Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
Hundana burt
eftirKristin Snæland
Vegna kosninganna, sem senn
fara fram með eða móti hundahaldi
í Reykjavík, hafa hundahaldarar
þegar tekið upp baráttu fyrir áfram-
haldandi hundahaldi. í grein eftir
grein og klausu eftir klausu lýsa
hundahaldarar því hversu vel hafi
tekist til um hundahaldið þessi ár
sem því hefur verið nauðgað upp á
borgarbúa. Borgarstjórinn Davíð
Oddsson, sem mun vera einn hunda-
haldaranna, hefur þegar lýst því
yfír að ekki sé víst að mark verði
tekið á niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar með eða móti hundahaldi í
Reykjavík. Vegna þessarar yfírlýs-
ingar borgarstjórans er afar áríð-
andi að hinn mikli meirihluti, sem
NÝTT SÍMANÚMER
67 42 22
Blikksmiðja Gylfa hf.
Vagnhöfða 7,112 Reykjavík
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR BREIÐHOLT
Laugarásvegur 39-75 Stekkir
Langholtsvegur45-108 Fornistekkur
Sunnuveguro.fi. MIÐBÆR
GRAFARVOGUR Gamli bærinn
Dvergabakki Ýmsargötur
JltangmiHaMfe
er gegn hundahaldi í Reykjavík,
skili sér við atkvæðagreiðsluna 24.
til 30. október næstkomandi. Mikill
meirihluti gegn hundahaldi er nauð-
synlegur til að koma viti fyrir hinn
harðsnúna en litla hóp hundahald-
ara í Reykjavík. Sá meirihluti er
til, hann verður bara að skila sér
við kosninguna. Hlutleysi í kosning-
unni er aðferð til að tryggja hunda-
skít, bit hunda og ónæðisgelt um
alla borg.
Hundaskítur
Þrátt fyrir fögur orð og sýni-
kennslu um það hvemig skuli þrífa
upp hundaskít, þá eru mörg svæði
í borginni þegar útbíuð í hundaskít.
Fyrst má þar til nefna Geirsnef,
svæði það sem hundahaldarar hafa
lagt undir sig. Þar bijóta hunda-
haldarar tvær aðalreglur hunda-
halds (löglegs), eða þær að ekki
má láta hundana ganga lausa í
borginni og hundaeiganda er skylt
að þrífa upp eftir hann skítinn.
Báðar þessar reglur eru þverbrotn-
ar þama og svo væla einstöku
hundaeigendur í Velvakanda yfir
því að grimmir hundar gangi þama
lausir. Reyndar hefí ég ekki enn séð
hundaeiganda kvarta undan hunda-
skítnum sem er þama um allt og
enn vil ég óska eftir því að tals-
menn hundaeigenda lýsi þeirri að-
ferð sem beita skal við hundaskíts-
þrif, þegar hundurinn er með stein-
smugu. Það mál hefur ekki verið
skýrt í sjónvarpi, hvorki fyrir mér
né hundaeigendum. Dæmi um það
hversu frekir eða tillitslausir hunda-
eigendur era, var yfirlýsing eins
þeirra í viðtali við Bjama Dag á
Stjömunni nýlega. Sá hundaeigandi
býr í vesturbænum og lýsti því fjálg-
lega hvemig hann beitti hundi
sínum á kamarinn og þyrfti alls
ekki að þrífa eftir hann. Jú, konan
fer með hundinn á óræktarsvæði í
nágrenni sínu og lætur hundinn þar
til skitu. Eftir að hundurinn hefur
lokið sér af þá pússar frúin væntan-
lega rassinn á hundinum en eftir
eigin lýsingu hirðir hún ekki skítinn
og hælist svo um, hún sé langt
komin með að rækta upp svæðið.
Nú fer ekki milli mála að um öll
óræktarsvæði í vesturbænum fer
§öldi bama og útivistarfólks. Þama
hælist einn hundaeigandinn um,
ekki aðeins það að láta hundinn
skíta án þess að þrífa eftir hann,
heldur einnig að hún láti hundinn
ganga lausan á svæðinu.
í þessu sambandi er rétt að taka
fram, að samkvæmt „eftirliti" mínu
er einmitt meirihluti hundaeigenda
þannig, að virða að engu reglur um
hundahald í Reykjavík. Framtíðar-
sýn hundaeigenda í Reykjavík er
því ljóslega þessi. Ágætur og fal-
legur hundaskítur um allt, enda er
hann græðandi, lausir hundar og
felMDNSENl
Viðurkenndur fyrir gæði og
einstakt notagildi.
Verð aðeins frá kr: 99.000.-
í burðar- eða bílaútgáfu.
BENCO hf.
Lágmúla^^íiBÍ^84077.
Kristinn Snæland
„Niðurstaðan er því sú
að þó að sumir séu svo
gerðir að geta ekki
eignast góða vini meðal
manna, er alger óþarfí
að láta þá komast upp
með að níðast á hund-
um.“
bítandi, en allt í lagi, hundamir era
svo góðir félagar, og bandormur í
fólki, því hundaeigendur, sem ekki
greiða leyfísgjaldið, koma að sjálf-
sögðu ekki með hundinn í lögboðna
hrejnsun.
Ég játa það að nokkur hluti
hundaeigenda fer að mestu eftir
reglum um hundahald í borginni.
