Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLASIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Samband sunnlenskra kvenna 60 ára:
Gaf Sjúkrahúsi Suður-
lands 1,3 imlljómr kr.
Selfossi.
Kvenfelagskonur í Árnes- og
Rángárvallasýslu héldu upp á 60
ára afmæli Sambands sunn-
lenskra kvenna i Hótel Selfossi
30. september síðastliðinn. Af-
mælisfagnaðinn sóttu um 400
manns og þar voru ávörp flutt
og sambandinu færðar gjafir.
Drífa Hjartardóttir formaður
sambandsins afhenti Sjúkrahúsi
Suðurlands stórgjöf f tilefiii af-
mælisins, 1.353.930 krónur, til
byggingar sólstofu við sjúkra-
deild aldraðra á Selfossi.
í Sambandi sunnlenskra kvenna
eru nú 29 kvenfélög með um 1.200
félagskonum. Eista félagið er Kven-
féiag Eyrarbakka 100 ára. Sam-
bandið var stofnað 30. september
1928, meðal annars fyrir forgöngu
Halldóru Bjamadóttur. Fyrsti for-
maður SSK var Herdís Jakobsdótt-
ir. Aðalmarkmið sambandsins var
að vinna að aukinni heimilisfræðslu
og þetta markmið náðist með stofn-
un húsmæðraskóla Suðurlands á
Laugarvatni.
Meðal gjafa sem sambandið fékk
var peningagjöf og 29 rósa vöndur
frá kvenfélögunum og hátíðafáni
úr silki frá stjómar- og varastjóm-
arkonum. Með fánanum vildu þær
sýna hug sinn til SSK og þakklæti
fyrir að fá að sinna störfum á vett-
vangi sambandsins.
Stórgjöf sambandsins til Sjúkra-
húss Suðurlands sýndi að kvenfé-
lagskonum er meira í mun að gefa
en þiggja. SSK hefur átt stóran
þátt í að aðstaða og umönnum aldr-
aðra hefur batnað. Sambandið hef-
ur stutt þá uppbyggingu dyggilega
með stórgjöfum. Drífa Hjartardóttir
formaður lét þess getið að þegar
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Drífa Hjartardóttir formaður
SSK.
sólstofan hefði risið við Ljósheima,
sjúkradeild Sjúkrahúss Suðurlands,
þá myndi sambandið afhenda flár-
hæð til kaupa á húsgögnum.
Meðal skemmtiatriða í afmælis-
hófinu var einsöngur Óskar Óskars-
dóttur við undirleik Óláfs Vignis
Albertssonar og Hlínar Pétursdótt-
ur við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Konur úr Kvenfé-
lagi Hrunamanna sýndu þjóðbún-
inga og voru sumir gripimir aldarg-
amlir. Sönghópur Kvenfélags Eyr-
Borgarnes:
„Er launajafiiréttí karla
o g kvenna goðsögn?“
Borgamesi.
Verkalýðsfélag Borgarness
hélt nýlega borgarafúnd á Hótel
Borgamesi. Fundarefnið var „Er
laumyafnrétti karla og kvenna
goðsögn?" Fundurinn var vel
sóttur. Voru konur í meirihluta
og margar þeirra komnar nokk-
uð langt að og nokkrar „alla leið
frá Reykjavík“, eins og ein þeirra
orðaði það.
Jón Agnar Eggertsson, formaður
Verkalýðsfélags Borgamess, setti
fUndinn og sagði hann vera sjötta
álmenna fundinn sem verkalýðs-
félagið efndi til á sl. Qórum árum.
Um fúndarefni þessa fundar sagði
Jón: „Þetta er málefni sem snertir
alla. Þrátt fyrir löggjöf um launa-
jöfnuð er langt frá þvf að jafnrétti
ríki. Ég tel að verkalýðsfélög um
land allt þurfi að skapa víðtæka
umræðu um launajafnrétti og leita
leiða til úrbóta. En það er einmitt
tilgangur þessa fundar."
