreytni vert. Ég lærði margt af henni og stend í þakkarskuld við hana. Víst er um það að Svava skildi eftir sig mörg spor í tilveru okkar sem kynntumst henni vel og þótti vænt um hana. Minningin um góða og trygga vinkonu og fordæmi hennar mun fylgja mér áfram veginn. Blessuð veri minning hennar. Lára Björnsdóttir Minning: Björn Haraldsson stýrimaður Fæddur 27. maí 1939 Dáinn 21. september 1988 Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin stijála' og auða, er stari’ eg héðan af, er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. (V.B.) Hinn 21. september sl. barst mér sú raunafregn að stjúpfaðir minn, Bjöm, hefði látist um nóttina. Bjöm var á besta aldri, aðeins 49 ára gamall, en hefði orðið fimmtugur 27. maí næstkomandi. Bjöm Haraldsson var fæddur á Örlygsstöðum í Húnavatnssýslu þann 27. maí 1939. Móðir hans var frú Sigurlaug Bjömsdóttir og faðir hans var Haraldur Siguijónsson og em þau bæði látin. Bjöm ólst upp á Skagaströnd og gekk þar í bamaskóla. Hann var elstur þriggja bræðra. Þeir eru Grétar, vélstjóri, búsettur á Skaga- strönd og Siguijón, trésmiður, bú- settur á Blönduósi. Árin 1956 og ’57 var Bjöm á Reykjaskóla f Hrútafírði. Síðan stundaði hann sjómennsku í nokkur ár. Því næst lá leið hans í Stýri- mannaskólann í Reykjavík og stundaði hann þar nám í tvo vetur og lauk þaðan prófí. Bjöm giftist sænskri konu og átti með henni eina dóttur, Sigur- laugu Píu. En þau skildu eftir stutta sambúð og eru þær mæðgumar nú búsettar í Svíþjóð. Nokkru síðar kynntist hann eftirlifandi konu sinni, móður minni, Aldísi Þor- björgu Guðbjömsdóttur. Bjöm og Aldís eignuðust einn son, Harald, fæddan 3. október 1967. Bjöm reyndist mér mjög góður stjúpfaðir. Hann stóð þétt við hlið konu sinnar Aldísar og sonar Har- aldar og sá vel fyrir sínum alla tíð. Að mínu mati em sjaldfundnir traustari menn. Hann var hlédræg- ur og dulur þannig að fólk vissi oft á tíðum lítið um hans hagi. Hann var hjartahlýr, bæði góður við menn og dýr og þá sérstaklega þá sem minna máttu sín. Hann hafði gaman af að umgangast böm og var afar bamgóður og góður afi dóttur minnar, Maríu. Var hún ljósgeisli hans og ömmu sinnar enda fyrsta og eina bamabam þeirra. Hann var ósérhlífínn maður til sjósóknar og var það viðburður ef hann sleppti róðri. Hann var rólynd- ur og umburðarlyndur og bar ekki sorgir sínar né vonbrigði á torg. Þó varð maður oft var við að honum leið ekki vel og tími væri kominn til að hann tæki lífinu með ró. Ég minnist þess að hafa beðið hann að taka sér nú frí róður og róður frá sjónum en hann hristi bara höfuðið, glotti út í annað og sagði fastmæltur nei! Svona var Bangsi eins og ég kallaði hann frá bamæsku. Fastur fyrir eins og klettur, hvemig sem vindar blésu, seigla hins sanna sjómanns. Menn eins og hann eru undirstaða þjóð- félags okkar. Maður sem vann störf sín af trúmennsku og tók þátt í gjaldeyrisöflun þjóðar sinnar. Það voru ófá skiptin sem Bangsi kom af sjónum færandi hendi með fisk handa mér f soðið. Áhugamál hans voru aðallega sjómennskan, frímerkjasöfnun sem hann var sérstaklega natinn við og lestur góðra fræðibóka og sjó- mannsrita. Á sínum yngri ámm minnist ég þess hvað hann var áhugasamur með skipamódelsmíðar sem kröfðust mikillar þolinmæði og vandvirkni. Honum fannst gott að koma til æskustöðva sinna norður á Skaga- strönd og hitta ættmenni sín og hefði hann kosið að gera meira af því. Ég minnist Bjöms stjúpa míns með miklum söknuði og virðingu og einnig fyrir hönd dóttur minnar Maríu Katrínar. Móður minni Aldísi, eftirlifandi eiginkonu Bjöms og syni hans, Haraldi, votta ég mína inni- legustu samúð. Hrafnhildur og María. