Morgunblaðið - 20.10.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Óbærilegur léttleiki í Prag
Daniel Day-Lewis og Juliette Binoche í „Léttleikanum"; ást og
kynlíf, þungt og Iétt.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Óbærilegur léttleiki tilverunn-
ar(„The Unbearable Lightriess of
Being“). Sýnd í Bíóborginni.
Bandarísk. Leikstjóri: Philip
Kaufrnan. Handrit: Jean-Claude
Carriere og Philip Kaufman eftir
samnefndri sögu Milan Kundera
(Mál ogmenning, 1986). Framleið-
andi: Saul Zaentz. Kvikmynda-
taka: Sven Nykvist. Helstu hlut-
verk: Daniel Day-Lewis, Juliette
Binoche, Lena Olin, Derek de
Lint, Donald Moffat og Erland
Josephson. The Saul Zaentz
Company. 1988.
„Klæddu þig úr fötunum" er
uppáhaldssetning Tómasar (Daniel
Day-Lewis) í bandarísku myndinni
Óbærilegur léttleiki tilverunnar
(„The Unbearable Lightness of
Being"), sem gerð er eftir sam-
nefndri bók tékkneska rithöfundar-
ins Milan Kunderas og sýnd er í
Bíóborginni.
Tómas er heilaskurðlæknir í Prag
árið 1968 og óforbetranlegur
kvennabósi. Hann ræktar mjög kyn-
ferðislega vináttu en það þýðir að
engri ást er leyft að trufla sambönd-
in. Nakin kona er hans mesti unaður
og hans mesti munaður er að bind-
ast ekki neinni þeirra. Tómas leitar
alltaf léttleikans í tilverunni. Kynlíf
er létt, ástin er þung. Málarinn Sab-
ina (Lena Olin), sem hann sefur oft
hjá, skilur hann kannski best. „Mér
líkar svo vel við þig af því í heimi
ónýtisins værir þú skrýmsli."
Kannski er það refslegt augnaráð
Tómasar sem konur heillast af,
kannski liggur erótíkin í loftinu,
partur af fijálsræðinu í Prag 1968,
þetta fræga vor, sem er bakgrunnur
myndarinnar og markar djúp spor í
líf persónanna. Það má segja allt
og skrifa allt, skoða fortíðina gagn-
rýnum augum, deila á gömlu foringj-
ana, mannlífíð er fjölbreytilegt, tón-
list er leikin á götum úti, bítlalög
ryðja burt ættjarðarlögum. En hvað
með Rússa? Þeir geta ekkert gert
segir skælbrosandi útgefandi við
Tómas. Bjartsýni er partur af
vímunni.
Teresa (Juliette Binoche), litla,
ljúfa, sæta Teresa er það sem Tóm-
as aldrei vildi; stóra ástin í lífi hans,
sífellt afbrýðisöm útí hjákonurnar
sem Tómas hefur þó einhvemveginn
misst áhugann á. Hann er farinn
að koma sér hjá ástarfundum og lítur
á klukkuna þegar hann er með Sab-
inu. Tómas, sjálfsöryggi Tómas sem
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
þarf aðeins að segja Klæddu þig úr
fötunum og þær gegna, hefur litla
hugmynd um hvemig hann á helst
að snúa sér. Létt eða þungt. Ef
hann ætti tvö líf gæti hann prófað
sig áfram en hann hefur aðeins úr
einu að spila og það er eins og hann
ætli að klúðra því.
En þá hristast húsin og titra og
háværar vélardrunur skriðdreka ber-
ast utan af götunni. Rússum fínnst
nóg komið af málfrelsi og prent-
frelsi og umbótakjaftæði í þessu
landi Dubceks. Teresa, sem orðin
er ljósmyndari, hleypur út á götu
með myndavél og tekur myndir af
innrásarhernum, niðurlægingunni,
svívirðingunni, reiðinni. Ekkert verð-
ur aftur eins og það var.
Bók Kunderas virðist við fyrstu
sýn ekki auðveldust allra til kvik-
myndunar. Hún fer fram og aftur í
tíma í frásögn sinni af Tómasi, Ter-
esu, Sabínu og fleimm og er upp-
full af heimspekilegum vandamálum
sem höfundur veltir fyrir sér með
tilvísanir í Nietzsche, Kafka, Freud
og jafnvel Beethoven, sjónarhorn
sögunnar er á sífelldum þönum milli
[>ersóna, Kundera kemur stuttlega
inná merkingarfræði og leikur sér
með tvíræðni orða til að lýsa sam-
bandi Sabínu og Franz (elskhugi
hennar í Genf) — og allt tengist það
vorinu í Prag, innrás Rússa og
hvemig það er að vera Tékki.