Það er hinsvegar upplýst af hálfu
borgaryfírvalda að aðeins helming-
ur þeirra greiðir gjöld sín af hund-
unum og fær þá jafnframt hreins-
aða. Ástand hundahalds í Reykjavík
eftir þennan reynslutíma er því af-
leitt og sýnu verra en meðan það
var ólöglegt með öllu. Eina leiðin
til þess að losna við hundafárið úr
Reykjavík er því sú að vera ekki
hlutlaus, heldur mæta til kosning-
arinnar og greiða atkvæði gegn
hundahaldi í Reykjavík og láta ekki
loðið orðalag kosningarinnar
blekkja sig. Kjósa bara einfaldlega
gegn hundahaldinu.
Hverfíshundar
Nokkur dæmi um núverandi
hundahald í nágrenni mínu vil ég
nefna. Gatan mín er aðeins 300
metrar að lengd. Sama daginn sá
ég þijá lausa hunda í götunni. í
hverfísversluninni var hundur inni
og reyndar í taumi, neðar í hverfinu
var stelpukrakki með hund lausan,
og hjólaði með honum. Loks var
einn hundaeigandinn með lausan
hund, en lét hann elta ólina (vænt-
anlega tamningaratriði). Og enn,
blessaður íslenski fjárhundurinn í
Raufarhöfn:
blokkinni minni, hann gengur alltaf
laus og enn eftir sex ár hefí ég
ekki séð eigandann þrífa eftir hann
skítinn. Allt þetta fellur undir at-
huganir síðastliðinn hálfan mánuð.
Löglegt hundahald eftir ströng-
um reglum er þannig algerlega
misheppnað og þó hastarlegt sé,
þá sýnir reynslan að takmarkað
ólöglegt hundahald var miklu betra.
Við þær aðstæður höfðu hundahald-
arar sérstaka gát á hundum sínum,
létu þá ekki lausa og skítur sást
nánast ekki. Dæmið kemur því
þannig út, ef við bönnum hunda-
hald, þá má samt búast við ólögleg-
um hundum öðra hveiju, en þeir
verða þó vaktaðir vel og vandlega
af eigendum sínum og þeir verða
vitanlega örfáir og áberandi undan-
tekning. Ef þeir verða til vandræða
vegna lausagöngu, gelts eða skíts,
þá tekur kæra fljótt fyrir slíkt.
Valið stendur í kosningunni milli
þess að hafa löglegt hundahald, sem
jafnvel yfir 50% hundaeigenda virða
ekki, og þess að banna hundahald,
með þeim afleiðingum að nokkrir
hundar verða haldnir ólöglega í
borginni undir ströngu eftirliti eig-
enda. Þess vegna eigum við að fjöl-
menna í kosninguna og kjósa alfar-
ið gegn hundahaldi í Reykjavík.
Vinur mannsins
Síðastur manna mun ég mæla
gegn því, að hundurinn getur verið
góður vinur. Reyndar er hundurinn
svo lítilmótleg skepna að hann á
það til að láta vel að eiganda sem
að öllu jöfnu fer illa með hann.
Sumir hundaeigendur telja jafnvel
að því meir sem þeir beija hundinn
sinn, því betur sé hann taminn.
Þetta atriði hefur verið mér um-
hugsunarefni, því að sumt fólk er
þannig að það nýtur sín ekki nema
hafa einhvem til að kúga. Mér hef-
ur þess vegna stundum fundist að
það sé þó alltaf skárra að viðkom-
andi beiji hundinn sinn en konuna
eða bömin. Það hlutverk hundsins,
að taka á sig barsmíðar, sem ella
lentu á fjölskyldunni, er væntanlega
ómetanlegt. Þetta hlutverk í fjöl-
skyldulífí borgarinnar er það eina
sem ég teldi réttlæta hundahald í
borginni. Á hitt er þó einnig að líta
að þjónusta geðlækna og sálfræð-
inga er orðin svo aðgengileg að
hundahald í því skyni að veita bæld-
um ofbeldismönnum útrás, ætti að
vera óþarft með öllu. Niðurstaðan
er því sú að þó að sumir séu svo
gerðir að geta ekki eignast góða
vini meðal manna, er alger óþarfí
að láta þá komast upp með að
níðast á hundum. Mætum því í
kosninguna og kjósum gegn hunda-
haldi í Reykjavík.
Hrein torg, fögur borg. Láttu
ekki hundsins eftir liggja.
Höfundur er leigvbílstjóri í .
Reykjavík.
Kona sveitarstjóri
SIGURBJÖRGU Jónsdóttur hef-
ur verið falið að gegna stöðu
sveitasrstjóra á Raufarhöfn í
leyfí Gunnars Hilmarssonar.
Gunnar fékk fí-í frá störfum í
sex mánuði, en eins og alkunna
er settist hann með litlum fyrir-
vara í. formannsstól atvinnu-
tryggingasjóðs sem til var stofíi-
að um leið og ríkisstjórnin var
mynduð.
Gunnar kemur til með að gefa
sveitarstjóm Raufarhafnar svar
innan flögurra mánaða um það
hvort hann segir sveitarstjórastarfi
sínu lausu og ef svo verður að hann
hættir verður starfíð auglýst laust.
Þann tíma sem þama er um að
ræða hefur sveitarstjóm samþykkt
að fela Sigurbjörgu Jónsdóttur að
sinna starfi sveitarstjóra.
Sigurbjörg var kosin í sveitar-
stjóm Raufarhafnar í síðustu kosn-
ingum og hefur gegnt starfí oddvita
og varaoddvita. Hún er fædd og
uppalin á Raufarhöfn. Eiginmaður
hennar er Þórarinn Stefánsson
stýrimaður og eiga þau fjögur böm.
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
Sigurbjörg Jónsdóttir
Foreldrar Sigurbjargar era Jón
Guðmundsson sjómaður og Hrefna
Friðrikdsdóttir.
- Helgi