Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 1
72 SIÐUR B
246. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
Prentsmiðja MorgTinblaðsins
Sveitarstjómarkosningar í Suður-AMku:
Hægrisveifla hjá
hvítum kjósendum
Jóhannesarborg. Reuter.
FYRSTU tölur í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í Suður-Afríku
bentu til töluverðrar hægrisveiflu meðal hvitra kjósenda í átt til íhalds-
flokksins sem vill beita hörkulegri kynþáttaaðskilnaðarstefnu. Svo virt-
ist sem vonir stjórnvalda um mikla kjörsókn svartra manna hefðu
ekki ræst. Andstæðingar kynþáttaaðskilnaðarstefinu Stjórnar S-Afríku
höfðu hvatt svertingja, kynblendinga og menn af indverskum uppruna
til að hundsa kosningamar til að „gefa kúgunarkerfínu ekki blæ lög-
mætis“ eins og Desmond Tutu erkibiskup orðaði það. Kosningamar í
gær vom hinar fyrstu i landinu þar sem menn af öllum kynþáttum
kjósa samtímis.
í frétt opinberrar útvarpsstöðvar
sagði að meira en fimmtungur af
2,5 milljónum skráðra svartra kjós-
enda hefði mætt á kjörstað til að
velja fulltrúa í 240 bæjar- og sveitar-
stjómir í byggðarlögum og hverfum
Reuter
Miklar öryggisráðstafanir vora á
kjörstöðum í Suður-Afiriku í gær.
í Athlone-hverfi svartra f Höfða-
borg þar sem þessi mynd var tek-
in sáust fáir kjósendur en þvi
fleiri laganna verðir.
svartra manna. í kosningum fyrir
fjórum árum greiddu 21% skráðra
svartra kjósenda atkvæði. í fréttinni
sagði að kosningaþátttaka hvítra
væri að öllum líkindum yfír 50%.
Afríska þjóðarráðið lýsti því yfír í
gær að herferð þess gegn kosning-
unum hefði náð góðum árangri og
svartir menn sætu heima þrátt fyrir
vonir hvítra um mikla kjörsókn
þeirra.
Leitað að fórnarlömbum feijuslyss
Reuter
Fiskimenn tóku í gær þátt í leit að farþegum sem
voru um borð í feijunni Donu Marilyn sem fórst í
fellibyl við Filippseyjar á mánudag. Fyrir mikla mildi
hefur tekist að bjarga 148 mönnum. A.m.k. 27 fór-
ust er feijan sökk og 300 er enn saknað.
Sjá frétt á bls. 26.
Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands í heimsókn í Moskvu:
Gorbaljsov lofar að láta
alla póhtíska fanga lausa
Líkur á áerreininpfi um fjölda slíkra fanffa í Sovétríkiunum
Moskvu. Reuter. ® ° ° "
HELMUT Kohl, kanslari Vestur- I væri liðið myndu sovésk stjórn-
Þýskalands, tilkynnti á frétta- | völd láta alla þá fanga Iausa, sem
Vesturlönd líta á sem pólitíska
fanga. Gennadíj Gerasímov, tals-
maður sovéska utanríkisráðu-
mannafundi í Moskvu í gær að
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
hefði heitið því að áður en árið
neytisins, vildi hins vegar ekki
staðfesta að slíkt loforð hefði
verið gefið á þriggja daga fundi
Kohls og Míkhails Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga.
Grænland:
Varaflugvöllur í Meistaravík
veldur stjórnmálaágreining'i
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgfen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins.
OTTO Steenholdt, þingmaður grænlenska
hægrisinnaða Atassut-flokksins á danska
Þjóðþinginu, segir i viðtali við grænlenska
útvarpið að Atlantshafsbandalagið íhugi
að nota flugvöllinn i Meistaravik sem vara-
herflugvöll. Slíkar hugmyndir hafi lifiiað
við efitir að Alþýðubandalagið hafi komið
í veg fyrir frekari NATO-framkvæmdir á
Islandi. Talsmenn grænlensku vinstri flokk-
anna segja, að Steenholdt geti ekki sam-
þykkt fleiri hernaðarmannvirki á Græn-
landi.
Otto Steenholdt á sæti utanríkismálanefnd
danska þingsins og er bundinn þagnarskyldu
en hefur samt skýrt frá því að Bandarílg'a-
menn hafí lengi haft áhuga á flugvelli nærri
Kólaskaga til að vega upp á móti hinni miklu
umferð sovéskra kafbáta við Norðaustur-
Grænland.
Flugvöllurinn í Meistaravík var upphaflega
ætlaður fyrir almenna flugumferð en danska
vamarmálaráðuneytið stóð undir rekstri hans
þangað til flugvöllur var gerður á Jameson-
landi. Þaðan hefur olíuleit við Austur-Græn-
land verið stjómað. Sá flugvöllur hefur síðan
tekið við almennri flugumferð til Scoresby-
sunds og völlurinn í Meistaravík verið lagður
niður.