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavik og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Brids Arnór Ragnarsson Hreyfill — Bæjarleiðir Nú er lokið þremur kvöldum af fímm í tvímenningskeppninni og er staða efstu para þessi: Jón Sigtryggsson - Skafti Bjömsson 552 Sigurður Olafsson - Daníel Halldórsson 541 Páll Vilhjálmsson — Lilja Halldórsdóttir 541 Cyrus Hjartarson - Hjörtur Cymsson 537 Þorsteinn Sigurðsson — Ámi Halldórsson 515 Alls taka 28 pör þátt í keppn- inni. Næsta keppni bfistjóranna verður sveitakeppni og er skráning hafin. Spilað er á mánudögum í Hreyf- ilshúsinu kl. 19.30. Keppnisstjóri er Ingvar Sigurðsson. Opið stórmót í Sandgerði Skráning er hafin í stórmótið sem Muninn í Sandgerði stendur fyrir, laugardaginn 12. nóvember. Skráð er á skrifstofu BSÍ og hjá stjóm- inni syðra. Góð verðlaun em í boði. Bridsdeild Skagfirðinga Mjög góð mæting var í Lands- bikarkeppninni hjá Skagfirðingum sl. þriðjudag. 23 pör mættu til leiks og var spilað í tveimur riðlum. Efstu skor fengu: A-riðill: Magnús Sverrisson — ValdimarElíasson 181 Bjöm Pétursson — Haukur Sævaldsson 177 Gestur Jónsson — Friðjón Þórhallsson 174 Knútur Ólafsson — Ólafur Magnússon 174 Guðlaugur Sveinsson — Guðjón Jónsson 168 B-riðUl: Guðni Sigurbjamason — Jón Þorvarðarson 121 ívar Jónsson — Reynir Þórarinsson 116 Sigmar Jónsson — Vilhjálmur Einarsson 116 Anton R. Gunnarsson — Lúðvík Wdowiak 111 Ásthildur Sigurgísladóttir — Láras Amórsson 111 Næsta þriðjudag verður fram haldið haustbarómeterkeppni deild- arinnar en þriðjudaginn 11. nóvem- ber hefst aðalsveitakeppni deildar- innar. Skráning er hafin hjá Ólafi Lámssyni í s. 16538/689360 og Sigmari Jónssyni í s: 687070. Öllum heimil þátttaka. __ Undankeppni íslandsmótsins á Vestflörðum Sveit Guðmundar M. Jónssonar frá ísafirði sigraði í úrtökumóti Vestfjarða fyrir íslandsmótið í svei- - takeppni 1989. Með Guðmundi em í sveitinni: Kristján Haraldsson, Amar Geir Hinriksson, Einar Valur Kristjánsson, Frank Guðmundsson og Þorsteinn Geirsson. 5 sveitir tóku þátt í mótinu, sem spilað var á ísafirði. Röð sveitanna varð þessi: 1. Sveit Guðmundar M. Jónssonar ísafírði, 90 stig. 2. Sveit Guðmundar Þorkelssonar Bolungarvík, 88 stig. 3. Sveit Jóns H. Gíslasonar Tálknafirði, 87 stig. ■■ 4. Sveit Eiríks Kristóferssonar ísafirði, 74 stig. 5. Sveit Ólafs Haraldssonar ísafirði, 51 stig. Stofiianakeppni Bridssambandsins Bridssambandið minnir á Stofn- anakeppni BSÍ, sem spiluð verður um næstu helgi. Síðustu forvöð em að tilkynna þátttöku. Skráð er á skrifstofu BSI. Spilamennska hefst kl. 13 á laugardeginum. Alla nán- ari uppl. veittar á skrifstofu BSÍ. Bridsfélag Akureyrar Árlegu Bautamóti Bridsfélags v Akureyrar lauk sl. þriðjudag, með sigri bræðranna Grettis Frímanns- sonar og Frímanns Frímannssonar. 24 pör tóku þátt í mótinu, sem var þriggja kvölda Mitchell- tvímenningur. Öll verðlaun em gef- in af Bautanum á Akureyri og af- henti Stefán Gunnlaugsson þau fyr- ir hönd Bautans. Efstu pör: Grettir Frímannsson — Frímann Frímannsson 781 Soffía Guðmundsdóttir — Hermann Tómasson 725 ' Kristinn Kristinsson — Gunnlaugur Guðmundsson 725 Hörður Steinbergsson — Öm Einarsson 724 Reynir Helgason — Tryggvi Gunnarsson 705 Ólafur Ágústsson — Sveinbjöm Jónsson 702 Gunnar Berg — Stefán Sveinbjömsson 694 Jónas Karlsson — Haraldur Sveinbjömsson 683 Keppnisstjóri var Albert Sigurðs- son og reiknimeistari Margrét Þórð- ardóttir. Akureyrarmótið í sveitakeppni er næst á dagskrá. Skráningu lýkur kl. 20 sunnudagskvöldið 23. októ- ber. Skráð er hjá stjóm BA. At- hygli er vakin á því að aðstoð er veitt við myndun sveita, sé þess óskað. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, FRÚ VALGERÐAR S. AUSTMAR, Furugerði 1, Reykjavfk. Sigurður M. A. Slgurgeirsson Guðrún A. Slgurgeirsdóttlr, Jón A. Sigurgeirsson, Kristín Slgurgeirsdóttlr, Eirfkur Sigurgelrsson, Marfa S. Leósdóttlr, Anna L. Leósdóttir, Hannes Slgurgelrsson, Krlstjana S. Diamant, barnabörn og , Hiff Kristófersdóttlr, Franklfn Friðleifsson, Kristfn Harðardóttir, Ása S. Þórðardóttir, Eirfkur Hallgrfmsson, Agnar Hermannsson, Guðrún Magnúsdóttlr, barnabarnabörn. t Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við fráfail og útför, eiginmanns mfns, föður okkar, tengdafööur, afa og langafa, PÉTURS BREIÐFJÖRÐ GUÐMUNDSSONAR, Jörfabakka 8. Svala Hjörlelfsdóttir, Örn Pótursson, Guðrún Gunnarsdóttir, HJörlelfur Pétursson, Kristfn Pétursdóttlr, Haukur Gfslason, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.