Morgunblaðið - 20.10.1988, Page 12
I
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Vefir og útbygging
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Þau virðast vera mörg vandamál-
in, sem verða á vegi nútíma veflistar-
kvenna, sem vilja vera virkar í tíman-
um.
Þetta kemur greinlega fram í vefj-
um Guðrúnar Gunnarsdóttur i
hálfum vestursal Kjarvalsstaða, en
þar sýnir hún á móti Sigrúnu Eldjám
fram til 23. október.
Guðrún er tvímælalaust slyngur
og hugmjmdaríkur vefari enda út-
skrifuð úr verkstæði hinnar ágætu
listakonu Kim Naver í Kaupmanna-
höfn, sem er ein fremsta listakona
Norðurlanda á þessu sviði. Ekki sé
ég þó bein áhrif frá lærimeistaranum
nema í ákaflega vönduðum vinnu-
brögðum og hreinni og skýrri tilfinn-
ingu fyrir einfaldleikanum í lit og
formi.
Guðrún hefur tekið þátt í miklum
Qölda samsýninga heima og erlendis
og verið mjög virk í félagsmálum
veflistarkvenna, var m.a. einn af
stofnendum Gallerís Langbrókar á
sinum tíma.
Að þessu sinni færist Guðrún
meira í fang en nokkru sinni áður,
vefir hennar eru stórir og miklir vilji
til átaka á bak við þá. Henni nægir
og ekki hið sígilda form, heldur ræðst
hún á útbyggingar ýmis konar, sem
á stundum ganga beint út úr aðal-
forminu, en í öðrum tilvikum virka
líkast sjálfstæðum einingum, er eiga
að styrkja og styðja aðaiformið.
Leikurinn er mjög áhugaverður,
en um leið vandasamur og þannig
er ijarri því, að gangi alltaf upp. A
stundum tekur aukaformið hreinlega
völdin af aðalformunum eða virkar
sem óþarfa aðskotahlutur, svo sem
í teppinu „Umbrot" (1). Hugmyndin
er hér mjög athyglisverð, en eitthvað
vantar í útfærsluna — sjálft teppið
er svo prýðilegur vefur. Annað dæmi
en af öðrum toga er hið stóra teppi
„Brák“ (6), þar sem hinir þrír sterk-
litu femingar, er ganga út frá því
til hægri hliðar (rautt, blátt og gult),
draga athyglina frá annars mjög
mögnuðu teppi.
Hið einfalda og magnaða teppi
„Ljós í myrkri" (10), sem stendur
eitt og sér og sækir allar lífeindir
sínar í sjálfa sígilda umgjörðina er
ekki aðeins einn af hápunktum sýn-
ingarinnar heldur einnig í sjálfu sér
nútímalegast. Við hlið þess er annað
svart teppi, sem er engu síðra, ef
ekki kæmi til ankannaleg útbygging.
En hins vegar er ég einna sáttastur
við teppið þar við hliðina og út-
byggingu þess „Sólarlag" (12) fyrir
það, hve einfalt og formhreint það er.
Það sem hreif mig annars mest á
þessari sýningu var, hve vel Guðrún
Gunnarsdóttir fer með svart, —
hreint afbragðsvel...
Sverrir Ólafsson myndhöggvari við málaða lágmynd.
Drósir og svartigaldur
Háspekileg alvara er góð og gild
í mjmdlistinni, að ekki sé minnst á
þurrpumpuleg leiðindi, sem mörg-
um þykir sjálfur gimsteinninn í
túrban listarinnar. En þar fyrir skal
ekki með öllu fortekið, að sprell og
spé eigi ekki erindi inn á gróðurvin
lifandi listar og af þeim meiði spretti
ekki einnig lifandi blóm. Fremstur
í flokki þeirra íslenskra mótunar-
listamanna, er vilja gera hlé á þrúg-
andi alvörunni og bregða á óhaminn
náttúruleik með lífsgleðina og ólg-
andi blóð í skrokknum að leiðar-
ljósi, er óefað Sverrir Ólafsson.
Fyrir fáum árum sýndi hann í
austurgangi Kjarvalsstaða og þótti
það framtak nýstárlegt, og höfðu
margir gaman af, enda var það
hressilegt framtak. Nú er Sverrir
aftur kominn með myndverk sín á
Kjarvalsstaði, en hefur flutt sig eina
alin austar og sýnir í sjálfum virðu-
legum Kjarvalssal.
A sýningunni eru 16 mótunar-
verk (skúlptúrar), og kennir þar
ýmissa grasa, — listamaðurinn hef-
ur aukið við tæknisvið sitt, auk
þess sem hann vinnur nú í fjöl-
breyttari efnum eða jámi, stáli, tré,
kopar og bronsi.
A sýningunni eru gamalkunn
myndefni skrýtinna andlita, furðu-
dýra og lostafullra drósa, en einnig
eru á sýningunni myndir, þar sem
kveður við nýjan tón og meira er
mótað beint í formið, og þykja mér
þau verk hvað athyglisverðust.