Verulegur tekjumunur
á milli kynjanna
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, flutti erindi þar sem fram
komu tölulegar upplýsingar um þró-
un launamála hérlendis á síðustu
áratugum, með tilliti til launamis-
munar karla og kvenna. Kom þar
meðal annars fram að atvinnuþátt-
taka kvenna hefur á síðustu fímm
árum aukist úr 64% í rúmlega 70%,
sem hann sagði vera mikið stökk á
ekki fleiri árum. Þá kom fram að
fleiri konur vinna við verslunar-
störf, þjónustu og í bönkum en
kariar. En í öllum atvinnugreinum
væri um verulegan tekjumun á milli
kynjanna. Launin fyrir hvert árs-
verk væru mun hærri hjá körlum
en konum. Eina af ástæðunum fyr-
ir lægri tekjum kvenna sagði As-
mundur vera að þær ynnu minni
yfirvinnu en karlar. Þá kom fram
að launamismunur karla og kvenna,
þ.e. dagvinnutaxti í hinum ýmsu
atvinnugreinum, væri mjög mis-
munandi. Munurinn væri mjög lítill
á milli kynjanna í ófaglærðum störf-
um en síðan mætti segja að munur-
inn ykist jafnt og þétt eftir því sem
menntunin jrrði meiri og mestur
væri þessi munur á milli háskóla-
menntaðra karla og kvenna. „Ég
þekki enga goðsögn um launajafn-
rétti karla og kvenna," sagði Ás-
mundur og hélt áfram. „Það vita
allir að það er verulegur launamun-
ur á milli kynjanna." Taldi Ásmund-
ur brýnt að ræða með hvaða hætti
væri hægt að eyða þessu launamis-
rétti sem væri á milli karla og
kvenna. Ræddi hann í því sambandi
um að auka þyrfti menntun kvenna,
auðvelda þeim aðgang að fleiri
starfsgreinum og bæta þyrfti að-
stöðu til dagvistunar bama sem
myndi auðvelda konum frekari at-
vinnuþátttöku.
Karlar yfírborgaðir
Danfríður Skarphéðinsdóttir, al-
þingismaður, vitnaði f sinni fram-
sögu til nýrrar skýrslu Fram-
kvæmdanefndar um launamál
kvenna, þar sem kom fram að með-
altekjur karla í fullu starfi árið
1985 voru 63% hærri en fullvinn-
andi kvenna. Sagði Danftíður að
nýrri kannanir sýndu að bilið hefði
enn breikkað. Taldi Danfríður þenn-
an tekjumun stafa af unninni og
óunninni yfirvinnu karlanna og öðr-
um yfirborgunum sem þeir fengju.
Þá sagði Danfríður að launamis-
rétti milli kynjanna væri ekkert
séríslenskt fyrirbrigði og vitnaði í
því sambandi til skýrslu Sameinuðu
þjóðanna frá 1980. Um úrbætur á
launamisréttinu sagði Danfriður að
fyrst og síðast þyrfti að koma á
breyttu verðmætamati á vinnu og
vinnuframlagi kvenna.
Almenn viðhorfsbreyting
Hansfna Stefánsdóttir, starfs-
maður Verslunarmannafélags Ár-
nessýslu, taldi að til þyrfti að koma
almenn viðhorfsbreyting í þjóðfé-
laginu til þess að hægt yrði að
breyta launamisréttinu. Byija ætti
inni á heimilunum, kenna bömum
að vinna kvenna væri jafti mikilvæg
og vinna karla. Þá þyrfti að endur-
meta vægi starfa til launa með til-
liti til ábyrgðar í starfí. Kvaðst
Hansína binda miklar vonir við jafn-
réttisnefnd, sem Alþýðusambandið
ætlaði að koma á fót á næstunni.
Ætti sú nefnd að móta áætlun til
að ná fram launajafnrétti kynjanna.
Viðamikil könnun
Þjóðhagsstofhunar
Sigurður Snævarr, hagfræðing-
ur, ræddi um þá atvinnubyltingu
sem hefði orðið á fslenskum vinnu-
markaði á síðustu áratugum með
tilkomu aukinnar atvinnuþátttöku
giftra kvenna. Sýndi Sigurður fund-
armönnum síðan fram á hvemig
lesa mætti ýmsar staðreyndir um
tekjumun út úr skattframtölum
fólks. Studdi Sigurður mál sitt með
flölda súlu- og línurita og annarra
gagna. Þá sagði Sigurður: „Við f
Þjóðhagsstofnun erum að vinna að
viðamikilli skýrslu sem hefúr vinnu-
heitið Samanburðarkönnun á launa-
kjörum karla og kvenna, sem við
vonumst til að geta lokið við á
næstu vikum eða kannski mánuð-
um.“ Meðal annars sem komið hefði
Morgunblaðið/Theodór K. Þórðanion
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, flytur framsöguræðu, Jón Agnar Eggertsson, formaður Verka-
lýðsfélags Borgamess, Svava Halldórsdóttir fúndarstjóri og Bjarai Skarphéðinsson fúndarstjóri.