Morgunblaðið - 20.10.1988, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Minning:
Ingibjörg Laufey
Pálmadóttir
Fædd 9. janúar 1961
Dáin 7. október 1988
Þegar ég heyrði að Ingibjörg
væri dáin, vildi ég ekki trúa þvf.
Ekki hún Ingibjörg sem hafði þrátt
fyrir erfíð veikindi barist harðri
baráttu fyrir því að fínna þann frið
sem hún þráði. Veikindi hennar
urðu henni um megn. Kallið var
komið.
Ingibjörg Laufeý Pálmadóttir
fæddist í Reykjavík 9. janúar 1961,
dóttir hjónanna Önnu Skaftadóttur
og Pálma Sigurðssonar.
Ég kynntist henni vel á unglings-
árunum, og það voru áhyggjulaus
ár, að manni fannst. Hún var allt
að því daglegur gestur á heimili
mínu, og ætíð aufúsugestur. Dóttír
mín og hún voru nánar vinkonur
allt til hinsta dags.
Ingibjörg var glæsileg stúlka og
háttprúð svo af bar. Hún var góðum
gáfum gædd og tilfínninganæm.
Hún hafði áhuga fyrir mörgu og
var mjög félagslynd.
Seinni árin hafði hún mikinn
áhuga fyrir trúarlegum og andleg-
um málum. Hún gekk í ýmis trúar-
félög og fór á námskeið hérlendis
sem erlendis. Hún hafði brennandi
áhuga fyrir hinu óútskýranlega og
því sem hulið er mannanna sjónum.
Það var sem hún hefði djúpstæð-
ari gáfur en flestir, og ef til vill var
það ástæðan fyrir að henni fannst
samfélagið ekki jákvætt sér.
Ég, sem kynntist Ingibjörgu vel,
hef það eitt að segja að hún var
dásamleg stúlka í hvívetna.
Fjölskyldu minni var hún einstak-
lega góð og hjálpsöm og er hennar
sárt saknað.
Að eiga ekki von á Ingibjörgu inn
um dymar á ýmsum tímum, spyij-
andi hæversklega hvort kaffí væri
á könnunni, er þungbært að skilja
og sætta sig við.
En í trausti þess og von að nú
líði henni vel, sefar sárasta tregann.
Minning hennar lifír.
Hvíli hún í guðs friði.
Ég votta ættingjum og vinum
hennar mína dýpstu samúð.
Hrafíihildur
Við kveðjum í dag, I hinsta sinn,
Ingibjörgu Pálmadóttur sem lést
aðeins 27 að aldri 7. október síðast-
liðinn.
Eftir áralanga baráttu við erfíðan
sjúkdóm þar sem okkur fannst Ingi-
björg og lífíð hafa sigrað, kvaddi
dauðinn skyndilega dyra og fór með
sigur af hólmi.
Ingibjörg var ákaflega næmur
persónuleiki enda vel greind. Á erf-
iðum stundum sem voru margar í
seinni tíð leitaði hún oft huggunar
í Biblíunni enda var hún leitandi
manneskja, trúuð og gátur tilver-
unnar henni ákaflega hugleikin við-
fangsefni.
Hún var mikil áhugamanneskja
um dulspeki og í þeim efnum var
hún hafsjór af fróðleik. Hún kynnti
sér fordómalaust margskonar
lífsstefnur og trúarbrögð og fetaði
sig áfram eftir þroskabrautinni á
margslunginn hátt.
Megi hún njóta guðs blessunar í
sínum nýju heimkynnum, umvafin
ljósi kærleikans.
Fjölskyldu hennar og aðstand-
endum sendum við okkar einlæ-
gustu samúðarkveðjur.
Helgi og Linda
Þann 7. október síðastliðinn bár-
ust mér þau hörmulegu tíðindi að
Ingibjörg frænka væri ekki lengur
á meðal okkar. Það er erfítt að
sætta sig við það. En þegar maður
hugsar um þau veikindi sem hún
barðist við síðustu árin, þá veit
maður að loksins hefur hún fundið
frið.