Nefni ég hér verk eins og „Pfla“
(3), sem unnin er í jám, „Einn tveir
og þrír“ (4), í olíu og stáli, „I kröpp-
um dansi" (7) í kopar og tré,
„Svartigaldur" (10) í kopar og tré
og sem er sennilega listrænust
mjmda á sýningunni, og loks „Fjör-
fés“ (14), sem unnin er í jám.
Öll þessi verk bera það með sér,
að Sverrir lætur ekki deigan síga í
listsköpun sinni þrátt fyrir ýmsa til-
fallandi erfiðleika og er að auki í
mikilli sókn. Verkin á sýningunni
vísa til frumstæðra og upprunalegra
kennda, sem sveija sig í ætt við
sjálft iðandi mannlífíð, og hér er
ekki verið að klæða hlutina í neinar
fræðilegar umbúðir, heldur gengið
beint til verks — allt látið gossa á
fullu í allsheijar fílingu líkt og ung-
ir mæla og ekki hugsað um afleið-
ingamar né hvað brúnaþungir fræð-
ingamir né við misvitrir listrýnend-
umir segjum. Og slíkur óhaminn
leikur, sem er í ætt við höfuðskepn-
umar, er líklegur til að skila ár-
angri, fái hann óhindraður og eðlis-
bundið að þróast og æsast...
Kínverskur einleikari
á sinfóníutónleikum
eftir Rafh Jónsson
Á ÖÐRUM reglulegum tónleik-
um Sinfóníuhlj ómsveitar islands
í kvöld verða þijú verk flutt;
Sinfónía nr. 29 eftir Mozart,
Fiðlukonsert í D-dúr K. 218 eft-
ir Mozart og að Iokum Sinfónfa
nr. 4 eftir Carl Nielsen. Stjóm-
andi á tónleikunum verður
bandaríski hljómsveitarstjórinn
George Cleve.
Upphaflega átti að frumffytja
Flautukonsert eftir Þorkel Sigur-
bjömsson á þessum tónleikum, en
af því getur ekki orðið af óviðráð-
anlegum ástæðum. Fyrirhugað er
að frumfljdja þetta verk á tónleik-
um hijómsveitarinnar 2. mars nk.
í stað flautukonsertsins verður
Fiðlukonsertinn eftir Mozart flutt-
ur og ungur, kínverskur flðluleik-
ari, Hu Kun að nafni, leikur einleik.
Frábær fíðluleikari
Hu Kun er aðeins 25 ára, fædd-
ur í Kína 1963. Hann hóf nám í
fiðluleik hjá föður sínum, sem er
prófessor í Tónlistarháskólanum í
Szechuan í Kfna. Aðeins 14 ára
að aldri hélt hann tónleika víða i
Kína og lék inn á hljómplötur og
i útvarps- og sjónvarpsupptökum.
1979 vann hann fyrstu verðlaun í
undankeppni í Kína fyrir Alþjóð-
legu Sibelíusarkeppnina. í henni
vann hann flmmtu verðlaun, aðeins
17 ára að aldri og var um leið
fyrsti Kínveijinn sem vann alþjóð-
leg verðlaun í alþjóðlegri fíðlu-
keppni. Við þetta tækifæri lék
hann fyrir flnnska útvarpið og
sjónvarpið.
1981 hóf hann nám í Aðaltón-
listarháskólanum í Peking, undir
Hu Kun, fiðluleikari.
handleiðslu Lin Yiaoji, sem hafði
áður kennt honum. Næsta ár lék
hann í óperu- og ballethljómsveit-
unum og einnig í aðalfflharmóníu-
hljómsveitinni ýmis verk eftir Moz-
art, Síbelíus, Tsjajkovskíj og Khat-
sjatúijan.
Næst lá leiðin til Sviss, en hann
hlaut styrk til náms þar í Alþjóða
Menuhin-tónlistarháskólanum.
Þegar þangað var komið opnuðust
leiðir fyrir hann á alþjóðavett-
vangi, oft í samvinnu við Yeduhi
Menuhin, þar sem hann hefur hlot-
ið flölmörg verðlaun og viðurkenn-
ingar, sem of langt mál yrði að
telja upp. Hann hefur leikið víða
í Evrópu á tónleikum og við út-
varps-, sjónvarps- og hljómplötu-
upptökur. í fyrra hélt Hu Kun í
tónleikaferðalag til Japans, Sin-
gapore og Kanada.
George Cleve, hljómsveitar-
stjóri.
Tónlistargagnrýnendur hafa
hælt Hu Kun á hvert reipi fyrir
frábæra túlkun á þeirri tónlist sem
hann ieikur hveiju sinni og full-
komið vald hans yflr flðlunni. Það
verður því gaman að hlusta á túlk-
un þessa unga manns, sem kemur
úr rótgróinni austrænni menningu,
túlka tónlist Mozarts í Fiðlukon-
sertinum.
