Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 p O R ISL/ H iND HÖNNUN STAÐA OG HORFUR Að tilstuölan lönaöarráöuneytisins veröur haldin vinnuráöstefna um hönnun í Borgartúni 6, laugardaginn 22. október kl. 13.00. DAGSKRÁ: 13.00 Ávarp iðnaöarráðherra, Jóns Sigurðssonar. 13.15 Þórdís Kristleifsdóttir, þróun Moss-linunnar. 13.30 Ágúst Þór Eiriksson, islensk hönnun til útflutnings. 13.45 Gísli B. Björnsson, grafísk hönnun. 14.00 Geirharður Þorsteinsson, hannað umhverfi. 14.30 Örn D. Jónsson, aukið mikilvægi hönnunar. 14.45 Kaffihlé. 15.00 Earl N. Powell, Industrial Development by Design. 15.45 Umræðuhópar. 16.30 Niðurstaða umræðuhópa. 16.50 Ráðstefnuslit. Aðgangur er ókeypis og eru allir sem áhuga hafa á hönnun boðnir velkomnir. Bretadrottning í Madríd Reuter FORM ÍSLAND IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ Skólaböm með breska fánann taka á móti Elísabetu 2. Bretadrottningu fyrir utan ráðhúsið i Madríd. Þar þáði hún Gullna lykil borgarinnar úr hendi borgaryfirvalda. KÆLI' OG FRYSTISKÁPUR Samt. stærö: 275 1. Frystihólf: 45 I. ★★★★ Hæö: 145 sm. Breidd: 57 sm. Dýpt: 60 sm. Færanlegar hillur í hurö. Sjálfvirk afþýðing í kæli. Vinstri eöa hægri opnun Fullkomin viðgerða- og varahlutaþjónusta. Heimilis- og raftækjadeild ca HEKLA HF Laugavegi 170-172 Sími 695500 Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði og efnafræði: Baiidaríkjamenn og V estur-Þj óð verj ar verða fyrir valinu Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKA visindaakademían tilkynnti í gær að Bandaríkjamennirn- ir Leon Lederman, Melvin Schwartz og Jack Steinberger hlytu Nóbelsverðlaunin i eðlisfræði i ár fyrir rannsóknir á fiseindum. Vestur-Þjóðveijamir Johann Deisenhofer, Robert Huber og Hartmut Michel hlutu Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir rann- sóknir tengdar ljóstillifun. Akademían skýrði frá því að bandarísku eðlisfræðingamir hefðu gert uppgötvanir sem auð- velduðu frekari rannsóknir á veika kjamakraftinum - einum af fjór- um frumkröftum náttúrunnar. Einn verðlaunahafanna, Leon Led- erman, sagði að rannsóknir þeirra megi rekja til ársins 1961. „Þá uppgötvuðum við fiseindina - ör- eind sem erfíðast er að greina vegna þess að hún hefur ekki raf- hleðslu." Gösta Ekspong, formaður eðlis- fræðinefndar sænsku vísindaaka- demíunnar, sagði að rannsóknir þremenninganna hefðu breytt hugmyndum vísindamanna um samsetningu efnisins. „Áður var almennt talið að öreindin væri samsett úr þremur eindum - að þijár deildu sama rúmi. Uppgötv- un Bandaríkjamannanna leiddi hins vegar í Ijós að öreindimar mynda tveggja einda flölskyldur." Rannsóknir bandarísku verð- launahafanna voru undirbúnar í Kólumbíu-háskóla í New York á sjöunda áratugnum og fram- kvæmdar í Brookhaven-rann- sóknastofnuninni á Long Island. Lederman, er yfírmaður Fermi- rannsóknastofunnar í Batavia, nálægt Chicaco. Schwartz er fyrr- um prófessor við Kólumbíu- háskóla og Stanford-háskóla og rekur eigið fyrirtæki sem fæst við tölvusamskipti í Mountain View í Kalifomíu. Steinberger starfar við rannsóknastofur Kjamorkurann- sóknaráðs Evrópu, CERN, nálægt Genf. Vísindaakademían skýrði frá því að vestur-þýsku efnafræð- ingamimir þrír væm þeir fyrstu sem tekist hefði að skýra hvemig ljóstillífun verkar. Ljóstillífun er efnaferli þar sem blaðgræna virkj- ar sólarorku til að framleiða lífræna næringu úr koldíoxíði og vatni. Bo Malmström, prófessor við Gautaborgarháskóla og form- aður efnafræðinefndar konung- legu sænsku akademíunnar, sagði að uppgötvun Vestur-Þjóðverj- anna gæti stuðlað að lausn á ork- uskortinum í heiminum. „Upp- götvunin er afar mikilvæg því ljós- tiliífunin er mikilvægasta efna- hvarfíð á jörðinni," sagði prófess- orinn. „Við munum þurfa á sólinni að halda í framtíðinni til að leysa orkukreppuna í heiminum. Upp- götvunin er fýrsta skrefið í átt til tilbúinnar ljóstillífunar sem gæti stuðlað að lausn orkukreppunnar." Huber og Michel starfa við útibú Max Planck-stofnunarinnar í Vestur-Þýskalandi, en frá þeirri stofnun hafa fjölmargir Nóbels- verðlaunahafar komið, þar á með- al Albert Einstein. Deisenhofer starfar við Howard Hughes- læknastofnunina í Dallas í Texas.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.