Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 51 Gunnar Snorri Gunn arsson - Minning Fæddur 4. október 1929 Dáinn 13. október 1988 í dag er borinn til grafar Gunnar Snorri Gunnarsson. Hann fæddist 4. október 1929 á ísafirði, elsti sonur hjónanna Gunnars Sigurðs- sonar og Steinunnar S. Jakobs- dóttur. Gunnar lifír son sinn. Stóran hluta uppvaxtaráranna dvaldi Gunnar Snorri hjá Kristjönu móðursystur sinni og eiginmanni hennar, Eymundi Torfasyni, sem reyndust honum eins og bestu for- eldrar. Eymundur lifír í hárri elli á ísafírði. Gunnar Snorri byijaði ungur að stunda sjó frá ísafirði og síðar um nokkurra ára skeið frá Hafnarfirði og víðar. Árið 1958 kynntist hann eftirlif- andi eiginkonu sinni, Erlu Þorgerði Ólafsdóttur, hjúkrunarfræðingi frá Patreksfírði. Gengu þau í hjóna- band 17. febrúar 1961, og hófu búskap sinn á Patreksfirði. Þaðan stundaði hann sjóinn allt þar til að hann fór í land eftir um þijátíu ára sjómennskuferil. Þegar í land var komið starfaði Gunnar Snorri við byggingarfyrir- tæki uns hann sækir námskeið í fiskmati, árið 1981. Hann stundaði bæði ferskfískmat og saltfiskmat þar til þau hjón flytja til Sandgerð- is árið 1986, en þar vann hann við saltfiskmat, allt til síðasta dags. Þau hjón eignuðust þijú böm, Kristjönu (f. 1959) gifta Þórami Sveinssyni. Þau em búsett í Kanada, þar sem þau stunda nám. Eymund (f. 1961) ógiftan, búsettan í Sandgerði. Hann stundar sjó- mennsku. Sesselju (f. 1963) í sam- búð með Guðmundi E. Jónssyni. Þau em búsett í Reykjavík og stundar Sesselja nám í Kennarahá- skóla íslands. Bamabömin em tvö, Sveinn og Gunnar Snorri, sem sárt munu sakna afa síns. Ég kynntist Gunnari Snorra fyrir sjö ámm og varð okkur vel til vina, þrátt fyrir skiptar skoðanir. í öll þau ár vom okkar samskipti mjög mikil. Bæði á meðan þau bjuggu fyrir vestan og eins eftir að í Sand- gerði kom. Ætíð var heimili þeirra Eddu opið fyrir bömunum, og átt- um við Sesselja og Gunnar Snorri yngri margar ánægjulegar stundir með þeim. Eftir að þau fluttu til Sandgerðis dvaldi Gunnar Snorri löngum með afa sínum og meðal annars dunduðu þeir sér við smíðar í bflskúmum. Gunnar Snorri var handlaginn mað- ur. Stuttu fyrir andlát sitt hafði hann klárað borðasmíðað trillu- líkan. Þetta verk var hans meistara- stykki og lýsir því vel hve honum þótti frítíma sínum vel varið með bamabömunum. Gunnar Snorri var mikill dugnað- armaður til vinnu og hef ég heyrt að samstarfsmönnum hans þótti gott að vinna með honum. Hann var yfírleitt kominn á fætur fyrir allar aldir á morgnana og hefði helst kosið að fá að byija að vinna þá-. A síðustu árum kenndi Gunnar Snorri sér nokkurs meins, en þrátt fyrir það kom kallið mjög snöggt. Ég átti þess kost að heimsækja hann stuttu fyrir andlátið og var hann mjög hress. Ekki datt mér í hug að þetta yrði síðasta heimsókn- in. Ég vil þakka Gunnari Snorra fyrir samveruna þessi ár. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, Margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (Vald. Briem) Guðm. Einar Jónsson Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum! Blaðbaar óáast Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Háteigsvegur Austurgerði o.fl. Laugarásvegur 39-75 RAFSTÖÐVAR í stærðunum 2,2 kw; 4,5kwog35kw fyrirliggjandi. Höfum einnig fyrirliggjandi: Mótahreinsivélar. Steypuhrærivélar. Rafmagnstalíur. Flísasagir. Loftþjöppur. Verkstæðiskrana. SALA-SALA-SALA-SALA LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA VÉLA- OG PALLALEIGAIM Sími 687160. Fosshálsi 27, Reykjavík. VETRAR DEKKIN Nú er veturinn framundan og tímabært aö búa bílinn til vetraraksturs. Athugaðu vel kosti þess að aka á ónegldum vetrarhjólbörðum. Þeim fækkar stöðugt sem aka á negldum. Farðu varlega! Gatnamálastjórinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.