Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 29 ísrael: Verkamannaflokk- urinn býst við yfir- lýsingn frá Jórdönum Tel Aviv. Reuter. TALSMENN Verkamannaflokksins í ísrael sögðu í gær að búast mætti við að Hussein Jórdaniukonungur væri að undirbúa yfírlýsingu um frið fyrir botni Miðjarðarhafs. Yfírlýsingin, sem þeir áttu von á innan tveggja sólarhringa, gæti haft mikil áhrif á kosningabaráttuna í í srael. „Það er rétt að við höfum haft af samstundis mælast til þess að friðar- því fregnir að hugsanlegt er að Hus- sein Jórdaníukonungur sé að und- irbúa yfírlýsingu sem gæti haft mik- il áhrif á framvindu kosningbarát- tunnar í ísrael," sagði flokksfélagi úr Verkamannaflokknum sem vildi ekki láta nafns síns getið. Heimildir frá ísrael herma að Shimon Peres utanríkisráðherra hafi komist að leynilegu samkomulagi við Hussein Jórdaníukonung í apríl 1987 í London um friðarráðstefnu fyrir botni Miðjarðarhafsins en Yitzhak Shamir forsætisráðherra hafí komið í veg fyrir að ráðstefnan yrði haldin. „Að sjálfsögðu fögnum við yfirlýs- ingum frá Jórdaníu þess efnis að stjómvöld séu tilbúin að hefja að nýju friðarumleitanir," sagði annar félagi úr Verkamannaflokknum. Shimon Peres hefur margítrekað síðastliðna viku að verði flokkur hans sigurvegari kosninganna muni hann ráðstefna verði haldin fyrir botni Miðjarðarhafsins. Yitzhak Shamir sagði á hinn bóginn að Líkud-flokk- urinn myndi beija niður uppreisn Palestínumanna yrði flokkurinn við völd eftir kosningamar 1. nóvember. í gær efndu Palestínumenn á hem- umdu svæðunum til allsheijarverk- falls til að mótmæla árásum ísrael- skra landnema. Verslanir vom lokað- ar, samgöngur stöðvuðust og verka- menn héldu sig heima til að mót- mæla því að ísraelskir landnemar hafa gengið til liðs við hermenn í árásum þeirra á Palestínumenn. Um 70.000 ísraelskir landnemar búa á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu sem ísraelar hertóku í stríði þeirra við Jórdaníu og Egyptaland árið 1967. Reuter Franska tímaritið Le Canard Enchaine: Franskir flugmenn liðsinntu Irökum ParÍH. Reuter. FRANSKIR flugmenn þjáifuðu íraska flugmenn og fóru með þeim í njósnaflug, meðan Persaflóastriðið stóð yfir, að því er franska tímari- tið Le Canard Enchaine sagði i gær. Tímaritið, sem er þekkt fyrir upp- ljóstranir á sviði hermála, segir, að franskar Mirage-þotur búnar Exoc- et-flugskeytum hafi verið notaðar til árása á olíumannvirki írana. Ekki kvaðst blaðið hafa heimildir um, hvort franskir flugmenn hefðu verið með í þessum árásarferðum. Embættismenn í franska vamar- málaráðuneytinu hafa ekkert viljað segja um efini fréttarinnar, sem gæti komið stjómvöldum stórilla, ef sönn reyndist. Hemaðarsérfræðingar segja, að Exocet-flaugamar hafí vemlega bætt stöðu íraka í styijöldinni við írana. Le Canard Enchaine segir, að fimm herþotur hafí farið frá Frakk- Starfsmenn flugmálayfirvalda á Indlandi kanna brak úr Boeing 737 þotu Indian Airlines sem fórst í gær. 135 manns voru um borð í vélinni og komust fímm lífs af. Indland: Reutcr landi 1983 og verið málaðar í litum íraska hersins um borð í frönsku flugmóðurskipi. Franskir hermenn flugu þotunum til íraks og vom í búningum, sem öll einkennismerki höfðu verið tekin af. Þegar til íraks var komið fóm sjö frönsku flugmann- anna í æfinga- og njósnaflug með íröskum starfsbræðmm sínum, að sögn blaðsins, auk þess sem franskir ráðgjafar og tæknimenn aðstoðuðu við gerð jflugáætlana fyrir árásar- ferðir til írans. Þannig hafí margar af árangursríkustu árásum íraka í styijöldinni verið famar á frönskum Mirage-þotum, en íranar töldu, að olíumannvirkin væm utan seilingar íraska flughersins. 