Morgunblaðið - 20.10.1988, Síða 36
Akureyri - Reykjavík:
Lj ósleiðarasambandi
komið á næsta sumar
Lagning ljósleiðarastrengs frá Sauðárkróki til Akureyrar er nú á
lokastigi á vegum Póst- og símamálasto&iunarinnar. Framkvæmdir
. hófust í lok júlímánaðar og heflir nú verið lagður strengur í um
!> 113 km leið. Heildarkostnaður við verkið mun vera tæpar 65 milljón-
ir króna sem skiptist þannig að rúmar 48 miljjónir eru áætlaðar í
strengi og Iagnir og rúmar 16 milljónir í búnað.
Lögnin er hluti af þeirri áætlun sambandi á milli Akureyrar og
stofnunarinnar að koma á stafrænu Reykjavíkur. Nú þegar er búið að
ganga frá ljósleiðurum i gær á mótum Strandgötu og Glerárgötu.
Hér eru þeir við tengiholu, þar sem um fara strengir í Sjallann og
Samver.
leggja ljósleiðara milli Akraness og
Borgamess, milli Blönduóss og
Sauðárkróks, frá Reykjavík til Sel-
foss og Hvolsvallar og frá Egils-
stöðum til Réyðarfjarðar, Eskifjarð-
ar og Neskaupstaðar. Ennfremur
er stafrænt samband á milli
Reykjavíkur og Akraness og lokið
er lagningu ljósleiðara milli allra
símstöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Þá hafa starfsmenn Pósts og síma
unnjð við lagningu ljósleiðara í
Sjallann og Samver í vikunni svo
auðvelda megi beinar sjónvarps-
sendingar þaðan.
Næsta sumar standa vonir til að
hægt verði að ljúka tengingu á staf-
rænum samböndum milli Akureyrar
og Reykjavíkur með lagningu ljós-
leiðara milli Borgamess og Blöndu-
óss í gegnum Búðardal. Vegalengd-
in nemur alls 169 km. Með tilkomu
ljósleiðaranna fjölgar samböndum
milli landshluta. Þeir auka á þann
möguleika að senda sjónvarps- og
útvarpsefni milli landshluta, annað-
hvort fyrir almenning eða milli
einkaaðila til dæmis í sambandi við
fjarkennslu og sjónvarpsfundi svo
dæmi séu tekin.
Leiðin, sem nú er nýlokið við,
liggur frá Akureyri í átt að Björgum
og þaðan f norður til Dalvíkur. Frá
Dalvík var strengurinn lagður fram
Svarfaðardal og yfír Heljardalsheiði
og Kolbeinsdal, Viðvíkursveit og
yfír Hegranes til Sauðárkróks.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Þorsteinn Konráðsson og Ingimar Eydal félagar í Kiwanisklúbb-
num Kaldbak ásamt deildarstjóranum á Seli, Antoniu Lýðsdótt-
ur. Eftir afhendinguna var nýja kaffíbollastellið vigt og mun
kaffíð hafa smakkast afbragðs vel, að sögn Ingimars Eydal.
Hjúkrunarheimilið Sel:
Vistmenn fá kaffibolla-
sett frá kiwanismönnum
Kiwanismenn á Akureyri gáfu um síðustu helgi vistmönnum á
hjúkrunarheimilinu Seli 50 manna kaffíbollasett. Ingimar Eydal
félagi í kiwanisklúbbnum sagði að þeim félögunum hefði þótt
við hæfí að gefli heimilinu svona sparisett til nota við hátíðlegri
tækifæri.
„Kiwanisklúbburinn er nú að
verða 20 ára og eiga félagsmenn
ef til vill eftir að gista þama ein-
hvem tímann svo við emm líka
að búa í haginn og vonum svo
sannarlega að eitthvað af stellinu
verði óbrotið þegar að okkur kem-
ur,“ sagði Ingimar.
Á næstunni ætla félagsmenn í
Kaldbak að minnast 20 ára af-
mælis klúbbsins með fagnaði og
ennfremur er meiningin að styðja
við bakið á Geðvemdarfélaginu á
Akureyri með því m.a. að mála
eitt af athvörfum þess í bænum.
Kaupþing Norðurlands hf.:
Hádegisverðar-
fundur með dr. Þor-
valdi Gylfasyni
Kaupþing Norðurlands hf. gengst fyrir hádegisverðarfundi á
morgun, fostudag, með dr. Þorvaldi Gylfasyni. Þorvaldur ætlar að
ræða þá stöðu, sem íslenskt þjóðarbú er í dag, hver séu vandamálin
sem við er að etja og hvaða leiðir séu vænlegar til árangurs.
Þorvaldur hefur víðtæka þekk- ton DC á árunum 1976-1981. Hann
ingu og reynslu á sviði þjóðhag-
fræði og hefur ákveðnar skoðanir
um stjómun efnahagsmála. Hann
hefur haldið fyrirlestra og skrifað
fjölda greina um það efíii í blöð og
tímarit, innlend sem erlend, segir í
fréttatilkynningu.