Mozart
Allir vita að Mozart var einstak-
lega afkastamikið tónskáld, en það
er erfitt að ímjmda sér að hann
var ekki orðinn tvítugur þegar
hann hafði skrifað á þriðja tug
sinfónia og nokkra einleikskon-
serta auk fjölda annarra verka.
Stfll hans átti eftir að hafa afger-
andi áhrif á tónskáld seinni tíma.
Sinfónía nr. 29 eftir Mozart kemur
í staðinn fyrir Sinfóníu nr. 93 eft-
ir Haydn, sem upphaflega var á
efnisskránni. Þetta verk skrifaði
Mozart aðeins 18 ára að aldri.
Fiðlukonsertinn í D-dúr K. 218
skrifaði hann 1775, þá 19 ára.
Bæði þessi verk einkenna léttleika
æskumannsins og hrífa áheyrend-
ur með undurfögrum laglínum.
Dönsk sinfónía
Lokaverkið á tónleikunum verð-
ur Sinfónía nr. 4 eftir danska tón-
skáldið Carl Nielsen.
Carl Nielsen fæddist á Fjóni,
rétt hjá Óðinsvéum 1865 og í æsku
lék hann á fiðlu og trompet. Á
þessum árum vann hann einnig
nokkuð við tónsmíðar, sem nægðu
til þess að hann fékk aðgang að
Konunglega tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn, þar sem hann
nam tónsmíðar, flðluleik og tónlist-
arsögu. Hann vann sem hljóm-
sveitarstjóri, t.d. stjómaði hann í
Konunglegu Óperunni í Kaup-
mannahöfn og einnig stjómaði
hann hljómsveitum á meginl-
andinu. Hann var einnig í forsvari
fyrir Tónlistarfélagið í Kaup-
mannahöfn um árabil.
Ifyrstu tónverk Carls vom skrif-
uð með rómantísku ívafi undir
áhrifum frá Gade, Grieg, Brahms
og Liszt en er fram liðu stundir
tók hann æ meiri þátt í framgangi
nútímatónlistar. Carl Nielsen hefur
stundum verið kallaður Síbelíus
Danmerkur. Þessi tvö tónskáld
eiga þó fátt sameiginlegt, annað
en að vera með þekktustu tón-
skáldum þjóða sinna. Síbelíus sótti
efnivið sinn í finnsk þjóðlög en
tónlist Carls Nielsens hefur enga
tilvísun í danska tónlistarhefð. Sin-
fónía nr. 4 nefndi hann Det Uuds-
lukkelige, Hið óslökkvandi, og var
hún skrifuð í hringiðu fyrri heims-
styijaldarinnar á árunum 1915-
1916.
Tónleikamir hefjast klukkan
20.30 eins og venjulega.
Höfundur er bl&ðafulltrúi Sin-
fóniuhfjómaveitarinnar.
Nýr sam-
starfssátt-
máli ríkis og
sveitarfélaga
GENGIÐ hefúr verið frá þriðja
samstarfssáttinála ríkis og sveit-
arfélaga, sem gildir sinni til árs-
loka 1990.
I samningnum em m.a. ákvæði
um að ríki og sveitarfélög sam-
ræmi, eftir því sem kostur er, stefnu
sína í opinberum rekstri, með það
fyrir augum, að unnt verði að ná
þeim efnahagsmarkmiðum, sem
ríkisstjómin og Alþingi ákvarða á
hveijum tíma. Þá er fyrirhugað að
koma á formlegu samstarfí aðila,
með það fyrir augum að ná þessari
samræmingu. Reglulega- samráðs-
fundi skal halda tvisvar á ári, í lok
apríl og október. Af hálfu ríkisins
taka þátt í þeim ráðherrar félags-
mála, fjármála, menntamála og
heilbrigðismála og staðgenglar
þeirra, ásamt fulltrúum frá Þjóð-
hagsstofnun. Af hálfu sveitarfélaga
situr stjóm Sambands íslenskra
sveitarfélaga fundina.
Síðasti samstarfssáttmáli aðila
rann út um áramótin 1987-1988
og var þá frá hendi Sambands
íslenskra sveitarsveitarfélaga ekki
áhugi á endumýjun á þeim tíma.
Kom þar m.a. til skerðing Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga, skert álagning
útsvara og verkaskiptamál. í sumar
samþykkti stjóm Sambands
íslenskra sveitarfélaga að taka á
ný þátt í því samstarfí sem gert er
ráð fyrir í sáttmálanum og rejma
þannig að þoka fram hagsmuna-
málum sveitarfélaga, að því er seg-
ir í frétt frá sambandinu. Þar kem-
ur einnig fram, að nú fer í hönd
haustfundur ríkis og sveitarfélaga,
þar sem m.a. verður fjallað um
ástand og horfur í efnahags- og
atvinnumálum, svo og fjármál
næsta árs.