Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐDÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Dráttarbeisl i — Kerrur HEIMSLEIKAR FATLAÐRA 1988 í SEOUL
Kerruhásingar fyrir tjaldvagna, hestakerrur o.fl.
Burðarþol 500 kg - 6 tonn.
ÓDÝRAR HESTAKERRUR Á LAGER.
Smíðum allar gerðir af beislum og kerrum. Seljum alla
hluti í kerrur og vagna. „Original" beisli á flesta bíla.
Vélsmiðja Þórarins
Laufbrekku 24 - Dalbrekkumegin
Símar 45270-72087
LYGILEGA
ÓDÝRT
kr. 7.200.- stgr.
4ra skúffu 6 skúffu 8 skúffu
kr. 3.490,- stgr. kr. 4.680,- stgr. kr. 6.266,- stgr.
SVEFNBEKKIR MEÐ DÝNU OG RÚMFATASKÚFFU
kr. 8.500,- stgr.
FATASKÁPAR
kr. 8.230,- stgr.
BÓKASKÁPAR
Stærð: 74x180 cm
Litir: Hvítt - svart - furuiitur
Verð kr. 3.665,- stgr.
Aftur brons til
Ólafs í Seoul
íslensku keppendurnir hafa unnið til sex verðlauna
ÓLAFUR Eiríksson, ÍFR, vann
önnur bronsverðlaun sín á
heimsleikum fatlaðra í Seoul í
gœr. Hann varð þriðji í 400
metra skriðsundi á fyrsta
keppnisdegi og í gœr lák hann
sama leikinn í 100 metra fiug-
sundi. Þetta voru sjöttu verð-
laun íslendinga á leikunum.
Olafur var fjórði þegar 20 metr-
ar voru eftir af 100 metra
flugsundinu, en með frábærum
endaspretti tókst honum að næla
sér í bronsverðlaunin. Hann sjmti á
1:14.73 mín. og bætti eigið íslands-
met um tvær sekúndur. Alls voru
17 keppendur í flokki Ólafs, en
hann hafði besta tímann eftir und-
anrásir.
Krfstín Rós á helmsmetl?
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR,
keppti í 100 metra baksundi og
varð fimmta af 10 keppendum. Hún
synti á 1:37.37 mín. sem er nýtt
íslandsmet. Kristín Rós var færð
upp um einn flokk þar sem ekki
var annar keppandi í hennar flokki
og keppti því með þeim sem minna
eru fatlaðir. Árangur hennar er því
mjög glæsilegur. Reynt verður að
fá tímann staðfestan sem heimsmet
í flokki hennar.
Sigrún Pétursdóttir, ÍFR, varð í
fimmta sæti af sex í 100 metra
baksundi. Hún synti á 2:57.40 mín.
Fimm fyrstu keppendumir voru
undir gamla heimsmetinu í þessum
flokki.
Gunnar V. Gunnarsson frá
Njarðvík varð í 8. sæti í 100 metra
baksundi á 1:30.33 mín. Gunnar
náði betri tíma í undanrásum er
hann synti á 1:29.52 mín.
Halldór Guðbergsson keppti í
sama flokki og Gunnar en náði sér
ekki á strik og komst ekki í úrslit.
Hann synti á 1:31.80 min.
Elvar Thorarensen frá Akureyri
komst ekki í úrslit í borðtennis.
Hann tapaði fyrir Svía og Kóreu-
manni, sem eru mjög sterkir, 21:9
og 21:10.
Stór dagur verður hjá íslenska
liðinu í dag. Þá keppir allt sundliðið
og einnig Haukur Gunnarsson í
úrslitum 200 metra hlaupsins. Mikl-
ar vonir em bundnar við Hauk og
verður hann að teljast nokkuð ör-
uggur í verðlaunasæti.
HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
Kvennalandsllðlð, sem er farið til Hollands og Frakklands. Efri röð frá vinstri: Slavko Bambir, þjálfari, Helga
Magnúsdóttir, fararstjóri, H. Katrín Friðriksen, Inga Lára Þórisdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Rut Baldursdóttir, Svava
Baldvinsdóttir, Margrét Theódórsdóttir, Erla Rafnsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari, Björk Guðmundsdóttir,
fararstjóri og Theodór Sigurðsson, aðstoðarþjálfari. Fremri röð: Erla Lúðvíksdóttir, Osk Víðisdóttir, Kristín Péturs-
dóttir, Halla Geirsdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Kolbrún Jóhannsdóttir, Ama Steinsen, Guðný Guðjónsdóttir og Guðný
Gunnsteinsdóttir.
Leika átta leiki
á þrettán dögum
KVENN ALANDSLIÐIÐ í hand-
knattleik heldur í dag áleiöis
til Frakklands, þar sem liðið
tekur þátt í C-keppninni í hand-
knattleik. Keppnin í Frakklandi
hefst 25. október, en áður en
kvennaliðið fertil Frakklands
tekur það þátt í fjögurra liða
móti f Hollandi, þar sem stúlk-
urnar leika gegn landsliðum
Hollands, Ungverjalands og
Póllands.
Stúlkumar dveljast í Dreux í
Frakklandi, þar sem allir leik-
imir í A-riðlinum fara fram. Stúlk-
umar leika í riðli með Frökkum,
Spánveijum, Portugölum og Grikkj-
um. í hinum riðlinum leika Hollend-
ingar, Svíar, ítalir, Svisslendingar
og Belgíumönnum.
„Stúlkumar hafa æft mjög vel
fyrir keppnina - undir stjóm lands-
liðsþjálfarans Slavko Bambir frá
Júgóslavíu. Spumingin er hvemig
þeim tekst upp þegar í slaginn er
komið," sagði Helga Magnúsdóttir,
aðalfararstjóri landsliðsins.
Það er mjög kostnaðarsamt að
senda landsliðið í keppnina. Helga
sagði að landsliðsnefnd kvenna hafa
leitað til eldri landsliðsmanna og
fengið góðan stuðning hjá þeinl.
„Þeir sem hafa áhuga á að styrkja
starf kvennaliðsins, geta lagt pen-
inga inn á gíróreikning okkar, sem
| er númer 75400-5,“ sagði Helga.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Barist um Mal Donaghy
anchester United og
Liverpool beijast nú um að
fá n-írska landsliðsmanninn Mal
Donaghy frá Luton til sín. Luton
var búið að sam-
þykkja að selja
Donaghy til Un-
ited fyrir 800 þús.
sterlingspund í
FráBob
Hennessy
ÍEnglandi
gær, þegar tilboð í leikmanninn
kom frá Liverpool.
Mikið er um meiðsli í herbúðum
Liverpooi, sem þarf illilega á vam-
arleikmanni að halda. Kenny
Dalglish, framkvæmdastjóri
Liverpool, óskaði því eftir að frá
Donaghy. Forráðamenn Luton til-
kynntu í gær, að Donaghy myndi
sjálfur ákveða hvort hann færi til
United eða Liverpool. Donaghy,
sem er 31 árs og lék sinn 68 lands-
leik með N-írum I Ungveijalandi
í gær, mun taka ákvörðun í dag
þegar hann kemur frá Ungveijal-
andi, hvort félagið hann velur.