Morgunblaðið - 20.10.1988, Side 17

Morgunblaðið - 20.10.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 17 að bæta umferðina hjá okkur. Tryggingafélögin hafa þó reynt að leggja sitt af mörkum í því efni með átakinu Fararheill á sl. ári en það er ljóst að hér þarf stærra og sameinað átak þjóðarinnar. Aðrar greinar eru mjög sveiflu- kenndar, sum árin eru góð og stundum koma mörg stórtjón, skipsskaðar eða brunatjón á stutt- um tíma. Þetta er sú áhætta sem tryggingafélögin taka og því stærra og öflugra sem félag er þeim mun betur er það í stakk búið til að mæta þeim áföllum sem við má búast þegar tjón eru annas vegar og því verða viðskiptavinir að geta treyst. Og alhliða tryggingafélag getur ekki svo auðveldlega hætt að starfrækja eina tryggingagrein af því að hún gengur illa — við verðum bara að finna leiðir til að standa okkur betur. Ef það tekst og ef hægt er að draga úr tjónum er það ekki bara kostur fyrir félagið - við- skiptavinurinn fínnur það strax í iðgjöldum sínum. Eina tryggingagreinin sem við höfum losað okkur út úr í gegnum árin eru erlendar endurtryggingar. Þær komu til á árunum kringum 1960 og gátu gefíð af sér allgóðan hagnað. Þá var þensla á þessum markaði víða erlendis og við og ýmis önnur íslensk tryggingafélög nýttum okkur það. Eftir 1970 fór hins vegar að syrta í álinn og nokkr- um árum síðar sögðum við upp þessum tryggingum. Það tekur hins vegar mörg ár að losna alveg við þessar skuldbindingar og fá endan- legt uppgjör. Samkeppni í þjónustunni Er samkeppni meiri nú en fyrr á árum? — Ég held að hún sé svipuð og hún hefur alltaf verið mikil. Kannski var hún persónulegri hér áður fyrr. Þessi árin snýst hún meira um það að veita ýmsa nýja þjónustu á sviði fyrirtækjatrygg- inga og mér sýnist svipað vera að gerast á sviði einstaklingstrygg- inga. Nú er verið að bjóða fjöl- breyttari einstaklings- og flöl- skyldutryggingar eða pakkatrygg- ingar og félögin keppast vissulega um að bjóða sem hagstæðust ið- gjöld. Við erum nýkomnir á mark- aðinn með slíka tryggingu sem við köUum Gullvemd. Islenskur tryggingamarkaður stækkar ekki svo mjög úr þessu og þess vegna beinist samkeppnin nú meira að þjónustunni og því að fínna nýjar leiðir. Þarf að sameina tryggingafélög eins og sífellt er verið að tala um varðandi bankana? — Það kemur vissulega til greina að einhverju leyti. Það er ljóst að stór félög eru betur í stakk búin að ná niður rekstrarkostnaði en lítil félög. Þetta er lykilatriði í rekstri í dag. Við tókum við rekstri Hag- tryggingar hf. fyrir nokkmm árum og rekum það sem sjálfstætt félag. Ég geri ráð fyrir því að fyrr eða síðar verði rekstur þess sameinaður Sjóvá alveg. Því má alltaf búast við því að minni tryggingafélögin lendi hjá þeim stærri með einum eða öðmm hætti. Eru tryggingasvik tíð? — Nei, Jþau em að mínu mati sjaldgæf. Ég held að í langflestum tilvikum sé svo um hnúta búið að erfítt sé að svíkja fé út úr trygging- um þótt ekki sé kannski hægt að útiloka þau. Tryggingafélög þurfa að fylgjast vel með því sem þau em að tryggja þegar tryggja skal t.d. nýtt fyrirtæki eða því um líkt, þá fömm við á staðinn og metum áhættuna og hvort farið er eftir reglum um brunavamir óg þar fram eftir götunum. Svipað má segja um annars konar stórverkefni á trygg- ingasviðinu. Þannig reynum við að tryggja að gáleysi eða vanræksla valdi ekki óþarfa tjóni. í stjóm fyrirtækisins sitja nú: Benedikt Sveinsson hrl. er formað- ur, Ágúst Pjeldsted hrl. varafor- maður, Kristinn Bjömsson fram- kvæmdastjóri, Teitur Finnbogason fulltrúi og Kristján Loftsson for- stjóri. ■■ HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Síðasti séns!! Já, ef þú ert kominn með prófskrekk út af haustannarprófunum, þá færðu nú tækifæri til að bjarga þér fyrir hom. Það getur þú gert með því að drífa þig á siðasta hraðlestramámskeið ársins sem hefst miðvikudaginn 26. október nk. Á námskeiðinu geturðu lært að margfalda lestrarhraðann í öllu lesefni með betri eftirtekt á innihald þess en þú hefur áður vanist. Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 i síma 641091. HRAÐLESTRARSKÓLINN ■EíH TÚRBÍNUR Getum boðið aflager vatnsafístúrbínur til raforkuframleiðslu. Stærðir: Teg. 10: 30-600 vött Teg. 20: 120-2000 vött Teg. „PELTAX Vertical“: 1-15 kv Stöðvarnar eru fyrir fallhæð 10-15 mtr og flæði 0,6-45 Itr/sek. Hentugar þar sem lækir eru í nágrenni sumarbústaða eða við minni býli. VERTU ÖRUGGUR NOTAÐU jDRAY STIGA EÐA TRÖPPUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.