Hvernig fer bandaríski leikstjór-
inn Kaufman, sem áður filmaði með
áhrifaríkum hætti m.a. endurgerð
geimvísindahrollvekju („The Invasi-
on of the Body Snatchers") og raun-
vemlegt geimvísindaæfintýri („The
Right Stuff“), að því að fílma „Létt-
Ieika“ Kunderas? Því er auðvelt að
svara. Hann gerir það sem verður
að gera þegar hvaða bók sem er,
er sett á filmu; hann einfaldar. I
ágætu handritinu, sem hann gerir
með Jean-Claude Carriere, gömlum
samverkamanni Bunuels, heggur
hann frá flestar vangaveltur og
heimspekilegar þenkingar Kunder-
as, slípar af forgmnn persónanna,
minnkar vægi sumra og aðrar hverfa
algerlega þangað til eftir stendur
ljóslifandi fyrir framan okkur falleg,
falleg ástarsaga Tómasar og Teresu.
Kaufman og Carriere hafa gert
unaðslega mynd úr bókinni, fyndna
og sorglega, ljósa og myrka, létta
og þunga eins og Parmenídus mundi
segja. Þriggja tíma kvikmyndaverk
getur varla verið án sinna teygðu
stunda en maður fínnur sjaldnast
fyrir tímanum hér. Erótískar
menntamannamyndir eins og „Létt-
leikinn" em sjaldséðar nú á dögum.
Hið erótíska andrúmsloft er mjög
magnað í myndatöku og lýsingu
Sven Nykvist og frábæmm samleik
Daniel Day-Lewis, Lenu Olin og
Juliette Binoche og nær hámarki
þegar Sabina og Teresa taka nektar-
myndir hvor af annarri í vinnustofu
Sabinu. Þá hefur Kaufman tekist
frábærlega vel að blanda saman
sinni mynd og sínu fólki í raun-
vemlegar fréttamyndir, hvort sem
er í svart/hvítu eða lit, af innrás
Rússanna í Tékkóslóvakíu. Eftir
hana fær myndin á sig annan blæ,
lýsing og myndataka breytist, verður
myrkari og þunglamalegri, von-
lausari þegar nýju valdhafamir hafa
gripið fólk heljartökum með eftirliti
og rannsóknum, gert alla undirgefna
og hrakið hina úr störfum, meira
að segja Tómas sem alltaf hugsaði
þó meira um erótík en pólitík. Eng-
inn hreyfír legg eða lið; með hinum
nýju hermm verður„hugleysi lífsstíll
fólksins".
En það er fyrst og fremst ástar-
saga Tómasar og Teresu sem Kauf-
man hefur hoggið útúr sögu Kunder-
as, sem snertir mann mest í lokin.
Það er ekki síst snilldarleik og seið-
andi persónutöfmm Daniel
Day-Lewis, sem kemur enn á óvart
í hlutverki Tómasar er axlar ham-
ingjusamur um síðir þunga tilver-
unnar, ogfrönsku leikkonunnar Juli-
ette Binoche, sem leikur Teresu, að
þakka. Leikarar myndarinnar koma
hvaðanæva að, frá Bretlandi,
Svíþjóð, Frakklandi og Bandaríkjun-
um svo eitthvað sé nefnt, svo„tékk-
neski hreimurinn" er mjög mismun-
andi en allur leikurinn er með mikl-
um ágætum.
Kaufrhan hefur leikstýrt óvenju
fallegum, óvenju sterkum, óvenju
áhrifamiklum kvikmyndaviðburði.
Farðu og sjáðu.
SIEMENS
Kæliskápur á kostaverdi!
KS 2648
• 144x60x60 sm (hxbxd).
• 189 I kælirými.
• 67 I fjögurra stjörnu frystihólf.
Verð: 39.900 kr.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
^ 26okí,
Ttl Trier....
4ra daga ferð á fínu verði hjá Faranda
Trier er heillandi borg sem býður allt það sem
íslenskur ferðalangur leitar eftir.
Trier er í Móseldalnum þeim eina sanna.
Nú getur þú heimsótt Trier, farið að versla,
og skoðað gamlar minjar, snætt á góðu veitinga-
húsi, slakað á, bitte... danke...
Trier er þýsk og sjálfri sér lík.
Ferðatilhögun: Flogið er til Lux frá Keflavík
þaðan er síðan klukkustundar akstur í rútu til
Trier, gist er á fyrsta flokks hóteli.
Verð: 21.300.-
Innifalið í verði flug, gisting og morgunverður.
Fá sæti laus
Pantaðu strax.
Ifarandi
Vesturgötu 5, sími 622420