Ég kveð elsku Ingibjörgu með
söknuði og megi friður og Guðs náð
fylgja henni, handan við móðuna
miklu sem að skilur þennan heim
og þann heim þar sem hún dvelur
núna. Guð gefí foreldrum hennar
og systkinum styrk á þessari erfíðu
stundu.
Þórólfur Stefánsson
Ingibjörg Laufey Pálmadóttir er
við kveðjum nú hér í dag. fæddist
9. janúar 1961. Hún var á unglings-
aldri þegar við kynntumst henni
fyrst, blíðlynd, viðkvæm og minnti
á lítið blóm sem þarf sól og hlýju
til að njóta sín. Hún var dul og til-
finningar hennar voru mjög marg-
þættar. Bækur voru henni mikil
nauðsyn og mun hún hafa sótt í
þær mikla lífsfyllingu, enda vel
greind.
Þegar vinir eru burt kallaðir svo
snögglega þá sitjum við eftir í
spum. Hvers vegna hún svona ung?
Tilganginn þekkjum við ekki en við
emm þess fullviss að sá sem öllu
ræður hefur sinn tilgang í því sem
öðm. Nú er hún komin til betri og
bjartari heima þar sem ástvinir
hennar munu leiða hana á þeim
nýju brautum sem bíða hennar þar.
Minnumst hennar í bænum okkar
og megi guð varðveita sálu hennar.
Aðstandendum vottum við samúð
okkar.
Berirðu kvöld þér í bijósti
blæði í sál þinni undir
leitaðu að öðrum sem líða
Iétt þeirra þungbæm stundir.
Næði nepjan um sál þér
nístistu af rokveðursöldum
skýldu þá öðrum sem skjálfa
skapaðu yl banda köldum.
Kijúptu með allt sem þig angrar
að annarra þrautabeði
þá verður heil sérhver holund
og hugurinn þrunginn af gleði.
Andý, Gulla og Tóti.
í dag kveðjum við elstu systur
okkar, Ingibjöigu Laufey Pálma-
dóttur. Við fráfall hennar hefur
verið höggvið stórt skarð í systkina-
hópinn, sem aldrei verður fyllt.
Lífíð reyndist elsku systur okkar
oft og tíðum erfítt, en þó birti allt-
af upp um síðir.
Við gátum alltaf komið til Ingi-
bjargar með öll okkar vandamál.
Hún var góður hlustandi og ráð-
lagði vel. Hún átti trúnað okkar
allra og var sannur vinur í raun.
Ingibjörg lagði ekki mikið upp
úr veraldlegum gæðum, en lagði
mikla áherslu á að rækta andann.
Hún var mikill unnandi lista og
hafði næmt auga fyrir fegurð, og
þá sérstaklega innri fegurð. Trúin
á Guð var sterk, eins og kemur
fram í ljóðum þeim sem hún skildi
eftir sig. Þau eru dýrmætur sjóður
orða, sem við munum lesa á ókomn-
um árum, og leita-huggunar í.
Ingibjörg var yngstu systur okk-
ar, Onnu Höllu, meira en systir.
Hún átti mikinn þátt í uppeldi henn-
ar, og hafði mikil áhrif á lífsskoðan-
ir hennar.
Við þökkum elsku systur okkar
kærlega fyrir samfylgdina, og Birg-
ir stjúpfaðir hennar biður góðan guð
að blessa hana.
Ingibjörg mun ávallt eiga vissan
stað í hjörtum okkar allra og viljum
við enda þessa kveðju með hennar
eigin orðum:
Ljósið í mér,
ljósið þama úti.
Hver fruma full af ljósi
sem knýr líkamann.
Ljósið mitt sem stækkar
með auknum þroska
með auknum skilningi. Ast.
Ég er tengd ljósinu þama úti
sem miðlar okkur öllurn orku,
krafti til að komast í gegnum
þennan dimma táradal lífsins.
Ég elska mig,
ég elska þig,
ég eiska ykkur öll.
