Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 Ráðstefhufulltrúar við höll Katarínu í Leningrad. Jón Haraldsson arkitekt er annar frá hægri í annarri röð. Alþjóðleg ráðsteftia um heilsugæslustöðvar Alþjóðlega skeiðmeistaramótið: Keppt á kappakstursbraut Morgunblaðið/V aldimar Kriatinsson Meðal keppenda á skeiðmeistaramótinu nú verða Sigurbjöm Bárðar- son og Kalsi frá Laugarvatni sigruðu í gæðingakeppninni í fyrra. „Skilgreining hönnunar, bygg- ing og viðhald heilsugæslu og sjúkraþjónustu með tilliti til markmiðs Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar" var yfir- 7 skrift ráðstefiiu sem haldin var í Moskvu síðustu viku september. Einum íslendingi var boðið til ráðstefhunnar, Jóni Haraldssyni, arkitekt og flutti hann erindi um heilsugæslu og heilsugæslustöðv- ar á íslandi. Jón hefiir m.a. unn- ið við hönnun ýmissa heilsu- gæslustöðva og hjúkrunarheim- ila hér á landi undanfarna tvo áratugi í samráði við Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Skipuleggjendur ráðstefnunnar, Arkitektafélag Sovétrílcjanna(PH- G-deild) og heilbrigðismálaráðu- neytið þar í landi, buðu 60 félögum heilsugæsluhóps Alþjóðasambands arkitekta frá 30 þjóðum til fundar- ins. Á ráðstefnunni sem hófst þann 25. september í Moskvu voru flutt fjölmörg erindi um ástand og horfur í þessum efnum víða um veröld. Síðan var ráðstefnugestum boðið að skoða ýmsar heilbrigðisstofnanir í Moskvu og Leningrad, en þangað var stefnt í þinglok, til fróðleiks og fagnaðar. Að sögn Jóns Haraldssonar tókst ráðstefnan mjög vel og var ítarleg, fróðleg og framsækin. Hann sagði svo raunar jafnan vera um fundi Alþjóðasambands arkitekta og heil- sugæsluhópsins, hvar sem þingað væri. Jón sagði í athugun hvort unnt sé að halda slíka ráðstefnu á íslandi og kvað hann þafa komið fram mikill áhugi á íslandi sem fundarstað, auk þess sem ástand heilbrigðismála og þjónusta á ís- landi þótti um margt til fyrirmynd- ar. Jón Haraldsson sagði að menn hefðu verið á einu máli um að sov- ésku gestgjafamir ættu miklar þakkir skildar fyrir höfðinglegar móttökur og vel skipulagða ráð- stefnu. _________Hestar_______________ Valdimar Kristinsson Alþjóðlega skeiðmeistaramótið verður haldið f Þýskalandi 22. og 23. október nk. en mót þessi hafa verið haldin þar um árabil við vaxandi vinsældir. Það er Skeið- mannafélagið, sem er alþjóðlegt félag skeiðreiðarmanna á íslensk- um hestum, sem heldur mótið. Keppnin fer fram á mótorhjóla- kappakstursbraut sem heitir Spe- edway Bahn og er skammt frá hestamiðstöðinni Rexhof þar sem reiðkennarinn góðkunni Hans Ge- org Gundlach er með starfsemi sína. Keppnisgreinar eru gæðinga- keppni A-flokkur, fímmgangur, gæð- ingaskeið, 150 og 250 metra skeið og töltkeppni sem er nokkuð frá- brugðin því sem hér þekkist. Aðeins fimmgangshestar eru gjaldgengir og verða þeir sem keppa í töltinu að hafa hlotið einkunn fyrir skeið í ein- hverri mynd eða tíma á skeiðkapp- reiðum. Engar reglur gilda um fóta- búnað keppnishrossa en dómarar mega hinsvegar lækka einkunnir ef þeim þykir fótabúnaður hafa óeðlileg áhrif á ganglag hestanna. A sunnudag fer fram keppni sem kölluð er á erlendu máli Pace Championat en þar keppa þeir fjórir sem bestum tíma hafa náð í 250 metra skeiðinu á laugardeginum og skipta þeir á hestum þannig að hver knapi ríður öllum hestunum og eru þvi famir flórir sprettir. Sá er hlýtur bestan samanlagðan tíma sigrar og kallast skeiðmeistari. Þá verður út- nefndur skeiðreiðarmaður ársins en þann titil hlýtur sá sem hefur náð bestum tímum ársins og lagðir sam- an þrir bestu tímar hjá hveijum knapa. Þar sem þetta er síðasta skeiðkeppni ársins hafa þeir sem þátt taka í mótinu möguleika á að ná sér í góðan tíma og þá jafnvel tryggja sér þennan eftirsóttan titil. Ahugi íslenskra knapa fyrir al- þjóðlega skeiðmeistaramótinu hefur aukist ár frá ári og er nú vitað um 11 sem hyggja á þátttöku. Eru það bæði íslendingar búsettir í Þýska- landi og eins fara nokkrir héðan og