165 manns farast í tveimur flugslysum Reuter Njgju Delhí. Reuter. TVO alvarleg flugslys urðu á Indlandi í gær. Samtals fórust 165 manns í slysunum. Átján ára gömul Boeing 737 þota Indian Airlines á leið frá Bombay skall til jarðar fimm km frá flugvell- inum í AJimadabad, stærstu borg Gujarat-ríkis á Vestur- Indlandi. Einungis fimm af 135 mönnum um borð komust lífs af í þessu versta flugslysi í inn- anlandsflugi á Indlandi. Skömmu síðar fórst Fokker Friendship flugvél í Assam-ríki með 35 manns innanborðs. Flestir um borð í Boeing- þotunni vom Indveijar auk tveggja Japana og fimm manna af ókunnu þjóðemi. Sjónarvottar að slysinu sögðu að flugvélin hefði rekist á tré og háspennulínu áður en hún skall til jarðar. Flugmála- yfírvöld segja að slysið megi e.t.v rekja til slæms skyggnis. Tveimur klukkustundum eftir flugslysið í Gujarat missti flugtum í Gauhati í Assam-ríki samband við 25 ára gamla Fokker Friends- hip-flugvél flugfélagsins Vayudo- ot, sem er næststærsta flugfélag Indlands sem flýgur innanlands- flug. Allir um borð, 35 manns fór- ust. í gær var ekkert vitað um orsakir slyssins. Þetta fólk kom í gær saman í Downing-stræti til að mótmæla bann- inu við viðtölum við irska öfgamenn. Bretland: Banna víðtöl við írska öfgamenn London. Reuter. BRESKA sljómin bannaði í gær að útvarpa eða sjónvarpa viðtölum við fólk, sem styður ofbeldisverkin á Norður-írlandi. Hefrir stjórnar- andstaðan gagnrýnt bannið harðlega og segir, að með þvi hafi IRA, írska lýðveldishernum, verið afhent beitt áróðursvopn. Sjónvarpsstöðvum er bannað að senda út „beinar yfírlýsingar full- trúa þeirra samtaka, sem bönnuð eru á Norður-írlandi og Bretlandi" og þeirra, sem eru félagar í Sinn Fein, pólitískum armi IRA, eða Vamarsamtökum Ulsters, samtök- um öfgafullra mótmælenda á N- íriandi. Breska stjómin hefur heitið að svipta IRA og aðra málsvara of- beldisins því, sem hún kallar „súr- efni eða lífsloft athyglinnar", frjáls- um aðgangi að fjölmiðlunum, en Roy Hattersley, varaformaður Verkamannaflokksins, sagði, að þessi ráðstöfun væri ekki til neins, hún kæmi bara stjóminni sjálfri í koll. Talsmenn Sinn fein og IRA hafa eins og að líkum lætur mót- mælt hástöfum og borgararéttinda- nefndin breska hefur gert það einn- ig- Arsskýrsla Alþjóðahermálastofiiunarímiar: Ekki vart samdráttar í hefðbundnum vígbún- aði Sovétmanna í Evrópu London. Daily Telegraph. ENNÞÁ er hefðbundinn heraflí Sovétmanna i Evrópu meiri en samræmist þvi yfirlýsta viðhorfi Míkhafls Gorbatsjovs Sovétleið- toga í afvopnunarmálum að komast eigi af með „minnsta nauðsyn- legan vígbúnað," segir i ársskýrslu Alþjóðahermálastofhunarinn- ar i London (International Institute for Strategic Studies) um jafiivægi i vígbúnaði. „Hefðbundinn herafli Sovétríkjanna milli Atlantshafs og Úralfialla, einktun i fremstu víglínu, er ekki ein- ungis meiri en nauðsynlegar vamir rikisins krefjast heldur hent- ar fyrirkomulag hans vel til skjótrar og fyrirvaralitillar sóknar eða gagnsóknar,“ segir ennfremur í skýrslunni. í skýrslunni er ekki borinn sam- Spánveijar hafa bætt einu flug- an herstyrkur Varsjárbandalags- móðurskipi, Principe de Asturias, ins og Atlantshafsbandalagsins við flota sinn og Bretar hafa tek- en að mati stofnunarinnar hefur lítið breyst { þessu efni undanfar- ið ár NATO í hag. Má nefna að Vestur-Þjóðveijar hafa tekið 200 nýja Leopard 2 skriðdreka í notk- un og breska hemum í Rínar- héruðunum hefur bæst eitt bryn- drekastórfylki. Stöðug fækkun vestur-þýskra karla á herskyldualdri leiðir fyrir- sjáanlega til þess að þýski herinn verður að draga úr styrk sínum. Til stendur að lengja herskylduna þar í landi um þijá mánuði. Við flugher NATO-ríkja hefur bæst ein sveit Tomedo-orrustu- þotna á Bretlandi, nokkrar Mirage 2000 þotur á Grikklandi og AM- X-flugvélar á Ítalíu. ið þijár nýjar freigátur í notkun og fímmta kjamorkuknúna kaf- bátinn af Trafalgar-gerð. Endumýjun lq'amorkuvopna NATO-ríkja hefur haldið áfram á árinu. Frakkar hafa pantað fyrsta. kafbátinn af nýrri gerð sem ber langdrægar kjamaflaugar og Bretar vinna að smíði síns annars Trident-kjamorkukafbáts. í skýrslunni segir að líklegt sé að í kjölfar samkomulags risaveld- anna um útiýmingu skamm- og meðaldrægra flauga á landi legg- ist kjósendur í NATO-ríkjum { vaxandi mæli gegn skattahækk- unum til að standa straum af endumýjun kjamorkuvopna og hefðbundinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.