Lars Emil Johansen, formaður hins vinstri-
sinnaða Siumut-flokksins, segir að menn þar
í flokki telji frekari hemaðarmannvirkjagerð
á Grænlandi ekki æskilega og Arqaluk Lynge
frá Inuit Ataqatigiit, sem er vinstra megin
við Siumut, segir flokk sinn ekki geta fallist
á gerð varaflugvallar fyrir NATO í Meist-
aravík. í viðtali við kommúnistablaðið Land
ogfolk í Danmörku segja þeir að óvissa undan-
farinna daga um afstöðu Bandaríkjamanna
til hemaðarmannvirkja og aðstöðu á Græn-
landi veki spumingar um hvort ekki sé rétt
að vamarsamningur Danmerkur og Banda-
ríkjanna frá árinu 1951 verði endurskoðaður
— að þessu sinni með þátttöku Grænlendinga.
Flokksformennimir tveir vísa til nýlegra upp-
lýsinga um að Bandaríkjamenn hafí í ágúst
lagt niður eina af fjórum DEW-ratsjárstöðvum
sfnum á Grænlandsjökli. Þeir segja að Banda-
ríkjamenn hafi tekið ákvarðanir án samráðs
við dönsku stjómina eða yfírvöld á Græn-
landi. Poul Schluter, forsætisráðherra Dan-
merkur, hefur beðið Bandaríkjamenn um skýr-
ingar á ákvörðununum varðandi Grænland.
Jörgen Wahl, skrifstofustjóri í danska vam-
armálaráðuneytinu, segir í viðtali við Land
og folk í gær að hugmyndimar um varaflug-
völl í Meistaravík hafí verið mótaðar í mann-
virkjanefnd NATO. Hann segir að NATO hafí
jafnvel í hyggju að veija 2 milljörðum danskra
króna (13,5 milljörðum íslenskra króna) í vara-
flugvöll fyrir bandarískar orrustuvélar sem
halda uppi eftirliti á Norður-Atlantshafi og
þar með í varaflugvöll fyrir Keflavíkurflug-
völl. Wahl segir að þessi áform séu „frum-
hugmyndir" sem ekki hafi verið tekin endan-
leg afstaða til. Hann bætir því við að komi
til framkvæmda þá muni NATO fjármagna
lagningu flugbrauta af hæfilegri lengd ásamt
lendingar- og fjarskiptabúnaði, flugskýlum og
sprengjuheldum eldsneytistönkum.
Á blaðamannafundinum nefndi
vestur-þýski kanslarinn engar tölur
um fjölda þeirra pólitfsku fanga sem
sleppt verður úr haldi. Ónafngreind-
ir fylgdarmenn Kohls í Moskvuheim-
sókninni segja að Kohl hafí afhent
Gorbatsjov lista með nöfnum 50
andófsmanna. Mannréttindasamtök
á Vesturlöndum áætla að 250- 300
samviskufangar séu í Sovétríkjun-
um. Gennadíj Gerasímov sagði í gær
að „tugir manna væru í sovéskum
fangelsum fyrir andsovéskan undir-
róður". Síðan Gorbatsjov komst til
valda hefur u.þ.b. 350 andófsmönn-
um verið sleppt úr sovéskum fang-
elsum.
Mannréttindasamtök fögnuðu í
gær yfirlýsingu Kohls en sögðu að
öllu skipti við hvað væri miðað þeg-
ar talað væri um pólitíska fanga.
Jeri Laber, framkvæmdastjóri
nefndar, sem fylgist með því að
ákvæðum Helsinki-sáttmálans sé
framfylgt, sagði til dæmis að sú
staðreynd að engar tölur hefðu verið
nefndar í Moskvu í gær um fjölda
fanga, sem láta ætti lausa, vekti
efasemdir um að sleppa ætti fleirum
en þeim 50, sem eru pólitískir fang-
ar samkvæmt sovéskri skilgrein-
ingu.
Kohl sagði ennfremur í gær að
hann styddi hugmyndir Sovétmanna
um að halda alþjóðlega ráðstefnu
um mannréttindamál árið 1991 að
vissum skilyrðum gefnum eins og
þeim að pólitískir fangar verði látnir
lausir, hætt verði að trufla útsend-
ingar vestrænna útvarpsstöðva til
Sovétríkjanna og þeim sem það vilja
verði leyft að flytjast frá Sovétríkj-
unum. Bandaríkjamenn og Bretar
hafa lagst gegn áformum Sovét-
manna um að halda mannréttinda-
ráðstefnuna á meðan þarlendir menn
eru í haldi vegna sannfæringar
sinnar.