Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 25 Þorlákur Kristinsson (Tolli) listmálari og Páll Guðmundsson sýna saman í stóru stofunni uppi og fylla hana bókstaflega. Þeir hafa einir hinna 10 átt námsár sín í Þýzk- alandi. Tolli sýnir málverk bæði frá 1984 og líka alveg nýjar myndir, nokkuð breyttar, vandaðri en kraft- minni. Aðalsteinn Ingólfsson segir í sýningarskrá, að Tolli treysti ekki lengur aðeins á innblástur augna- bliksins, heldur noti palethníf til að byggja upp málverk, sem séu í senn traust og hvikul. Páll Guðmundsson myndhöggv- ari er íslenzkastur af listamönnun- um í listsköpun sinni. Hann notar rauðgrýti (flikruberg) úr fjallinu fyr- ir ofan Húsafell og líparít úr Tung- unni í höggmyndir sínar. Notar hann steinana einsog þeir koma fyrir og mótar þá aðeins að hluta til með einföldum verkfærum eins og lista- gyðrjan blæs honum í brjóst. Þar gefur að líta Snorra Sturluson og Kobba á Húsafelli, fjallkonu, víking, tröllshönd og hrútshaus, allt listilega gert. Fær náttúran sjálf að njóta sín, mosi og skófir í skeggi Snorra, en fínlegt íjallkonuandlitið mótað í „kvenlegan stein", einsog Páll komst að orði. Sem betur fer eru íslenzkar lista- konur ekki afskiptar á Sophienholm. Þær Hulda og Jóhanna eru verðugir fulltrúar þeirra. Hulda Hákonar- dóttir myndlistarmaður var nem- andi í School of Visual Arts í New York. Hún notar tré og gifs í lág- myndir sínar og tekst prýðilega að koma hugsunum sínum til skila í myndunum. Viðfangsefnin eru víða að og hún notar alþýðulist og menn- ingu til að auka innlifun sína eins og Halldór Bjöm Runólfsson kemst að orði. Jóhanna K. Yngvadóttir list- ' málari sýnir fáar myndir, en afar sterkar og áhrifamiklar, jafnvel ógleymanlegar eins og mynd hennar af grænlenzku stúlkunni. Jóhanna hefur dvalið í Grænlandi og haldið sýningu í Julianehaab. Hún er góður teiknari, notar dökka liti og segir sjálf í sýningarskrá, að einlægni sé bezta merkið. Sýning Sveins Björnssonar hjá Lyngby Kunstforening Sveinn Björnsson listmálari teiknar í snjóinn einhvers staðar nálægt Hafnarfirði á myndunum á sýningarskrá og boðsbréfí til sýning- anna. Ekki verða allar myndir hans svo auðveldlega útmáðar, enda kraftur í aldursforseta íslenzku lista- mannanna hér í borg að þessu sinni. Þeir Henrik Vagn Jensen listmálari eru félagar frá Listaakademíunni 1956 og stóðu eitt sinn fyrir Kjarv- alssýningu á Charlottenborg og nú standa þeir fyrir upphengingu á myndunum á báðum sýningunum. Kallaðu þetta íslenzka listveizlu í Danmörku, segir Sveinn hress að vanda, „og mundu að koma því að, hve stjóm L.K. hefur hugsað langt. Það mun vera einsdæmi að greiða þannig far fyrir alla. Taka svo til óþekkta listamenn og gera þetta fyrir þá, það er stórkostlegt. Erik Andreasen þekkti líka fátæka lista- menn í París í gamla daga. Sveinn Björnsson sýnir 32 olíu- málverk í húsnæði L.K. í Lyngby og segir heila sögu í hverri mynd. Fiska ber þar víða fyrir, en fískur táknar kærleika og ást, segir lista- maðurinn, og fískur er orðinn honum tákn nú, en í gamla daga málaði hann fískana um borð, er hann var sjómaður. Málverkin em öll frá 2—3 síðustu árum nema sjálfsmyndin, sem var pöntuð sérstaklega á sýn- inguna. Blöðin í Lyngby skrifuðu strax eftir opnunina um sýningu Sveins og segir „Lokalposten" í fyrirsögn: Islendingur markar spor, og blaða- maðurinn fínnur liti og sagnaheim íslands í myndunum. „Det Grönne Omraade" lýsir málverkunum sem leiftrandi og stílhreinum, líkir þeim við eldgos og fagurfræðilegar íhug- anir í senn. Sama blað þakkar Hen- rik Vagn Jensen fyrir að vera upp- hafsmaður að báðum sýningum Lyngby Kunstforening að þessu sinni og segir hann og félagið hafa mikinn heiður af hvoru tveggju. G.L. Asg. Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! FAIMIMIR HF Bíldshöföa 14 s: 67 25 11 Allt í röð og reglu - án þess að vaska upp! Komdu kaffistofunni á hreint. Duni kaffibarinn sparar þér bæði tíma og fyrirhöfn. Getur staðið á borði eða hangið uppa vegg. En það besta er: Ekkert uppvask. Málnstandur HSWi/rdOsttj 688'- ^emstk.h t'3' 25%sotofc»to fe JERI REDDIN6 KRI REDDING MP EXTRAI ■'AMÁTIVi herasprit: . XURY EXTKA FIRM KEDDING MPOO fin'SHING spray H 5.75 E 0PTImum finishing _____ RIZIN6 5HAMPC SPRaY 4/ITH NATURE S OWN 'JSTWJCTOR 'fio,AWN|CAU tHTlE EEPECT.VE DOTANICAU L. PHTIONPR »■: JHERI REDDING HEFUR BEISLAÐ KRAFTA NÁTTÚRUNNAR OG BÚIÐ TIL HÁRSNYRTIVÖRUR SEM HENTA ÖLLUM í FJÖLSKYLDUNNI. FÁST EINUNGIS Í SNYRTIVÖRUVERSLUNUM OG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.