Þorvaldur lauk BA Econ-prófí í
hagfræði frá University of Manc-
hester í Englandi árið 1973 og varði
doktorsritgerð í þjóðhagfræði þrem-
ur árum síðar við Princeton Uni-
versity í Bandaríkjunum. Þorvaldur
starfaði sem hagfræðingur hjá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum i Washing-
hefur verið rannsóknarfélagi við
Institute for Intemational Ec-
onomic Studies við Stokkhólms-
háskóla í Svíþjóð 1978-1979 og frá
1981. Frá árinu 1983 hefur hann
gegnt stöðu prófessors í þjóðhag-
fræði við Háskóla íslands.
Þátttaka í hádegisverðarfundin-
um er öllum opin sem vilja fylgjast
með og taka þátt í umræðum um
efnahagsmál. Fundurinn verður í
Alþýðuhúsinu, 4. hæð, og hefst
klukkan 12.15. Þátttaka tilkynnist
til Kaupþings Norðurlands hf.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Unnið við útskipun brotajárns á Akureyri um borð í Dettifoss.
Brotajárn frá Akureyri
á markað í Hollandi
ÚTSKIPUN um borð f Dettifoss
á um 1.200 tonnum af brotajárni
Iðnlánasjóður:
Uppbygging iðnaðar í dreifbýli
Iðnlánasjóður gengst á næstunni fyrir ftindum um uppbygg-
ingu iðnaðar í dreifbýli og fer fyrsti fundurinn fram á Akureyri
f dag. Hann hefst á Hótel KEA kl. 15.30. Jón Magnússon formað-
ur stjórnar Iðnlánasjóðs verður fundarstjóri og mun Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra flytja ávarp á fyrsta fundinum í dag.
Markmið fundanna er að kynna dreifileiðir og samstarf við önnur
starfsemi Iðnlánasjóðs fyrir
stjómendum fyrirtækja og fulltrú-
um atvinnulífs í dreifbýli. Einnig
að vekja áhuga sljómenda fyrir-
tækja á nýsköpun, sameiningu
fyrirtækja og samstarfí þeirra.
Lögð verður áhersla á lánafyrir-
greiðslu, vöruþróun, markaðsmál,
tækni, afkastagetu, söluaðferðir,
fyrirtæki.
Bragi Hannesson bankastjóri
kynnir starfsemi sjóðsins og þá
fyrirgreiðslu sem hann veitir fyrir-
tælq'um. Þá flytur Þráinn Þor-
valdsson framkvæmdastjóri fyrir-
lestur um markaðsathuganir og
mat á markaðsþörf. Páll Kr. Páls-
son framkvæmdastjóri ræðir um
vöruþróun. Pétur Reimarsson
framkvæmdastjóri fjallar um
samstarf og samruna fyrirtækja
og Jafet S. Ólafsson útibússtjóri
flytur fyrirlestur um arðsemismat
á hugmyndum.
Næsti fundur fer fram á Hótel
Mælifelli á Sauðárkróki á morgun,
föstudag, kl. 15.30 og síðar verða
haldnir sams konar fundir á Akra-
nesi, ísafírði, Egilsstöðum, Vest-
mannaeyjum, Selfossi og
Keflavík.
lauk í gær á Akureyrí og verður
það flutt til Hollands. Það er
endurvinnsludeild Sindrastáls
sem séð hefur um að búta brota-
járnið niður og koma þvi um
borð í skipið. Búast má við að
um 700 tonnum til viðbótar verði
skipað um borð í annað skip á
næstu vikum. Annað brotajárn,
sem liggur við Glerárósa, verður
urðað á vegum Akureyrarbæjar.
Þess má geta að um 2.000 tonn
af brotajámi falla árlega til á Eyja-
flarðarsvæðinu og búast má við
að haugamir fari nú fyrst fyrir
alvöru að safnast upp í bænum þar
sem Sindrastál hefur í hyggju að
hætta brotajámsvinnslu nema til
komi samstarf sveitarfélaga. Á
landsvísu falla árlega til 16 til 18
þúsund tonn af brotajáni. Sindrast-
álsmenn hafa bent á að verktökum
víða um land sé greitt fyrir að
urða brotajámið í landi sveitarfé-
laganna. Það hlyti hinsvegar að
vera sveitarfélögum í hag ef þetta
rusl yrði einfaldlega endumnnið
og verktökum greitt fyrir það í
stað þess að greiða verktökum fyr-
ir urðun, sem tæki bæði mikið
landrými og væri auk þess meng-
unarvaldur ef til lengri tíma er lit-
ið. Sindrastálsmenn segjast hafa
talað fyrir daufum eymm sveitar-
stjómarmanna til þessa, en ef þessi
vandi yrði viðurkenndur í eitt skipti
fyrir öll, væri hægt að standa mjög
myndarlega að þessum brotajáms-
málum. Einnig má geta þess, að
allt það lélega brotajám, sem fallið
hefur til frá því að Sindrastál
hætti móttöku þess, hefði verið
hægt að vinna með þeim tækja-
kosti sem þegar er til í landinu. í
staðinn hafa tækin staðið nær
ónotuð.