(I.LP.)
Anna Halla, Birgir örn,
Sigríður Ósk og Iitli
systursonurinn Pálmi.
t
Maðurinn minn,
ÞÓRÐURGUÐMUNDSSON
fyrrverandl verslunarstjóri,
Hvassaleitl 68,
lóst 19. október.
Margrót Slgurðardóttir.
t
Föðurbróðir okkar,
JENS DAVÍÐSSON
trásmiður,
Austurgötu 47, HafnarflrAI,
verður jarðsunginn fró Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 21. október
kl. 15.00.
DavfðÁ. Gunnarsson,
* Kristján Kristjánsson.
t
Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi,
GUNNAR SNORRI GUNNARSSON
fiskmatsmaður,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði fimmtudaginn
20. október kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Edda Ólafsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
LÁRUS JÓNSSON,
Laugarnesvegi 69,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 21. október
kl. 13.30.
Signý Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar og bróður minn,
DR. PÁLMA MÖLLER K
prófessor,
sem lóst í Birmingham, Alabama, 19. júní síðastliðinn, verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 24. október,. kl. 13.30.
Málfrfður Óskarsdóttir Möller,
Pálmi Möller,
Óskar Möller,
Jóhann Georg Möller, Þorbjörg Möller Leifs.
t
Eiginmaður minn, fósturfaðir og bróðir okkar,
INGVAR GUÐNASON,
Ljósheimum 8,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. október
kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hans eru vinsamlegast beðnir
að láta Hjartavernd njóta þess.
Valborg Guðmundsdóttir,
Eydfs Erna Ólsen
og systklni hins látna.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ELÍSDÓTTIR,
Túngötu 36, Reykjavfk,
verður járðsungin föstudaginn 21. október kl. 15.00 fró Fossvogs-
kapellu.
Vilhelmfna Adolphsdóttlr,
Ingi Adolphsson,
Konráð Adolphsson,
Höröur Adolphsson,
Bergur Adolphsson,
Elfs Adolphsson,
Guðlaug Adolphsdóttlr,
Guðmundur Ó. Eggertsson,
Svava Kjartansdóttir,
Edda Gunnarsdóttlr,
Halldóra Pálsdóttir,
Hlldigunnur Gestsdóttir,
Birna Julfusdóttir,
Ólafur Jónsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
EYJÓLFUR TÓMASSON,
Brekkubyggð 39,
Garðabae,
verður jarðsunginn fró Fossvogskirkju föstudaginn 21. október
kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á Krabbameinsfólag fslands.
Elfnborg
örn Eyjólfsson,
Helgi Eyjólfsson,
Óll Már Eyjólfsson,
Erna Eyjólfsdóttir,
Hrefna Eyjólfsdóttir,
Tómas Eyjólfsson,
Dröfn Eyjólfsdóttir,
og
Guðmundsdóttir,
Bryndfs Steinsson,
Svelndfs Sveinsdóttir,
Hafdfs Pálsdóttir,
Hjalti Þorvarðarson,
Ingi Vigfússon,
Marfa Hallgrfmsdóttir,
Loftur Pátursson
barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HREFNU KRISTÍNAR HJARTARDÓTTUR,
Grundargötu 18,
Grundarfiröl.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki á deild 11 -E
Landspítalans.
Ágúst Breiðfjörð, Marfa Ásgeirsdóttir,
Ásgeir Páll, Kristmann Jóhann og Hrefna Krlstfn.
t
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug við
fráfall og útför eiginkonu minnar, ömmu og tengdamóður,
SÓLRÚNAR M. GUÐBJARTSDÓTTUR
frá Drangsnesi,
Esjuvöllum 14,
Akranesl.
Guð blessi ykkur.
Guðmundur Ragnar Arnason,
Sólrún Guðjónsdóttir, Svava Hrund Guðjónsdóttir,
Mjöll Guðjónsdóttir, Guðmundur Ingþór Guðjónsson,
Dagný BJörk Þorgeirsdóttir.