má þar nefna Sigurbjöm Bárðarson sem keppir á Flugari í skeiði og jafn- vel fimmgangi, þá keppir hann í gæðingakeppninni á Kalsa frá Laug- arvatni en þeir sigruðu í henni í fyrra. Einnig verður hann með Torfa frá Hjarðarhaga í 150 metra skeiði en þeir eiga þýskt met á þeirri vega- lengd. Þá mun Reynir Aðalsteinsson sem nú er ytra við reiðkennslu og þjálf- un, keppa á stóðhestinum Trausta sem er úr ræktun hans. Walter Feld- mann sigraði skeiðið á þessum hesti á mótinu í fyrra. Þá hefur heyrst að Tómas Ragn- arsson fari á mótið og verði auk þess með tveggja daga skeiðnám- skeið. Þá mun Aðalsteinn Aðalsteins- son vera að leita sér að hesti til þátt- töku og Jón Pétur Olafsson verður einnig með í leiknum. Af þeim fslend- ingum sem búa ytra verða meðal þátttakenda Jón Steinbjömsson, Þórður Jónsson, Birgir Gunnarsson, Gunnar Öm ísleifsson og Herbert „Kóki“ Ólason sem mætir með-Vill- ing frá Möðruvöllum. Einnig má geta þess að Walter Feldmann jr. verður með vekringinn góðkunna Adam frá Hólum og Lögg frá Sauðárkróki en hann hefur verið ósigrandi á hrys- sunni í gæðingaskeiði á mótum sum- arsins. Mótsstaðurinn er sunnan við borg- ina Ludvigshaven og vestan við Rín. Keppnin fer fram á 700 metra langri kappakstursbraut og mun áhorf- endastúkan vera yfirbyggð. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Vopnafjörður Almennur stjórn- málafundur verður haldinn í félags- heimilinu Miklagarði fimmtudaginn 20. október kl. 20.30 um stjórnmálavió- horfið og stefnu Sjálfstæðisflokks- ins. Á fundinn koma alþingismennirnir Kristinn Pétursson og Halldór Blöndal. Umræður og fyrirspurnir verða á eftir framsöguræðum. Fólk er hvatt til að mæta. Stjóm kjördæmisráös Sjálfstæðisflokksins i Austurlandskjördæmi. Bakkafjörður - Skeggjastaðahreppur Almennur stjórn- málafundur verður haldinn í grunnskól- anum föstudaginn 21. október kl. 20.30 um stjórn- málaviðhorfið og stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Á fundinn koma alþingismenn- irnir Kristinn Péturs- son og Halldór Blöndal. Umræður og fyrirspurnir verða á eftir fram- söguræöum. Fólk er hvatt til að mæta. Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i Austurlandskjördæmi. Aðalfundur Þórs félags ungra sjálfstæðismanna á Akranesi verður haldinn í sjálf- stæðishúsinu á Akranesi f Heiöargeröi 20 kl. 15.00 laugardaginn 22. október. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði, Hafnarfirði Aðalfundur Vorboðans verður haldinn í Sjálfstæöishúsinu, Strand- götu, mánudaginn 24. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kaffihlé. Gestur fundarins: Frú Hjördís Þorsteinsdóttir segir frá kvennaráðstefnu „Nordisk forum". Stjórnin. Trúnaðarráð Hvatar Fundur í Valhöll, kjallarasal fimmtu- daginn 20. október kl. 18.00. Sveinn H. Skúlason formaður fulltrúa- ráðsins i Reykjavík kynnir stefnuskrár- ráðstefnuna. Guðrún Zoega fyrr- verandi aðstoðar- maöur ráðherra segir frá störfum sinum í Iðnaðarráðuneytinu. Léttar veitingar verða á boðstólum. Fjölmenniö. Stjórnin. Ráðstefna um málefni aldraðra í Kópavogi í nútíð og framtíð haldin á vegum full- trúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Kópa- vogi laugardaginn 22. október nk. í Félagsheimili Kópa- vogs, 2. hæð. Ráöstefnan hefst kl. 13.30 stundvíslega. Réðstefnustjóri: Arnór Pálsson. Setning: Halldór Jón anna. Frummælendur: 1. Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri. Valkostir aldraðra. 2. Ásgeir Jóhannesson, forstjóri. Uppbygging Sunnuhliðar. 3. Sverrir Sigfússon, útibússtjóri. Fjármál. 4. Sigurveig H. Sigurðardóttir, yfirfélagsráðgjafi. Horft til framtíðar. 5. Ásthildur Pétursdóttir, fararstjóri. Ferðamál aldraðra. Fyrrverandi biskup, Sr. Sigurbjörn Einarsson, flytur ávarp. Kl. 15.00: Kaffihlé. Almennar umræður og skoöanaskipti, frummælendur sitja fyrir svörum. Ráðstefnan er öllum opin, jafnt ungum sem öldnum, sem vilja láta sig þessi málefni varða á einhvern hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.